Þjóðviljinn - 05.04.1987, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 05.04.1987, Blaðsíða 8
SUNNUDAGSPISTILL Fyrirgreiðslupólitíkin Þegar Morgunblaðið var á dögunum að velta því fyrir sér í leiðara, hvernig stæði á miklu fylgi Borgaraflokks Al- berts Guðmundssonar, var m.a. borin fram þessi skýring- artilraun hér- í spurnarformi: „Er Albert að uppskera ára- langt starf sem fyrirgreiðslu- pólitíkus?“ Ekki nema von reyndar að slík kenning komi upp. Albert Guð- mundsson hefur aldrei hrósað sér af því að hafa eitthvað sérstakt til málanna að leggja í pólitík. Hann hefur látið sér nægja að ítreka það öðru hvoru að hann sé sann- ursjálfstæðismaður. Afturámóti þreytist hann seint á að taka það fram að hann sé einmitt fyrir- greiðslupólitíkus. Hann segir það vera pólitískan tilgang sinn í líf- inu að „hjálpa öðrum“. Með ýmsum smærri og stærri redding- Sögur og sagnir Og sögur ojysagnir taka við og breiða þennan orðstír Alberts út. Að vísu geta sumar slíkar sagnir verið nokkurri beiskju blandnar, ekki síst þegar uppvíst verður að velgjörðarmaðurinn hefur „hjálpað" með því að vísa á aðra menn og aðra sjóði. En það er sama. Sumir þingmenn og ráð- herrar hafa látið svo lítið að sér kveða að þeir hafa ekki einu sinni krækt sér í orðstír fyrirgreiðslu- manna. Og atburðir næstliðinnar viku sýna að svo sannarlega mun- ar um þann orðstír. Fljótt á litið sýnist það nokkuð gott að áhrifamenn stundi fyrir- greiðslupólitík. Margir eru ráð- villtir andspænis skriffinnsku og fleiri leiðindum sem gera nútíma- manninn enn máttfarnari í lífsins ólgusjó en hann hefur upplag til. Vinsamlegur þingmaður getur stytt mönnum leið. Kannski verða færri úti í stofnanakuldan- um fyrir bragðið. Hinn mannlegi þáttur fær að njóta sín. Eða er ekki svo? Þeir leiðu dilkar En að þessu sögðu - ekki get- um við heldur komist hjá því að vita að fyrirgreiðslupólitíkin dregur á eftir sér marga leiða dilka. Vegna þess blátt áfram að í ARNI BERGMANN t m- 1 ÆJ rauninni ætti hún ekki að vera til. Sá sem fyrirgreiðslu fær hjá áhrifamanni sem hann átti rétt til hvort eð var, hann hefur lagt lykkju á leið sína og geldur fyrir með vissu ósjálfstæði. Því fyrir- greiðslupólitíkus ætlast vitanlega til pólitísks þakklætis í einni eða annarri mynd. Þess vegna ýtir fyrirgreiðslupó- litík undir ósjálfstæði í hugsun, sem er meira en nógu útbreidd hvort eð er. Miklu lakara er það náttúrlega ef að fyrirgreiðslan er fólgin í því að óverðugum eru veitt nokkur friðindi. Honum kannski skotið upp fyrir einhverja aðra sem sam- kvæmt réttum reglum hafa meiri þörf fyrir aðstoð eða úrlausn. Þá er fyrirgreiðslan ekki annað en angi af spillingu sem er þeim mun leiðinlegri vegna þess að einatt fer hún lágt, smýgur um neðan- jarðar eins og hver önnur mold- varpa. Gegn félagshyggju Enn einn háskinn eltir samfé- lag sem venur sig á fyrir- greiðslupólitík eins og hvern ann- an sjálfsagðan hlut. Hann er sá að pólitík þessi tef- ur fyrir því að velferðarkerfi það sem upp er sett þegnunum til trausts og halds sé vel virkt og helst svotil gallalaust. Hún tefur fyrir því að menn venji sig á þann rétt sem þeir að sönnu lagi eiga. En viðheldur þess í stað mörgu því neikvæðasta í góðgjörðar- starfseminni - m ö.o. því að sá ber mest úr býtum sem ágengast- ur er bónbjargamaður, sá sem ber sig aumlegast. Við þetta tengist og það að fyrirgreiðslupólitíkin er í raun- inni vatn á myllu hægriaflanna. Tökum eftir því, að hægrigaurar allskonar hafa það að sið að skjóta á