Þjóðviljinn - 04.03.1987, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 04.03.1987, Qupperneq 6
getrsuna- VINNINGAR! 28. LEIKVIKA - 28. FEBRÚAR 1987 VINNINGSRÖÐ: 1 1X-X21-21 1-21 1 1. VINNINGUR: 12 RETTIR, kr. 138.795,- 50257(4/11) 62485(4/11) 639531 57171(4/11) 130260(6/11) 2. VINNINGUR: 11 réttir, kr. 3.304,- 8105 53810 97145 130543+ 219608+ 221222 Úr 27. viku: 15608 56800 99037 188527 220107 565849 41674 18145 56928 101702 200843 220822+ 565885* 42018 40380 57206 102196 208217 220834 588194 48852 42964 62484 102436 213408+ 220953 588446 48888 43034 95844 126991 214279* 221206 588470 52000 44978* 95895 127849 216818+ 221207 588471 67506 46312* 96236 128136 217267* 221209 590118 50079 96257 128573 217866 221140 653384 +=2/11 53747 96267 129880 219133 221162 660182 Kærufrestur er til mánudagsins 23. mars 1987, kl. 12.00 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur veröa tekn- ar til greina. Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til fslenskra Getrauna fyrir loka kæru- frests. Hlutastarf Mötuneyti Þjóöviljann vantar „húsmóður" til að sjá um létta máltíð í hádeginu. Vinnutími frá kl. 10-14. Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri í síma 681333. þJÓDVILJINN Lausar stöður sérfræðinga við Raunvísindastofnun Háskólans Lausar eru til umsóknar eftirtaldar rannsóknastöður við Raunvís- indastofnun Háskólans sem veittar eru til 1 -3 ára. a) Tvær stöður sérfræðinga við Reiknifræðistofu. Starfssvið Reikn- ifræðistofu er einkum í aðgerðargreiningu, tölfræði, tölulegri greiningu og tölvunarfræði. b) Ein staða sérfræðings við Stærðfræðistofu, en á Stærðfræði- stofu fara fram rannsóknir í stærðfræði og stærðfræðilegri eðlis- fræði. Fastráðning kemur til greina í þessa stöðu. Stöðurnar verða veittar frá 1. september nk. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi eða tilsvarandi háskólanámi og starf- að minnst eitt ár við rannsóknir. Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsóknastarfa, en kennsla þeirra við Háskóla íslands er háð samkomulagi milli deildarráðs raunvís- indadeildar og stjórnar Raunvísindastofnunar Háskólans, og skal þá m.a. ákveðið, hvort kennsla skuli teljast hluti starfsskyldu við- komandi starfsmanns. Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum um menntun og vísindaleg störf og rannsóknaáætlun skulu hafa borist mennta- málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 31. mars nk. Æskilegt er, að umsókn fylgi umsagnir frá 1 -3 dómbærum mönnum á vísindasviði umsækjanda um menntun hans og vísindaleg störf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðarmál og má senda þær beint til menntamálaráðuneytisins. Menntamálaráðuneytið, 2. mars 1987. Laus staða Við Háskóla íslands er laus til umsóknar staða deildarstjóra í sam- eiginlegri skrifstofu verkfræðideildar og raunvísindadeildar. Um- sækjendur skulu hafa lokið háskólaþrófi, hafa gott vald á íslenskri og enskri tungu og geta nýtt sér tölvur við almenna stjórnsýslu, skráningu gagna og notkun þeirra. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður V. Friðþjófsson, deildarstjóri, Háskóla Islands (sími 25695). Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. apríl nk. ásamt gögnum um menntun og störf. Menntamálaráðuneytið, 2. mars 1987. Verð og tegundir Þjóðviljinn leitaði upplýs- inga um verð og tegundir í nokkrum apótekum. í Iðunnarapóteki á Laugaveginum fást Durex smokkar. Þeir fást í fjórum gerðum, öllum smurðum, en þrjár eru með sæðisdrep- andi kremi. Þrjú stk. í pakka kr.: 60.- Tólf stk. í pakka kr.: 237.,- - 256,- í Árbæjarapóteki fást: Durex-sexgerðir. Þrjústk. i pakka kr.: 57,- - 77,- Tólf stk. í pakka kr.: 292.