Þjóðviljinn - 05.04.1987, Qupperneq 2
FLOSI
\iiku
skammtur
◦f aprflgabbi
( vikunni sem leið var fyrsti apríl, en það er
fyrsta apríl sem maður er látinn hlaupa apríl
svona til tilbreytingar, „í grámóðu hversdags-
leikans“, einsog það er stundum kallað...
Eftir langt og viðburðaríkt lífshlaup er ég orð-
inn reynslunni ríkari og þess vegna er ég alltaf
afar var um mig 1. apríl. Ég er ekkert á því að
láta plata mig til að trúa einhverri vitleysu og
mér finnst það næstum hámark niðurlægingar-
innar, þegar prökkurum tekst að senda mig ein-
hverja erindisleysu í tilefni dagsins.
Þetta vita mínir nánustu og þess vegna er það
plagsiður hjá konunni minni að láta mig hlaupa
apríl á hverju ári.
Auðvitað tekst henni þetta alltaf, því það er
hún sem hefur aðgang að mér fyrst á morgn-
ana, áður en ég get farið að vara mig á hrelling-
um daganna.
Verkaskiptingin hjá okkur heiðurshjónunum
er með þeim hætti að ég sé um eitt og annað
utan heimilisins, en hún sér um heimilið og mig.
Hún fer jafnan snemma á fætur, því fyrir utan
að sjá um heimilið og mig, vinnur hún líka. Hún
er á skrifstofu frá hálfníu til fimm.
Eitt af því sem er í hennar verkahring, er að
hafa fötin mín jafnan tilbúin á morgnana svo að
ég tefjist ekki úr hófi við að klæða mig. Það sem
hún vill að ég fari í þann og þann daginn, leggur
hún á þartilgerðan bekk í svefnherberginu og
lagar svo kaffi á meðan ég er að klæða mig.
Þegar við vorum svo að drekka kaffið á mið-
vikudagsmorguninn var, þann 1. apríl, sagði
hún alltíeinu svona einsog uppúr þurru:
- Heyrðu, líttu á lappirnar á þér.
Ég gerði það og sá þá að ég var í grænköflótt-
um sokk á hægra fæti en gráum á þeim vinstri.
Hún hafði semsagt lagt ósamstæða sokka fyrir
mig á bekkinn. Ef einhverjum finnst þetta smell-
ið, þá hefur sá hinn sami aðra kímnigáfu en ég.
Eg varð semsagt að fara aftur inní svefnher-
bergi og finna mér samstæða sokka sjálfur.
Þegar ég kom aftur að kaffiborðinu, sagði hún,
sakleysið uppmálað:
- Heyrðu, þú ert í úthverfu prjónavestinu.
Þarna hefði einhver misst stjórn á sér, en
síðan ég hætti að drekka er ég orðinn svo miklu
meðfærilegri á heimili og æðrulausari, svo ég
sagði bara, afar ástúðlega:
- Hvurn djöfulinn á það að þýða að leggja
ekki þessa andskotans leppa skikkanlega fyrir
mann á morgnana. En hún svaraði létt í bragði:
- Fyrsti apríl!!
Ég hugsaði með mér að það væri ekki nema
rétt mátulegt á hana að ég gengi í úthverfu
vestinu allan daginn, svo allir gætu séð hvurs-
konar kvenmanni ég er giftur, en varð afhuga
hugmyndinni, af ótta við að þeir sem ég þyrfti að
umgangast þann daginn - snöggklæddur,
mundu ekki fatta orsakasamhengið og fara
bara að hlæja að mér.
Svo ég fór úr vestinu á staðnum og snéri því
sjálfur við, þannig að úthverfan snéri inn og
ákvað að láta ekki plata mig til að hlaupa apríl
oftar þann daginn.
