Þjóðviljinn - 27.03.1987, Síða 3
FRÉTTIR
Hvalkjötsmálið
Olöglegur flutningur
Wolfgang Schanz hjá vestur-þýska sendiráðinu: Lög um bann viðþví aðfara um hafnir ríkja
Efnahagsbandalagsins með afurðir afdýrum eða plöntum sem eru í útrýmingarhœttu hafa
verið ígildi um nokkurt skeið
Vísindalega skorinn hvalur í Hvalfirði (sumar. Ráðuneytið kann fátt að segja af afdrifum hans í Hamborgarhöfn. (Mynd:
Sig).
Launahækkanir
Toppamir
fá hækkun
„Vonandi verða ráðherrarnir
ekki naumari við okkur en sjálfa
sig þar sem við förum aðeins fram
á þrefalt lægri iaun en þeir hafa
nú,“ sagði Þóra Kristín Jónsdótt-
ir í samninganefnd kennara í
samtali við Þjóðviljann um 5%
launahækkun þingmanna og æð-
stu embættismanna ríkisins sem
kjaradómur úthlutaði þeim á
þriðjudag.
„Forsendur þessarar hækkun-
ar eru að laun hjá ýmsum í
þjóðfélaginu hafa hækkað um
prósentur sem eru einhvers stað-
ar í grennd við þetta; þessi
ákvörðun er tekin með hliðsjón
af launaþróun í landinu," sagði
Benedikt Blöndal, formaður
kjaradóms, í samtali við Þjóðvilj-
ann.
Hækkunin gildir frá 1. janúar,
en 1. desember hækkuðu sömu
aðilar um 4.59%. Þingfararkaup
er nú 97.698 krónur en var fyrir
hækkun 93.046 krónur. Ráðherr-
ar voru með 153.546 krónur í
mánaðarlaun en eru nú með
161.223 krónur. Forsætisráð-
herra var með 168.901 á mánuði
l.desember en fær nú 177.346
krónur.
-vd.
Kennaradeilan
Þreifingar
Heimir Pálsson vara-
formaður HÍK:
Stendur á pólitískri á-
kvörðun
„Það stendur á pólitískri
ákvörðun um það að menn ætli
að gera kennarastarfið eftirsókn-
arvert á nýjan leik,“ sagði Heimir
Pálsson, varaformaður HÍK í
samtali við Þjóðviljann í gær eftir
að hafa átt óformlegar viðræður
við Geir Haarde og Indriða H.
Þorláksson um lausn á kjaradeilu
kennara.
„Við höfum verið að leita leiða
út úr þessari klemmu og erum
ekki vonlaus þó að við þorum
ekki orðið að vera bjartsýn,“
sagði Heimir.
Eg hélt að þetta væri fríverslun-
arsvæði og um þau væri frjáls
flutningur. Eg þekki ekki og hef
ekki kynnt mér þessar reglur í
Þýskalandi, hvort þýsk
stjórnvöld hafa einhverja heimild
til að grípa inn í með, hvaða
vörur það eru sem fara þarna í
gegn, það þekki ég bara ekki, en
Kristján Loftsson segir að þetta
komi alveg flatt upp á sig. Hann sé
búinn að senda 20 þúsund tonn af
hvalkjöti á mörgum árum og
þetta sé í fyrsta sinn sem svona
komi fyrir,“ sagði Þórhallur Ás-
geirsson, ráðuneytisstjóri við-
skiptaráðuneytisins í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Aðspurður um hvort það væri
ekki orðið milliríkjamál þegar
varningur væri stöðvaður á þenn-
an hátt í fríhöfn og hvort yfirvöld-
um hér bæri ekki að athuga við
þýsk stjórnvöld hver ástæða
þessa væri, sagði Þórhallur: „Við
skiptum okkur ekki af því nema
við séum beðnir sérstaklega að
aðstoða einhverja en við höfum
ekki verið beðnir um neitt í þessu
sambandi.“
Þórhallur sagði einnig að bann-
að væri að flytja hvalkjöt inn til
Efnahagsbandalagslandanna og
hann sagðist ekki vita hvort það
bann gilti einnig um not á frí-
höfnum.
Þjóðviljinn spurði Eggert ís-
aksson, skrifstofustjóra Hvals hf.
hvort á einhvern hátt hefði verið
reynt að dylja að hvalkjöt hefði
verið í gámunum sjö sem kyrr-
settir eru í Hamborg og neitaði
Eggert því algerlega. Sagði hann
að allur umbúnaður á vörunni og
farmskjölum hefði verið með
venjulegum hætti.
