Þjóðviljinn - 16.04.1987, Page 2

Þjóðviljinn - 16.04.1987, Page 2
FLOSI Miku skammtur af titlinum Þaö var víst í kreppulok, eða var þaö í stríös- byrjun? ég man þaö ekki lengur - að íslenskt skáld haföi orö á því aö þar sem jökulinn bæri við loft, ríkti fegurðin ein ofar hverri kröfu. Nú hefur þetta breyst og mér er nær að halda aö nú sé það frekar á Broadway sem fegurðin ríkir ofar hverri kröfu, en þar verður víst fegurö- arsamkeppni íslands háð áður en langt um líð- ur. En fegurðarsamkeppnir eru ekki nema einn þátturinn í fjölbreyttri menningarviðleitni þjóðar- innar, menningarviðleitni sem væri unnin fyrir gýg og félli raunar dauð, ef landsmenn sýndu ekki brennandi áhuga á því sem fánaberar ís- lenskrar menningar - fjölmiðlarnir - miðla fólk- inu í landinu í vel útilátnum skömmtum. Afstaðnar eru í sjónvarpinu keppnir í hár- greiðslu, mælskulist og frjálslegri framkomu barna, sem nær hámarki í keppni 13-15 ára í „frístældansi”. Einhverjum siðapostulum kann að finnast það smekklaust af ríkissjónvarpinu að tromma upp með þrettán til fimmtán ára telpukrakka og láta þær fáklæddar skekja sig á klámfenginn hátt fyrir alþjóð líkt og væru þær mannbærar, lostafullar, margreyndar, þraut- þjálfaðar og útlærðar í rekkjubrögðum. Ég er kannski orðinn svolítið kallalegur og gamaldags, en ég gat ekki að því gert að mér fannst frekar óþægilegt að horfa á þetta, og þó mér ætti að sjálfsögðu að vera það Ijóst að þetta er aðeins liður í þeirri menningarviðleitni ís- lensku þjóðarinnar að ala upp fegurðardísir til sýnis hér og erlendis og vekja með því athygli á íslenskum fiski, þá leit ég eiginlega undan. Nú dregur semsagt til stórtíðinda. Fegurðar- samkeppni Íslandserísjónmáli. Undanrásireru hafnar. Margur hyggur að þegar litríkur vefur hins íslenska menningarsamfélags verði færð- ur upp þá verði einmitt fegurðarsamkeppnirnar snarasti þátturinn í voðinni, þó þeir séu að vísu til sem annað hyggja. Líktog Hallgrímur Pétursson orti Passíusálm- ana guði til dýrðar, upphefja góðir og grandvarir bísnessmenn í dag lofsöng eða ástaróð til æsku og fegurðar árvisst með fegurðarsamkeppnum og græða svolítið í leiðinni, sem auðvitað er bæði gott og blessað, þegar haft er í huga að í fegurðarsamkeppnum er dregið fram allt það fegursta og besta og vinsælasta í íslensku þjóð- lífi. Og það sem meira er. Fegurðarsamkeppn- irnar endurspegla íslenskan tíðaranda með þeim hætti sem verðugt er þegar kynna þarf söguþjóðina á erlendri grund. Líkt og ær og kýr eru ær og kýr hins gamal- gróna íslenska bónda, eru fegurðardrottningar ær og kýr kaupsýslumanna. Ungum, fallegum telpum vart af barnsaldri er smalað saman eins og fénaði í göngum á haustin, síðan er það dregið úrlambfénu sem hæftertil ásetningaren hinu slagtað. Þær af stúlkunum sem ná máli eru keyrðar upp á pall, eins fáklæddar og velsæmið leyfir, svo allir geti hér um bil séð hvernig þær líta út berrassaðar. Síðan eru nokkrir útvaldir menn úr hópi okkar karlrembusvína fengnir til að dæma um það hverjar séu fallegastar og hverjar Ijótastar í hópnum. Þegar svo dómurinn hefur endanlega fallið grætur sú fegursta af gleði yfir því hvað hún er falleg, en sú Ijótasta grætur af sorg yfir því hvað hún er Ijót. Og allir eru svo undur glaðir: áhorfendur vegna þess að þeirfengu tækifæri til að kaupa sig inn á sýning- una, þeir sem fyrir keppninni stóðu vegna þess að þeir náðu aðgangseyrinum af áhorfendun- um. Og íslenska þjóðin - já og væntanlega heimsbyggðin öll, er himinlifandi þegar hún fær að sjá alla dýrðina í sjónvarpinu, að ógleymdum kaupsýslumönnunum sem auglýsa varning sinn óspart í þessum hvellbjarta dýrðarljóma æsku og fegurðar. En við karlrembusvínin syngjum kjörorð dagsins - Fögur kona er fengur í ranni en Ijót kona löstur á