Það eru einkum fjölmiðlarnir sem maður þarf
að vara sig á 1. apríl og nú var ég búinn að fá
þann forsmekk sem þarf til að vera við öllu
búinn. Ég var staðráðinn í því að láta ekki blekkj-
ast af aprílgöbbum útvarpsins, sjónvarps né
blaða og hló þess vegna stórkallalega þarna við
kafffiborðið, þegar sagt var frá því í morgunfrétt-
unum að á Akureyri hefði tvöfaldur kvartett
sungið þegar verið var að stofna Læonsklúbb.
- Aprílgabb! sagði ég við konuna mína,
sigri hrósandi.
Það hefur oft verið auðveldara en þessa dag-
ana að sjá í blöðunum hvað er aprílgabb, og
hvað eru blákaldar íslenskar fréttastaðreyndir.
Flest af því sem í blöðunum hefur verið að und-
anförnu gætu nefnilega verið endalaus apríl-
göbb. Þess vegna vandaði ég mig afskaplega
mikið við yfirlestur blaðanna þennan 1. apríl og
ákvað staðfastur að láta nú ekki blekkjast.
í Morgunblaðinu voru tvö aprílgöbb. Annað
var það að ungir sjálfstæðismenn hefðu sam-
þykkt, á fjölmennum fundi í Valhöll, að leggja
ríka áherslu á siðferðiskröfur í stjórnmálum. Hitt
var frétt um fund í kristilega Stúdentafélaginu
um smokka og siðfræði. Umræðuefnið átti að
vera:
- Er kristin siðfræði úrelt? Er smokkurinn
eina lausnin? Hver er ábyrgð mín gagnvart
náunga mínum?
Aprílgabb!!
í Þjóðviljanum var aprílgabbið undir
fyrirsögninni.
- Hvert einasta egg skoðað. Og síðan er sá
brandari borinn á borð að eggin sem við
neytendur kaupum séu ekki háræðasprungin,
ekki brotin, ekki gömul, ekki blóðegg, ekki
stropuð og ekki fúlegg.
Aprílgabb!!
í Tímanum var aprílgabbið það að flugstöðin
„Keflavík" ætti í framtíðinni að heita:
FLUGSTÖÐLEIFSEIRÍKSSONAR.
Aprílgabb!!
Það er háttur sumra að verja
göbbum með því einfaldlega að
stendur í blöðunum 1. apríl.
Þannig munu fjölmargir hafa
gefinn hlut að um aprílgabb væri
tvö lesendabréf birtust 1. apríl s.
undir fyrirsögninni:
Stirðbusaleg afgreiðsla
en hitt í Morgunblaðinu undir
Getur verið dýrkeypt að
gölluðum vörum.
sig gegn apríl-
trúa engu sem
tekið það sem
að ræða þegar
I., annað í D.V.
yfirskriftinni:
kvarta undan
í þessum lesendabréfum segir frá yfirskilvit-
legri lífsreynslu tveggja manna sem lögðu, hvor
í sínu lagi, útí þá óvissu að kaupa eccó-skó í
skóverslun Þórðar Péturssonar.
Það furðulegasta við þetta var, að nákvæm-
lega það sama henti báða þessa ólánsömu les-
endadálkahöfunda, þá Þorstein Jónsson og
Lárus Fjeldsted.
Báðir urðu þeir fyrir nákvæmlega sama áfall-
inu, semsagt að nýju eccó-skórnir gáfu frá sér lit
og lituðu hvítar sokkabuxur í þeirra eigu.
Þessu gátu hvorki Lárus né Þorsteinn unað
og fóru hvor í sínu lagi með hvítu sokkabuxurnar
sínar í skóverslun Þórðar Péturssonar til að fá
þær bættar og afslátt af skónum, en mættu
frekju einni og dónaskap hjá verslunarstjóran-
um, eins og segir í báðum lesendabréfunum.
Þessir atburðir áttu sér stað í marslok, en ekki
kemur fram í lesendabréfunum hvort þeir Lárus
og Þorsteinn urðu fyrir þessari þungbæru
reynslu sama eða sitthvorn daginn.
