Þjóðviljinn - 16.04.1987, Side 8
í KOSNINGAMIÐSTÖÐINNI
í dag skírdag kl. 16.00-18.00
Álfheiður Ingadóttir,
blaðamaður, situr fyrir
svörum um atburði líðandi
stundar í þjóðmálum í Kosn-
ingamiðstöðinni, Hverfisgötu
105, 4. hæð.
Kvartettinn syngur af alkunnri
snilld við undirleik Ara Einars-
sonar og Birgir Bragasonar.
Sölusýning Gunnars Arnar á
veggjunum.
Kaffi og meðlæti.
Húsið opnað kl. 14.00.
ALLIR VELKOMNIR
Munið eftir
kosningahappdrættinu
Alþýðubandalagið
í Reykjavík
Laust embætti
er forseti íslands veitir
Umsóknarfrestur um laust embætti prófessors í augnsjúkdóma-
fræði við læknadeild Háskóla fslands, sem auglýst var í Lögbirting-
ablaði nr. 41/1987 er framlengdur tll 15. maí n.k.
Menntamálaráðuneytið
14. aprfl 1987.
Auglýsingateiknari
óskast
Við erum að leita að góðum auglýsingateiknara.
Hann þarf að vera hugmyndaríkur og snjall,
starfssamurog með haldgóða þekkingu á faginu.
Ert þú kannski maðurinn sem við erum að leit að?
Ef svo er biðjum við þig að hafa samband við
starfsmannastjóra sem veitir nánari upplýsingar.
Sími 28200
SAMBAND ISL.SAMVINNUFEUGA
STARFSMANNAHALO
ERLENDAR FRÉTTIR
Serbneskir flóttamenn úr Kosovo.
Austur Evrópa
Ofsóknir
á hendur
þjóðabrotum
færast
í vöxt
í Búlgaríuog Ungverja-
landi sœta minnihluta-
hópar ofsóknum afhálfu
stjórnvalda. Sígaunar í
Ungverjalandi eiga einn-
ig undir högg að sœkja og
íJúgóslavíu skerst í odda
með Serbum ogAl-
bönum
Valdhafar í ríkjum Austur-
Evrópu hafa löngum stært sig af
því að hafa kvcðið niður þjóð-
rembing í löndum sínum við sigur
sósíalismans upp úr lokum síðari
heimsstyrjaldar árið 1945.
Fyrrum hafi álfan leikið á reiði-
skjálH um aidir vegna stöðugra
innbyrðis átaka og illinda tuttugu
og fimm þjóðabrota en slíkur
hráskinnsleikur heyrði nú sög-
unni til.
En nú virðist sem sú
skrautfjöður í hatti sé ýmist
óheyrilega sjúskuð eða fokin veg
allrar veraldar í nokkrum banda-
lagsþjóða Sovétmanna í austur-
vegi. Á sama tíma og nýi bóndinn
í Kreml, Míkael Gorbatsjof,
4ætur hendur standa fram úr erm-
um og eykur lýðréttindi þegna
sinna og sníður verstu agnúana af
úreltu stjórnkerfi á heimaslóðum
eru ráðmenn í Búlgaríu og Rúm-
eníu á allt öðru róli. í þessum
tveim ríkjum hafa valdsmenn vel-
þóknun á ofsóknum á hendur
þjóðabrotum og kynda sjálfir
undir kötlunum. Ungverjar hafa
ekki heldur hreinan skjöld og í
Júgóslavíu gætir síaukinnar
spennu í samskiptum Serba og
Álbana.
Búlgaríutyrkir
og Rúmeníu-
ungverjar
Árið 1984 ákvað Todor Zhivk-
ov, leiðtogi Búlgaríu, að tími væri
kominn til að allir Tyrkir í
landinu, níuhundruð þúsund að
tölu, söðluðu um, gleymdu upp-
runa sínum og gerðust góðir og
gegnir Búlgarir. Síðan hafa
stjórnvöld farið offari, neytt ein-
staklinga af tyrkneskum uppruna
til að skipta um nafn og afneita
íslömskum sið.
Fyrrum þingmaður á löggjaf-
arsamkundu Búlgaríu, Halil Ibi-
a^oglu að nafni, er af tyrknesku
tíBrgi brotinn og flúði nýskeð til
Kona, búsett í Istanbúl, mótmælir ofsóknum Búlgara á hendur Tyrkjum.
