Þjóðviljinn - 27.03.1987, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 27.03.1987, Qupperneq 5
Stofnuð embættismannanefnd til að kanna kjarnorkuvopnalaust svœði. Matthías útvatnaði umboð nefndarinnar: „á norðurslóðum “. Ekkert beint samstarfvið Nató. Framgangsskýrsla til ráðherrafundanna Norrænu utanríkisráðherr- arnirfimm ákváðu á Reykjavík- urfundi sínum sem lauk í gær að stofna vinnuhóp embættís- manna til að vinna að greinar- gerð um kjarnorkuvopnalaust norrænt svæði, og á jæssi greinargerð að „auðvelda" ráðherrunum „frekara póiitiskt mat í þessum málaflokki". Matthías Á. Mathiesen hafði fram á síðasta dag ekki látið upp- skátt um afstöðu sína til málsins, og varð hún fyrst opinber á blaða- mannafundi í Rúgbrauðsgerðinni í gær, en ráðherramir munu hafa náð saman í óformlegum sam- ræðum í fyrrakvöld. Svíþjóð Andrés átti að deyja Ulf Adelsohn, þingmaður og fyrrum formaður sænska íhaldsflokksins, reit í fyrradag grein í sænska stórblaðið Dag- ens Nyheter og sagði sínar far- ir ekki sléttar. „Á dögunum horfði ég á teiknimynd í sjónvarpinu sem ætluð var bömum. I henni er atr- iði þar sem íkornar ráðast af of- forsi á Andrés Önd. Ef allt hefði verið með felldu hefði Andrés dáið, íkomarnir verið læstir á bak við lás og slá og sætt ákæm fyrir morð og frændur Andrésar, Rip, Rap og Rup, grátið hástöfum við útför hans. I stað þessa reis hann á fætur eins- og ekkert hefði í skorist og tók til við vinnu sína.“ Adelsohn lýsti ábyrgð á hend- ur teiknimyndahöfundum og spurði hvar sómatilfinning þeirra væri eiginlega. Hann væri and- snúinn ritskoðun en engu að síður hvetti hann foreldra til að gæta vel að þvf sem þau horfðu á í sjónvarpi og bönnuðu þeim ein- dregið að sjá efni sem fegraði of- beldi með þessum hætti. - ks. Herráð æðstu manna f Sjálf- stæðisflokknum mun samkvæmt heimildum Þjóðviljans hafa ákveðið fyrr í vikunni að ekki bæri í kosningaljósi að leggjast gegn nefndarskipan og yrði held- ur að reyna að þæfa málin innan nefndarinnar, gera hana að „eins konar skjalageymslu“ einsog lagt var til í leiðara Morgunblaðsins á sunnudag. Hinsvegar var mjög lagst á Matthías af Natóvinum innan flokksins og utan, og herma heimildir Þjóðviljans að einn úr þeim hópi hafi verið Einar Bene- diktsson sendiherra í Belgíu og þarmeð við höfuðstöðvar Nató í Briissel, sem hafi mótmælt nefndarskipan ákaft í viðræðum við Matthías. Norrænu ráðherramir féllust að lokum á kröfu Matthíasar um að athugun embættismanna- nefndarinnar væri ekki ein- skorðuð við Norðurlönd, og er í samþykkt ráðherranna rætt um „norðurslóðir". I danskri útgáfu af samþykkt ráðherranna stendur raunar „de nordiske omráder“ og í enska textanum „the Nordic Area“, sem hvorttveggja vísar til Norð- urlanda. Þýðingarnar virðast þannig ætlaðar til heimabrúks fyrir hvem ráðherra, en í sérs- takri nótu segjast ráðherrarnir hafa rætt merkingu hutaksins „án þess að binda okkur við nokkra fasta landfræðilega skil- greiningu“, - þeir séu „samt sam- mála um að athugunin geti náð til Grænlands, aðliggjandi hafsvæða og landsvæða, t.d. Kóla- skagans.“ Fyrir fundinn var ljóst að ráð- herrar Finnlands, Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur færu nauðugir heim án samkomulags, og frést hafði úr ráðuneytum í Osló og Kaupmannahöfn að þar væra menn tilbúnir að teygja sig nokkuð til að fá fram samþykkt um embættismannanefndina. Skilningur ráðherranna á „norðurslóðum" nær að sönnu ekki austur til Úral, einsog Matt- hías helst vildi, en íslenski utan- ríkisráðherrann sagðist þó ánægður með samþykktina á blaðamannafundinum, og í út- varpsviðtali í gær kvaðst hann nánast hafa haft vit fyrir starfs- bræðram sínum. Það kann að hafa ráðið nokkru um lokaaf- stöðu Matthíasar að samkvæmt