Þjóðviljinn - 04.03.1987, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 04.03.1987, Blaðsíða 11
l/rVARP-SJÓI^LRPy © Miðvikudagur 4. mars 6.45 Veðurfregnir. Baen. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunvaktin. 9.00 Fréttir. 9.03 Morgunstund barnanna: „Mamma i uppsveiflu“ eftir Ármann Kr. Einarsson. 9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. 9.35 Lesið úr forustugreinum dagblað- anna. 9.45 Þingfróttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Úr fórum fyrri tíðar. 11.00 Fréttir. 11.03 íslenskt mál. 11.18 Morguntónleikar. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurtregnir. Tilkynningar. Tón- leikar. 13.30 I' dagsins önn - Börn og skóli. 14.00 Miðdegissagan: „Áfram veginn", sagan um Stefán islandi. 14.30 Norðurlandanótur. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Sfðdegistónleikar.. 17.40 Torgið - Nútímalífshœttir. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. Fjölmiðlarabb. 20.00 Ekkert mál. 20.40 Mál mála. 21.00 Gömul tónlist. 21.20 Á fjölunum. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Lestur Passíusálma. 22.30 Hljóð-varp. 23.10 Djassþáttur. 24.00 Fréttir. 9.00 Morgunþáttur. 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 Kliður. 15.00 Nú er lag. 16.00 Taktar. 17.00 Erill og ferill. 7.00 Á fœtur með Sígurði G. Tómas- syni. 9.00 Páll Þorstelnsson á léttum nótum. 12.00 Á hádegismarkaði með Jóhönnu Harðardóttur. Fréttapakkinn. 14.00 Pátur Steinn á réttri bylgjulengd. 17.00 Hallgrímur Thorsteinsson i Reykjavfk sfðdegis. 19.00 Hemmi Gunn í miðri viku. 21.00 Ásgeir Tómasson á miðviku- dagskvöldi. 23.00 Vökulok. 24.00 Nœturdagskrá Bylgjunnar. ÚTRÁS 10.00 Útkall. 12.00 Sfðasta útkall, allir fram úr. 14.00 Gramm af plötu. 15.00 Eftlr hádegi, Jón Árnason. 17.00 Sandalar, Ragnar Vilhjálmsson með létta tónlist. 18.00 Gleðinefnd MR með árshátfðar- dagskrá. 19.00 Réttur kvöldsins. 21.00 Notað og nýtt. 23.00 Vögguvísur. 24.00 Næturhrafninn. 1.00 Dagskrárlok. 18.00 Úr myndabókinni. 19.00 Múrmeldýrafjall Bresk dýralífs- mynd. 19.25 Fréttaágrip á táknmáli 19.30 Spurt úr spjörunum. 20.00 Fréttir og veður 20.35 Auglýsingar og dagskrá 20.40 I takt við tímann. 21.35 Köld eru kvenna ráð Master of the Game. Nýr flokkur - Fyrsti þáttur. Bandarískur framhaldsmyndaflokkur í sex þáttum. 22.45 Nýjasta tækni og vísindi. 17.00 # Fyrstuskrefin.(FirstSteps). Ný sjónvarpskvikmynd frá CBS. 18.30 # Myndrokk. 19.00 Viðkvæma vofan. Teiknimynd. 19.30 Fróttir. 20.00 Opin Ifna. 20.15 Bjargvætturinn. (Equalizer). 21.00 # Húsið okkar. (Our House). 21.50 # Einn skór gerir gæfumuninn. Hörkuspennandi mynd með Robert Mitchum. 23.20 # Tfska. UmsjónarmaðurerHelga Benediktsdóttir. Til kl. 23.50. KALU OG KOBBI Fíll. Ha! Ha! Ég vil líka fá sokka. Ef ég missi af strætó á | einhver hér á heimilinu eftir! að kynnast því hvar _ n,„:i vevoti Ötlð- , GARPURINN FOLDA imaðurl '’Emanúel, heldurþúað A mótmælasöngvargeti ) breytt ásandi mála y íheiminum? < Auðvitað. í gær kom maður inn í búð til pabba og byrjaði aðsyngja: „Baunirnareru ( svo dýrar...“ k Í Pabbi varð svo eyðilagður) að hann lækkaði ekki bara' verðið ábaununumheldur öllusaman. /Úndarlegt hvað 'N fhún á erfitt með að (j \meta jákvæða sam- “ stöðu. Félagi Steingrímskí í Sovét Styrjuhrogn og ríkiserfðir Fátt vekur meiri hrifningu í Sov- étnkjunum um þessar mundir en heimsókn íslenska forsætis- ráðherrans, sem nú er staddur í Moskvuborg og mun gefa sér tíma til að hitta þá Gorbatsjov aðalritara og aðra tignarmenn þarlenda og gefa þeim innsýn í heimsmálin. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem forsætisráðherrann er sóttur á aðra bæi til að gefa góð ráð og ábendingar, þar sem mikið er í húfi, og er skemmst að minn- ast þess að honum varð ekki orðavant frekar en endranær, þegar hann heimsótti löndin fyrir botni Miðjarðarhafs, þar sem vandræðaástand hefur ríkt á und- anförnum árum og áratugum, ekki síður en nú í höfuðstöðvum Framsóknarflokksins í Norður- landskjördæmi eystra. Fréttamaður frá Tass- fréttastofunni hitti forsætisráð- herrann að máli, þegar hann var úti að spásséra á götum Moskvu- borgar í 22 stiga frosti og hafði tekið ofan ólympíuhattinn amer- íska og sett upp loðhúfu í staðinn. Tass: Tovaritsj Steingrímskí Germannoff, velkominn til Moskvu. Ekkert svar. Tass: Tovaritsj Germannoff. Við