átthaganna fornu. Hann segir
farir sínar og síns fólks ekki slétt-
ar í skiptum við búlgörsk
stjórnvöld, hundruð Tyrkja hafi
verið teknir af lífi fyrir mótþróa
við „þjóðnýtinguna“ og mörg
þúsund lokaðir niðrí dýflissum.
Hann fullyrðir einnig að fjöldi
þorpa, sem byggð voru Tyrkjum,
hafi verið j öfnuð við j örðu af her-
mönnum er óku skriðdrekum og
jarðýtum yfir hvaðeina sem fyrir
varð.
Ofsóknirnar hafa valdið
spennu í samskiptum Búlgaríu og
Tyrklands, sem vonlegt er, og
liggur Turgut Ozal, forsætisráð-
herra Tyrklands, undir ámæli
þegna sinna fyrir að sýna linkind í
þessu máli.
í Rúmeníu sæta tvær miljónir
Ungverja ofsóknum af hálfu
stjórnar Nicolaes Ceausescu.
Þeir búa flestir við landamærí
Ungverjalands í héraðinu Trans-
ylvaníu. Fréttir hafa borist þaðan
af mannvígum, barsmíðum og
lögreglurassíum.
Einnig er minnihlutanum gert
lífið leitt með margvíslegum öðr-
um hætti. Svo dæmi sé tekið hef-
ur nánast öllum grunnskólum
Ungverja verið lokað og þeir eru
nú aðeins fimmti hluti náms-
manna við háskólann í Cluj, höf-
uðborg héraðsins, en voru til
skamms tíma í meirihluta. Þeir
sem hafa í frammi andmæli gegn
þessari mismunun geta átt fang-
elsisdóma yfir höfði sér. Fyrir
vikið hafa tveir þriðju hlutar ung-
verskra menntamanna flúið land
og ýmsum leiðtogum þjóðar-
brotsins hefur verið vísað úr
Rúmeníu.
Vera má að valdhafar í þessum
löndum óttist það mikið um sinn
hag vegna „smithættunnar" frá
Moskvu að þeir skirrist ekki við
að æsa þjóðrembing upp í þegn-
um sínum eingöngu í því augna-
miði að beina sjónum þeirra frá
afleitu ástandi í stjórnkerfi og
efnahagslífi.
Sígaunar, Serbar
og Albanir
Ungverskir ráðamenn hafa
vitaskuld andmælt meðferðinni á
bræðrum sínum handan rúm-
ensku landamæranna en gleyma
því að á heimaslóðum býr smáður
og fyrirlitinn minnihluti.
Sígaunar í Ungverjalandi eru
siöhundruð og fimmtíu þúsund.
Olæsi er mikið meðal þeirra og
þeir eiga oft í mestu brösum með
að verða sér úti um vinnu vegna
gamalgróinna fordóma í þeirra
garð. Sígaunar eru algerar
hornrekur í samfélaginu og búa
margir við sára örbirgð.
Frá árinu 1981 hefur verið
grunnt á því góða með Serbum og
Albönum í héraðinu Kosovo í
Júgóslavíu en það Iiggur við land-
amærin að Albaníu.
Áður fyrr var þetta svæði að
meginhluta byggt Serbum en
undanfarna áratugi hefur al-
banska þjóðarbrotinu vaxið svo
ört fiskur um hrygg að nú er svo
komið að Serbar eru í miklum
minnihluta í Kosovo.
í héraðinu er landlæg mikil fá-
tækt og á öndverðum þessum ára-
tug kom þar hvað eftir annað til
hunguruppþota. í kjölfar þeirra
sigldu síðan ofsóknir á hendur
serbneska minnihlutanum og
kröfur Albana um að Kosovo
yrði sameinað gömlu fósturjörð-
inni.
Serbar segja að gengið hafi á
með morðum, nauðgunum og
skemmdaverkum og flýja
unnvörpum úr héraðinu. Þeir
sem eftir sitja sanka að sér vopn-
um og hóta að láta hart mæta
hörðu ef stjórnin í Belgrað hristi
ekki af sér slenið og taki í
taumana.
Ólíkt valdhöfum í Búlgaríu og
Ungverjalandi reyna ráðamenn í
Belgrað að hefta útbreiðslu
þjóðrembings í landi sínu enda er
tilvist ríkisins í húfi þar sem
hvorki meira né minna en átján
þjóðir og þjóðabrot byggja
landið. Engu að síður hafa hags-
munir minnihlutahópa oft verið
bornir fyrir borð og hafa einkum
Albanir löngum átt erfitt upp-
dráttar í Júgóslavíu.
byggt á Time
-ks.
8 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. april 1987
Aðalheimild: REUTER