Þjóðviljinn - 27.03.1987, Qupperneq 7
England
Miðjubanda-
lagið enn
í sókn
í flunkunýrri breskri skoð-
anakönnun kemur fram að
miðjubandalagi jafnaðar-
manna og frjálslyndra vex enn
ásmegin á kostnað íhalds-
flokksins og Verkamanna-
flokksins.
Könnunin sem gerð var af
Marplan upplýsingafyrirtækinu
leiddi í ljós að ef nú yrði gengið til
kosninga þá myndi enginn einn
þessara flokka geta gert sér vonir
um að hreppa hreinan meirihluta
á breska þinginu.
Miðjubandalagið býr enn að
tveim glæstum sigrum í auka-
kosningum og virðist almenning-
ur hafa síaukna trú á því en ekki
eru nema fáir mánuðir síðan
deilur milli krata og frjálslyndra
um varnarstefnu höfðu sem næst
riðið því að fullu.
Samkvæmt skoðanakönnun-
inni hlyti íhaldsflokkur Margrét-
ar Thatcher þrjátíu og sex hund-
raðshluta atkvæða yrði kosið
þegar í stað en miðjubandalagið
og Verkamannaflokkurinn
fengju hvort sín þrjátíu og eitt
prósent.
í samskonar Marplan athugun
í síðasta mánuði hreppti banda-
lagið eingöngu tuttugu og eitt
prósent fylgi sem var óralangt að
baki fylgi Verkamannaflokksins
er hlaut þrjátíu og sjö prósent. Þá
fékk íhaldið um þrjátíu og átta
hundraðshluta.
Það hlýtur að teljast mikill
sigur fyrir bandalagið að standa
nú jafnfætis Verkamannaflokkn-
um en að sama skapi er það
reiðarslag fyrir Neil Kinnock,
formann Verkó. Eitt af mörgum
sem yfir hann hafa dunið á um-
liðnum vikum. -ks.
David Owen og aðrir brotthlaups-
menn úr Verkamannaflokknum geta
verið glaðir nú. Hinn nýi flokkur
þeirra, Jafnaðarmannaflokkurinn, og
bandalagsflokkur hans, Frjálslyndi
flokkurinn, eru á miklu skriði.
Uganda
Biskup vill
fjölkvæni
Biskup ensku kirkjudeildar-
innar í Uganda hefur farið þess
á leit við leiðtoga kirkjunnar að
þeir taki til endurskoðunar
bann við fjölkvæni.
Kristófer Senyonjo í Vestur-
Uganda lét þau orð falla f fyrirle-
stri á dögunum að margir kristnir
menn í Afríku ættu fleiri en eina
konu og teldu fjölkvæni óað-
skiljanlegan hluta af sinni menn-
ingu.
Kristófer er í hópi fjögurra
manna sem ráðgjafanefnd ensku
biskupakirkjunnar skipaði í hitti-
fyrra til að kanna kristið fjöl-
skyldulíf í Afríku og meint fjöl-
kvæni kristinna karla.
„Fjölkvæni á sér ríka hefð í Ug-
anda og er ekki hægt að varpa
fyrir róða rétt sísona. í Afríku
búa kristnir menn í nábýli við mú-
hameðstrúarmenn og fólk sem
aðhyllist allskyns aldna siði og
hvorir tveggja heimila fjöl-
kvæni,“ sagði Kristófer. -ks.
HEIMURINN
Gagnbyltingarskæmliðar: við styðjum þá og ætlum að styðja þá, og það eru
Gerið barasta eins
og við segjum ykkur
Sendimaður Reagans segir utanríkisráðherra Nicaragua hvernig leysa eigi
ágreiningsmál - eða svört dœmisaga af bófaskap
Salman Rushdie heitir rithöf-
undur mikilvirkur og sögumaður
góður sem hefur nýlega sent frá
sér bók um þriggja vikna ferðalag
sitt um Nicaragua. Bókin heitir
Bros jagúarsins. Rushdie kvaðst
alls ekki hafa ætlað sér að skrifa
bók um ferð sína, enda tíminn
sem hann hafði næsta naumur.
En hann hafí orðið fyrir svo
sterkum áhrifum af fólkinu sem
hann hitti á ferðalagi sínu að
hann hafí ekki getað stillt sig um
að skrifa.
