Þjóðviljinn - 27.03.1987, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 27.03.1987, Blaðsíða 2
F-SPURNINGIN Hvernig leggst reyklausi dagurinn í þig? Hilmar Árnason verslunar- maður: Mér fínnst framtakið ágætt, en hef ekki hugsað mér að hætta. Ég hef samt reynt það tvisvar. Gísli Gunnarsson lagermaður: Ég er ekki viss. Ég hætti að reykja í fjóra mánuði, en byrjaði aftur. Ég ætla að reyna að stoppa í dag og taka svo fyrir einn dag í einu. Anna Jónsdóttir sjúkraliði: Bara vel. Ég hef áður sleppt því að reykja á reyklausum degi. Áslaug Ösp skrifstofustúlka: Vel. Þetta gefur því fólki sem vill hætta að reykja tækifæri til þess. Ég ætla samt ekki að hætta. Ásta Baldursdóttir afgreiðslustúlka: Mjög vel. Þetta verður allt reyklaust hjá mér. FRETTIR Laxeldi Metframleiðsla í fyna Yfir 60þúsund tonnframleidd í Vestur-Evrópu á síðasta ári. Norðmenn framleiddu 45 þúsund tonn, Skotar 10þúsund, írar 1200 og Fœreyingar 1500. Búist við að framleiðsla í V-EvrópufariyfirlOOþúsund tonn 1988 Algert metár var í laxeldi í löndum Vestur-Evrópu á síðasta árí, en þá voru framleidd rétt undir 60 þúsund tonn af laxi. Mest var framleitt af laxi í Noregi, þar sem laxaframleiðslan stökk úr 28 þúsund tonnum árið 1985 upp í 45 þúsund tonn á síðasta ári, og að auki voru framleidd tæp sex þúsund tonn af regnbogasilungi. Laxeldi í Skotlandi jókst úr 6900 tonnum árið 1985 upp í 10.300 tonn síðasta ár. Að auki voru framleidd um 1200 tonn í írlandi og samtals um 2000 hér á landi og í Færeyjum. Heildar- framleiðslan í þessum löndum er því nálægt 60 þúsund tonnum. Oddvitar samtaka eldismanna í Evrópu gera nú ráð fyrir að heldur hægi á vexti fiskeldisins, og í Noregi er talið að aukningin nemi ekki nema um 8 þúsund tonnum á þessu ári, þannig að undir 55 þúsund tonn verði fram- leidd þar í landi árið 1987. Miðað við seiðamagn sem búið er að framleiða nú þegar og setja niður í kvíar, er hins vegar gert ráð fyrir miklu stökki árið 1988, og þá> verði framleiðslan 73-75 þúsund tonn í Noregi. í Vestur-Evrópu er hins vegar talið að á þessu ári muni laxeldi framleiða alls 75 þúsund tonn og fátt virðist geta komið í veg fyrir að framleiðslan verði yfír 100 þúsund tonn árið 1988. Þessi glæsilegu barnaföt eru að sjálfsögðu öll heimasaumuð en þau voru sýnd á sérstakri tískusýningu á heimasaum i iAi im im com halHin v/ar fx/rr í x/iki inni 'MvnH.P f'H uðum fötum sem haldin var fyrr í vikunni.1 Mynd-E.Ol. Heimasaumur Sauma- dagar fjölskyld- unnar „Það er hægt að spara mikið með því að sauma sjálfur fötin á fjölskylduna. Margar vefnaðar- vöruverslanir bjóða upp á saumanámskcið sem kosta frá kr. 2.300-3.500 eftir því hve um- fangsmikil þau eru og síðan fást tilbúin snið, en að auki er mikið úrval blaða með sniðum af ýmis konar fatnaði af öllum stærðum og gerðum á boðstó!um,“ segir Hjördís Sigurðardóttir kaup- maður en Félag vefnaðarvöru- kaupmanna stendur fram til mánaðamóta fyrir sérstökum saumadögum þar sem fólk er hvatt til að sauma sjálft á sig heima. í tilefni saumadaganna bjóða verslanir vefnaðarvörukaup- manna upp á margvísleg sauma- námskeið og álnavaran er boðin til sölu með góðum afslætti. -sa. Eyjólfur Ámason látinn 24. mars sl. lést á sjötugasta og sjöunda aldursári Eyjólfur Árna- son gullsmiður. Eyjólfur var einn þeirra hug- sjónamanna sem lögðu grunninn að starfi róttækrar stjórn- málahreyfingar á fslandi. Um langan aldur var hann ágætlega virkur í samtökum sósíalista, glöggur fræðimaður um marx- isma og sögu verkalýðshreyfing- arinnar og kunni vel þá list að miðla öðrum af þekkingu sinni. Hann starfaði lengi að iðngrein sinni á Akureyri, fluttist ásamt eftirlifandi konu sinni, Guðrúnu Guðvarðardóttur, til Reykjavík- ur á sjöunda áratugnum, starfaði um nokkurra ára skeið fyrir MÍR, en hóf svo störf við Þjóð- viljann. Þar vann hann við klisju- gerð og myndasafn - einnig stjórnaði hann bókasafni Dags- brúnar og vann í Menntaskólan- um við Hamrahlíð. Alþýðubandalagið Reykjavík Uppákomur á sunnudögum Fjölbreytt dagskrá í Kosningamiðstöðinni alla sunnu- daga fram að kosningum Alþýðubandalagið í Reykjavík hefur ákveðið að hafa opið hús í Kosningamiðstöðinni, Hverfis- götu 105, alla sunnudagseftirmið- daga fram að kosningum. Þar munu frambjóðendur sitja fyrir svörum og boðið verður upp á fjölbreytt dagskráratriði og veitingar. Á sunnudaginn kemur mun Guðrún Helgadóttir alþingis- maður sitja fyrir svörum og Jó- hanna Linnet ætlar að syngja nokkur lög við undirleik Arnar Magnússonar píanóleikara. Hús- ið opnar kl. 14.00 og hefst form- leg dagskrá kl. 16. en boðið er upp á kaffi og veitingar. Áð sögn Þórunnar Sigurðar- dóttur kosningastjóra mun Ás- mundur Stefánsson forseti ASÍ sitja fyrir svörum gesta þarnæsta sunnudag og kór Tónskóla Rang- æinga undir stjóm Friðriks Guðna ætlar þá að syngja nokkur lög- -lg. 2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 27. mars 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.