Þjóðviljinn - 16.04.1987, Síða 7

Þjóðviljinn - 16.04.1987, Síða 7
Samstarf rœðst af málefnum - Gœtirðu jafnvel hugsað þér þátttöku Alþýðubandalagsins í ríkisstjórn, þar sem Borgara- flokkurinn hefði oddaaðstöðu? „Nei, og hér verð ég auðvitað að benda á, að Albert Guð- mundsson er enn í réttarstöðu grunaðs manns í Hafskipsmáiinu. Þátttaka í stjórn þar sem hann kynni að verða ráðherra er því óhugsandi nema hann hafi áður hreinsað sitt borð gagnvart dóms- kerfinu. - Jón Baldvin Hannibalsson talar um að eitt jysilegasta stjórn- armynstrið að loknum kosning- um sé samstjórn krata, Sjálfstœð- isflokks og Alþýðubandalagsins. Hvaða viðhorf hefur þú til slíkar stjórnar? „Jón Baldvin segir stundum hluti sem hann er fljótur að gleyma. Pað eru ekki nema nokkrir dagar síðan hann vildi hlaupa í ríkisstjórn með íhaldinu og Kvennalista, þrátt fyrir að hann hafi líka sagt að Kvennalist- inn sé óstjórnhæfur. Sumir eru nefnilega reiðubúnir til að skipta oft og fljótt um skoðun ef það gæti leitt til þess að þeim áskotn- aðist ráðherrastóll. Mér kemur því í sjálfu sér ekki á óvart þó formaður Alþýðuflokksins vilji nú kippa Alþýðubandalaginu inn í stjórn til að verða sér úti um slíkt húsgagn. En þannig mynstur er að minni hyggju ólíklegt í stöð- unni.“ Jafnaðarstjórn - Hvernig ríkisstjórn viltu? „Óskastjórnin er auðvitað meirihlutastjóm Alþýubanda- lagsins,“ segir Svavar og hlær. „En það er víst ekki býsna ná- lægur möguleiki dag. En ég vildi gjarnan að hægt væri að mynda jafnaðarstjórn af þeim toga sem við í Alþýðubandalaginu höfum boðað, með þátttöku okkar, Kvennalista og kratanna. Það er heldur alls ekki fráleitur kostur, miðað við skoðanakannanir.“ Svavar er að öðra leyti þeirrar skoðunar, að allt þetta tal ann- arra stjórnmálamanna um stjórn- armynstur og ráðherrastóla sé harla fánýtt. „Það sem skiptir okkur máli er auðvitað ekkert minna en sigur Alþýðubanda- lagsins, - eina flokksins sem er í raun heilsteyptur flokkur vinstri manna“. Við spjöllum dálítið um Borg- araflokkinn og Svavar segir að með honum hafi hið pólitíska landslag í rauninni gjörbreyst. „í raun og veru höfum við aldrei upplifað klofning á hægri væng stjórnmálanna með jafn afger- andi hætti og núna. Þegar Gunn- ar Thoroddsen myndaði með okkur stjórnina 1980 var þannig ekki um að ræða klofning á sama hátt. Gunnar hélt sig í raun alltaf innan dyra Sjálfstæðisflokksins. Hann tók til dæmis þátt í störfum þingflokksins. En þrátt fyrir sundrungu íhaldsins í dag skulu menn samt sem áður ekki láta sér detta í hug að hún vari mjög lengi. Auðvitað rennur Borgara- flokkurinn saman við Sjálfstæðis- flokkinn eftir kosningar, enda er bókstaflega enginn málefnamun- ur á þeim. Kvennalistinn og Alþýðu- bandalagið - Borgaraflokkurinn breytir hinu pólitíska landslagi, segirðu. En annar flokkur hefur þó haft meiri áhrif á vinstri vœngnum, - nefnilega Kvennalistinn, sem virðist seilast drjúgt til hefðbund- ins fylgis Alþýðubandalagsins. Hvaða munur er á honum og Al- þýðubandalaginu? „Það er von þú spyrjir. Menn eiga sannast sagna ekki gott með að átta sig á honum. Við höfum í þinginu stutt þær eftir getu, og þær raunar okkur líka enda mál- efnin að verulegu leyti þau sömu. En allir flokkar hafa einhver góð mál, meira að segja Borgara- flokkurinn sem segir: komið til mín allir, sem erfiði og þunga eruð hlaðnir. En kosningar snú- ast um grandvallaratriði og það er oft erfitt að átta sig á afstöðu Kvennalistans til hinna stærri mála. Hver eru til dæmis viðhorf þeirra gagnvart markaðshyggj- unni? Gagnvart nýfrjálshyggj- unni? Gagnvart hernum og Nató? Það er oft erfitt að átta sig á þessu.