Þjóðviljinn - 27.03.1987, Page 15

Þjóðviljinn - 27.03.1987, Page 15
Fyrir utan tölvuvogir og hug- búnað þeim tengdum framleiðir Pólstækni h/f m.a. Stýrikerfi fyrir framleiðsluiðnað og Aðvörunar- kerfi. Þaö nýjasta í framleiðsl- unni er Tímaskráningarkerfi sem kemur í staðinn fyrir stimpil- klukkuna. í dag er starfsemi Pólstækni h/f á tveimur stöðum. Á ísafirði og í Reykjavík. í Reykjavík eru starfsmenn 7 sem sjá um sölu, viðgerðir, útflutning og innflutn- ing. Sá sem sér um reksturinn í Reykjavík heitir Birgir Uifsson. Gott samband er þarna á milli og er fundað í gegnum síma einu sinni í viku. Þá hefur verið stofnað fyrir- tæki í Noregi til að sjá um mark- aðssetningu, sölu og viðgerðir. Par ræður ríkjum Magni Vetur- Iiðason. (Pess má geta hér i fram- hjáhlaupi að Ásgeir, Birgir og Magni eru ísfirðingar.) Þctta fyr- irtæki heitir Póls-Norge a/s. Póls- tækni h/f á 35% í fyrirtækinu, tveir starfsmenn þess eiga 20% hvor og norskt ráðgjafarfyrirtæki á 25%. „Galdurinn á bak við þetta ævintýri hjá okkur liggur fyrst og fremst í góðu vinnuafli,“ segir Ásgeir Erling. „Starfsandinn hér er mjög góður og samvinna mikil á meðal starfsmanna. Ferillinn í framleiðslunni og útflutningnum er mjög flókinn og því er sam- vinna ásamt tápmiklu einstakl- ingsframtaki forsenda þess að fyrirtækið okkar geti staðið sig í samkeppni við önnur fyrirtæki. Góður árangur virkar hvetjandi á starfsfólkið og ennfremur höfum við hér í fyrirtækinu ákveðna valddreifingu sem hefur ákveðna ábyrgð í för með sér. Þetta ásamt því að við borgum laun eftir fram- lagi hvers og eins hvetur starfs- fólkið til dáða. Þetta er galdurinn á bak við Pólstækni h/f og er ein af undirstöðum fyrirtækisins. M.ö.o. orka fyrirtækisins liggur í unga fólkinu sem hér vinnur ásamt reynslu hinna eldri". Blóðtaka fyrir Vestfirðina „Eina vandamálið í framþró- uninni hjá Pólstækni h/f og sem er í rauninni ekki bara vandamál sem við eigum við að glíma, er skólakerfið hér á Vestfjörðum. Eins og málum er háttað í dag í framhaldsskólamenntun hér í fjórðungnum þá er hún ekki með þeim hætti sem skyldi. Hér vant- Ásgeir Erling Gunnarsson framkvœmdastjóri: Flytjum út tölvuvogir og hugbúnað þeim tengdum. Orka fyrirtœkisins liggur í ungafólkinu. Veltaníár yfir 100 milljónir ar samræmdan Verkmenntaskóla þar sem unga fólkið getur lært bæði bók- og verkleg fög. T.d. hafa starfsmenn Pólstækni h/f kennt raftæknigreinar við Iðn- skólann á ísafirði en án þeirra væri engin kennsla í þessum greinum við skólann. Þessi þáttur í skólakerfinu er veikleikamerki að mínum dómi. Því þó við fáum hæft fólk til starfa úr Reykjavík, þá.geta umhverfisaðstæður o.fl. í þeim dúr, latt fólkið til að vera. Þess vegna væri það betra, bæði fyrir ísafjörð og Vestfirðina alla, að ungt fólk í fjórðungnum geti sótt sér menntun innan hans sem síðan skilaði því t.d. í háþróaðar framleiðslugreinar. Það er alltof mikið af góðu ungu fólki sem fer suður til náms vegna þess að það á ekki kost á menntun hér við sitt hæfi. Þetta fólk kemur ekki til baka og er mikil blóðtaka fyrir Vestfirðina. Að öllu óbreyttu er framtíðin mjög björt hjá okkur. Veltan hjá okkur í fyrra nam 65 milljónum króna og í ár er því spáð að hún verði ekki undir 100 milljónum króna,“ sagði Ásgeir Erling Gunnarsson framkvæmdastjóri hjá Pólstækni h/f að lokum. grh. Ratsjárstöðin á Bolafjalli íhaldið tók prestana á beinið ÓlafurJens Daðason í Bolungarvík: Allur undirbúningur fór fram ífelum. Rúmlega50% Bolvíkinga á mótistöðinni. Vígbúnaðarkapphlaupið tímaskekkja „Ég tel að skammtíma gróðasjónarmið ásamt ístöðuleysi gagnvart hinum háu herrum fyrir sunnan sé aðalorsökin fyrir því að framkvæmdum