Þjóðviljinn - 27.03.1987, Page 13

Þjóðviljinn - 27.03.1987, Page 13
VESTFIRÐIR VESTFIRÐIR HESTAMENN! Nú er kominn á markaöinn nýr þrumuhnakk- ur í algjörum sérflokki. íslensk hönnun, vand- aður og léttbyggöur. HESTASPORT Bæjarhrauni 4, Hafnarfirði, sími 651006. Póstsendum. ÍS-HNAKKUR Söðiasmiður: Pétur Þórarinsson Framtíðin Fjölskyldan í fyrirrúmi „Málefni fjölskyldunnar eru ofarlega í mínum huga, nú sem endranær, enda sjálf átta barna móðir. Pað er til háborinnar skammar hvernig núverandi rík- isstjórn hefur leikið fjölmargar fjölskyldur með láglaunastefnu sinni og vaxtaokri. Þær eru ófáar fjölskyldurnar í þessu landi sem hafa verið lagðar í rúst vegna frjálshyggjustefnu stjórnvalda í vaxtamálunum. Þessir háu herrar leggja allt á vogarskálar fjár- magns-ins en huga ekkert að vel- ferð heimilanna og barnanna. Á þessu kjörtímabili hafa mörg börn þessa lands fengið að horfa upp á upplausn heimilanna vegna þess að báðar fyrirvinnurnar hafa ekki megnað að standa í skilum á afborgunum sem sífellt urðu hærri þar til fjölskyldan sligaðist undan þeim,” segir Þóra Þórðar- dóttir í Súgandafirði sem skipar 3ja sæti á lista Alþýðubandalags- ins á Vestfjörðum. „Framtíð okkar sem þjóðar liggur í börnunum okkar. Að vanrækja þau er að vera blindur á framtíðina. Börnin eru við- kvæmur fjársjóður sem mæli- kvarði Mammons skilur ekki. Við þurfum að búa þannig í hag- inn fyrir þau að þau geti þroskast og dafnað í öruggu skjóli heimi- lisins og dagvistunarstofnana. Sérhvert heimili á að eiga þess kost að geta komið börnunum fyrir á dagvistunarstofnunum ef vilji er fyrir því. Best væri auðvit- að að börnin gætu verið heima hjá sér en á meðan báðir foreldr- ar verða að vinna úti til að geta séð fjölskyldunni farborða er nauðsynlegt að geta gengið að dagvistun vísri,” segir Þóra Þórð- ardóttir. armálum er aðför að búsetu á Vestfjörðum. Því leggjum við Alþýðubanda- lagsfólk á Vestfjörðum áherslu á að taka verður upp gjörbreytta stefnu í landbúnaði sem grundvallast á því markmiði að halda landinu í byggð. Eitt mikil- vægasta atriði í þeirri nýju stefnu er að færa verksmiðjubúskapinn út á land og koma honum undir framleiðslustjórnun. Með þessu verður tryggt að störfum í land- búnaði fækki ekki og einnig að fjölbreytni í framleiðslunni verði tryggð. Þá þarf að endurskipu- leggja landbúnaðinn m.t.t. land- kosta, heimamarkaðar og stöðu byggðar. Sérstaða Vestfjarða: 1) Byggð á Vestfjörðum stend- ur það höllum fæti að hvert bú skiptir miklu máli í því að halda fámennum sveitum í byggð. Við megum ekki við því á Vestfjörð- um að sveitirnar grisjist meir en orðið er. I ísafjarðardjúpi t.d. er nauðsynlegt að styrka sveitirnar. 2) Varðandi sauðfjárræktun eru aðstæður þær bestu sem þekkjast á öllu landinu hér á Vestfjörðum. M.a. er ekki vottur af ofbeit og fallþungi dilka í fjórð- ungnum með því hæsta á landinu. 3) Mjólkurframleiðsla á Vest- fjörðum nægir ekki fyrir heima- markað og í dag verður að flytja til Vestfjarða umtalsvert magn af mjólk og mjólkurafurðum. Með þessar þrjár staðreyndir í huga getum við Vestfirðingar sett fram í fullum rétti þá kröfu að Vestfirðingafjórðungur verði Að sögn Þóru er það mikill ábyrgðarhluti að ala upp barn og koma því til manns. Sú ábyrgð er lítils metin í dag, sem sést best á því hvað laun þeirra sem vinna að uppeldis- og kennslumálum eru skammarlega lítil. Það hefur leitt til þess að mjög erfitt hefur verið að fá fólk til starfa. í kennara- stéttinni er atgervisflótti stað- reynd og illa