Þjóðviljinn - 04.03.1987, Blaðsíða 4
Þaö ríkir góöæri í landinu.
Tölfræðingar meö hálft dúsín af háskóla-
gráðum á bakinu eiga ekki í miklum vandræö-
um meö aö sanna þaö fyrir hverjum sem hafa
vill.
En þaö hefur aftur á móti vafist fyrir mörgum
almúgamanninum aö skilja þessi sannindi hag-
fræöinganna. Fólk þarf nefnilega ekki mikla
menntun í tölfræöi til aö skilja, hvort þaö hefur
meira úr aö spila en áður. Það þarf ekki einu
sinni aö kunna aö reikna.
Einmitt vegna þess hafa stórir hópar manna
átt giska erfitt meö aö finna góðæriö á sjálfum
sér. Einfaldlega af því aö þeir hafa þaö ekkert
betra en áður, þrátt fyrir allt hjalið um blessað
góðærið.
Samt sem áöur er staðreynd, aö árgæska
hefur verið meiri til lands og sjávar en um
langan aldur. En þaö er bara allt annaö en að
fólkið á töxtunum upplifi góöæri. Og þaö eru
einmitt hinir dæmigerðu láglaunahópar, sem
með vaxandi þunga spyrja:
Hvert fór góöærið?
Nú er því engan veginn aö leyna, aö í kjölfar
óvanalegrar árgæsku hefur fólk það aö meðal-
tali nokkuð gott, og vissulega betra en áöur.
En bara að meöaltali. Sumir lifa alls ekki viö
betri efni þrátt fyrir góðæriö. Þaö þýðir einfald-
lega að aörir hafa það miklu betra en áöur. Þeir
njóta góöærisins í miklu ríkari mæli en venju-
legir íslendingar.
Vegna þessa hefur einmitt Þjóðviljinn stund-
um verið að velta vöngum yfir því, hvert góöær-
iö hafi í rauninni farið. Hverjir það séu í raun,
sem þess njóti.
___ _______LEIÐARi_______
Góðæri grósseranna
Þetta hafa talsmenn og málgögn Sjálfstæðis-
flokksins kallað dæmigeröa Þjóðviljaöfund.
Nú vill svo til, að það hefur einmitt verið Þjóö-
viljinn, sem hefur upplýst síðustu daga og vikur,
hvert verulegur hluti góöærisins hefur í raun
runnið. Og hafi þaö komið Morgunblaðinu og
Sjálfstæöisflokknum á óvart, þá verður ekki
sagt að Þjóðviljinn hafi beinlínis staöiö á öndinni
af undrun.
Athugun Þjóöviljans, byggð á gögnum frá
Þjóðhagsstofnun, sýndi nefnilega svo ekki varö
um villst aö verulegur hluti góðærisins haföi
endaö í vösum gróseranna; heildsalanna og
kaupmannanna.
Á grundvelli bráðabirgðatalna frá Þjóöhags-
stofnun höfum við sýnt fram á, aö á síðasta ári
varö hagnaður í smásöluverslun heilum 800
miljónum meiri á verðlagi ársins 1986 en áriö
áöur. Þetta þýðir í raun, að brúttóhagnaður
kaupmanna varö rösklega sjötíu prósentum
meiri 1986 en árið áður!
Smásölujarlarnir græddu með öörum oröum
röskum 2,2 miljónum meira á hverjum einasta
degi í fyrra, en árið þar áður!
Heildargróði kaupmanna í smásölu varö á
árinu 1986 samtals 1900 miljónir.
Ekki nóg með þaö. Heildsalar höföu heldur
aldrei grætt jafn ríkulega. Það bullaöi og sauð í
gróðakötlum þeirra í þeim mæli, að árið í fyrra
græddu þeir samtals 600 miljónum meira en
árið á undan.!
Þeir græddu alls á árinu 2800 miljónir króna.
Samanlagt græddu því heildsalar og smá-
sölukaupmenn 4700 miljónir árið 1986.
Samtals græddi því þetta lið um 14 miljónir
hvern einasta dag ársins 1986!!
Allt saman peningar sem komu frá okkur,
neytendum.
Þurfa menn frekari vitnanna við, hvert góðær-
isgróðinn fór að mjög stórum hluta?
Auðvitað sýnir þetta, einsog Þjóðviljinn hefur
haldið fram, að óeðlilega stór hluti góðærisins
fór í vitlausa vasa. Til þeirra sem höfðu meir en
nóg að bíta og brenna fyrir. Til þeirra sem þurftu
síst á meiru að halda.
Góðærið hefur nefnilega að verulegu leyti
sneitt hjá láglaunahópunum meðan aðrir hafa
notið kjarabóta. Misskiptingin hefur því aukist, -
það hefur dregið sundur með þeim sem hafa
það gott og þeim sem einfaldlega hafa það skítt.
Þetta kemur fram í launum kvenna. Þær fylla
láglaunahópana, og þær dragast nú
unnvörpum aftur úr körlum í launum. Nýbirt
skýrsla frá Byggðastofnun sannar þetta ótví-
rætt. Þar kemur fram að launamunur milli kynj-
anna er að aukast og það ekkert lítið. Þannig
hafa konur nú ekki nema 57 prósent af meðal-
launum karla samkvæmt skýrslunni.
