Þjóðviljinn - 04.03.1987, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 04.03.1987, Blaðsíða 9
SKÁK Ellefta umferð Glæsilegu skákmóti lokið Jón L. vann Kortschnoi ímagnaðri skák. Short sigurvegari á ofurmót- inu. Tal og Timman næstir Lokaumferð IBM-skákmótsins á Hótel Loftleiðum var tefld í gær- kveldi. Taflmennskan var á heldur friðsamari nótum en endranær í mót- inu og lyktaði hvcrri skákinni á fætur annarri með jafntefli. Eina vinnings- skákin stóð hins vegar fyllilega undir sínu. Gamli bardagamaðurinn, Vikt- or Kortschnoi, sótti að Jóni L. af miklu kappi enda hefði vinningur í skákinni tryggt honum annað sætið einum. Svo fóru þó leikar að Kortsc- hnoi missti tökin á skákinni í miklu tímahraki og Jón lagði þennan skákr- isa að velli. Þeir Short og Agdestein voru fljótir að semja um jafntefli enda tryggði það Short efsta sætið á mótinu ódeilt. Sömu sögu er að segja um skák Pol- ugajevskís og Portisch að þar var samið fljótlega. Þeir áttu enga von í verðlaunum og tryggðu sér með þessu virðingarvert sæti ofan við miðju. Það er líka oft svo að skákmenn eiga erfitt með að beita sér af fullum krafti í síðustu umferðinni sérstaklega ef ekki er að neinu áþreifanlegu að keppa. Tal stýrði hvítu mönnunum á móti Timman. Upp kom Petrofs vörn sem er ein þekktasta jafntelfisbyrjun í gjörvöllum skákheiminum. Þeir renndu sér inn í alræmt jafnteflisafbrigði og skiptu jafnt og þétt upp mönnum og léku allhratt. 1 lokin hafði Tal uppi smá glettingar, fórnaði manni en fékk í staðinn öflug frípeð: kaup kom upp endatafl þar sem Jó- hann stóð ívið betur en engin rakin vinningsleið var fyrir hendi. Niður- staðan varð því bræðrabylta nokkru áður en tímahraks fór að gæta. Margeir Pétursson hafði svart og tók Júgóslavann Ljubojevic í kennslustund í miðtafli með riddur- um á móti biskupum. Saumaði hann mjög að stöðu hvíts en líklega hefur hann verið fullfljótur á sér að brjóta upp stöðuna því Ljubojevic brást hart við og tókst að jafna taflið. Samt var teflt um stund áður en jafntefli var samið. Skák umferðarinnar Hvítt: Kortschnoi Svart: Jón L. Árnason Enskur leikur að hætti Kortschnois 1. c4 e5 2. g3 dó 3. Bg2 gó 4. d4 exd4 5. Dxd4 ... BRAGI HALLDÓRSSON JÓN TORFASON Leiknir hafa verið 25 leikir. Fram- haldið varð: 26. e5 hxg5 27. e6 Kh7 Nú gengur ekki 28. e7 Hxf7 29. e8D Hxfl+ 30. Kxfl Bxe8 og svartur vinnur. 28. Hf3 g4 29. Hf4 ... Ekki er 29. e7 Hxf7 30. e8D HxB hvíti í hag því svörtu mennirnir ná vel saman. Jafntefli eru þá líkleg úrslit. 