Þjóðviljinn - 11.02.1987, Side 3
Staðgreiðslukerfi skatta
FRETTIR
Skattleysi
við 33.000
krónur
Frumvarpið lagt fram á þingi í dag
Stefnt er að því að leggja fram
frumvarp um staðgrciðslukerfi
skatta í þinginu í dag. Verði það
að lögum munu skattleysismörk
launþega verða 33.000 krónur
árið 1988. Á tekjur umfram
33.000 krónur leggst 34,75%
skattur, 28,5% af honum rennur
til ríkisins en 6,25% til sveitarfé-
laga í formi útsvars. Frá skatt-
upphæðinni dregst 11.500 króna
persónuafsláttur en allir frádrátt-
arliðir falla niður.
í stað sjómanna-og fiski-
mannafrádráttar kemur sjó-
mannaafsláttur af skattupphæð-
inni og verður hann 150 krónur
fyrir hvern lögskráðan dag á sjó.
Stundi viðkomandi skattgreið-
andi sjómennsku eingöngu fær
hann 150 krónur í afslátt fyrir
hvern dag ársins.
Barnabætur verða 12.625
krónur með fyrsta barni en
18.910 með hverju barni umfram
eitt. Barnabætur með börnum
einstæðra foreldra verða þó tvö-
falt hærri. Bæturnar greiðast út
beint sem og húsnæðisbætur sem
verða 55.000 krónur á ári í 6 ár
eftir að viðkomandi skatt-
greiðandi hóf byggingu eða kaup
á íbúð í fyrsta sinn. Húsnæðisbæt-
urnar skiptast á milli eignaraðila
íbúðarinnar.
Persónu-
afslátturinn
Pessar bætur verða greiddar
um það bil ársfjórðungslega, og
verða framreiknaðar samkvæmt
lánskjaravísitölu tvisvar á ári.
Við eftiráuppgjör samkvæmt
skattframtali kemur í ljós hvort
viðkomandi hefur greitt of lítið
eða of mikið og verða þá endur-
greiðslur greiddar með verðbót-
um á báða bóga, auk þess sem
dráttarvextir koma á vanskil
skattgreiðanda.
Framkvæmd skattgreiðslna er
á þann veg að hver skattgreiðandi
fær skattkort sem hann leggur inn
hjá vinnuveitanda sínum. Á kort-
inu koma fram upplýsingar sam-
kvæmt þjóðskránni um nafn,
heimili og svo framvegis. Vinnu-
veitanda ber að skila skattgreiðsl-
unum til skattyfirvalda.
Sé einstaklingur í fleiri en einu
starfi getur hann fengið auka-
kort.
Sé annað hjóna heimavinnandi
má leggja skattkort beggja inn
hjá vinnuveitanda þess sem úti-
vinnandi er og á hann þá rétt á
80% af persónuafslætti makans,
auk eigin afsláttar.
Persónuafslátturinn er færan-
legur innan eins árs þannig að séu
tekjur einhverja mánuði við eða
undir skattleysismörkum kemur
ónýttur persónuafsláttur til eft-
iráuppgjörs samkvæmt framtali
og dregst frá greiddum skatti með
verðbótum.
Ríkið tapar
Skattlagning á eignatekjur,
vaxtatekjur, leigutekjur og fyrir-
tæki verða með sama hætti og
áður og eru fyrir utan nýja kerfið.
Tekjur ársins 1987 verða skatt-
lausar en fari þær umfram 25%
mark milli ára hjá sjálfstæðum at-
vinnurekendum verður það sér-
staklega athugað af skattstjóra og
komi í ljós að teknanna er aflað
með grunsamlegum hætti koma
þær allar til skattlagningar.
Að mati nefndarinnar sem
unnið hefur frumvörpin mun
nýja kerfið þýða um 250-300
milljóna tap fyrir ríkissjóð. Skatt-
byrði einstaklinga lækkar því
eitthvað og samkvæmt útreikn-
ingum nefndarinnar mun skatt-
byrði hjóna sem hafa um 1600
þúsund í árstekjur lækka eitthvað
en hækka að sama skapi eða hald-
ast óbreytt hjá þeim sem eru þar
fyrir ofan.
Nefndin telur að eftirlit með
skattskilum verði auðveldara
með einfaldara kerfi þar sem tími
og mannskapur sparast við það. í
frumvarpinu eru þó ekki neinar
nýjar reglur um skatteftirlit.
-vd.