Þjóðviljinn hefur staðhæft að í miðju góðær-
inu sé launabilið að vaxa milli þeirra sem hafa
það gott og hinna. Láglaunahóparnir að dragast
enn aftar. Konur fylla láglaunahópana og
skýrslan sem hér er vitnað til sýnir að konur fá
nú sífellt minni laun en karlar. Það sannar
staðhæfingu Þjóðviljans.
Auðvitað er árgæska til lands og sjávar. En
góðærið hefur haft hratt á hæli hjá öðrum en
þeim, sem síst þurftu á því að halda.
Við lifum í góðæri grósseranna. Qg
KUPPT
I nýútkomnu ÞJÓÐLÍFI er að
finna skemmtilegt bréf, opið
bréf, sem dr. Svanur Kristjáns-
son prófessor stílar á Jón Baldvin
Hannibalsson formann Alþýðu-
flokksins.
Fyrirsögnin er: „Kæri Jón
Baldvin, ertu flokkaskelfir eða
flautaþyrill?"
Pessi spurning er ítrekuð í bréf-
inu sjálfu. Dr. Svanursegir: „Al-
þýðuflokkurinn gerir því nú til-
raun með nýja formannstegund,
sem verður samt væntanlega
sparkað eins og hinum, ef hann
skilar ekki flokknum árangri.
Spurning er: tekst þér og Alþýð-
uflokknum að brjótast út úr
þeirri sjálfheldu sem flokkurinn
hefur lengi verið í? Munt þú þeg-
ar upp verður staðið reynast sá
flokkaskelfir sem breytir íslenska
flokkakerfinu, þar sem Alþýðu-
flokkurinn hefur hingað til
skipað hinn óæðri sess, eða ertu
bara flautaþyrill sem um stund
gárar yfirborð íslenskra stjórn-
mála?“
Spáð í lófa
Jóns Baldvins
Pað er víða feitt á stykkinu
einkum í síðari hluta bréfsins:
„Við eigum enn eftir að spá í lófa
þér og Alþýðuflokksins. Setjum
sem svo að óskir þínar rætist og
Alþýðuflokkurinn vinni stóran
sigur í næstu kosningum. Þú vilt
„viðreisn", samstjórn Alþýðu-
flokks og Sjálfstæðisflokks. Dett-
ur þér virkilega í hug, að Sjálf-
stæðisflokkurinn geri þig að for-
sætisráðherra, jafnvel þótt þú
sért eini maðurinn í landinu, að
na á krataveldið á
ísafirði, Norðfirði og í Hafnarfirði.
Kratar töpuðu hin vegar alls staðar
þessum meirihluta og lykilstöðu í at-
vinnurekstrinum. Alþýðublaðið, sem
eitt sinn var bæði útbreitt, fjölbreytt
og áhrifamikið dagblað, kemur nú út
sem fjórblöðungur. Alþýðuflokks-
menn, og raunar fjöldi annarra
vinstri manna, trúa því einfaldlega
ekki að atvinnulífi og efnahagsmálum
verði stjórnað án Sjálfstæðis-
flokksins.
Vanmetakennd þín og Alþýðu-
flokksins í heild kemur líka fram í
ofuráherslu á að komast í ríkisstjórn
núna. Pað mætti halda að ekkert
framhaldslíf væri fyrir Alþýðuflokk-
inn eftir næstu kosningar utan stjórn-
ar. Auðvitað hlýtur stjórnmálaflokk-
ur að sækjast eftir stjórnaraðild til að
# # ú veit ég alveg hvað
i þú ert að hugsa, og þú
v geturþér rétt til. Þess-
ar vangaveltur mínar og spurningar
bera vott um efasemdir. Ég er nefni-
lega ekki viss um hvort þú er flokka-
skelfir eða pólitískur flautaþyrill.
Kannski er ég bara íhaldsamur: ég
ÞJÓÐLÍF 13
OG SKORID
eigin sögn, sem hefur sérstaklega
lært til þess starfs í skóla? Ég tel
fullvíst, og reyndar galskap að
halda annað, að Sjálfstæðisflokk-
urinn muni krefjast stólsins fyrir
Porstein, þótt hann sé bara lög-
fræðingur og ekki með forsætis-
ráðherrapróf.
Ég verð líka að játa að mér
finnst undarlegt af þér að útiloka
myndun stjórnar með öðrum en
Sjálfstæðisflokknum. Þú segir að
Framsókn sé ekki til nokkurs
gagnlegs nýt og ekki vilt þú held-
ur mynda stjórn með Alþýðu-
bandalaginu og Kvennalista,
jafnvel þó að þessir þrír flokkar
hefðu meirihluta. Hvað ætli
krötunum í Hafnarfirði, Kópa-
vogi, Vestmannaeyjum, Keflavík
og á ísafirði finnist um þessa
stjórnlist?
