Þjóðviljinn - 04.03.1987, Side 3

Þjóðviljinn - 04.03.1987, Side 3
“ÖRFRÉTTIR^ Sovésku stórmeistararnir Mikaíl Tal og Lév Polúgaevskí, tefla fjöltefli á vegum MÍR í sam- komusal Farmanna- og fiski- mannasambands Borgartúni 18 í kvöld. Tafliö hefst kl. 20.00 en húsið opnar kl. 19.00 Öskudagurinn veröur haldinn hátíðlegur hjá börnunum í dag. í Reykjavík verður mikið um að vera á Lækj- artorgi þar sem íþrótta- og tóm- stundaráð stendur fyrir mikilli há- tíð en börn og unglingar sjá um allar uppákomur. Hátíðin hefst kl. 13.00. Bókin íslensk fyrirtæki 1987 er nýkomin út. í fyrirtækjaskránni er greint frá 9.500 starfandi fyrir- tækjum í landinu. Einnig er í bók- inni vöru- og þjónustuskrá og skipaskrá. Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn hafa lagt til í borg- arráði að Reykjavíkurborg kaupi framvegis ekki steypu frá öðrum steypustöðvum en þeim sem veita 10 ára ábyrgð á steypunni. Tillögunni hefur verið vísað til umsagnar borgarverkfræðings. Páskabann smábáta 10 lestir og minni tekur gildi að kvöldi 11. apríl n.k. og stendur fram til 21. apríl. Allar þorskneta- veiðar hjá öðrum bátum eru bannaðar í viku yfir páskahátíð- ina frá 14.-21. apríl. Banaslys í umferðinni Banaslys varð í umferðinni á ísafirði sl. föstudag, þegar Niss- an Patrol jeppi og Volvo bifreið skullu saman í hörðum árekstri. Maðurinn sem lést hét Þór Alex- andersson fæddur 10. október 1965 til heimilis að Nesbala 18 á Seltjarnarnesi Hann lætur eftir sig unnustu og tveggja ára dótt- ur. Mennirnir sem létust Mennirnir sem létust í umferð- arslysi norðan við Tíðaskarð á Kjalarnesi sl. sunnudag voru: Gísli Andrésson bóndi að Hálsi í Kjós. Hann var fæddur 14. nóv- ember 1917. Hann lætur eftir sig eiginkonu og níu uppkomin börn. Jónas Ewald Jónasson fædd- ur 2. október 1962, til heimilis að Köldukinn 29 í Hafnarfirði. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvær dætur, sjö og fjögurra ára. Kristján Loftsson: Ruglað lið hjá Sea Shepherd. Drápum engan hval undir lágmarkslengd. FRÉTTIR Steypuverð Hermang í steypunni Víglundur Þorsteinsson: Steypumarkaður hefur dregist verulega saman. Sementsverksmiðjan notið góðs afframkvœmdum á Keflavíkurflugvelli, en reykvískar steypustöðvar ekki Verð á steypu er fyllilega sambæriiegt við það sem ger- ist í Evrópu sé þáttur sementsins undanskilinn, en sementið er dýr- ara hér. Sementsverð hefur þó heldur lækkað að raungildi, trúlega fyrst og fremst vegna þess að Sements- verksmiðjunni hefur tekist að lækka verulega framleiðslukostn- að með því að nota kol í stað olíu,“ sagði Víglundur Þorsteins- son forstjóri Steypustöðvar BM Vallár við Þjóðviljann í gær. Steinsteypa hefur verið mjög ofarlega á baugi að undanförnu, sérstaklega eftir að í hámæli komst að steypa frá a.m.k. einni stöð hér í Reykjavík reyndist ónýt og að aðeins er ársábyrgð á steypu eins og á hverju öðru lausafé. Neytendafélag Reykjavíkur hefur sent frá sér fréttatilkynn- ingu og í henni segir m.a. að brýnt sé að sett verði skýr ákvæði um eftirlit með og um framleiðslu á steypu svo tryggt sé að neytend- ur fái þá vöru sem þeim sé lofað samkv. vörulýsingu. Fyrir skömmu svaraði iðnaðar- ráðherra fyrirspurn frá Skúla Al- exanderssyni um verð á steypu og sementi. Kom fram í svari ráð- herra að á árunum 1983-1986 hef- ur sement hækkað um alls 74,4% en steypa tæp 112% Þjóðviljinn spurði Víglund Þorsteinsson hvernig á þessum mun stæði: „Á síðustu þrem árum hefur steypumarkaður dregist verulega saman, svo fastakostnaður steypuverksmiðjanna er borinn uppi af færri framleiðslueining- um en áður var. Steypuverksmiðjurnar í Reykjavík hafa ekki notið upp- sveiflunnar sem Sementsverk- smiðjan hefur notið vegna fram- kvæmda á Keflavíkurflugvelli. Þangað hefur verksmiðjan selt mikið sement undanfarin ár. Sementsverksmiðjan hefur ekki tapað krónu á erfiðleikum húsbyggjenda á árunum 82- 84 en steypustöðvarnar hins vegar miljónum í glötuðum útlánum til húsbyggjenda sem