Þjóðviljinn - 22.01.1987, Side 15
Leikurínn
í tölum
Geir 1-0
1-1 Borchardt
Kristján 2-1
2-2 Wahl
Sigurður G. 3-2
Kristján 4-2
Alfreð 5-2
5-3 Wahl
5-4 Wahl
5-5 Wiegert
5-6 Wahl
5-7 Wahl
5-8 Schnell
5-9 Schnell
5-10 Borchardt
Guðmundur 6-10
Guðmundur 7-10
7-11 Schnell (hlé)
Þorgils Ó 8-11
Kristján 9-11
9-12 Wiegert
9-13 Wiegert
Bjarni 10-13
Þorgils Ó 11-13
11-14 Strau
Kristján /v 12-14
Bjarni 13-14
Þorgils Ó 14-14
Kristján /v 15-14
15-15 Wiegert
15-16 Schnell
Þorgils 17-16
Bjarni 17-16
17-17 Pysall
Alfreð Gíslason skoraði 1 mark
úr 5 skotum, átti 2 sendingar sem
gáfu mörk, tapaði bolta einu
sinni.
Bjarni Guðmundsson skoraði 3
mörk úr 6 skotum, fiskaði 3 víti,
tapaði bolta einusinni.
Geir Sveinsson skoraði 1 mark
úr 1 skoti, tapaði bolta einusinni.
Guðmundur Guðmundsson
skoraði 2 mörk úr 3 skotum, fisk-
aði 1 víti.
Kristján Arason skoraði 5
mörk úr 11 skotum (3 víti), átti 3
sendingar sem gáfu mörk, tapaði
bolta tvisvar.
Páll Ólafsson skoraði ekkert
mark, skaut4sinnum, átti2send-
ingar sem gáfu mörk.
Sigurður Gunnarsson skoraði
1 mark úr 7 skotum (mistókst
víti), átti 2 sendingar sem gáfu
mörk, tapaði bolta tvisvar.
Þorgils Óttar Mathiesen
skoraði 4 mörk úr 5 skotum, átti 1
sendingu sem gaf mark, tapaði
bolta tvisvar.
Karl Þráinsson spilaði mjög
lítið og Júlíus Jónasson kom ekki
inná.
Einar Þorvarðarson stóð í
markinu allan leikinn og varði 11
skot.
Eystrasaltsmótið
Pólverjar
sterkir
Pólland-Sovét 27-24.
Svíþjóð-Vestur-
Þýskaland 21-21
Pólverjarnir virðast vera mjög
sterkir um þessar mundir. Þeir gerðu
sér lítið fyrir í gær og unnu Sovét-
menn, 27-24, og var sá sigur mjög
sanngjarn. Hálfleiksstaðan var 13-10.
f Wismar, smábæ rétt hjá Rostock
gerðu Svíar og Vesturþjóðverjar
jafntefli, 21-21, og hafa Pólverjar því
forystuna eftir fyrstu umferðina.
A blaðamannafundi í gærdag var
sovéski þjálfarinn smeykur um gengi
sinna manna, sagðist vera með ungt
lið og brothætt, og var ekki of bjart-
sýnn á B-keppnina á Ítalíu í febrúar.
Þangað fara þrjú liðanna í Rostock,
Sovétmenn, Pólverjar og Vestur-
þjóðverjar, og ættu að vera í topp-
formi núna. íslendingar, Austurþjóð-
verjar og Svíar eru hinsvegar að
undirbúa sig undir Ólympíuleikana í
Suður-Kóreu á næsta ári. _m/VS
ÍÞRÓTTIR
Eystrasaltsmótið
Jafntefli í baráttunni
Leikreyndir íslendingar sex sekúndumfrá sigri í Rostock. Sóknarleikurinn
köflóttur, vörningóð. Frábærmarkvarsla SchmidtsforðaðiAusturþjóðverjum frá
fyrsta tapinu í Rostock
slit sem við höfum náð,“ sagði
Guðmundur Guðmundsson.
Einhver glæsilegustu úrslit ís-
lenska landsliðsins í handknatt-
leik, jafntefli 17-17 við brons-
þjóðina úr síðustu heimsmeistar-
akeppni, Austurþjóðverja, og
það á heimavelli hennar í Rostock
- í handknattleikshöllinni mikil-
fenglegu þar sem engin aðkomu-
þjóð hefur farið með sigur af
hólmi. Samt er maður ckki
ánægður - eiginlega svekktur. ís-
lendingar voru nefnilega aðeins
sex sekúndum frá sögulegum sigri
og það voru varnarmistök í lokin
sem komu í veg fyrir að fyrsta tap
Austur-Þýskalands í Rostock liti
dagsins Ijós.