manni. Sumir halda því fram að fegurðarsamkeppnir séu í dag mesta niðurlæging sem konunni er búin, en aðrir segja: - Það verður þá bara að hafa það. Þær vilja þetta sjálfar. En hvað um það. Undanrásir eru hafnar úti á landi og dreifbýlisdrottningar hrannast upp, bústnarog búlegar, fagrar, föngulegar, eiguleg- ar, glaðlegar, getnaðarlegar og vænlegar til undaneldis, eins og annað úrval úr kvikfénaði landsmanna. Og allar stefna þær að því að ná titlinum, langþráða titlinum. Fyrst íslandstitlinum og síð- an stærstatitlinum, og þegar honum hefurverið náð þarf að vinna að því að íslenskar stúlkur haldi titlinum. Sjálfum alheimstitlinum. Því það er einu sinni bæði satt og rétt sem í kvæðinu stendur: - Ætli maður upp á toppinn er um að gera að nota kroppinn. Gulrótin og asninn Nei. Þessi mynd er ekki tekin úr auglýsingu frá Ágæti, né heldurtannlæknafélaginu, þó ætla megi að hér sé verið að hvetja menn til að éta gulræt- ur og bursta vel í sér tennurn- ar. Mynd þessi er tekin úr ár- óðurspésa frá Framsóknar- flokknum og undir myndinni segir að Framsókn vilji að jöfnuður og jafnrétti ríki. Einn kjósandi, sem kynnst hefur jöfnuði og jafnrétti ríkis- stjórnar Steingríms Her- mannssonar taldi myndina mjög táknræna fyrir áróður ríkisstjórnarflokkanna um þessar mundir. Þeir halda að þeir geti stööugt freistað þjóð- arinnar með sömu gulrótinni; að þeir geti stöðugt teymt hana á asnaeyrunum. Hins- vegar átti hann erfiðara með að skilgreina hlutverk tann- burstans á myndinni. ■ 1. ALMENNT. Framsóknarflokkurinn vill að jöfnuður og jafnrétti ríki, hvar sem menn búa á landinu. Hann vill standa vörð um velferð þjóðarinnar og frelsi einstaklinga til athafna. Flokkurinn vill þjóðfélag án öfga til hægri eða vinstri. Framsóknarflokkurinn mun í grundvallaratriðum leggja áherslu á eftirgreind atriði: 1.1. Baráttugegn frumskógarlögmáli frjálshyggjunnar. 1.2. Baráttu gegn ofstjórn ríkisvaldsins og miðstýr- ingu. Hógvært svar Ýmislegt skondið hraut af munni frambjóðenda á kosn- ingafundi DV í vikunni, þegar þeir svöruðu fyrirspurnum eftir að hafa haldið ræður sínar. Anna Kristjánsdóttir fram- bjóðandi BJ bar þó af. Hún var meðal annars spurð að því hvers vegna BJ gæfist ekki upp og gengi til liðs við Alþýð- uflokkinn þar sem að flokkur- inn hefði ákaflega lítið fylgi nú um stundir. „Bandalagið hef- ur nú ekki neitt fylgi," var hið hógværa svar Onnu. Svo bætti hún því við að BJ væri svo sérstakt að það ætti ekki samleið með öðrum.B Greiðslu- erfiðleikar hjá Þorsteini Á Selfossi eru uppi þær furður að skrifstofa sjúkrasamlags- ins, Sýslusamlags Árnes- sýslu, eru lokaðar, og er um það tilkynning á hurðinni; „Lokað vegna greiðsluerfið- leika". Þetta væri allt mjög sorglegt ef ekki vildi svo til að í sama húsi er persónuleg skrifstofa Þorsteins Páls- sonar, og skilti hans á sömu hurð og tilkynningin. Fjármál- astjórnin lifandi komin?B Hún hikaði Á kosningafundinum í Há- skólabíói í vikunni var óspart skotið á Borgaraflokkinn, en fyrir hann talaði og svaraði fyrirspurnum Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir formaður Sóknar. Hún var til dæmis spurð að því hvaða stefnu flokkurinn hefði í skattsvikamálum. Aðalheiður kvaðst „búast við því að Borg- araflokkurinn hefði sömu stefnu og aðriríþeim málum." Hún var einnig spurð að því hvort að hún vildi að Lára V. Júlíusdóttir sem skipar 4! sæti Alþýðuflokksins, kæmist á þing fremur en Benedikt Bogason í 4. sæti Borgarafl- okksins, stæði valið á milli þeirra. Aðalheiður hikaði. Síð- an svaraði hún því til að hún óskaði þess að bæði næðu þingsæti, en stæði valið á milli Láru og Benedikts, þá veldi hún Benedikt.B 2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN PÁSKAR 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.