nýlegri skoðanakönnun telja um 90% að íslendingar eigi að taka þátt í samstarfi Norðurlanda um kjarnavopnalaust svæði. Sænski utanríkisráðherrann Sten Andersson tók fram á blaða- mannafundinum að þrátt fyrir málamiðlunina sé ijóst að af sænskri hálfu sé fyrst og fremst um Norðurlöndin sjálf að ræða, og aukasvæði þar utanvið verði tilefni „sérstakrar tilhögunar". Paavo Váyrynen, sem sennilegt er að verði forsætisráðherra Finna á næstu dögum, tók f sama streng og Andersson. Fullyrt er í N Djamena, höf- uðborg Tsjad, að líbíski herinn í landínu sé nú að hverfa frá norðurhluta landsins eftir fjög- urra ára veru. Stjórnarherinn í Tsjad tók um síðustu helgi flugvöllinn Ouadi Doum, 300 kílómetram norðan „rauðu línunnar" svonefndu sem hingaðtil hefur skilið að stríðandi öfl, í Tsjad. í tilkynningum stjórnarhersins segir að um tvö- þúsund líbískir hermenn hafi ver- ið felldir í síðustu viku, þar af rúmlega 1200 við flugvöllinn. Flugvallartakan kemur í kjöl- far ósigurs Líbíuhers og upp- reisnarmanna við vinina Fada í janúar, og nú situr stjórnarherinn um stærstu borgina í norðurhluta landsins, Faya-Largeau. Um 2500 uppreisnarmenn verja borg- ina, en era nú sviptir líbískum stuðningi úr lofti eftir fall flug- vallarins. Vinnuhópi embættismann- anna, - ráðuneytisstjóra og for- stöðumanna stjórnmáladeilda ráðuneytanna -, vora ekki sett nein tímamörk á greinargerð sína, en Váyrynen sagði að ætlun- in væri að hópurinn skilaði fram- gangsskýrslu til hvers ráðherra- fundar haust og vor. í samþykkt ráðherranna segir að við störf vinnuhópsins skuli til grundvallar lagðar annarsvegar skuldbindingar Natóríkjanna þriggja, hinsvegar hlutleysi Finn- lands og Svíþjóðar. Ráðherrarnir vora spurðir hvort ætlunin væri að vinnuhópurinn væri í samstarfi við Nató, og var því svarað til að Natóríkin mundu hvert um sig hafa samráð við bandamenn sína í hemaðarbandalaginu, en nefndin sem slík hefði ekki sam- starf við Nató. Á jsetta lagði hinn sænski Andersson sérstaka áherslu. Sennilegt er að Hannes Haf- stein ráðuneytisstjóri verði full- trúi íslands í embættismanna- nefndinni. Auk kjarnorkuvopnalauss svæðis fjölluðu ráðherrarnir um heimsmálin vítt og breitt, og sendu frá sér ályktanir þarsem annarsvegar var lýst stuðningi við alþjóðlega friðarráðstefnu um deilurnar í Miðausturlöndum, hinsvegar hvatt til aukins þrýst- ings á Suður-Afríku-stjórn. Matthías utanríkisráðherra sagði að í undirbúningi væri framvarp um íslenskt viðskiptabann, og yrði það rætt á næsta alþingi. Ályktanir ráðherrafundarins era birtar í heild á síðu 8. -m Tsjad Ubíuheimenn á heimleið? Upplausn í líbíska hernum eftir flugvallartap Ekki er ljóst hvort flóttinn í lí- bíska liðinu er skipulegur eða ekki, en orðstír Líbíuhers, sem talinn var einn sá fremsti í Norður-Afríku, hefur beðið mik- inn hnekki við undanfarna ósigra. Franski herinn í landinu mun ekki hafa tekið þátt í þessum bardögum. -m Skák Karpof gegn Kasparof Karpofvannll. skákina gegn Sókolofog þarmeð einvígið Anatólí Karpof fyrrverandi heimsmeistari keppir um titil- inn enn einu sinni við landa sinn Kasparoff. Hann vann í gær elleftu skákina í einvíginu við Andrei Sókolof um áskor- endaréttinn og þarmeð lauk einvíginu með 71/2-31/2 Karpof í vil, og þarf ekki að tefia þær þrjár skákir sem eftir voru. Sókolof gaf í gær eftir aðeins 25 leiki í skák sem sagt er að hafi einkennst af örvæntingardirfsku Sókolofs. Karpof vann af honum hrók og var þá ekki að sökum að spyrja. Karpof vann Sókolof fjór- um sinnum í einvíginu, sem fram fór í Limares á Spáni, hinar sjö skákirnar enduðu með jafntefli. Karpof mætir Kasparof síðar á árinu, staður og tími era enn á huldu. - m Föstudagur 27. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.