Það voru bara tuttugu sekúnd-
ur eftir þegar Bjarni Guðmunds-
son komst inní sendingu, brunaði
upp völlinn og skoraði, 17-16
fyrir ísland. Vonlítilli stöðu, 5-10
og síðan 11-14, hafði verið snúið
uppí sigur, að því er virtist. En
þegar sex sekúndur lifðu af
leiktímanum galopnaðist miðja
íslensku varnarinnar, Peter Py-
sall var einn gegn Einari Þorvarð-
arsyni og gerðí engin mistök,
jafnaði 17-17.
„Ég hoppaði hæð mína í loft
upp, sá eini á áhorfendapöllu-
num, þegar Bjarni Guðmundsson
skoraði,“ sagði Jón Hjaltalín
Magnússon formaður HSI í sam-
tali við Þjóðviljann eftir leikinn.
„Við sáum að allt getur gerst í
handbolta, lciknum er ekki lokið
fyrrren flautað er til leiksloka.“
En voru það mistök hinna
slöku frönsku dómara sem réðu
úrslitum?
„Ég tel það, þeir áttu ekki að
stoppa klukkuna þegar Bjarni
skoraði. Engin töf varð á leiknum
við markið og klukkan hefði átt
að ganga áfram,“ sagði Jón
Hjaltalín. „Dómararnir gerðu
mikið af mistökum, þeir voru alls
ekki inní því sem var að gerast í
leiknum, og þeir flautuðu oft ein-
mitt þegar leikfléttur íslands voru
að ganga upp og skemmdu þær
þannig.“
,Jú, maður er svekktur yfir að
hafa ekki unnið, en við vorum
líka heppnir þegar Bjarni náði
boltanum og skoraði. Það er mjög
ánægjulegt að ná jafntefli við
Austur-Þjóðverja í Rostock, þeir
eru hreint ósigrandi hérna,“
sagði Þorgils Ottar Mathiesen
landsliðsfyrirliði.
„Þetta var grátlegt, maður sá
sigurinn blasa við. Vörnin mátti
ekki fara svona framarlega þarna
í lokin. En þetta eru ein bestu úr-
Rostock
Rússarnir
koma!
Forystumenn HSÍ eru í við-
ræðum við Sovétmenn um að fá
þá hingað bráðlega. Viðræðurnar
eru á frumstigi og ekkert hægt að
segja um hvort af verður eða hve-
nær. -m/VS
Eystrasaltsmótið
í dag gegn
Vesturþjóðverjum
íslendingar keppa í dag við
Vestur-Þýskaland í Rostock og
hefst leikurinn klukkan 16.30.
Jochem Fraantz, einn af snjöl-
lustu hornamönnum í heimi,
verður ekki með vesturþýska lið-
inu, er meiddur og verið að hvíla
hann fyrir B-keppnina í febrúar.
Þá er kappinn Wunderlich ekki
með lengur, þykir ekki faila nógu
vel inní liðið. Þýska liðið þykir
vera geysisterkt um þessar mund-
„Við vorum heppnir að jafna
þarna í lokin. En Island er með
mjög gott lið sem getur spilað vel
og sannaði það í þessum leik.
Kristján Arason var besti maður
íslands í leiknum í heild, ég hefði
að vísu átt að geta varið skotið
sem hann skoraði úr í byrjun
leiksins," sagði Wieland
Schmidt, sá 34 ára gamli snil-
lingur sem varði austurþýska
markið oft á undraverðan hátt.
Reyndar gaf Einar Þorvarðarson
honum lítið eftir - það var heims-
klassamarkvarsla sem þeir sýndu
báðir tveir í Rostock í gær.
„Liðið nýtti ekki tólf dauðafæri
og það gerði útslagið. Þetta var
ekki góður leikur, bæði lið gerðu
mikið af mistökum. En úrslitin
eru góð, þótt þau hafi ekki verið
aðaiatriðið fyrir þessa keppni.
Æfingin er númer eitt en það
skemmir ekki fyrir að ná góðum
VÍÐIR
SIGURÐSSON
Rostock
úrslitum í leiðinni,“ sagði Bog-
dan Kowalczyck þjálfari íslands.
Ánægja hans með úrslitin leyndi
sér ekki, en hann sagði að
Austurþjóðverjar hefðu sálræn
tök á íslenska liðinu. „Við töpuð-
um tvisvar fyrir þeim með einu
marki heima í vetur og núna
jöfnuðu þeir á síðustu stundu.“
„Það var Wieland Schmidt sem
bjargaði okkur í þessum ieik,“
sagði Paul Tiedemann þjálfari
austurþýska liðsins. „Mitt lið
gerði mikið af mistökum, nýtti
ekki hraðaupphlaup og skoraði
ekki þegar Island missti menn
útaf. En ísland á núna eitt besta
lið heims, sem hefur sýnt miklar
framfarir síðustu árin einsog
árangurinn sannar. Það réð líka
miklu í leiknum að Þorgils Óttar
tók Frank Wahl úr umferð og að
Peter Pysall nýtti ekki þá mögu-
leika sem við það opnuðust fyrir
honum,“ sagði Tiedemann. Um
þetta sagði Þorgils Óttar: „Þetta
var ekkert nýtt, ég hef tekið Wahl
áður svona úr umferð.“
Þegar ísland skoraði ekki í
sautján mínútur og Austur-
Þýskaland skoraði átta mörk í
röð og komst í 10-5 óraði engan í
íþróttahöllinni í Rostock fyrir því
að ísland ætti sigurmöguleika.