gengur aö fá menntaðar fóstrur í vinnu. Kvennaframboð tímaskekkja „Við í Alþýðubandalaginu höfum alltaf lagt mikla áherslu á mikilvægi þess að börnunum okkar líði vel og samfélagið taki á sig nauðsynlegan kostnað til þess. Enda er það svo að margt af okkar baráttumálum í þessum málaflokki má sjá hjá hinum ýmsu kvennaframboðum sem sprett upp eins og gorkúlur út um allt land. En það vill gleymast hverjir hafa staðið í fylkingar- brjósti í þessum málum en það hefur Alþýðubandalagið ávallt gert. Byggðamál Ég vil meina að sérstök kvenn- aframboð séu tímaskekkja og séu alls ekki til þess fallin að auka jöfnuð milli kvenna og karla. Það sér hver heilvita kona, að fram- boð sem byggir sérstöðu sína ein- göngu á kynferði, er ekki besti kosturinn til að brúa það bil sem er á stöðu karla og kvenna í dag. Miklu fremur skerpir það ands- tæðurnar og torveldar þá þróun að konur búi við jafnan rétt til launa og vinnu og karlar. Þetta ættu konur hér á Vestfjörðum að hafa í huga þegar þær ganga að undanþeginn skerðingu í fram- leiðslu á mjólk og kindakjöti. Jöfnun lífskjara: I almennum kjarasamningum er samið um kaup og kjör um allt land. Umsamin laun eru þau sömu hvar sem er á landinu eða m.ö.o. tekjuhlið heimilanna er samræmd á landsvísu. Hið sama verður ekki sagt um útgjaldahlið heimilanna. Það er og verður markmið sósíalísks flokks að berjast fyrir samræm- ingu á þessu sviði sem og öðrum sem leiða til jöfnunar lífskjara. Áður hefur verið getið um jöfnun á kostnaði vegna náms en við Alþýðubandalagsfólk leggj- um jafnframt þunga áherslu á jöfnun kostnaðar vegna orku- verðs og símagjalda. Þá erum við Vestfirðingar orðnir langþreyttir á háum húshitunarkostnaði og verður ekki unað við óbreytt ástand í þeim málum öllu lengur. Þá má minna á að vöruverð er allnokkuð hærra hér en gerist í öðrum landshlutum. Við þurfum því að eyða stærri hluta launa okkar í kaupum á brýnustu lífsnauðsynjum. Þessu þarf að breyta. Félagsmál: Eigi öflug byggðastefna að ná fram að ganga verður, auk þess sem áður hefur verið nefnt, að mæta kröfum fólks um félagslega þjónustu. Þar má nefna: 1) Að- stöðu fyrir aldraða til að geta eytt ævikvöldinu í sinni heimabyggð. 2) Aðstöðu fyrir ungt fólk til æskulýðs- og íþróttamála. Ekkert fullgilt íþróttahús til í Vestfirð- ingafjórðungi. kjörborðinu 25. apríl n.k.,” segir Þóra Þórðardóttir. Að sögn Þóru eru það byggð- amálin sem setja sterkastan svip á kosningabaráttuna. „Fyrir okkur Vestfirðinga er það lífsnauðsyn að vinna bug á samgönguleysinu sem einkennir fjórðunginn öðru fremur. Þau skera alla þætti mannlífsins hér. Það er alveg sama hvar borið er niður; alltaf strandar allt vegna samgöngu- leysis. Þess vegna er brýn nauðsyn á því að við fáum jarðgöng í gegn- um fjöllin hérna til þess að Vestfirðirnir geti orðið ein heild. Góðar samgöngur eru okkur al- gjör lífsnauðsyn. Þær tengja byggðirnar saman. Eins og mál- um er háttað í dag er hver byggð nánast sem heimur út af fyrir sig. Þessu þarf að breyta og það strax í dag.