í umsögnum um bókina má
lesa, að Rushdie er einn af hinum
gagnrýnu aðdáendum Sandin-
istabyltingarinnar í Nicaragua.
Hann lýsir mörgu því sem hún
hefur afrekað við erfiðar aðstæð-
ur. En hann er einn þeirra sem
óttast mjög það skref sem stigið
er með ritskoðun og ritbanni -
þess vegna stendur hann uppi í
hárinu á vinum sínum Sandinist-
um, þegar þeir banna stjórnar-
andstöðublaðið La Prensa, með
tilvísun til þess að ill nauðsyn
stríðsins brjóti málfrelsislög.
D‘Escoto og Rocky
Rushdie segir í bók sinni frá
fróðlegu samtali milli eins af for-
ingjum Sandinista og sendimanns
Reagans Bandaríkjaforseta, sem
hann telur sýna ágætlega hinn
„grófa, ódulbúna bófaskap Re-
aganstjórnarinnar". Sagan er á
þessa leið:
Miguel D'Escoto, prestur,
skáld, heimspekingur og utan-
ríkisráðherra Nicaragua hafði
eytt heilum degi í samræður við
sendimann Ronalds Reagans,
sem hér á eftir er kallaður Rocky.
Þetta var langur og strangur dag-
ur. DÉscoto hafði meðan á við-
ræðum stóð lagt mikla áherslu á
það, að með góðum vilja af
beggja hálfu mætti leysa sambúð-
arerfiðleika milli Bandaríkjanna
og Nicaragua. Utanríkisráðherr-
ann kvaðst og viðurkenna það,
að Bandaríkin hefðu tiltekinna
öryggishagsmuna að gæta í þess-
um heimshluta.
„Það er allt til umræðu, sagði
hann. Við erum praktískir menn
og við viljum samkomulag við
Bandaríkin sem hægt er að
treysta á.“
En Rocky gaf lítið fyrir það
sem hann vildi kalla „hugsan-
legan velvilja". Hann spurði sem
svo : „Á hvaða forsendum viljið
þér hefja viðræðurnar, séra
minn?“
D'Escoto svaraði :
„Kannski við ættum að koma
okkur saman um að bæði ríkin
fari að alþjóðalögum? Það væri
sæmilega hlutlaus grundvöllur að
byggja á“
Þá sagði Rocky:
„Það er þitt mál, séra minn. Þú
ert heimspekingur. Þú fæst ekki
til að einbeita þér að staðreynd-
um“.
D‘Escoto hélt áfram og lagði
það til með ljúfmannlegu orða-
lagi að Bandaríkin hættu að fjár-
magna hernað gagnbyltingar-
skæruliða.
„Byrjar hann enn, sagði Rocky
mæddur. Þú ert alveg vonlaus,
séra minn“...
Svo hélt hann áfram og þusaði
drjúga stund um að gagnbylting-
arskæruliðum (Contra) hafi verið
borgað og að þeir muni áfram fá
stuðning Reagans.
„ÞETTA eru staðreyndir máis-
ins, sagði hann...og ÞÚ ert í
klípu“
Hvað er þá til bragðs að taka?
spurði D'Escoto, og Rocky svar-
aði um hæl:
„Gerið bara eins og við segjum
ykkur og þá sérðu hvemig þessi
klfpa sem þið eruð í hverfur eins
og ekkert væri. Á einni nóttu.Þú
verður hissa en svona er það.
Gerið bara eins og við segjum!.
Fróðleg saga og sýnir m.a. að
vissir hlutir í framgöngu Stóra
Bróður í norðri hafa lítið breyst
frá því að Arevalo skrifaði fræga
bók sína, Hákarlinn og sardín-
umar, um sambúð Bandaríkj-
anna við ríki Mið-Ameríku og
Karíbahafs. En þar var ráð fyrir
því gert að sardínurnar, smáríki
þessa heimshluta syntu af fúsum
og frjálsum vilja inn í gin hákarls-
ins og kynnu honum hjartanlegar
þakkir fyrir að hann lét svo lítið
að gleypa þær.
áb tók saman
Föstudagur 27. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7