Ég hygg að Alþýðuflokkurinn
hafi í síðustu sveitarstjórnarkosn-
ingum einmitt styrkst mest á
þeim stöðum þar sem hann er í
ótvíræðri andstöðu við Sjálfstæð-
isflokkinn og boðið var upp á
möguleika vinstri meirihluta.
Víðast á landinu er hjartað
vinstra megin í krötum. Svo segir
þú að þið eigið öll þrjú úr Reykja-
vík að verða ráðherrar, auk þín
bæði Jón Sigurðsson og Jóhanna
Sigurðardóttir. Ætli landsbyggð-
arkrötum finnist sinn hlutur ekki
ansi lítill?
Yfirhöfuð skil ég ekki að tala
um Alþýðuflokksmann sem for-
sætisráðherra í nýrri „viðreisn“.
Ég veit ekki betur en Við-
reisnarstjórnin hafi verið sam-
stjórn tveggja flokka: hins stóra
Sjálfstæðisflokks, sem hafði m.a.
bæði forsætis- og fjármálaráðu-
neyti, og mikið smærri flokks,
Alþýðuflokks, sem hafði m.a.
utanríkisráðuneytið. Samkvæmt
þessu ættir þú ekki að krefjast
forsætisráðuneytisins fyrir þig í
nýrri „viðreisn" heldur heimta
utanríkisráðuneytið...
Vanmetakennd
gagnvart
Sjálfstæðis-
flokknum
...Ég hef á tilfinningunni, að
þú og Alþýðuflokkurinn hafið
vanmetakennd gagnvart Sjálf-
stæðisflokknum og séuð þar af
leiðandi að hliðra ykkur hjá
átökum við hann um stjórn lands-
ins. Mig grunar reyndar einnig,
að ég viti af hvaða rótum þessi
vanmetakennd er sprottin. Við
skulum báðir hafa í huga, að Al-
þýðuflokkurinn hlaut víða um
land á árum áður meirihluta {
bæjarstjórnum og mikilsverð ítök
í atvinnulífi margra byggðarlaga.
Það nægir hér að minna á krata-
veldið á ísafirði, Norðfirði og í
Hafnarfirði. Kratar töpuðu hins
vegar alls staðar þessum meiri-
hluta og lykilstöðu í atvinnu-
rekstrinum. Alþýðublaðið, sem
eitt sinn var bæði útbreitt, fjöl-
breytt og áhrifamikið dagblað,
kemur nú út sem fjórblöðungur.
Alþýðuflokksmenn og raunar
fjöldi annarra vinstri manna, trúa
því einfaldlega ekki að atvinnulífi
og efnahagsmálum verði stjórnað
án Sjálfstæðisflokksins.
Flokkaskelfir eða
flautaþyrill
Vanmetakennd þín og Alþýð-
uflokksins í heild kemur líka fram
í ofuráherslu á að komast í ríkis-
stjórn núna. Pað mætti halda að
ekkert framhaldslíf væri fyrir Al-
þýðuflokkinn eftir næstu kosn-
ingar utan stjórnar. Auðvitað
hlýtur stjórnmálaflokkur að
sækjast eftir stjórnaraðild til að
ná fram stefnumálum sínum, en
flokkur sem treystir eingöngu á
ríkisstjórnarþátttöku hefur
hvorki sterka innviði né trúverð-
uga stjórnlist. Slíkur flokkur
verður varla sterkur og áhrifa-
mikill, þó að hann geti náð tals-
verðu kjósendafylgi. Til þess að
ná árangri í ríkisstjórn þurfa
flokkar að þora að vera utan
stjórnar, jafnvel lengi ef svo ber
undir. Hvernig ætlar Alþýðu-
flokkurinn að starfa ef hann
kemst ekki í ríkisstjórn?...“
Fleiri forvitnilegar hugleiðing-
ar er að finna í bréfi dr. Svans til
Jóns Baldvins og spurningar sem
erfitt er að svara að svo komnu
máli. Grundvallarspurningin er:
„Jón Baldvin, ertu flokkaskelfir
eða flautaþyrill“. Og nú bíða
Þjóðlífslesendur spenntir eftir að
sjá, hversu hreinskilinn Jón Bald-
vin verður í svari sínu. - Þráinn
þlÓÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Ritatjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, Össur
Skarphóðinsson.
Fróttaatjórl: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristín
Ólafsdóttir, Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, ÓlafurGíslason,
Sigurður Á. Friðþjófsson, Stefán Ásgrimsson, Vilborg Davíðsdóttir,
Víðir Sigurðsson (íþróttir), Vngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar.
Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlltstelknarar: SævarGuðbjörnsson, GarðarSigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrlfstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson.
Auglýsingastjórl: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Olga Clausen, Guðmunda Kristinsdóttir.
Simvarsla: Katrin Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
LJtbrolðslu- og afgreiðslustjórl: HörðurOddfríðarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjörnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Slðumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljanshf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 50 kr.
Helgarblöð:55kr.
Áskriftarverð á mánuði: 500 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Ml&vikudagur 4. mars 1987