„ Sjávarútvegsmál „Þá brenna sjávarútvegsmálin heitt á okkur Vestfirðingum. Það ætti að vera hverjum heilvita manni ljóst að það gengur ekki til lengdar að þær byggðir sem liggja næst auðugum fiskimiðum séu hafðar í svelti og þeim meinað að nýta þau á hagkvæmasta máta sem völ er á. Frá Vestfjörðum er stutt á fengsæl mið og kostnaður- inn við veiðarnar er hvað minnst- ur héðan frá Vestfjörðum. Hérna er þekkingin og kunnáttan fyrir á veiðum og í vinnslu og þess vegna ættum við að fá að njóta hennar. „Núverandi sjávaiútvegs- stefna er að drepa allt í dróma og meðalmennskan tröllríður hús- um. Miklu nær væri að gefa Vestfirðingum færi á að hagnýta hin auðugu fiskimið á hagkvæm- astan hátt, bæði fyrir fjórðunginn í heild og þjóðina alla.” Það er staðreynd sem menn verða að horfast í augu við að sveitarfélög á Vestfjörðum hafa ekki bolmagn til að veita íbúum þess þá félagslegu þjónustu sem talin er nauðsynleg í nútímaþjóð- félagi. Því verður ríkisvaldið að leggja sveitarfélögunum til tekj- ustofna svo að þeim verði gert kleift að mæta þörfum ungra sem aldraðra. Lokaorð: Hér að framan hefur verið drepið á nokkur mál sem eru forsenda fyrir áframhaldandi byggð á Vestfjörðum. Er þó margt ótalið s.s. uppbygging leiguhúsnæðis og fjölbreyttara atvinnulíf. Eftir fjögurra ára valdatíma núverandi stjórnarflokka ætti Vestfirðingum að vera orðið ljóst að þessir flokkar, Framsóknar- flokkur og Sjálfstæðisflokkur, hafa ekki pólitískar forsendur til að framfylgja þeirri byggðastefnu sem Vestfirðingum er þörf á. Þeir eru fastir í hugmyndafræðilegum kreddum markaðsbúskapar og frjálshyggju. Byggðamálin verða aðeins leyst með aðgerðum byggðum á félagslegum viðhorf- um. Alþýðubandalagið er eini flokkurinn sem hefur forsendur til að vinna á þessum grundvelli og hefur sýnt að það er eitt þess megnugt að standa vörð um hagsmuni landsbyggðarinnar. X-G - öflug byggðastefna. Kjósum Alþýðubandalagið og gerum Vestfirði að þróttmiklum fjórðungi. - Stöðvum fólksflótt- ann - fulla atvinnu - kvótann burt. grh. 12 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Föstudagur 27. mars 1987 Þóra Þórðardóttir 3. á lista AB er í börnunum okkar Kvennaframboð er tímaskekkja. Alltstrandar á samgönguleysinu. Kvótastefnan er tilrœði viðframtíðfólksins. Jafnrétti ogjöfnuðurá öllum sviðum mannlífsins. Ratsjárstöðin á Bolafjalli er Ijótur blettur á Vestfjörðum. Verðum ekki annars flokks manneskjur í eigin fjórðungi. Kjósum A Iþýðubandalagið „Kvótastefnan er að leggja sjá- varplássin í eyði ef fram fer sem horfir að kvóti er látinn fylgja hverjum bát. Skynsamlegra væri að plássin ættu kvótann en ekki útgerðarmenn. Að hverju á fólk- ið að ganga þegar útgerðarmaður hættir og selur bátinn? Kvóta- stefn-an er fjandsamleg byggðum Vestfjarða og er tilræði við fram- tíð fólksins sem hér býr,” segir Þóra Þórðardóttir. Landbúnaðarmál Að sögn Þóru er stefna stjórnvalda ekki hótinu betri í landbúnaðarmálum. Stjórnvöld lofi að bændur fái leiðréttingu á þeim mismun sem er á fullvirðisrétti og búmarki en það er ekki nóg. Efndirnar láta standa á sér. Ástandið er gjör- samlega óviðunandi fyrir bændur og áframhaldandi búsetu í sveitum fjórðungsins. „Ekki nema að það sé mar- kmið þeirra sem ráða landbúnað- arstefnunni að gera Vestfirði að sumarbústaðalandi fyrir efnaða sunnanmenn. Sveitirnar hér þola ekki frekari röskun en orðin er. Við eigum ekki við vandamal of- beitar að stríða og dilkar héðan eru þeir vænstu á öllu landinu. 