Þjóðviljinn - 27.03.1987, Page 9

Þjóðviljinn - 27.03.1987, Page 9
 Olga Guðrún og Svavar áttu fjörugar samræður við starfsmenn Ríkisútvarps- ins á fyrsta vinnustaðafundi sem þar hefur verið haldinn. Alþýðubandalagið Líflegir vinnustaða- fundir Olga Guðrún Árnadóttir: Mikið spurt um stefnuna í launa-og húsnœðismálum. UtanríkisstefnaAlþýðubandalagsins á miklu fylgi aðfagna Kosningabaráttan er nú hafín af fullum krafti og fyrir allmörgum vikum hófu fram- bjóðendur að heimsækja vinnu- staði, sumum til ama, öðrum til ánægju. Frambjóðendur Alþýðu- bandalagsins hafa verið á þönum milli tuga vinnustaða i borginni einsog sjá má af meðfylgjandi myndum, og að sögn Olgu Guðr- únar Árnadóttur, sem skipar S.sætið í Reykjavík, er mikið spurt og spjallað. „Við kynnum og skýrum stefnu Alþýðubandalagsins, ræðum gerðir þeirrar ríkisstjóm- ar sem nú er að fara frá og það ástand sem hefur skapast í þjóðfélaginu vegna aðgerða hennar“ sagði Olga Guðrún. „Það ástand að stéttaskiptingin er alltaf að aukast. Það er spurt um allt mögulegt, um stefnu okkar i húsnæðis-og kjaramálum, og hvemig Alþýðu- bandalagið ætli að fara að því að hífa upp laun fólks þannig að menn geti farið að lifa við mannsæmandi kjör. Fólk spyr töluvert um verð- bólguna, það er búið að telja fólki trú um að Alþýðubandalag- ið sé verðbólguflokkur. Við reynum þá að skýra fyrir fólki hvemig Sjálfstæðisflokknum og Framsókn hefur tekist með ýmiss konar sjónhverfingum að „yfir- vinna “ verðbólguna. Fólk spyr einnig mikið um skattamál og stefnu í vaxtamálum. Fólk er óánægt Umræðuefnið fer mikið eftir því hvers konar vinnustað við erum á, maður spilar þetta eftir eyranu og eftir því hvað fólk vill ræða um. Það er mjög áberandi að fólk er almennt mjög óánægt með frammistöðu flokkanna á síðustu árum, fólk er orðið mjög svekkt á því ábyrgðarleysi sem einkennir íslenska pólitík og finnst of mörg gefin loforð hafa verið svikin. Og þar ætlum við að bæta úr. Mér hefur verið sagt af þeim sem til þekkja að á karlavinnu- stöðum hafi sú breyting orðið á frá síðustu kosningum að nú sýni menn miklu meiri áhuga á mál- efnum sem snerta fjölskylduna. Karlmenn eru farnir að spyrja út í bamaheimilismál, stefnu í skólamálum og fæðingarorlofs- mál. Þetta sýnir kannski fyrst og fremst að áhyggjuefnum hefur fjölgað á þessum vettvangi og karlar jafnt sem konur óttast um hag bama sinna og fjölskyldu í markaðshyggj usamfélaginu. Á vinnustöðum þar sem mikið Ásmundur Stefánsson, sem skipar 3.sætið í Reykjavík, dreifir kosningablaði Alþýðubandalagsins meðal starfsmanna á Orkustofnun. er af rosknu fólki hafa menn miklar áhyggjur af aðbúnaði aldraðra. Fólk vill finna lífsmark Utanríkismálin hafa verið víða á dagskrá, fólk er fylgjandi hug- myndinni um kjamorkuvopna- laus Norðurlönd og stefna Al- þýðubandalagsins í þeim efnum á alls staðar mikinn hljómgmnn. Þessir fundir em oftast mjög skemmtilegir og þeir eru okkur nauðsynlegir. Eg var í svolitlum vafa áður en við fómm af stað, sumir óttuðust að þetta fyrir- Amór Pótursson, sem skipar 8. sæt- ið, ásamt þeim Svavari Gestssyni (í • 1. sæti) og Olgu Guðrúnu Ámadótlur (I 5. sæti) ræða málefni fatl&jra á fundi með starfsfólki á verrdaða vinnustaðnum í Múlalundi. komulag he.fði gengið sér til húð- ar. En mín reynsla hefur verið sú að yfirleitt tekur fólk ágætlega á móti okkur og oft er beðið um heimsóknir frá okkur. Fólk vill gjaman heyra frá stjómmála- mönnum og ræða málin þó það sé ekki endilega tilbúið með ein- hverja spurningalista. Fólk vill finna lífsmark og víð- ast hvar hefur þetta mælst ágæt- lega fyrir. Ég hef ekki tölu á því hve marga fundi við höfum haldið, þetta hefur verið stanslaus keyrsla í margar vikur. Okkar ágæti kosningastjóri, Þómnn Sig- urðardóttir, skipuleggur ferðirn- ar og sendir okkur um allan bæ, yfirleitt tvö saman en stundum fáum við fleiri með okkur. Mér finnst sjálfri að ég læri ým- islegt af vinnustaðafundum, ég er ný í pólitíkinni og þetta er mjög góð þjálfun fyrir mann og það sem mestu skiptir er að á vinnu- staðafundum fáum við tækifæri til að kynnast viðhorfum hins al- menna kjósanda, kjömm hans og kröfum.“ -vd Föstudagur 27. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.