Þjóðviljinn - 05.04.1987, Page 9
Hundrað milljónir
barna á vergangi
Fjórðungur mannkyns býr við heilsuspillandi aðstœður. Börnin verða verst úti
Um hundrað milljón manns
verður að sofa undir berum
himni í heiminum í dag og
fjöldinn eykststöðugt. Þetta
fólk hýrist á gangstéttum, á
neðanjarðarstöðvum, íkjall-
aratröppum, almennings-
görðum eða annarsstaðar þar
sem það er statt af tilviljun.
Um fjórðungur mannkynsins
býrvið heilsuspillandi að-
stæðurífátæktarhverfum.
Verst er ástandið í þróunarl-
öndunum en þó ekki einang-
rað við þau, því á vestur-
löndum hefur þetta vandamál
stöðugtfærst í aukanaog
heimilisleysingjum fjölgar
beggja vegna Atlantsála.
Það eru börnin sem líða mest
fyrir þetta ástand. Alls eru um
70-90 milljón barna án heimilis í
heiminum, þar af um 20 milljón í
Suður-Ameríku. Börn þessi eru
munaðar- og heimilislaus og
verða að sjá sjálfum sér farborða
með einhverjum ráðum.
Sjúkdómar herja á þessi börn
og daglega deyr fjöldi þeirra
vegna skorts eða veikinda. Áætl-
að er að um 50.000 manns látist
daglega vegna næringarskorts
eða sjúkdóma og eru börn í mikl-
um meirihluta.
Árið 2000
Þessi fjöldi er mjög sláandi en
sé horft fram á við til næstu alda-
móta verður ástandið ógnvekj-
andi. Árið 1950 voru aðeins tvær
stórborgir í þróunarlöndunum
með yfir fimm milljón íbúa. Árið
1980 voru 26 stórborgir með yfir
fimm milljónir íbúa og þar af
voru 19 þeirra í þróunarlöndun-
um. Haldi þróunin áfram sem nú
horfir má búast við því að um 58
borgir hafi meira en fimm milljón
íbúa um aldamótin og þar af eru
44 í þróunarlöndunum.
Fjölmennustu borgimar em
Mexíkó en þar bjuggu árið 1975
um 12milljón manns. Búistervið
að íbúar Mexíkó verði um 31
milljón um aldamótin. í Sao
Paulo bjuggu rúmlega tíu milljón
manns árið 1975 og er búist við að
fjöldinn verði kominn í tæpar 26
milljónir um aldamótin.
Shanghai er sú borg utan
Suður-Ameríku, sem er í örust-
um vexti. Þar vom íbúar um 12,4
milljónir árið 1975 en árið 2000 er
búist við að íbúafjöldinn verði
23,7 milljónir.
Samtals má ætla að íbúum
jarðar fjölgi um einn og hálfan
tnilljarð fram að aldamótum og
stærsti hluti þessarar fjölgunar
mun búa í stórborgum, eða um
1,2 milljarðar. Fátæktarhverfum
mun því fjölga og þau breiða enn
meira úr sér en nú.
Árið 1975 bjuggu um 20% íbúa
P
Sunnudagur 5. aprít 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9