Þjóðviljinn - 04.03.1987, Page 13
Bandaríkin
Reagan á í vök að verjast
Meirihluti segirforsetann Ijúga ínýrri skoðanakönnun. Tower-skýrslan áfallfyrirhann.
í nýrri skoðanakönnun sem
gerð var fyrir New York Times
og CBS sjónvarpsstöðina
kemurfram að mikill meirihluti
aðspurðra segist telja að Ron-
ald Reagan, forseti Bandaríkj-
anna, hafi farið með rakin ó-
sannindi þegar hann lýsti því
yfir að hann myndi ekki eftir
því hvort hann hefði fallist á
vopnasöluna til íran er því máli
var hreyft við hann fyrsta
sinni. Fimmtíu og eitt prósent
þátttakenda í könnuninni
segja forseta sinn fara með
lygimái en einungis þrjátíu og
fimm prósent eru á öndverðri
skoðun.
Þessar niðurstöður spegla ljós-
lega áhrifin sem birting „Tower-
skýrslunnar" svonefndu hefur
haft á almenning vestra. í þeirri
skýrslu kennir margra grasa þótt
enn séu ekki öll kurl komin til
grafar í íransvopnamálinu.
Hvað viðvíkur persónu Reag-
ans sjálfs og hæfileikum hans til
að fara með stjórn í mesta stór-
veldi heims þá eru niðurstöður
skýrsluhöfunda næsta dapur-
legar. Fram kemur að hann var
alls ekki með á nótunum, skorti
bersýnilega dómgreind og að
hann var ekki heima í flestum
smáatriðum varðandi eigin ír-
anspólitík. Fyrir vikið léku að-
stoðarmenn hans lausum hala án
þess að hann hefði á þeim nokkra
stjórn.
f skýrslunni eru allir helstu ráð-
gjafar forsetans nefndir á nafn og
þeir sagðir hafa brugðist þeirri
skyldu sinni að vinna í þágu vel-
farnaðar húsbónda síns.
Þyngsta skellinn hlaut Donald
Regan starfsmannastjóri forset-
ans. f skýrslunni stendur að hann
beri „höfuðábyrgð á þeim glund-
roða er ríkti í Hvíta húsinu“
vegna vopnasölunnar. Það var
því að vonum að hann var rekinn
úr embætti enda hafði hann ofan
á aðrar kárínur skapað sér hatur
forsetafrúarinnar.
Hann var snarlega leystur af
hólmi af Howard Baker sem er
vel þokkaður af pólitíkusum
beggja risaflokkanna í bandarísk-
um stjórnmálum. Baker er eng-
inn nýgræðingur í Hvíta húsinu
því hann var fyrirrennari fyrir-
rennara síns. Edward Kennedy
telur að forsetinn hafi gert rétt
með því að fá hann til liðs við sig á
þessum krepputímum og segist
fullviss um að hann hefði þegar
frá upphafi snúist hatrammur
gegn öllum hugmyndum um sölu
vígtóla til persnersku klerkanna.
En margt fleira bögglast fyrir
brjósti skýrsluhöfunda en vafa-
söm vinnubrögð ráðgjafa Reag-
ans og ennfremur eru mörg
mikilsverð atriði á huldu. Til að
mynda bíður það ítarlegra
rannsókna þingnefnda hvað orð-
ið hafi um tuttugu milljónir dala
af vopnasölugróðanum.
Spurt er um það hverjir hafi
vitað um fjársendingar til
Contraliða auk Poindexters og
Norths ofursta. Hvaða lög voru
brotin og af hverjum? Og sú
spurning sem brennur á allra
vörum og meirihluti Bandaríkja-
manna virðist svara játandi ef
marka má skoðanakannanir: Er
forseti Bandaríkjanna lyga-
laupur?
-ks.
Regan víkur fyrir Baker
Þessi maður lýgur. Segja bandarískir kjósendur.
Howard Baker. Ráðinn.
Donald Regan. Sparkað.
Kvikmyndahátíð
Sovét-
maður
sigrar
Það var sovéski
kvikmyndaleikstjórinn
Gleb Panfilof sem hreppti
hinn eftirsótta Gullbjörn á
kvikmyndahátíðinni í
Vestur-Berlín, æðstu
viðurkenningu sem þar er
veitt.