En nú kemur það lang undarlegasta í þessu
yfirskilvitlega sokkabuxnamáli:
Báðir urðu þeir Lárus og Þorsteinn fyrir því að
vera teknir af lögreglunni undir stýri á Lauga-
veginum, grunaðir um ölvun við akstur, eftir að
þeim hafði verið synjað um bætur á sokkabux-
unum og endurgreiðslu á skónum.
Þessu til staðfestingar skrifaði Lárus Morgun-
blaðinu lesendabréfið:
Getur verið dýrkeypt að kvarta undan
gölluðum vörum og Þorsteinn skrifaði Dag-
blaðinu Vísi lesendabréfið Stirðbusaleg af-
greiðsla.
Þessi ósköp ættu að geta orðið lands-
mönnum víti til varnaðar að hætta ekki hvítu
sokkabuxunum sínum í eccó-skó frá skóverslun
Þórðar Péturssonar.
Og þetta er ekki aprílgabb.
Feðgar slást
um atkvæði
Undarleg staða er komin
upp í tengslum við kosninga-
stjórn Framsóknartlokksins
og klofningsframboðs Stef-
áns Valgelrssonar í Norður-
landskjördæmi eystra. Fyrir
klofning fór Stefán þess á leit
við Sigurð F. Haraldsson, að
verða kosningastjóri Fram-
sóknarflokksins í kjördæm-
inu. Stefán mun hafa þurft að
beita Sigurð miklum fortölum,
og að lokum féllst hann á bón
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur
þfngmannsins.
Síðan klauf Stefán sig frá
Framsókn, sem frægt varð,
þegar hann náði ekki fyrsta
sætinu í prófkjörinu í kjör-
dæminu. Nú hins vegar
neitaði Sigurður að fylgja
meistara sínum og taka við
kosningastjórn J-listans. Stef-
án vissi hins vegar sem er, að
í ætt Sigurðar liggja beinlínis
genetískir kosningastjórar, og
þegar Sigurður hafði hafnað
honum hóf hann bónorð við
föður Sigurðar, Harald M.
Sigurðsson.
Haraldur, sem auk þess er
faðir fyrrverandi ritstjóra Þjóð-
5. apríl 1987
viljans, Einars Karls, brást
vel við og hefur stýrt kosning-
abaráttu J-listans af miklum
skörungsskap. En hann er
gamalreyndur kosningastjóri,
hefur meðal annars komið ná-
lægt þremur sigursælum for-
setaframboðum. Þannig var
hann í forystu í héraðinu fyrir
framboði Ásgeirs Ásgeirs-
sonar, og var síðar kosninga-
stjóri bæði fyrir Kristján Eld-
járn og síðar frú Vigdísi á
Norðurlandi.
Þess má geta, að töluverðir
stirðleikar munu hafa orðið í
samskiptum þeirra feðganna
eftir að þeir tóku að berjast um
f ramsóknaratkvæðin... ■
I
Ráðherrareykur á
______a | reykiausum dpgi
barnaskemmtun
S-listinn efnir til barna-
skemmtunar nú um helgina.
Er börnum allra frambjóð-
enda Borgaraflokksins boðið
á skemmtunina. Eitt af þeim
börnum sem fékk boðskort er
Össur Skarphéðinsson, rit-
stjóri Þjóðviljans, en Össur er
sonur Skarphéðins Össur-
arson , sem skipar heiðurs-
sæti S-listans á Vesturlandi.
Sverrir Hermannsson hélt
starfsmönnum Námsgagn-
astofnunar heljarmikið hóf á
reyklausa deginum. Var þar
ýmislegt girnilegt á boðstólum
bæði matar- og drykkjarkyns.
Einnig bauð ráðherrann ó-
spart vindlinga og vindla. Veit
Þjóöviljinn um þrjá sem höfðu
haldið sér reyklausum um
nokkurn tíma er féllu fyrir
ókeypis ráðherravind-
lingum.B