Þjóðviljinn - 27.03.1987, Side 8
Opiðhús
í KOSNINGAMIÐSTÖBINNI
n.k. sunnudag kl. 16.00 - 18.00
GUÐRÚN HELGADÓTTIR
alþingismaöur tekur á móti gestum og
situr fyrir svörum um atburði líðandi
stundar í þjóðmálum í Kosningamið-
stöðinni Hverfisgötu 105, 4. hæð.
Jóhanna Linnet söngkona
og örn Magnússon
píanóleikari flytja nokkur
góð lög.
Barnahornið öllum opið.
Kaffi og meðlæti.
Húsið opnað kl. 14.00.
ALLIR VELK0MNIR
Alþýðubandalagið Reykjavik
Félag
járniðnaðarmanna
FÉLAGSFUNDUR
verður haldinn mánud. 30. mars 1987 kl.
20.00 í Suðurlandsbr. 30, 4. hæð.
DAGSKRÁ:
1. Félagsmál
2. Önnur mál
3. Erindi: Könnun á vinnuslysum, Vil-
hjálmur Rafnsson yfirl. flytur.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Maöurinn minn
Eyjólfur R. Árnason
gullsmiður
Eskihlíð 14
andaðist í Landakotsspítala miðvikudaginn 25. mars.
Guðrún Guðvarðardóttir
HEIMURINN
Ráðherrafundurinn
Kjamoikuvopnalaus
Norðurlönd
Hér fer á eftir samþykkt nor-
rænu utanríkisráðherranna
um að stofna embættismanna-
nefnd um kjarnorkuvopna-
laust svæði. Samþykktin var
kynnt í gær í Borgartúni.
„Ráðherrarnir ákváðu að fela
forstöðumönnum stjórnmála-
deildanna eða jafnsettum emb-
ættismönnum í ráðuneytum
þeirra, að gera greinargerð um
forsendur fyrir kjamavopnalausu
svæði á norðurslóðum er væri lið-
ur í viðleitni til að draga úr
spennu og vígbúnaði í Evrópu.
Vinnuhópurinn skal í störfum
sínum leggja til grundvallar
skuldbindingar þeirra ríkja, sem
eru í varnarbandalagi og stefnu
hinna, sem hlutlaus em. Þá skal
taka mið af samþykktum nor-
rænu þjóðþinganna varðandi
stefnu í öryggis- og afvopnun-
armálum svo og skýrslum og
greinargerðum ríkjanna í því
efni.
Niðurstöður af þessari könnun
skal leggja fyrir utanríkisráð-
herra Norðurlanda til þess að
auðvelda þeim frekara pólitískt
mat í þessum málaflokki."
í stað „á norðurslóðum“ stend-
ur í danska textanum „i de nor-
diske omráder“ og í þeim enska
„in the Nordic area“. Ráðherr-
arnir létu fylgja samþykkt sinni
sérstakt blað um skilning þeirra á
þessu hugtaki:
„Athugunin snertir forsend-
umar fyrir „kjarnavopnalausu
svæði á norðurslóðum."
Við höfum rætt hvað hugtakið
„norðurslóðir“ merkir - án þess
að binda okkur við nokkra fasta
landfræðilega skilgreiningu.
Utanríkisráðherrarnir fimm
em samt sammála um að athug-
unin geti náð til landsvæða hinna
fimm landa þar með talið Græn-
lands, aðliggjandi hafsvæða og
landsvæða, t.d. Kólaskagans.“
Ráðherrafundurinn
Noirænt viðskiptabann
á Suður-Afríku
Norrænu ráðherrarnir sam-
þykktu á Reykjavfkurfundin-
um sérstaka ályktun um mál-
efni Suður-Afríku, og er þar
boðað sameiginlegt norrænt
viðskiptabann á Suður-Afríku
meðan aðskilnaðarstefnan er
þar við lýði. Matthías Á.
Mathiesen sagði eftir fundinn
að í utanríkisráðuneytinu væri
tilbúið frumvarp um íslenskt
viðskiptabann, og vænti hann
þess að það yrði rætt á þingi í
haust. Suður-Afríku-ályktun
ráðherranna hljóðar svo:
„Astand maia 1 Suöur-AtnKu
veldur stöðugum ugg manna. Nýr
og mjög kvíðvænlegur þáttur er
hinn mikli fjöldi handtekinna
barna. Raunvemlegu ástandi er
leynt með strangri ritskoðun og
opinbem eftirliti. Hvers konar
viðleitni í því skyni að sýna stjórn
Suður-Afríku fram á nauðsyn
þess að afnema aðskilnaðar-
stefnu sína (apartheid) á meðan
unnt er á friðsaman hátt, hafa
reynst árangurslausar fram að
þessu.