“ „En ég vil líka minna á að klofningur og sundrang vinstri manna í síðustu kosningum er or- sök og undirsaða frjálshyggjus- óknarinnar. Þessvegna þurfa nú allir vinstri menn að sameinast um einn lista, - G-listann. Ég skal líka vera manna fyrstur til að viðurkenna að Kvennalistinn hefur leitt til þess að aðrir, flokk- ar, þar á meðal Alþýðubandalag- ið, hafa tekið verulega við sér í málefnum sem tengjast stöðu kvenna. Ég nefni, að við erum nú með konu í efsta sæti á Suður- landi, sem til þessa hefur verið öraggt þingsæti. Það er í fyrsta skipti sem kona á blönduðum lista er í efsta sæti hjá þeim flokk- um, sem stundum eru kallaðir „gömlu" flokkarnir. Samt er það staðreynd, nöturleg staðreynd, að Kvennalistinn býður líka fram í sama kjördæmi þó hann eigi ekki neinn möguleika á að koma þar að manni. Er það rétta leiðin í kvennabaráttunni?“ „Það hlýtur líka að vera spurn- ing hversu miklu menn vilja fórna fyrir kynbundna lista og hversu lengi. Vilja menn til dæmis fórna þeirri vígstöðu sem vinstri væng- urinn og verkalýðshreyfingin hafa haft í gegnum Alþýðu- bandalagið eða stöðu þjóðfrelsis- hreyfingarinnar?“ Versti viðskilnaðurinn - Um hvað munu vœntanlegar, stjórnarmyndunarviðrœður snú- ast fyrst ogfremst að þínum dómi, Svavar? „Ég tel að hinn ótrúlegi halli á rikissjóði, litlar 3000 miljónir, muni verða það sem fjallað verð- ur um fyrst og fremst í næstu stjórnarmyndunarviðræðum, hverjir svo sem taka þátt í þeim. Þessi mikli halli er óvéfengjan- lega versti viðskilnaður nokkurr- ar ríkisstjómar í sögu lýðveldis- ins. Hvernig verður tekið á hon- um? - í því sambandi er rétt að rifja upp glansmyndina, sem brugðið var upp í upphafi kosn- ingabaráttunnar af stjórnarflokk- unum. Þar var sagt: við erum búin að leysa verðbólguvandann, við erum á réttri leið! Staðreynd- in er samt sú, að verðbólgan er á hraðri uppleið og verður komin í 30 prósent á seinni helming þessa árs, - fyrst og fremst út af hallan- um á ríkissjóði.“ „Okkur var líka sagt að ríkis- stjórnin væri komin með hið al- fullkomna skattakerfi. Samt sem áður er ljóst, að skattakerfið er í fullkomnu uppnámi vegna þess að það er 3000 miljóna halli á ríkissjóði, sem þarf að brúa. Vitaskuld verður það gert með því að leggja enn meiri álögur á launafólk ef íhaldið ræður því. Sjálfstæðisflokkurinn mun auðvitað hlífa skjólstæðingum sínum, þeim sem hafa það best fyrir og mest hafa hrifsað til sín af góðærinu.“ „Okkur var líka sagt að ríkis- stjórnin væri búin að búa til hið alfullkomna húsnæðiskerfi. Staðreyndin er allt önnur. Það er verið að vísa umsækjendum inná árið 1990 og jafnvel 1991 með af- greiðslu á umsóknum hjá Hús- næðismálastofnun ríkisins.“ „Svona“, segir Svavar, „er hægt að rekja sig í gegnum glansmyndina sem ríkisstjórnin veifar framan í kjósendur. Hún er allt önnur en veruleikinn.“ Lokasóknin „Ég er auðvitað sannfærður um að með vinnu og aftur vinnu getur Alþýðubandalagið rifið sig upp á loksasprettinum. En til þess verða allir flokksmenn og stuðningsmenn þeirra hugsjóna sem Alþýðubandalagið stendur fyrir að leggja mjög hart að sér síðustu vikurnar. Við þurfum að nota maður á mann aðferðina, - tala við félagana á vinnustöðun- um, í fjölskyldunni, vinina. Vilji menn á annað borð halda í það velferðarkerfi sem verkalýðs- hreyfingunni með stuðningi vinstri flokka á borð við Alþýðu- bandalagið hefur tekist að byggja upp, þá verða menn að eflá Al- þýðubandalagið. Vilji menn vinna sig í áttina að meiri jöfnuði, að réttlátari skiptingu góðæris- ins, þá verður það aðeins gert með einu: - með því að styðja Alþýðubandalagið. Og félögun- um segi ég þetta: Lokasóknin er hafin. Nú er að nota hverja mín- útu vel. Það er tekist á um grand- vallaratriði. Alþýðubandalagið er eini heilsteypti vinstri flokkur- inn. Þjóðin þarf nýja stefnu, þá stefnubreytingu í kjaramálum og þjóðfrelsismálum getur Alþýðu- bandalagið eitt knúið fram, - sigur Alþýðubandalagsins! -ÖS SvavarGestsson: „Al- þýðubandalagið er eini vinstri flokkurinn sem við getumtreyst. Þaðertil vinstri.” PÁSKAR 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.