Hann er höfundur mynd-
arinnar „The Theme“ sem
um sjö ára skeið fékkst ekki
sýnd í heimalandi höfundar .
og kemur nú fyrst fyrir sjón-
ir almennings.
Kvikmyndin fjallar um
sovéskan rithöfund af gyð-
ingaættum sem lifað hefur í
vellystingum praktuglega
um árabil, enda kerfisins
þjónn, uns hann verður
ástfanginn af ungri stúlku og
sækir um að fá að flytja bú-
ferlum til ísraels.
Á valdaskeiði Brésnefs
var slíkt og þvílíkt umfjöll-
unarefni í listum hið mesta
velsæmisbrot og lenti Panfi-
lof því snimmhendis á svört-
um lista yfirvalda.
Það var ekki fyrr en að
skipuð var ný og betri stjórn
í sovésku kvikmyndastofn-
uninni að úr tók að rætast
fyrir Panfilof einsog fyrir
fjölda annarra
kvikmyndagerðarmanna.
-ks.
Drjúgur hluti bandarískra blökkumanna býr við örbirgð að sögn
bandarískra stjórnvalda.
Bandaríkin
Blökkumæður bera
hitann og þungam
í þrjátíu og átta prósent fjöl-
skyldna blökkufóiks í Banda-
ríkjunum eru það einhleypar
mæður sem bera hitann og
þungann af framfærslu heimil-
isins.
Þetta kemur fram í skýrslu
bandarískra stjórnvalda og er
sagt ein af höfuðorsökum þess að
tekjur heimila þeldökks fólks
hafi dregist verulega saman á
undanförnum árum.
Aðrar ástæður eru nefndar
versnandi efnahagur og aukin
verðbólga ásamt hefðbundnum
erfiðleikum svertingja, og þá
einkum og sér í lagi blökku-
kvenna, við að verða sér út um
sómasamlega launaða vinnu.
Blökkumenn eru um það bil
tólf prósent af íbúum Bandaríkj-
anna. Hvorki meira né minna en
þrjátíu prósent svartra einstak-
linga og tuttugu og sex prósent
fjölskyldna þeldökkra ber minna
úr býtum en stjórnvöld landsins
telja lágmark ofan fátækra-
marka.
-ks.
Miðvikudagur 4. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Styrkir til háskólanáms í Kína
og ferðastyrkur til náms á Norðurlöndum
1. Stjórnvöld Alþýðulýðveldisins Kína bjóða fram tvo styrki handa
islendingum til háskólanáms í Kína skólaárið 1987-88. Styrkirnir
eru ætlaðir til náms í kínverskri tungu og bókmenntum.
2. Boðinn hefur verið fram Ákerrén-ferðastyrkurinn svonefndi fyrir
árið 1987. Styrkurinn, sem nemur 2.000 s.kr., er ætlaður fslend-
ingi sem ætlar til náms á Norðurlöndunum.
Umsóknum um styrkina skal komið til menntamálaráðuneytisins,
Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 15. apríl nk. og fylgi staðfest afrit
prófskírteina ásamt meðmælum. Sérstök eyðublöð fást í ráðuneyt-
inu.
Menntamálaráðuneytið,
2. mars 1987.
Laust embætti
er forseti íslands veitir
Prófessorsembætti í kennilegri eðlisfræði (Theoretical physics) við
eðlisfræðiskor raunvísindadeildar Háskóla íslands er laust til um-
sóknar. Umsóknarfrestur er til 30. apríl nk.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um
vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og
námsferil sinn og störf. Með umsókninni skulu send eintök af vís-
indalegum ritum og ritgerðum umsækjanda, prentuðum og óprent-
uðum. Ennfremur er óskað eftir greinargerð um rannsóknir, sem
umsækjandi hyggst stunda, verði honum veitt staðan. Þá er um-
sækjandi beðinn að benda á þrjá aðila sem væru reiðubúnir að gefa
umsögn um störf hans ef eftir væri leitað.
Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið,
2. mars 1987.
Auglýsið í Þjóðviljanum