- -315,- Personal - sjö gerðir. Sex stk. í pakka kr.: 112,- Climax - þrjár gerðir. Tíu stk. í pakka kr.: 224.- - 252.- Protex - tvær gerðir. Níu stk. í pakka kr.: 99,- Nonstop - ein gerð. Tvö stk. í pakka kr.: 26,- í Vesturbæjarapóteki fást: Durex - þrjár gerðir. Þrjú stk. í pakka kr.: 55,- - 60.-. Tólf stk. í pakka kr.: 221.— 239.- Stimula - tvær gerðir. Þrjú stk. í pakka kr.: 54. - 56,- Ftough Rider-eingerð. Þrjú stk. í pakka kr.: 56,- Contact - þrjár gerðir. Tíu stk. í pakka kr.: 192.- Extra- þrjár gerðir. Tíu stk. í pakka kr.: 190,- - 218,- Climax - ein gerð. Tíu stk. í pakka kr.: 196.- Sé reiknað út meðalverð kemur fram að stykkið kost- ar á bilinu frá kr.: 11.- upp í kr.:26.- en algengasta verð- ið er í kringum kr. 19.- hver verja. r ' , ,,, BARÁTTAN VIÐ E YÐNI ERBARÁTTA UPPÁLÍFOGDAUÐA. TAKTU ENGA ÁHÆTTU U„ • ~.i , . C~^:. ci r c r, •r.Cnr.n. ' ,, ' < ítitBíWW íWfljljU ll***fh*“ SM0KK ERVÖRI HANNfl VERAN FEIMNI LANDLÆKNISEN SMOKKAR OG HINAR ÝMSU GERÐIR ÞEIRRA Margar tegundir eru til af smokkum. Einkum eru gerð- irnar mismunandi hvað varðar iiti og þykkt, svo og hvort þeir eru með sléttri áferð eða ein- hvern veginn riffiaðir. Einhver stærðarmunur getur verið á þeim eftir tegundum en með það er best fyrir hvern og einn að prófa sig áfram þar sem þetta er ekki gefið upp eftir neinum númerum. Það helsta á markaðn- um Þær tegundir sem helst eru á markaðnum hérlendis heita Dur- ex, sem líklega er algengasta og best þekkta tegundin, Personal, Contact, Stimula, Climax, Prot- ex, Derby, Extra, Nuda og Non- stop. Af flestum þessum gerðum eru til fleiri en ein týpa, t.d. eru til fjórar týpur af Durex smokkum og eru þrjár þeirra með sæðis- drepandi kremi. Svipað gildirum öll hin merkin. Langflestar gerðirnar fást í pakkningum með þrem smokk- um í pakkningu og einnig með fleirum, tíu eða tólf, í pakkningu, Ýmislegt Varjur - ný þjónosta. Við sendum þér 10 stk. verjur í óoierktum póstumbúð- um gegn 250 kt- gjaldi, einnig hægt að láta senda í póstkröfu en þá bætist póstkrölúgj. við. Sendið 250 kr. eða beiðni um póstkröfú merkt Lands- umboðið sf., póstbox 4381, 124 Rvk. Smokkar fást í apótekum, sumum bensínstöðvum, búð- um og sjoppum. En einnig er hœgt að panta þá eins og sést hér á þessari smáauglýsingu sem birtist í DV. en þetta er þó nokkuð mismun- andi eftir tegundum. Sumar gerð- ir fást með tveim, eða jafnvel bara einum smokk í pakka. Þann- ig er t.d. um þrívirka smokkinn frá Personal, þ.e. hann hefur þrefalda virkni: hann leggst vel að, er rifflaður og síðast en ekki síst dregur sáðlát. Gæðaeftirlit Flestar tegundir sem fluttar eru inn hingað til lands eru gæðapróf- aðar að einhverju leyti, annað hvort af fyrirtækjunum sjálfum eða af opinberu gæðaeftirliti í framleiðslulandinu. Hjá heildsöl- unum kom fram að hér á landi vantaði tilfinnanlega slíkt gæða- eftirlit með innflutningi á þessari vöru. Meiri sala, minni feimni Hjá heildsölum og apótekum kom einnig fram að nokkur sölu- aukning hefði orðið á síðustu vik- um og mánuðum en þó væri erfitt að dæma raunhæft um það fyrr en eftir uþb sex mánuði því þá væri hægt að skoða söluna út frá sama tímabili fyrir ári. Allir aðilar hjá sölufyrirtækj- um sem selja smokka voru einnig sammála um að mun minni feimni gætti nú hjá fólki við að kaupa þessa vöru en áður. Fólk af öllum aldursflokkum kæmi og keypti smokka eins og það keypti plástur og engin feimni eða vand- ræðagangur væri sjáanlegur lengur. -Ing 6 SÍÐA — ÞJÓÐVIUINN Mlðvikudagur 4. mars 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.