4 meðan við þurfum að flytja hing- að óhemjumagn af mjólkur- vörum er það í hæsta máti óeðli- legt að fjötra bændur á klafa og meina þeim framleiðslu á vörum sem ekki er nóg af í fjórðungn- um,” segir Þóra. Gamla fólkið Þá leggur hún mikla áherslu á að jöfnuður og réttlæti ríki á öllum sviðum mannlífsins. Þaö þurfi að huga vel að gamla fólk- inu sem er búið að vinna langan vinnudag og borga sitt til samfél- agsins í gegnum tíðina. Þetta fólk eigi kröfu til samfélagsins að það fái að njóta ævikvöldsins í friði og ró. En ekki eins og það er í dag, að vera þjakað af umkomuleysi og örvæntingu vegna þess að það fær ekki mannsæmandi lífeyri. Ástandið í þessum málum sé al- veg óviðunandi og ljótur blettur á íslensku þjóðinni. Ennfremur ætti sérhver ellilíf- eyrisþegi að eiga þess kost að búa í sinni heimabyggð eftir að vinnu- degi hans væri lokið. En ekki að það þurfi að rífa sig upp með rót- um og flytja suður til dvalar í ók- unnugu umhverfi. Almenn friðarmál „Almenn friðarmál eru mér einkar hugstæð. Það er til vansa fyrir Vestfirðina að fá þennan óskapnað yfir okkur sem ratsjár- stöðin á Bolafjalli er. Hún er al- gjör tímaskekkja í dag. Miklu fremur ættum við að leggja okkar af mörkum til að styrkja friðinn í heiminum. Ratsjárstöðin þjónar eingöngu hagsmunum Banda- ríkjanna. Það er mikill misskiln- ingur að hún sé til að auka á ör- yggismál Vestfirðinga. Við erum skammar að ríkisstjórnin skuli standa í vegi fyrir því að Norður- lönd ásamt íslandi verði lýst kjarnorkuvopnalaust svæði. Það er bráðnauðsynlegt fyrir okkur íslendinga að banna alla umferð með kjarnorkuvopn í landhelgi okkar. Því það veit eng- inn hvað átt hefur fyrr en misst ’hefur. Ég þori ekki að hugsa þá hugsun til enda, ef til þess kæmi, að vart yrði við geislavirkan fisk hér í sjónum. Fólk ætti að íhuga þessi mál gaumgæfilega og taka sjálfstæða ákvörðun. Láta af þessum undirlægjuhætti og standa beint í baki. Hugsa fremur um framtíð sína og barnanna en ekki hvað kjallaraliði Reagans er fyrir bestu. í þessum málum er hver sjálfum sér næstur og mikil- vægt að fólk geri sér grein fyrir því,” segir Þóra Þórðardóttir. Niðurlag „Að síðustu vil ég hvetja allar konur og menn til að kjósa Al- þýðubandalagið í komandi al- þingiskosningum. Sterkt Al- þýðubandalag er eina von okkar aðeins peð í hráskinnaleik stór^\að snúið verði af þeirri braut sem veldanna og ættum að vera kom- við höfum þurft að ganga undan- in til vits og ára til að skilja það. En því miður eru alltaf til menn sem vilja selja allt sem hægt er að selja ef einhver gróðavon er í sjónmáli. Og það grunar mig að sé lykillinn að því af hverju stöðin er sett upp hér fyrir vestan. í- stöðulitlar sálir í Bolungarvík stóðust ekki freistinguna þegar þær litu gullið auga, sem að þeim var hampað, og gleyptu við því. Þetta er enn dapurlegra þegar við lítum í kringum okkur. Alls staðar er reynt eftir fremsta megni að minnka spennuna milli stórveldanna og allt gert til þess að raunhæf afvopnun eigi sér stað. Þá er það líka til háborinnar farin fjögur ár. Hún hefur verið dýru verði keypt. Við Vestfirðingar höfum ekki efni á því ef við ætlum að búa hér áfr- am. Vestfirðingum er nauðsyn á að standa saman. Það er okkar bani ef við berjum hver á öðrum og reynum í sífellu að ota okkar tota á kostnað hvers annars. Við verð- um að líta á okkur sem eina heild með sameiginlega hagsmuni. Þá og því aðeins náum við að standa af okkur spjótalögin að sunnan, sem miða að því að gera okkur að annars flokks manneskjum í eigin landsfjórðungi,” sagði Þóra Þórðardóttir frá Súgandafirði. grh Útgerðarmenn - skipstjórar - vélstjórar Nú eru 28.700 hestöfl af Berg- en Diesel í gangi á íslandsmið- um. í pöntun eru 10.900 hestöfl. Þetta sýnir það traust sem ís- lenskir útgerðarmenn hafa á Bergen Dieselvélum. Bjóðum ykkur einnig hinar vel- þekktu Cummins-ljósavélar, hliðarskrúfuvélar og aðalvél- ar. Einkaumboð Björn & Halldór hf. Síðumúla 19 Símar 36030 & 36930

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.