Þjóðviljinn - 27.03.1987, Qupperneq 1
Hótel Borg
Kjaftshögg Alberts
Taugar Alberts brostnar. Missir stjórn á sér og rœðst á Ijósmyndara Þjóðviljans með barsmíð
Taugar Alberts Guðmunds-
sonar virðast vera að bresta
þessa daga og sjálfstjórn hans er
ábótavant. í gær gerðist sá alvar-
legi atburður að ráðherrann fyrr-
verandi réðst með barsmíð að
Einari Ólasyni ljósmyndara Þjóð-
viljans þar sem hann var að
skyldustörfum á fundi stuðnings-
manna Alberts á Hótel Borg.
Einar Ólason segir:
„Ég gekk um salinn án þess að
taka myndir. Albert var þarna
inni. Hann stóð upp og gekk fram
í salinn og talaði þar við einhverj-
ar konur sem sátu við borð úti við
dyr. Ég gekk á eftir honum og
kom mér fyrir milli langborðs og
veggjar til hægri við
inngöngudymar í salinn og lyfti
myndavélinni og tók tvær myndir
af Albert.
Þegar hann varð þess var að ég
var að taka myndir tók hann við-
bragð og kom í áttina til mín.
Hann sló mig tvö högg. Fyrra
höggið kom á myndavélina sem
var fyrir andlitinu á mér, en
síðara höggið lenti í andlitinu á
mér. Augntönnin hægra megin
brotnaði.“
Þetta gerðist klukkan 15.30 í
gær. Hópur fréttamanna var sam-
an kominn á Hótel Borg, en Al-
bert og stuðningsmenn hans
höfðu boðað fréttamenn þangað,
þar sem Albert hugðist tilkynna
um framboð hins nýstofnaða
Borgaraflokks síns. Þegar frétta-
maður Þjóðviljans og ljósmynd-
ari komu á staðinn sátu menn þar
þöglir, en Albert leit upp úr sæti
sínu og kallaði stundarhátt, að
bannað væri að taka myndir. Ein-
Einsog Þjóðviljinn hefur einn
fjólmiðla spáð staðfastlega frá
upphafi Albertsmála ákvað Al-
bert Guðmundsson í gær að efna
til framboðs í nafni S-lista Borg-
araflokksins í öllum kjördæmum
ar Ólason ljósmyndari stóð við
dyrnar þegar Albert var á leiðinni
út og mundaði myndavél sína.
Þá réðst Albert að Einar og bar
Einar ekki hönd fyrir höfuð sér,
enda átti hann óhægt um vik, því
að hann hélt á myndavél sinni og
var allsendis óviðbúinn því að
hinn fyrrverandi ráðherra réðist
að honum með barsmíðum.
landsins. Klofningur Sjálfstæðis-
flokksins er þarmeð staðfestur.
S-listinn hefur þegar opnað
aðalstöðvar í Kópavogi og mun
Helena dóttir Alberts stjórna
kosningabaráttunni.
Ingi Bjöm Albertsson brá við
og reyndi að hemja föður sinn, án
Albert lét þá af barsmíðunum og
rauk á dyr án þess að flytja þá
yfirlýsingu sem fréttamenn voru
boðaðir til að heyra.
Mikið fát og ráðleysi kom á
fundarmenn við þetta atvik og
reyndu sumir stuðningsmanna að
Júlíus Sólnes hefur verið
nefndur sem efsti maður í
Reykjanesi. Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir hefur fallist á að taka
sæti ofarlega í Reykjavík, og
jafnframt mun Sveinn Bjöms-
afsaka framkomu foringja síns
með því að álagið hefði verið
mikið á honum undanfarna daga.
En ljóst var að mönnum var mjög
bmgðið.
Tannlæknir gerði til bráða-
birgða við brotnu tönnina í ljós-
myndaranum.
son, skókaupmaður og forseti
ÍSÍ, verða ofarlega á listanum,
auk Ásgeirs Hannesar Eiríks-
sonar.