Samtímis hefur Suður-Afríka
haldið fast við stefnu sína um á-
reitni gagnvart grannlöndum sín-
um, svo og gegn stöðugleika og
jafnvægi. Jafnframt skýtur
Suður-Afríka stöðugt á frest
áætlun öryggisráðs SÞ, sem kveð-
ið var á um þegar árið 1978, um
sjálfstæði Namibíu.
Ber því að auka þrýsting á
stjórn Suður-Afríku. Alþjóða-
samtökum ber að axla ábyrgð
sína og kappkosta að knýja á um
afnám aðskilnaðarstefnu. Skyld-
ugar refsiaðgerðir skv. ákvörðun
öryggisráðs SÞ verða ávallt mark-
vissast úrræði í því skyni að orka á
stjórn Suður-Afríku.
Frá Suður-Afríku: „Hvers konar viðleitni i því skyni að sýna stjóm Suður-Afríku
fram á nauðsyn þess að afnema aðskilnaðarstefnu sína á meðan unnt er á
friðsaman hátt, hafa reynst árangurslausar fram að þessu."
Meðan beðið er samþykktar
Öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna um bindandi refsiaðgerðir
gegn Suður-Afríku hafa Norður-
lönd þegar komið í framkvæmd
eða ákveðið að gera ráðstafanir,
sem jafngilda í raun, innan
skamms tíma, norrænu viðskipta-
banni á Suður-Afríku.
Hafa aðgerðir þessar einnig
verið ákveðnar í væntingu þess að
þær örvi önnur ríki til eftir-
breytni, enda stuðli þær jafn-
framt að því að knúið verði á um
ákvörðun Öryggisráðs um mark-
vissar refsiaðgerðir gegn Suður-
Afríku. Norðurlönd munu halda
áfram og efla viðleitni sína, innan
og utan SÞ, í því skyni að knýja á
um afnám aðskilnaðarstefnu.
Norðurlönd hafa samúð með
grannríkjum Suður-Afríku, sem
búa við háskalegar aðstæður.
Brýn þörf er á aukinni alþjóðaað-
stoð við téð ríki og samvinnu-
samtök þeirra SADCC. Norður-
lönd hafa í þessu skyni mjög eflt
skerf sinn til aðstoðar við jaðar-
ríkin og SADCC.“
Ráðherrafundurinn
Ráðstefna um Austurlönd nær
Norrænu utanríkisráðherr-
arnir styðja hugmyndir um al-
þjóðlega friðarráðstefnu um
stríð og skærur í Austur-
löndum nær, og telja að lausn
á málum þar finnist ekki nema
virtur sé sjálfsákvörðunarrétt-
ur Palestínumanna og ályktan-
ir Oryggisráðsins sem meðal
annars slá föstum tilverurétti
Israelsríkis.
Alþjóðaráðstefna hefur und-
anfarið verið umdeilt mál,
Bandaríkin og ísrael hafa lagst á
móti slíkri ráðstefnu, en í Was-
hington eru menn að endurskoða
þá afstöðu, og Peres utanríkis-
ráðherra í Jerúsalém hefur gerst
talsmaður ráðstefnu með vissum
skilyrðum. Ályktun norrænu ráð-
herranna hljóðar svo:
„Á fundi utanríkisráðherra
Norðurlanda í Reykjavík var
samþykkt ályktun varðandi
ástand mála í Austurlöndum nær.
Norðurlöndin harma að til-
raunir til að koma af stað friðar-
viðræðum hafa ekki borið árang-
ur. Samningaleiðin er sú eina sem
fær er.
Utanríkisráðherrar Norður-
landa styðja þá hugmynd að hald-
in skuli alþjóðleg ráðstefna um
Austurlönd nær á vegum Samein-
uðu þjóðanna með þátttöku alira
aðila. Ráðherrarnir telja að slík
ráðstefna myndi vera mikilvægt
framlag í leit að réttlátri og varan-
legri lausn deilunnar sem byggð
væri á ályktunum Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna 242 og 338
og á sjálfsákvörðunarrétti Palest-
ínuþjóðarinnar."
8 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 27. mars 1987