erum hérna frá Tass. Gætum við fengið smáintervjúskí? Steingrímur (við töskubera sinn); Eg heyri bara ekkert hvað maðurinn er að segja. Er hann ekki að reyna að tala við mig? Töskuberinn: Jú, hann er að biðja um viðtal við þig. Steingrímur: Ég heyri ekkert í þér heldur. Ætli ég sé að missa heyrnina? Töskuberinn: Má ég aðeins laga á þér húfuna. (Losar um kverkólina og brettir upp eyrna- hlífarnar.) Heyrirðu betur núna? Steingrímur: Já, nú heyri ég al- veg prýðilega. Hvað eru þessir menn að vilja? Ef þeir eru að snapa eftir að kaupa gjaldeyri á svörtum skaltu segja þeim... Töskuberinn: Nei, þetta eru menn frá Tass-fréttastofunni að biðja um viðtal. Hvað á ég að segja við þá? Steingrímur: Það gæti verið gaman. Svo látum við bara þýða það og birta í Tímanum og þá fáum við að sjá hef ég hef sagt. Töskubcrinn (við Tass- ORÐ í EYRA Kyndilberi sam vinnustefnunnar kannar nú einiægni Sovétmanna í afvopnunarmáium. mennina): Ókei, hann ætlar að svara fáeinum spurningum. Tass: Spassíba, tovaritsj Stein- grímskí. Fyrsta spurningin er: Hvernig skilgreinið þér hina pól- itísku stöðu yðar? Steingrímur: Tja, ég er nú for- sætisráðherra eins og er. Tass-mennirnir reka upp hrossahlátur. Steingrímur: Ef þið trúið mér ekki þá getið þið spurt hann (bendir á töskuberann). Tass: Hin pólitíska staða mín er að ég er forsætisráðherra eins og er! Þetta er frábært svar og ber vott um mikla diplómatíska þjálf- un og hæfileika. En eiginlega vor- um við að fiska eftir því, hvar þér staðsetið yður og Framsóknar- 7------------------------------ flokkinn í hinu pólitíska litrófi. Steingrímur: Tja, mín afstaða er alveg ljós og hefur alltaf verið. Við framsóknarmenn leggjum megináherslu á góð samskipti við íbúa Sovétríkjanna og alla menn góðs vilja, sem hafa lyst á íslands- síld. Ég persónulega met Sovét- ríkin mikils og hef dálæti á ýms- um útflutningsvörum þeirra, eins og til að mynda styrjuhrognum og loðhúfum. Tass: Þýðir þetta að Fram- sóknarflokkurinn sé vinstrisinn- aður flokkur? Steingrímur: Þetta þýðir eigin- lega að Framsóknarflokkurinn sé - framsóknarflokkur. Flokkur framsóknar. Og sem slíkur sækir hann fram bæði til hægri og vinstri. Hin svonefnda samvinnu- stefna er leiðarljós okkar fram- sóknarmanna. Tass: Samvinnustefna? Steingrímur: Já, við viljum vinna saman. Sérstaklega í ríkis- stjórnum. Til dæmis höfum við að undanförnu verið í samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn, og sú samvinna hefur gefist einkar vel. Þorsteinn Pálsson er afar lipur piltur að eiga samvinnu við og verkaskipting okkar er til fyrir- myndar. Hann sér um þetta dag- lega argaþras og ég get einbeitt mér meira að heimspólitíkinni. Tass: Svo að Framsóknar- flokkurinn er samvinnuflokkur? Steingrímur: Já, ég mundi segja að hann væri mjög sam- vinnuþýður samvinnuflokkur, að minnsta kosti í minni stjórnartíð. Enda hef ég einsett mér að taka ekki afstöðu í veraldlegum mál- um, því að slíkt væri að sjálfsögðu fyrir neðan virðingu míns emb- ættis. Tass: Hver er afstaða yðar og Framsóknarflokksins til NATÓ, hr. forsætisráðherra? Steingrímur: Hún er jákvæð. Ég tel það lífsspursmál fyrir stjórnmálamenn og allan al- menning að temja sér jákvæða af- stöðu ekki bara til N ATÓ, heldur líka gagnvart þeim sem eru á móti NATÖ. Auðvitað erum við fylgj- andi friði í heiminum og öllu því veseni, en við erum líka raunsæis- menn... Tass: Og sem raunsæismenn teljið þið nauðsynlegt að vera í NATO. Steingrímur: Nei, við teljum nauðsynlegt að vera í ríkisstjórn. Til hvers værum við framsóknar- menn annars? Tass: Má ég spyrja, hvernig líst yður á félaga Gorbatsjov? Steingrímur: Mér líst afskap- lega vel á hann. Þetta er dugnað- arforkur og mesti efnismaður. Hins vegar háir það honum kann- ski að hann er tiltölulega óvanur stjórnmálum. Til dæmis er mér sagt að pabbi hans hafi aldrei ver- ið forsætisráðherra. Er það satt? Tass: Já, sú tíð er liðin að leiðtogatignin í Rússíá gangi í erfðir frá föður til sonar. Steingrímur: Jæja já? Hvenær gerðist það? Tass (hvíslar): Með honum Nikulási öðrum. Steingrímur: Var hann barn- laus, kallgreyið? Tass: Þakka yður fyrir spjallið, félagi Steingrímskí. Við munum ef til vill stytta þetta viðtal ofur- lítið áður en við birtum það. Mi&vlkudagur 4. mars 1987 ÞJÓÐVILJtNN — SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.