velferðarkerfin og tíunda þá óspart dæmi um að þau hafi verið misnotuð. Og séu þeir inntir eftir því, hvað eigi þá að koma í staðinn vísa þeir einmitt á góðgerðastarfsemina, enda er hún ein leið af mörgum til að vinna gegn því að smælingjar geri sig breiða frammi fyrir hásætum auðs og valds. Fyrir nú utan það sem áður var á minnst : fyrirgreiðslupólitíku- sinn eignast að því leyti til falskan orðstír, að hann er einatt að eyða fé og úthluta aðstöðu sem hann hefur ekki aflað sjálfur. Hann vísar á sameiginlega sjóði. í sið- ferðilegum efnum stundar hann einskonar „sósíalisma and- skotans“ - hann þjóðnýtir út- gjöldin en stingur þakklætinu í eigin vasa. áb MENNING Þurfum nœmi og opinn hug Tónlistin er eldri en menningin og á sér rætur í fuglsnefi, í gnauði vindsins, í hrópum veiðimanna, í holu beini eða bambusviði. Eins og allt sem er gamalt breytist tónlistin hægt. En okkur hættir til að taka fyrst og fremst eftir breytingunum en ekki eftir því sem breytist, þessum gamla sí- gilda kjama sem er í allri góðri músík. Tónlistarsagan er vefur með lausa enda. Ef menn hætta að vefa raknar vefurinn upp. Við hlustum á ný verk í ljósi þeirra gömlu, þau gömlu halda áfram að lifa, ný og fersk vegna þess að enn er verið að semja. Ef því verður hætt deyr Beethoven og meira að segja J.S. Bach að lokum. Um daginn vom stórkostlegir Schoenbergtónleikar í Áskirkju. Arnold Schoenberg er talinn byltingarmaður en megin hug- sjón hans var samt alla tíð að þróa áfram vestræna tónlist. Auðvitað var hann byltingarmaður en það heppnast bara engar byltingar nema þær sem hafa verið að ger- ast í 150 ár þegar sprengingin verður. Þessi sprenging varð í tónlistinni fyrir stríðið mikla 1914-1918. Hér norður í íshafi og kannski víðar em menn ekki enn búnir að kyngja þessum tíðind- um. Tónlist þarf ekki að láta vel í eyrum Menn em enn að heimta að. tónlist sé falleg. Tónlistin á að vera eins ljót og henni þóknast, hún þarf ekki að láta vel í eyram heldur öskra og hvísla sannleika á vfxl. Menn eru enn að heimta sönghæfar laglínur, menn em enn að biðja um stöðugan takt, háttbundna hrynjandi. Og enn vilja menn ákveðna tóntegund svo þeir viti hvernig lagið sest á sinn eina sanna gmnntón og geti þá ræskt sig, hnerrað og klappað. Vissulega má tónlistin vera fal- legt, taktfast og lagrænt doremí en hún lifir góðu lífi án þessa alls eins og ljóðlistin án ljóðstafa og ríms og myndlistin án Esjunnar. Menn verða að hlusta á það sem er en ekki það sem er fjarverandi í tónlistinni. Og þá opnast nýir heimar. Við þurfum ekki þekkingu til að njóta tónlistar. Við þurfum mikið næmi og opinn hug. Tónlistin er systir þagnarinnar og getur ekki lifað án þagnar. Aðeins í þögninni getum við þroskað næmleikann. f þögninni byrjum við að heyra. Þögnin og- listin em speglar manneskjunn- ar. Það búa óendanlegir mögu- leikar í hverjum manni, allir em listamenn, aðeins ef þeir fá næði til að hlusta á sinn eigin hjartslátt og fótatak. Einn frostmorgun í vetur eftir langvarandi þíður gekk ég fram á tvo stráka sem vom að skemmta sér við að ganga í moldarbeði uppi í Breiðholti. Þeir hlustuðu á hvemig brakaði í moldinni, hvemig léttfryst yfirborðslagið brast og þá kom skvamphljóð. Jörðin var lifandi og moldin söng. ímyndunarafl barnsins er tak- markalaust. Hvert einasta barn á sér risaþotu fyrir sitt hugarflug. En þau heyra ekki alltaf í henni vegna hávaðans í kring. Það hlýtur að vera ógnarmikill há- vaði. Fulltrúar hávaðans Fjölmiðlar (sem svo eru nefnd- ir á stofnanaíslensku, eina dauða málinu sem enn er notað) em fulltrúar hávaðans. Þeim er að takast að búa til þörf hjá börnum bara til þess að græða á þeim. Það er ráðist gegn sköpunargleðinni með því að bjóða upp á fullkomið passivitet. Næmið er kæft með upplýsingaskothríð og ítroðslu. Það stendur til að þurrka einstak- lingseinkennin út með því að gera bömin að einum stómm og syfj- uðum „neytendahópi.