Þjóðviljinn - 24.02.1987, Blaðsíða 2
Telurðu að 12%,
verðbólguspá Þjóð-
hagsstofnunar,
standist í ár?
Hrönn Helgadóttir:
Spáin er byggð á of mikilli
bjartsýni. Hún stenst ekki. Ég hef
trú á að verðbólgan verði örugg-
lega 15% í ár ef að líkum lætur.
Kristín Sveinbjörnsdóttir:
Ég hef enga trú á að þessi spá
standist. Hún er byggð á mikilli
bjartsýni. Verðbólgan verður ca.
15-20% í ár.
Kristberg Óskarsson:
Ef fer sem horfir þá gæti þessi
spá staðist. Ég reikna allavega
með þvi. En kannski er þetta bara
óskhyggja.
María Jóhannsdóttir:
Ég hef ekkkert álit á þessum
spám. En ef vilji er fyrir hendi þá
gæti þessi spá kannski staðist.
Finnur Magnússon:
Já. Ég tel að þessi spá standist
og verði jafnvel minni nema ef til
kæmu breytingar á forsendum
hennar sem ekki er séð fyrir í
dag.
FRETTIR
Happadrœttin/Lottó
Baráttan um markaðinn
SÍBS: Samdráttur um 8-10% Getraunir: Samdráttur um 10-15% HHI:
Höldum okkar hlut. DAS: Samkeppnin enn óreynd
Það er mikil og hörð barátta á
happdrættismarkaðnum í
dag og ég neita því ekki að á þeim
stöðum þar sem Lottóið er til sölu
höfum við orðið vör við samdrátt
i sölu okkar miða, ca. 8-10% en
haldið okkar hlut þar sem Lottóið
er ekki til staðar, - segir Ólafur
Jóhannesson hjá SÍBS.
Svipaða sögu hafði Birna Ein-
arsdóttir hjá Getraunum að
segja. Þar hefur sala á getrauna-
seðlum dregist saman úr 10-15%
Frá því að Lottóið tók til starfa
fyrir 12 vikum hafa landsmenn,
sem eiga þess kost, keypt Lottó-
miða fyrir 137 milljón króna.
- Hjá okkur í Happdrætti Há-
skólan íslands höfum við ekki
merkt neinn samdrátt í sölu
miða. Við höldum okkar hlut og
okkar viðskiptamenn halda
tryggð við happdrætti HÍ. Ég
held að hin mikla sala í Lottóinu
sé hrein viðbót á markaðnum. -
segir Jóhannes L.L. Helgason hjá
happdrætti Háskóla íslands.
- Happdrættisárið hjá okkur
byrjar ekki fyrr en í vor svo ég
veit ekki hvernig við hjá DAS
komum til að standa okkur í sam-
keppninni við Lottóið. Ég held
þó, án þess að vita það með vissu,
að það séu litlu happdrættin sem
blæði mest vegna Lottósins. Fólk
hendir þeim jafnharðan í körfuna
um leið og þau berast inn um
bréfalúguna, - sagði Baldvin
Jónsson hjá DAS.
- g r.h.
„Brosnámskeiðið‘'semstarfsfólkFlugleiðaverðursentánæstudagavarreyntástjórnendumfélagsinsfyrirskömmuog virðist hafa lukkast bærilega eftir
myndinni að dæma. „ , _
Farþegaflug
Brosandi starfsmenn, betri þjónusta
Sæmundur Guðvinsson: Góður andi á vinnustað leiðir til betri þjónustu við viðskiptavini
Þetta eru svipuð námskeið og
SAS var með og var kallað
brosherferðin, nema að allir okk-
ar 1800 starfsmenn sækja þessi
námskeið, en ekki bara þeir sem
umgangast viðskiptavinina, sagði
Sæmundur Guðvinsson, blaða-
fulltrúi Flugleiða.
„Námskeiðin hefjast í mars-
byrjun og verða um 60 manns í
hverjum hópi og hvert námskeið
tekur tvo daga, samtals 16 tíma
og er markmið námskeiðanna að
laða fram hið jákvæða í fólki og
kenna því að fást við vandamál
sín, bæði heima og á vinnustað,
og leysa úr þeim.“
Þá verða markmið og stefna
Flugleiða kynnt á námskeiðunum
og leitað eftir áliti starfsmann-
anna á þeim málum.
Stjórnunarfélag íslands sér um
námskeiðin, sem eru dönsk að
uppruna, en þýdd og staðfærð af
Hauki Halldórssyni, sem einnig
kennir starfsfólki Flugleiða.
-sá.
Sjósetningarvagn
nær tilbúinn
Mikill hugur í Mýrdœlingum. Búastmá við stóraukinni sjósókn
þaðan í sumar
Sjósetningarvagninn verður
væntanlega tiibúinn eftir hálf-
an mánuð.
Verður hann staðsettur í fjör-
unni og ýtt út með jarðýtu og
fljóta bátarnir þar af honum.
Kostnaðurinn við smíðina verður
eitthvað um 200 þúsund kr. þrátt
fyrir að mikið af smíðinni sé unn-
ið í sjálfboðavinnu - segir Reynir
Ragnarsson í Vík í Mýrdal.
Nokkrir einstaklingar í Vík
hafa tekið sig saman um smíði
sjósetningarvagns til að auðvelda
sjósókn þaðan. Enda mjög stutt á
fengsæl fiskimið þar út frá. Verð-
ur notast við 2-3 tonna hraðbáta.
Hingað til hafa Mýrdælingar
notast við svokallaðan bátabíl
sem er 8 tonna, búinn 300 hest-
afla díselvél. Er honum ekið út í
sjóinn og er þá sem bátur. Af
afloknum róðri er honum keyrt
upp á land og er þá sem bíll.
Aflinn sem veiddur er á hand-
færi er seldur sem soðmatur í
verslanir og í sveitirnar í kring.
Einnig er hann verkaður í salt.
Með tilkomu sjósetningar-
vagnsins má búast við aukinni
sjósókn frá Vík sem að sjálfsögðu
verður kvótalaus.
- g-r.h.
Snjómokstur
Helmingi
minna í vetur
- Þetta er eins og hjá slökkvi-
liðinu. Yfir vetrarmánuðina
erum við með mannskap og tæki
ávallt tilbúin til snjómoksturs ef
ske kynni að hann færi að snjóa
og því fylgir alltaf einhver kostn-
aður, - segir Ingi Ú. Magnússon
gatnamálastjóri.
Kostnaður vegna snjómokst-
urs frá 1. október til áramóta
1986 nam 14 milljónum króna en
frá áramótum til dagsins í dag að-
eins 3 milljónir. Samtals eru það
17 milljónir sem borgarsjóður
hefur þurft að borga til snjó-
moksturs það sem af er þessum
vetri.
í fyrra nam heildarkostnaður
vegna snjómoksturs 35
milljónum króna. Frá janúar til
apríl í fyrra nam hann 21 milljón
króna.
Miðað við allt árið í fyrra og
það sem af er þessu ári er kostn-
aður vegna snjómoksturs í
Reykjavík helmingi lægri.
g.r.h.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðiudagur 24. febrúar 1987