misst hafa sitt. —sá. Steypumarkaðurinn hefur dregist verulega saman síðustu ár vegna erfiðleika húsbyggjenda. Verðlagsmálin Bændur bálillir Stjórnarfundur Félags kúabænda á sunnanverðu Snæfellsnesi: Óþolandi að tekjulœgsta stétt landsins sé neydd til að gefa eftir réttsinn til launajöfnunar Stjórn Félags kúabænda á sunnanverðu Snæfellsnesi hefur mótmælt harðlega þeirri frestun á hækkun á launalið verð- lagsgrundvallar sem tók gildi fyrsta mars. „Það er óþolandi,“ segja bændur, að langtekjulægsta stétt landsins sé neydd til að gefa eftir sinn rétt til launahækkunar til lengri eða skemmri tíma. Einnig essir menn eru ruglaðir og ekkert að marka þá. Við höf- um ekki veitt neina hvali undir lögboðinni lágmarkslengd. Það er hægt að ganga úr skugga um það, því hver hvalur er veginn og lengdarmældur þegar hann kem- ur í Hvalstöðina. Það kemur að vísu fyrir að einn og einn hvalur undir lengd er skotinn. Hjá því er ekki hægt að komast. En ég full- yrði að svo var ekki síðasta sum- lýsir fundurinn yfir vanþóknun sinni á ummælum forsætisráð- herra, Steingríms Hermanns- sonar og á gerðum forseta A. S. í., Ásmundar Stefánssonar og hót- unum þeirra í garð bænda. Finnst stjórninni skjóta veru- lega skökku við að um leið og stjórnvöld ásamt aðilum vinnu- markaðarins lýsa vilja sínum um að lægstu laun hækki verulega forstjóri Hvals hf, þegar Þjóðvilj- inn bar undir hann staðhæfingar Paul Watson, um að Sea Shep- herd samtökin hefðu undir hönd- um sannanir um að Hvalur hf hefði veitt dýr undir lágmarks- lengd. „Samkvæmt mínum bókum var einn undirmálshvalur drep- inn sumarið 1985, og þá var jafn- framt veidd ein hvalkýr með mjólk í júgrum. En mjólkandi kýr má ekki heldur veiða,“ sagði Kristján Loftsson. umfram önnur laun í landinu, þá skuli þessir aðilar ganga fram fyrir skjöldu til að halda niðri launum bændastéttarinnar sem sannanlega hefur lægst laun allra stétta landsins. Fundurinn fagnar afstöðu full- trúa neytenda í sexmannanefnd í þessu máli. -sá. Hann staðfesti að menn Sea Shepherd hefðu stolið skjölum úr Hvalstöðinni síðasta haust, þegar skemmdarverkin voru framin. „En það var erfitt að átta sig á hvaða skjöl hurfu. Þeir helltu skít og sora yfir allt saman. En vissu- lega var einsog þeir hefðu á hreinu hvað þeir væru að leita að. Einsog einhver hefði leiðbeint þeim. Mér finnst persónulega að kunnugir hafi sagt þeim eftir hverju, og hvar, bæri að leita.“ Endurmenntun HÍ: Sívaxandi þátttaka Margrét Björnsdóttir endurmenntunarstjóri: Höfum haldið 200 námskeið - námstefnur og kynningar. Hátt á 4. þúsund þátttakendur „Þessi endurmenntunarnám- skeið hafa mælst mjög vel fyrir og þátttakan er sívaxandi,“ segir Margrét Björnsdóttir endur- menntunarstjóri Háskóla ís- lands. Frá haustinu 1983 hefur Há- skóli íslands í samvinnu við Tækniskóla íslands, Bandalag háskólamanna, bandalag fram- haldsskólakennara, félag tækni- fræðinga og félag verkfræðinga, haldið endurmenntunarnám- skeið fyrir háskólamenntað fólk í atvinnulífinu og aðra sem þess óska. En þessi námskeið eru öllum opin. Til dagsins í dag hafa verið haldin 200 námskeið - námstefn- ur og kynningar í endurmenntun. Fjöldi þátttakenda er kominn hátt á 4. þúsund. Karlar eru í meirihluta af þátttakendum a.m.k. á verk- og tæknisviðum. Þá er frekar um það að yngra fólk sæki í endurmenntun heldur en eldra fólk. Kennsla í hverju endurmennt- unarnámskeiði fyrir sig er mis- munandi, allt frá 10 tímum í 60 tíma. Þátttakendur þurfa að greiða kennslugjald sem oftast nær er borgað af viðkomandi fyrirtæki sem sendir starfsmenn sína í endurmenntun. grh ar. Þetta sagði Kristján Loftsson, Miðvikudagur 4. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Hvalur hf. Sea Shepherd lýgur Kristján Loftsson: Ruglaðir menn. Ein hvalkýr með mjólk íjúgrum og einn undirmálshvalur veidd 1985. Enginífyrra. Strangt eftirlit. Stálu bókum verkstjóra. Höfðu þeir leiðsögn?

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.