Þjóðviljinn - 16.04.1987, Síða 7

Þjóðviljinn - 16.04.1987, Síða 7
FRÁ KOSNINGAMIÐSTÖÐINNI Bergþór Pálsson baritónsöngvari Ljóða- söngur Bergþórs Áskorun til eigenda og ábyrgðarmanna fast- eigna um greiðslu fast- eignagjalda í Reykjavík Fasteignagjöld í Reykjavík 1987 eru nú öll gjald- fallin. Gjaldendur sem ekki hafa gert skil innan 30 daga frá birtingu áskorunar þessarar, mega bú- ast við að óskað verði nauðungaruppboðs á eignum þeirra í samræmi við 1. nr. 49/1951 um sölu lögveða án undangengins lögtaks. Lokasóknin er hafin Nú þarf að selja það sem eftir er af happdrættis- miðunum um páskana. Á þriðjudaginn 21. apríl er skiladagur á miðunum og þá eru þeir sem tekið hafa miða beðnir að koma á Kosningamiðstöðina og gera skil. Seljum hvern einasta miöa — Notið páskana til að losa ykkur við síðustu ______________miðana_______________ Nú er hafin skráning á bílum á kjördag. Miðstöðin verður á Þjóðviljanum og tekur Jóhannes Harð- arson við upplýsingum um hverjir og hvenær þeir geta ekið. Þá er einnig hægt að láta skrá sig á Kosningamiðstöðinni um páskana en opið verð- ur alla helgidagana nema föstudaginn langa og páskadag. Lítið inn og fáið ykkur kaffisopa Það munar um hvern mann — látið skrá ykkur strax. Alþýðubandalagið í Reykjavík Hverfisgötu 105, 4.hæð Pálssonar Reykjavík 15. apríl 1987 Gjaldheimtustjórinn í Reykjavík FLÓAMARKÁÐURINN Óska eftir herbergi eða lítilli íbúð á leigu. Uppl. s. 22219. Óska eftir íbúð í miðbænum Meðmæli frá fyrri leigusala ef óskað er. Uppl. gefur Þorbjörn í síma 667105. Vantar sófasett og sv/hv sjónvarp gefins. Sími 16502. Helga. Hef verið beðinn að auglýsa eftir 4ra herb. íbúð til leigu í 6-8 mánuði í Reykjavík eða Hafnarfirði, handa góðu fólki utan af landi. Fyrirframgr. eftir samkomulagi. Uppl. s. 29498 í Sjálfsbjargarhús- inu. Halldór húsvörður. Saab 99 árg. '74 til sölu gegn staðgreiðslu. Uppl. í síma 672283 í kvöld og næstu kvöld. Til sölu blátt reiðhjól fyrir ca. 9-11 ára dreng, vel með farið og selst á góðu verði. Uppl. s. 35103. Til sölu nýtt XENON RCE útvarp/kasettutæki (stereó-mónó). Kostar í verslun 5.900.- gegn staðgreiðslu, en selst á kr. 5.000,- Sími 21805. Trjáklippingar Nú fer hver að verða síðastur að iáta klippa tré og runnana. Uppl. s. 39706. Gunnar. Tek að mér bókhald tollskýrslur og aðra tölvuvinnslu fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Uppl. í síma 623444. 3ja herb. íbúð með húsgögnum á góðum stað í Reykjavík til leigu frá 15.6.-1.9. Uppl. í síma 39029. Guðrún Lilja sem var svo elskuleg að lána myndavél í Dómkirkjunni 5. apríl er beðin að hringja í síma 18179. Rúm til sölu Fallegt fururúm til sölu 180 cm breitt með góðum springdýnum. Sími 20641. Til sölu frekar stórt hornsófasett (Ijósbrúnt). Selst á kr. 10 þús. Uppl. s. 79338. Vídeótæki Vil kaupa videótæki á 15-18 þús. kr. Uppl. s. 35116. Gítar Til sölu Yamaha country gítar af bestu gerð. Verð kr. 7 þús. Uppl. s. 35116. Til sölu ný ullarkápa gullfalleg frá Belgíu, er í brúnum litum. Selst á kr. 8 þús. Sími 21805. Til sölu 17 ára gömul Necchi saumavél. Verð kr. 3 þús. Sími 686821. Rafmagnsritvél/ vélritunarborð Góð rafmagnsritvél með leiðrétt- ingarborð og vélritunarborð óskast. Uppl. í síma 42109. Óska eftir að kaupa rúmgóðan svalavagn. Uppl. s. 39217. Húsnæði óskast Hjón með eitt barn og annað á leiðinni á leið heim úr námi í