„Það sem gerðist á þessum kafla
var að þeir fóru að spila vörnina
mjög framarlega og við áttuðum
okkur ekki nógu snemma á
hvernig ætti að bregðast við því.
En þegar við höfðum gert það
komst leikur okkar í eðlilegt horf
á ný,“ sagði Guðmundur Guð-
mundsson.
Þegar litið er á leikinn sem slík-
an var hann ekki góður. Mikið
var um mistök og eftir góða byrj-
un var sóknarleikur íslands mjög
köflóttur. Skotnýting útispilar-
annavar mjög slök, Kristján, Sig-
urður, Páll og Alfreð skoruðu að-
eins fjögur mörk samtals utanaf
velli úr tuttugu tilraunum. En
laglegar fléttur sáust inná milli
sérstaklega í upphafskaflanum en
þá lék íslenska liðið best í
leiknum. Varnarleikurinn var
hinsvegar í heildina góður og þar
er Geir Sveinsson óðum að verða
lykilmaður, grimmur og baráttu-
Bjarni Guðmundsson var betri en enginn í leiknum í gær, kom íslendingum yfir
á síðustu mínútu og átti ágætan leik, skoraði þrjú mörk.
glaður og smitar þannig útfrá sér.
„Það kom í Ijós að leikflétturnar
gengu oft vel, en líka oft ekki nógu
vel. Strákarnir gerðu nokkur al-
varleg mistök í varnarleiknum og
þau má rekja beint til lítillar sam-
æfingar undanfarið,“ sagði Jón
Hjaltalín Magnússon.
Baráttan og seiglan í íslenska
liðinu voru til fyrirmyndar. ís-
land á nú leikreyndasta lið
keppninnar og það er farið að
koma í ljós - það var reynslan
sem var þyngst á metunum í gær.
Leikurinn og úrslitin verða lengi í
minnum höfð - það var bara svo
súrt að íslenska liðið skyldi missa
af þessu gullna tækifæri til að
verða fyrst þjóða til að sigra í
Rostock. VS
England
Arsenal og Liveipool
í undanúrslit
Ian Rush tryggði Liverpool
sæti í undanúrslitum enska
deildarbikarsins með marki rétt
fyrir leikslok gegn Everton. Arse-
nal komst einnig áfram með því
að sigra Nottingham Forest 2-0.
Hann var bæði jafn og harður
leikur Everton og Liverpool sem
fram fór á Goodison Park í gær-
kvöld. Snemma í fyrri hálfleik
þurfti bakvörðurinn sterki í liði
Liverpool, Jim Beglin að yfirgefa
völlinn fótbrotinn eftir samstuð
við Gary Stevens. Allt stefndi í
jafntefli þar til sex mínútum fyrir
leikslok að Ian Rush tryggði Li-
verpool sigur, 1-0.
Charlie Nicholas var maðurinn
á bakvið 2-0 sigur Arsenal á Nott-
ingaham Forest. Hann kom
Arsenal yfir strax á þriðju mfnútu
og átti heiðurinn af seinna mark-
inu sem Martin Hayes skoraði.
Arsenal hefur ekki tapað í síð-
austu 22 leikjum og síðasti leikur-
inn sem Arsenal tapaði var ein-
mitt gegn Nottingham Forest. í
þeim leik meiddist Charlie
Nicholas á hné og kostaði það
hann þrjá mánuði frá keppni.
Hann er nú greinilega búinn að
ná sér, skoraði sitt fimmta mark í
jafnmörgum leikjum.
Þá voru nokkrir leikir í þriðju
umferð bikarkeppninnar.
Chelsea sigraði Aston Villa 2-1
eftir framlengdan leik. Staðan
eftir venjulegan leiktíma var 1-1.
Chelsea mætir því Watford á úti-
velli í fjórðu umferð.
Norwich sigraði Huddersfield
2-4 á útivelli og mætir Wigan í
fjórðu umferð.
Þá sigraði Sheffield United
Brighton 1-2.
Einnig voru tveir leikir í
skosku úrvalsdeildinni. Aberde-
en sigraði Hearts 2-1 og Celtic
vann Hibernian 1-0.
Reuter/lbe
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15