Sturlumálið
Frávísun fra íhaldinu
Ólafur G. Einarsson reiðir sig á stuðning Framsóknar og jafnvel krata. Steingrímur
J. Sigfússon: Hneyksli efkomið verður í vegfyrirþinglega meðferð frumvarpsins
Þrír prestar
voru vígðir til embættis um sl. helgi.
Þeir eru: Arnfríður Guðmundsdóttir
26 ára Siglfirðingur sem hefur verið
ráðin aðstoðarprestur í Garðasókn á
Kjalarnesi, Gunnlaugur Stefánsson,
34 ára Hafnfirðingur sem skipaður
hefur verið sóknarprestur í Heydölum
og Karl Valgarður Matthíasson, 34
ára Snæfellingur sem settur hefur
verið sóknarprestur í Súgandafiröi.
Sjálfstæðismenn munu flytja
frávísundartillögu við frum-
varp Ingvars Gíslasonar, Guð-
mundar Bjarnasonar, Steingrims
J. Sigfússonar og Kristínar Hall-
dórsdóttur um að Hæstiréttur
skipi rannsóknarnefnd í fræðslu-
stjóramálið. Leggja þeir áherslu
á að frumvarpið verði tekið til
afgreiðslu strax í dag og virðist
Ólafur G. Einarsson formaður
þingflokks Sjálfstæðismanna
reiða sig á stuðning annarra
Framsóknarmanna og jafnvel
krata við frávísunartillöguna.
Fyrir þinginu liggja líka tvær
þingsályktunartillögur um sama
mál frá Stefáni Valgeirssyni og
frá Jóhönnu Sigurðardóttur og
fleiri Alþýðuflokksmönnum. I
útvarpsviðtali í gærkvöld sagðist
Ólafur G. Einarsson ekki telja að
aðrir Framsóknarmenn stæðu að
baki þeim Ingvari og Guðmundi
og gerði því skóna að Alþýðu-
flokksmenn myndu líka styðja
vantraustið. í greinargerð með
ályktunartillögu þeirra segir m.a.
að frumvarp Ingvars og félaga
„spilli fyrir farsælli lausn málsins“
og taldi Ólafur þetta sýna að þeir
væru á móti frumvarpinu. Tillaga
þeirra gengi líka mjög í þá átt sem
menntamálaráðherra hefði boðið
norðanmönnum.
Steingrímur J. Sigfússon sagð-
ist í gærkvöldi ekki trúa því að
Alþýðuflokksmenn myndu koma
í veg fyrir að frumvarpið fengi
þinglega meðferð. „Það er tvennt
ólíkt að styðja ákveðna málsmeð-
ferð eins og við leggjum til og svo
hitt að stöðva þinglega meðferð
málsins,“ sagði hann. „Það yrði
hreint hneyksli ef Framsóknar-
þingmenn, hvað þá kratar koma í
veg fyrir að frumvarpið fái þing-
lega skoðun eins og hin rnálin".
-ÁI.
BSRB
Samflotið í strand
Lítil hreyfing á viðrœðum. Félögum SFR boðið 3V2% hœkkun
Nú hefur tilraun aðildarfélaga
BSRB til samflots í yfirstandandi
samningaviðræðum endanlega
siglt í strand og var formlega sam-
þykkt í fyrrakvöld að í áfram-
haldandi samningaviðræðum fari
hvert félag með viðræðurnar
sjálft. Félögin náðu aldrei að
komast að samkomulagi um
hcildar kröfuger ð.
Eins og kunnugt er hafa
sveitafélögin nú náð samningum
við sína viðsemjendur, að unðan-
skildum þremur sveitafélögum,
Reykjavík, Akranesi og Siglu-
firði. Auk þessara félaga á Starfs-
mannafélag ríkisstofnana eftir að
semja og 13 félög ríkisstarfs-
manna. Samkvæmt heimildum
Þjóðviljans hefur SFR fengið til-
boð frá ríkinu sem hljóðar uppá 3
1/2% hækkun en það tilboð fékk
ekki góðar undirtektir.
—K.Ól.
BILAHA PPDRÆTTI
HANDKNA TTLEIKSSAMBANDS ÍSLANDS 9. feb. var dregið um 50 Fiat Uno 45
Eftirtalin númer drógust út:
10 53085 103379 167816 207781
8699 55600 116515 169243 209860
9370 60068 119111 169796 212740
23090 60931 125056 171192 219882
26280 69560 140018 175084 241686
29801 73405 142254 186457 255192
30112 79835 151494 187125 256959
31938 80306 152047 195505 258236
52702 100927 159405 199493 261935
52985 100976 165051 200648 269694
HSÍ þakkar landsmönnum góðan stuðning við landsliðið okkar.