S-listamenn munu einnig hafa
talað við bæði Björn Þórhallsson
og Ellert Schram, en hvorugur
hafði gefið greinilegt svar í gær-
kvöldi. Á Norðurlandi hefur
meðal annars verið leitað til
Sturlu Kristjánssonar og Páls
Dagbjartssonar.
Albert tilkynnti forystu Sjálf-
stæðisflokksins bréflega í gær um
ákvörðun sína og kom 1300
manna fulltrúaráð saman til
skyndifundar í gærkvöld, og var
ákveðið að Friðrik Sophusson
tæki sæti Alberts. Innan flokksins
er almennt álit að Þorsteinn Páls-
son komi mjög meiddur úr hild-
arleiknum og sætir hann ámæli
fyrir laka leikmennsku. Flokks-
ráðið kemur saman í kvöld og
miðstjóm ræðir klofninginn í
flokknum um helgina. -ÖS/lg
um hvað ég aðhefst í málinu,“
sagði Einar Ólason ljósmyndari.
Atburðurinn á Borginni vakti
mikla athygli þegar frá honum
var sagt í úvarpsstöðvunum, og
varð til þess að ýmsir hröktust frá
sem áður höfðu heitið Alberts-
mönnum stuðningi og gefið góð
orð um að taka sæti á lista.
sá/Þráinn
Kjaftshöggið
Mér
líður illa
Albert: Hefbeðið
Ijósmyndarann
afsökunar
„Ég hef beðið þennan mann
afsökunar, mér líður svo illa yfir
þessu að ég hef veríð f sárum í
allan dag yfir þessu,“ sagði Albert
Guðmundsson við Þjóðviljann f
gærkvöld, í tilefni af kjaftshöggi
því sem ráðherrann fyrrverandi
veitti Ijósmyndara Þjóðvifjans.
„Ég hef verið hundeltur af
blaðamönnum. Þeir vöktu mig
upp klukkan hálftvö í nótt, aftur
klukkan hálfsex og ég er einfald-
lega úrvinda vegna sífellds ónæð-
is af þeirra völdum. Það er í raun-
inni orsökin fyrir þessum leiðinda
atburði. Ég hef talað við mann-
inn, hann kom hér á mitt heimili,
og ég get sagt þér í raun og sann-
leika að þetta hefur yfirskyggt
alla aðra atburði þessa annars
viðburðaríka dags. Mér líður af-
skaplega illa vegna þessa,“ sagði
Albert. _ös
Kjarnavopnalaus Norðurlönd
Matttiías knúinn í nefndina!
Utanríkisráðherra lét undanþrýstingnum. Embœttismannanefndin
stofnuð, en starfssvið hennar útvatnað og miðað við „norðurslóðir“
Morrænu utanríkisráðherrarn-
ir ákváðu á Rcykjavíkurfundi
sínum í gær að stofna embættis-
mannanefnd til að skila greinar-
gerð um kjarnorkuvopnalaust
svæði.
Matthías Á. Mathiesen lét af
andstöðu sinni við nefndarskip-
anina en kom því til leiðar að í
samþykkt ráðherranna er talað
um „norðurslóðir“, og rætt um
aðliggjandi haf- og landsvæði, til
dæmis Kólaskaga.
Ljóst var að Matthías var undir
tvöföldum þrýstingi, annarsvegar
frá starfsbræðrum sínum sem
lögðu mikla áherslu á að þurfa
ekki að fara tómhentir heim,
hinsvegar er ljóst að þjóðarvilji
stendur til þess að taka þátt í sam-
starfinu og ótraust fyrir utanríkis-
ráðherra að hunsa hann með
kosningar frammundan.
-m
Sjá síður 3, 4, 5, 8 og 10
,Ég hef enga ákvörðun tekið
Albertsmál
Klofningurinn staðfestur
S-listi alstaðar. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Júlíus Sólnes, Sveinn
Björnsson og Ásgeir Hannes meðalframbjóðenda