29. ... Bxf7 30. Hxf7 He8 31. Hxb7 Hxe6 32. Hxa7 He2 Hér bauð Timman jafntefli og svartur þáði því eftir t.d. 33. Hb7 c5 34. a4 Hel+ 35. Kf2 Hal 36. Ha7 Ha2 falla peðin á drottningarvæng. Jóhann og Helgi tefldu afbrigði af Drottningarbragði sem Kasparof og Katpof hafa kannað og þróað í ein- vígjum sínum. Helgi gaf Jóhanni kost á að fórna hrók fyrir biskup og tvö peð en í kaupbæti fékk Jóhann þægi- lega sóknarstöðu. Eftir drottninga- 10. 11. 12. Vinn. 1. Jón L. 2. Margeir 3. Short 4. Timman 5. Portisch 6. Jóhann 7. Polugajevskí 8. Tal 9. Agdestein 10. Ljubojevic 11. Kortchnoi 12. Helgi 4 1 0 0 1/2 1/2 1/2 1/2 0 1 1 1/2 51/2 0 4 0 0 0 1 0 0 0 1/2 0 1/2 2 1 1 4 1 1/2 0 y2 1/2 1/2 1 1 1 8 1 1 0 4 1 v2 1/2 1/2 1 1 0 1/2 7 1/2 1 1/2 0 4 1 y2 1/2 1 1 0 1/2 61/2 1/2 0 1 1/2 0 4 0 0 1/2 0 1 1/2 4 1/2 1 1/2 1/2 1/2 1 4 1/2 1/2 1/2 0 1/2 6 1/2 1 1/2 ’/2 y2 1 1/2 4 1/2 y2 1 1/2 7 1 1 1/2 0 0 v2 1/2 1/2 4 y2 0 1 5% 0 1/2 0 0 0 i 1/2 1/2 y2 4 1/2 1/2 4 0 1 0 1 1 0 1 0 1 y2 4 1 61/2 ’/2 1/2 0 1/2 1/2 y2 1/2 y2 0 y2 0 4 4 Roö 7-8 12 1 2-3 4-5 9-lT 6 2-3 7-8 9-11 4-5 9-11 18. Dcl Rf-d7 19. Rdl Re5 20. Re3 Bc8 21. Bc3 Dc7 22. Hf-dl Re6 23. Bal Rg7 24. Dc3 Rf5 Nú er stórskotaliðinu beint að kóngsstöðu svarts eftir löngu skálín- unni. Það bagar svart sífellt að þurfa að láta kóngsbiskupinn alltaf valda d6-peðið. Nú fara vopnaskiptin að harðna. 25. Rxf5 Bxf5 26. e4 Bg4 27. f3 Bc8 28. Khl f5 Opnar kóngsstöðuna en svartur átti ekki hægt um vik. 29. c5 ... Góður leikur sem losar tök svarts á e5-reitnum og eykur sóknarþungann á löngu skálínunni. 29. ... dxc5 30. Rd3 Bg7 31. Rxc5 De7 32. f4 Rg4 33. e5 ... Sem fyrr fer Kortschnoi sínar eigin leiðir í byrjuninni. 5. ... Rf6 6. De3+ Be7 Það kom til greina að bera drottn- inguna fyrir en ef til vill hefur Jón ekki viljað þreyta endatafl við Kortschnoi því það er ein hans sterk- asta hlið. 7. Rh3 0-0 8. Rf4 c6 9. 0-0 Rb-d7 10. b3 a5 11. Rc3 He8 12. Dd2 Rc5 Staðan minnir á Kóngsindverska vörn nema svartreita biskup svarts ætti vitanlega að vera á g7. Ef hann væri þar gæti svartur ýtt a-peðinu áfram og byggt upp skókn á drott- ningarvæng en nú er biskupinn bund- inn við að valda peðið á d6. Hvíta staðan er því heldur liprari og Kortsc- hnoi tekst á aðdáanlegan hátt að auka stöðuyfirburði sína. ' 13. Ba3 Rf-d7 14. Ha-dl Bf8 15. Dc2 Db6 16. Hd2 Rf6 17. Bb2 Bf5 Hér liggur lcikurinn e2-e4 í loftinu og eftir uppskipti á e4 kæmi drottn- ingin til c3 og hótaði máti á h8. Þetta stenst að vísu ekki núna en mögu- leikinn er til staðar í framhaldinu. 'ifm £■ n/ HAB „ H! im\ ■ mm ÁB 2 Jón L. Árnason stóð sig best íslensku keppendanna. Hann vann Ljubojevic og Kortschnoi í tveim síðustu umferðunum og náði 50% vinninga. Svarta staðan er hartnær töpuð, kóngsstaðan er veik og mennirnir á drottningarvæng komast ekki til varnar. Hvítur ræður einu opnu lín- unni og allir menn hans miða á kóng svarts. Ef svartur hefst ekki að verður hann kaffæður í fáum leikjum. 