vegna byggingar ratsjárstöðvar á Bolaf jalli var ýtt úr vör. Ég hef enga trú á málflutningi herstöðvarsinna um að stöðin muni þjóna örygg- ismálum í lofti og á sjó. Það er aðeins tylliástæða til að kasta ryki í augu almenn- ings og fela hinn eiginiega tilgang stöðvarinnar, sem er fyrst og f remst að þjóna hagsmunum útþenslust- efnu bandarískra heims- valdasinna," segir Ólafur Jens Daðason í Bolungar- vík. „í byrjun var reynt að fela mál- ið fyrir bæjarbúum. Allur undir- búningur fór fram í felum. Að- eins hluti bæjarstjórnar fékk að fylgjast með. En þetta spurðist fljótt út. Menn urðu illir út í þennan feluleik og fólk spáði í hvað hægt væri að gera til að spyrna við fótum gegn þessum vágesti sem gerði sig líklegan til að hreiðra um sig í túnfætinum. Fljótt myndaðist í Bolungarvík og nágrenni hörð andstaða gegn fyrirhugaðri byggingu ratsjár- stöðvar á Bolafjalli fyrir ofan Bolungarvík," segir Ólafur Jens. 1. desember 1985 var haldin friðarráðstefna á ísafirði og í Ólafur Jens Daðason. framhaldi af því var ákveðið að stofna samtök gegn ratsjárstöð- inni. Þessi samtök voru þver- pólitísk og í stjórn þeirra voru m.a. þrír starfandi prestar í Norður-ísafjarðarsýslu þeir Lár- us Þ. Guðmundsson í Holti í Ön- undarfirði, Jakob Hjálmarsson í ísafirði og Jón Ragnarsson í Bol- ungarvík. En fljótlega eftir stofn- un samtakanna bökkuðu prest- arnir út vegna harðrar andstöðu íhaldsins og herstöðvasinna sem ásökuðu prestanna um að mis- nota aðstöðu sína og ganga er- inda heimskommúnismans. í skoðanakönnun sem fram- kvæmd var á Bolungarvík um af- stöðu fólks til ratsjárstöðvarinnar kom í ljós að rúmlega 50% þeirra sem tóku afstöðu í könnuninni voru andvígir uppsetningu stöðv- arinnar á Bolafjalli. Þrátt fyrir það var haldið áfram nauðsynlegum framkvæmdum í Bolungarvík til að gera stöina að veruleika. í dag er búið að gera veg upp á Bolafjall og bygginga- framkvæmdir við sjálfa stöðina hefjast í vor. Dyggustu stuðningsmenn þess- ara framkvæmda í Bolungarvík eru fulltrúar Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks sem hafa haft ómældar tekjur af þeirri undir- búningsvinnu sem þegar hefur farið fram. Ennfremur höfðu herstöðvasinnar stuðning fulltrúa Framsóknarflokksins í bæjar- stjórn Bolungarvíkur, en í dag á Framsókn engan fulltrúa í bæjar- stjórninni. Framsóknarflokkur- inn þurrkaðist út af hinu pólitíska landakorti Bolvíkinga í síðustu sveitarstjórnarkosningum. „Þessi stöð er ógnun við fram- tíð Bolungarvíkur og nágrennis og eykur ekki á bjartsýni manna. Hún eykur á spennuna milli austurs og vesturs og gerir okkur að þátttakendum í vígbúnaðar- kapphlaupinu, sem er löngu orð- ið tímaskekkja. Þessi stöð er fyrst og fremst liður í hernaðarupp- byggingu Bandaríkjanna. Það stendur okkur Vestfirð- ingum nær að reyna að leggja okkar að mörkum til slökunar spennu milli austurs og vesturs, í stað þess að ganga erinda banda- rískra hagsmuna sem er ógnun við heimsfriðinn," sagði Ólafur Jens Daðason að lokum. Skeifan 17 Reykjavík símar 84515 - 84516 MMsm ^_■■ j "'^wáííÆíM L ENDURBYGGJUM BÍLVÉLAR Sérhæft vélaverkstæði í viðgerðum á bensin- og disilvelum i bitreiðum og vinnuvélum • Borum vélarblokkir • Rennum sveifarása • Rennum ventla og ventilsæti • Plönum vélarblokkir og hedd • Rafsjóðum á sveifarása * .>< M RUSLI Stálgrind með stórum plastpoka undir ruslið — afar hentug fyrir skrifstofur, skóla, spítala, verk- smiðjur og hótel. Pú hringir bara ef þig vantar „undir ruslið". Sendum að sjálf- sögðu í póstkröfu til fólks úti á landsbyggðinni. Skrlfstofuvörur hf. Ármúla 30-108 Reykjavík - Sírr 82420

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.