Wolfgang Schanz deildarstjóri
í vestur-þýska sendiráðinu sagði
Þjóðviljanum að lög giltu í
löndum Efnahagsbandalagsins
sem bönnuðu umferð með afurð-
ir af dýrum og plöntum sem væru
í útrýmingarhættu. Slík lög gilda
um fleiri vöruflokka, svo sem
vopn. Þessi lög væru þó nokkuð
rúm þannig að þau gerðu ráð fyrir
undanþágum og hefðu vestur-
þýsk yfirvöld beðið íslensk um
gleggri upplýsingar um farminn
og um heimildir íslendinga til
hvalveiða og verslunar með
hvalaafurðir.
Schanz sagði einnig að þar sem
höfnin í Hamborg væri mjög stór
væri mjög erfitt íýrir yfirvöld að
fýlgjast með hvað væri í gámum
og oft væri innihaldið allt annað
en farmskjöl segðu til um. Því
teldi hann að það hvalkjöt sem
áður hefði farið um höfnina hefði
hugsanlega komist þar í gegn
vegna óglöggra merkinga.
Ástæða þess að þessi sending var
stöðvuð væri sú að grænfriðungar
hefðu opnað gámana og hið rétta
komið í ljós. -sá
-vd.
Utanríkisráðherrafundurinn
Hafa þvælst fyrir
Utanríkisráðherrafundurinn
list illa á bréfið
Tómas Jóhannesson: Nefndin verði ekki skjalageymslafyrir
röksemdir gegn stofnun svœðisins
Pétur Gunnarsson: Efstjórnvöld skipta ekki
um skoðun ísamrœmi við vilja almennings,
þá þarf almenningur að skipta um stjórnvöld
Eg held að fólk hafl verið
bjartsýnt á framgang málsins
vegna niðurstaðnanna úr skoð-
anakönnun Félagsvísindastofn-
unar, sem sýndi fram á eindreg-
inn vilja almennings til að Norð-
urlöndin yrðu gerð að kjarnorku-
vopnalausu svæði,“ segir Pétur
Gunnarsson rithöfundur.
„Maður hefur á tilfinningunni
að stjómvöld hér hafi verið að
þvælast fyrir málinu með ein-
hverjum orðhengilshætti, og það
vekur manni reiði ef þau ætla
ekki að taka tillit til þess almenna
vilja sem liggur fyrir.
Núna er niðurstaða utanríkis-
ráðherrafundarins komin. Hún
er fremur veik, og maður hefur á
tilfinningunni að þar vegi þungt
hvað íslensk stjómvöld draga
lappimar í málinu. Maður vonast
til að í kosningabaráttunni og
þjóðmálaumræðunni sem henni
fýlgir verði þessi mál sett meira á
oddinn, og að fólk geri sér ljóst
að ef þessi stjórnvöld ætla ekki að
skipta um skoðun í samræmi við
vilja almennings, þá þarf almenn-
ingur að skipta um stjórnvöld.“
- HS.
ídag
er reyklausi
dagurinn.
Menn eru ánægðir með að
embættismannanefndin hef-
ur verið skipuð, og þar með hefur
þeirri hættu verið bægt frá að ís-
land verði skilið eftir og einangr-
ist frá hinum Norðurlöndunum í
þessu máli. Hins vegar Hst
mönnum illa á það erindisbréf
sem henni hefur verið fengið,
segir Tómas Jóhannesson, sem á
sæti í miðnefnd herstöðvaand-
stæðinga.
„Menn bundu vonir við að
nefndin fengi það verkefni að
gera drög að samningi um stofn-
un þessa svæðis, en ekki ein-
hverja könnun á hugsanlegum
vandkvæðum við að gera slíkan
samning. Erindisbréf nefndar-
innar er svo almennt orðað að
hún getur í rauninni gert nokkuð
margt. Friðarhreyfingarnar á
Norðurlöndum álíta verkefni
nefndarinnar frekar óskilgreint,
og því er mjög mikilvægt að
skipun hennar verði fylgt eftir,
þannig að hún verði ekki skjala-
geymsla fyrir röksemdir gegn
stofnun svæðisins, heldur verði
skipan hennar til að koma svæðis-
hugmyndinni áleiðis.
Það er ljóst af viðtölum við
Matthías Á. Mathiesen utanríkis-
ráðherra, í útvarpi í gær að hann
hefur gert það sem hann hefur
getað til að þessi nefnd verði
dragbítur á stofnun svæðisins.
Við íslendingar getum ekki axlað
þá ábyrgð að verða til þess að
stöðva framgang þessara hug-
mynda. Því er mikilvægt að hér á
landi verði búið svo um hnútana
að fulltrúi íslands í nefndinni
vinni ötullega að því að út úr
starfi hennar komi eitthvað sem
veigur er í.“
- HS.
Símavarsla
Þjóöviljann vantar lipran og ábyggilegan símavörð nú þegar.
Vinnutími frá kl. 1 -7 mánudaga til föstudaga.
Vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Frekari upplýsingar um starfið gefurframkvæmdastjóri.
þlÓÐVILIINN
Síðumúla 6, sími 681333