Kaup- mannahöfn óska eftir íbúð á leigu frá ca. 1. ág. Vinsamlegast hringið í síma 23976 eða í K.höfn síma 01- 816769, Anna Guðrún og Viðar. Hörku vinnukraftur kvenkyns með reynslu, óskar eftir „vel launuðu" ræstingastarfi. Upp- lýsingar í síma 36586. Hjá okkur er allt ódýrt Flóamarkaður Sambands dýra- vemdunarfélaga islands, Hafnar- stræti 17, kjallara. Opið mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 14- 18. VII kaupa tvö notuð teppi ca. 3,5 m x 4 m. Á sama stað er til sölu Simca 1100 árg. 1979 á kr. 4000.00 og tveir stálvaskar upplagðir í bílgeymslur á kr. 500.00 kr. hvor. Upplýsingar í síma 14870 á daginn og 82806 eftir kl. 18. Óska eftir málverkum, gömlum póstkortum og myndarömmum og gömlum verkfærum. Upplýsingar í síma 10541 á kvöldin. Bergþór Pálsson barítónsöngv- ari og Jónas Ingimundarson pí- anóleikari flytja ljóðasöngskrá í útvarpinu í dag kl. 17. A söng- skránni eru lög eftir Schubert, Respighi og Ravel. Bergþór Pálsson hefur stundað söngnám við Indiana-háskóla frá 1982 og er nú að ljúka þaðan meistaraprófi. Auk háskóla- námsins hefur hann sótt nám- skeið í ljóðasöng hjá William Parker og hjá Gerard Sousay í Sviss. í haust kom út hljómplata Bergþórs og konu hans, Sólrúnar Bragadóttur, en þau hjónin syngja um þessar mundir tvö að- alhlutverkin í óperunni Saltanas keisari eftir Rimsky-Korsakoff, sem nú er flutt í Indiana. Þýskir kór- tónleikar Félagið Germanía, Módettu- kór Hallgrímskirkju og Þýsk- íslenska félagið á Akureyri hafa boðið hingað til lands 28 manna blönduðum kór frá Munster, Westfalischer Kammerkor, en kór þessi fékk 1. verðlaun bland- aðra kóra í V-Þýskalandi 1985. Kórinn heldur tónleika í Hall- grímskirkju í dag kl 17 og í ís- lensku óperunni á laugardag á sama tíma. Síðustu tónleikar kórsins verð á svo að Flúðum í Hrunamannahreppi á páskadag. Kórinn er þekktur fyrir fjölbreytt efnisval, en hann mun flytja gömul helgiljóð, franska söngva, þjóðlög frá ýmsum löndum, negrasálma o.fl. Meðal annars heftir kórinn æft verk eftir Jón Ásgeirsson tónskáld. Stjómandi kórsins er Marcus Föhrweisser. ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 7 LIFK) ER KARARFTT HELGARREISUR FLUGLEIÐA UM LAND ALLT Mivunc í _ ---- Sjáðu söngleikinn Kabarett á sýningu hjá Leikfélagi Akur- eyrar, renndu þér á skíðum í Hlíðarfjalli og gleymdu ekki Sjallanum um kvöldið. Bær við ysta haf. Af Húsavíkurfjalli sést norður í Grímsey og suður á Vatnajökul. Frábært gistihús og góð aðstaða til heilsuræktar. HORNAFJÖRÐUR Hér rennur stærsti jökull Evrópu saman við himinhvolfin í ólýsanlegri tign, og endurvarpar sjólarljósinu. EGILSSTAÐIR Annars vegar gróðursælt Héraðið með hæstu tré landsins í Hallormsstaðaskógi, hins vegar sæbrött fjöllin niðri á Fjörðum. Aldrei fjölbreyttari matstaðir né meiri gróska í listalífinu. Ótal leiksýningar, málverkasýningar og tónleikar að ógleymdri sjálfri óperunni. „Allt vitlaust" á Broadway, Þórskabarett í Þórscafé. Hér er líka frábært skíðaland og hrikaleg náttúrufegurð. Áður fyrr svo afskekkt, að menn héldu að Vestfirðingar væru göldróttir. VESTMANNAEYJAR Með sérstæðustu ferðamannastöðum í allri Evrópu. Nýrunnið hraun og bátsferðir í hella sem að fegurð gefa ekki eftir þeim á Caprí. FLUGLEIDIR UPPLÝSINGAR í SÖLUSKRIFSTOFU FLUGLEIÐA, HJÁ UMBOÐSMÖNNUM OG FERÐASKRIFSTOFUM

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.