33. ... g5 34. h3 gxf4 35. hxg4 ... Hér var líklega öruggara að drepa peðið. Eftir 35. gxf4 verður riddarinn að hörfa og þá getur hvítur fylgt sín- um áætlunum fram í rólegheitum. Þegar hér var komið sögu voru báðir keppendur komnir í mikið tímahrak og virtust áhorfendum næstu leikir ekki sem nákvæmastir, sumir hverjir að minnsta kosti, enda lítill tími til yfirvegunar. 35. ... fxg3 36. Dc4+ Kh8 37. gxf5 Bxf5 38. Bf3 Dg5 39. Kg2 Dh6 40. Bg4 Dh2+ 41. Kf3 Bxg4 42. Dxg4 Hf8+ 43. Ke4 Hf2 44. Hd7 ... Hér var betra að leika 44. Hd8+ Hf-f8 45. Hxa8 Dg2+ 46. Kd3 Dd5+ 47. Dd4 og hvítur vinnur. Eða 45. ... Hxa8 46. Re6. Hvíti kóngurinn er kominn í bágan stað. 44. ... Dg2+ 45. Kd4 Hg8 Tímamörkunum er náð eftir æsi- legan barning en leikið var nokkrum leikjum enn í flýti og þá leikur Kortsc- hnoi skákinni líklega endanlega af sér. 46. Re6 ... Eftir 46. De4 á svartur enga skák og hvítur á að vinna. 46. ... Hd2+ 47. Kc4 Hxd7 48. Hxd7 Dc2+ 49. Bc3 b5+ 50. Kd4 Bxe5 Málið er að verða einfalt. Staða hvíts er gjörtöpuð. Lokin urðu þann- ig: 51. Kxe5 Hxg4 52. Bd4 De4+ 53. Kf6 Dg6+ 54. Ke7+ Hxd4 55. Hxd4 g2 Hér gafst Kortschnoi upp. Hann hefur trúlega verið svekktur því þar með fauk annað sætið út í buskann og verðlaunin með en þau námu um 240.000 þúsundum króna. Hann lét þó á engu bera, heldur settist niður með Jóni til að skoða skákina. Það er þó ekki hægt annað en dást að þessum mikla baráttujaxli sem berst til síð- ustu stundar og leggur allt undir því með stuttu jafntefli átti hann tryggt að deila öðrum og þriðju verðlaunun- um með Tal og Timman. En það er einfaldlega ekki stfll Kortschnois enda bregst hann aldrei áhorfendum með því að semja stórmeistarajafn- tefli. Er vonandi að við fáum oftar að njóta snilli hans í kapptefli hér á landi. Jón L. sýndi mikið harðfylgi í þess- ari skák. Hann varðist af seiglu í erf- iðri stöðu og þegar allt virtist glatað tókst honum að flækja taflið þannig að staðan snérist honum í vil. Sannar hann þar enn orðtækið að enginn vinnur skák með því að gefa hana. Mega þessi úrslit teljast verðugur endir á stórgóðu skákmóti. V. -ICELAND STÓRMÓT ’87 Úrslit Jóhann-Helgi V2-V2 Polugaevsky-Portisch V2-Xh Tal-Timman V2-V2 Agdestein-Short V2-V2 Lj ubo j e vic-Margeir V2-V2 Korchnoi-Jón L. 0-1 ÞJÖÐVILJINN - SfÐA 9 Auglýsing frá landbúnaðarráðuneytinu um innflutninq á kartöfluútsæði. Frestur til að skila umsóknum um leyfi til innflutn- ings á kartöfluútsæði rennur út 13. apríl 1987. Landbúnaðarráðuneytið, 2. mars 1987.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.