“ Ég ber því fram eftirfarandi til- lögur, sem faðir og kennari, til verndunar börnum: barnaefni verði uþb. hálftími tvisvar til fjór- um sinnum í viku og á sama tíma í öllum stöðvum svo þau geti valið. Fréttir verði eftir háttatíma svo að böm þurfi ekki að kyngja morðum, vísitölum og nauðgun- um niður með kvöldmatnum. Auglýsingar verði leiðinlegar og , höfði þar með aldrei til barna. Og þá getur enginn grætt á bömum og þau geta skemmt sér allan dag- inn við að hlusta á músíkina í moldinni. Kolbeinn Bjamason Prívat menningarviti Undanfarin ár hef ég verið að reyna að smíða mér prívat menn- ingarvita úr þögn og tónlist. Svo datt mér nýverið í hug að virða fyrir mér útsýnið. Ég sá ákaflega lítil ummerki menningar (a.m.k. em þau ekki mjög áberandi). Eiginlega hafa menn aldrei kom- ist jafn nálægt skriðdýmnum og nú. íslendingar hafa skriðið um endalausa skrifstofuganga í Was- hington til að jarma út flutninga yfír hafíð stóra fyrir herinn á Is- landi. Þeir hafa skriðið fyrir þing- nefndir til að biðja um að sér verði mútað með flugstöð. Bænd- ur vilja selja hemum lömbin sín, slátrarar hakka naut í spað fyrir allt liðið og fyrir vestan og norð- austan skríða menn upp á fjöllin til að reisa litlar sætar herstöðvar þar sem heimurinn endar. í staðinn fyrir kraftmikla al- þýðumenningu hafa verið keyptir skermar sem skjóta geislum sín- um djúpt í vitund mannsins. Sterk alþýðumenning er forsenda þess að þróaðri listir (ekki betri heldur þróaðri) geti þrifist. Þess ber þó að geta að enn eigum við magnaða kirkjukóra og poppara, uppfulla með meiningum. Erindi Kolbeins Bjarnasonar um tónlist, fluttámól- stefnu Alþýðu- bandalagsins um menningu og listir Dæmið er í rauninni einfalt: Annars vegar höfum við vit- firringuna í heiminum, hungrið, kúgunina, hemaðarógeðið. ís- lendingar hafa fyrir löngu ákveð- ið að græða á því. Og við höfum dósamenningu til þess að við þurfum ekki að horfast í augu við heiminn og okkur sjálf, til þess að gleyma sekt okkar. Hins vegar höfum við manninn sjálfan, manninn sem er lista- maður að innsta eðli. Listin er sprottin úr þversagnakenndri baráttu mannsins við sjálfan sig og heiminn. í einlægni sinni er hún ögrun við meiningarlaust brjálæðið. Hér er sægur góðra listamanna sem hafa ekki efni á að vinna list sinni. Samt sem áður em til tón- skáld sem kompónera meistara- verk um kvöld og helgar og flytj- endur sem æfa baki brotnu milli þess sem þeir þeytast milli tónlist- arskólanna. Langflestir tónleik- anna em haldnir á Suð- vesturhomi landsins, aðrir landshlutar eru afskiptir í þessum málum sem flestum öðram. Tónlistarskólamir ættu að hafa efni á að ráða til sín tónskáld með takmarkaða kennsluskyldu. Fjárvana menningarstofnanir, svo sem útvarp og sinfóníuhljóm- sveit, ættu að hafa efni á að ráða til sín tónskáld. Flytjendur ætti að ráða til að flytja list um landið allt, í skólum og öðmm vinnu- stöðum, til að stækka þann hóp sem kallast tónleikagestir á ís- landi. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 5. aprll 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.