Þjóðviljinn - 27.03.1987, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 27.03.1987, Blaðsíða 24
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 Föstudagur 27. mars 1987 72. tölublað 52. örgangur SAMVINNUBANKi ÍSLANDS HF. Suðvesturhornið Ömí Stapanum ,Jú það hefur verið örn á sveimi hérna síðustu daga, við sáum hann síðast í gær,” sagði Sveinbjörn Oddsson hjá Voga- iaxi, þegar við bárum undir hann fregnir af erni á þeim ólíklega stað Suðurnesjunum. „Hann er aðallega að stríða hrafninum og svartbaknum, sýnist okkur. Hann tekur æti í fjörunni og flýgur með það eitthvað inn á heiði, en virðist annars halda sig í Stapanum.” Kristinn Skarphéðinsson, starfsmaður Náttúrufræðistofn- unar, sagði okkur að ernir hefðu verið með meira móti í kringum Reykjavík í vetur, einir sex fuglar hefðu sést frá því um jólaleytið, en sá fjöldi gæti þó ekki talist óvenjulegur. Flestir væru fugl- arnir uppi í Hvalfirði, en það sem vekti athygli að ernir væru farnir að sjást meira á Suðurnesjum en venjulegt væri. „En það er hend- ing ef þar hefur sést örn síðustu áratugi,” sagði Kristinn. HS. Nemendur Ennþá í raðuneytinu < Mótmœlaganga að stjórnarráðinu í dag - Við munum sitja hér þar til lausn hefur fengist á þessari deilu og við viljum um leið lýsa yfir stuðningi okkar við kröfur kenn- ara, sagði Benedikt Erlingsson, einn fjölmargra framhaldsskóla- nema sem haldið hafa til á göngum fjármálaráðuneytisins frá því á þriðjudag. Engan bilbug er á nemendum að finna, en á fjórða tug þeirra hafa haldið til í ráðuneytinu und- anfamar nætur og fjölmennara hefur verið yfir daginn. Á morg- un kl. 15.00 ætla nemendur í mót- mælagöngu frá fjármálaráðu- neytinu að Stjómrráðinu, þar sem lögð verður áhersla á kröfu- na um eðlilegt skólahald. -•g- Reykjavík Stöðumælar bratnir upp Reykjavíkurborg hefur í sam- ráði við lögregluyfirvöld komið á fót sérstakri vaktasveit til að koma í veg fyrir frekari skemmd- arverk á ýmsum umferðarbúnaði borgarinnar. Frá áramótum hafa um 80 stöðumælar verið brotnir upp og eyðilagðir og einnig hefur nokkr- um umferðarspeglum, sem ný- lega hafði verið komið fyrir á hættulegum gatnamótum, verið stolið eða þeir eyðilagðir. Tjón vegna þessara skemmdarverka er metið á um 2.5 miljónir. -*g- ab-mjólk fyrir þinn innri mann Nafn sitt dregur mjólkin af tveimur gerlum sem í henni eru, a og b. a stendur fyrir lactobacillus acidophilus og b fyrir bifidobacterium bifidum. a og b - þú getur ekki án þeirra verið Þessir gerlar eru í öllum heilbrigðum einstaklingum en margt getur orðið til þess að raska nauðsynlegu og stöðugu jafnvægi þeirra, eins og t.d. veikindi af ýmsum toga, neysla fúkalyfja, streita og snöggar breytingar á mataræði. Dagleg neysla ab-mjólkur styrkir stöðu okkar innri manns gegn slíkum uppákomum. Rannsóknir benda einnig til þess að starfsemi a og b gerlanna geti komið í veg fyrir myndun kólesteróls í blóðinu. ab-mjólk - morgunverður sem stendur með þér ab-mjólk er öllum góð ab-mjólk minnir um margt á súr- mjólk. Hún er kalk- og próteinrík eins og aðrar mjólkurafurðir og kjörin sem morgunverður eða skyndimáltíð, í hádegi eða að kvöldi, þá ýmist með blöndu af korni og ávöxtum eða ávaxtasafa.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.