Þjóðviljinn - 16.04.1987, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 16.04.1987, Qupperneq 9
Leda Michaelangelos. Koparstunga eftir Nicola Beatricetto, gerð eftir málverki Michaelangelos frá því um 1530, sem nú er glatað. Talið er að einn af ráðherrum Lúðvíks XIII Frakkakonungs hafi látið brenna málverkið fyrir siðsemi sakir. EROS OG THANATOS Nóttin, höggmynd Michaelangelo á gröf Giulio de Medici (Medici-kapellunni í Flórens. Höggmynd þessi er ein af 4 sem Michaelangelo gerði á grafir Medici- bræðranna, og eiga þær að tákna þá hringrás tímans sem líf mannsins er undirorpið. Nóttin og kvöldið eru í konulíki en dagurinn og dagrenningin eru í karlmannslíki. Nóttin er með stjörnu á enninu og náttugla stendur undir hnésbót hennar. Myndin er hoggin í marmara í kringum 1530. Fyrirmynd styttunnar og myndarinnar af Ledu er að finna í gamalli rómverskri lágmynd úr marmara sem prýðir grafþró f rá keisaratímanum. Líkingin á milli Ledu og Næturinnar staðfest- ir að Michaelangelo hefur einnig séð (mynd næturinnar í Ledu. Um Ledu og svaninn effir Leonardo og Michael- angelo Leda og svanurinn, olíumálverk á tré, 130x78 cm. Listfræðingar hafa getið sér til að myndin sé unnin af læri- sveinum Leonardo da Vinci eftir fyrir- mynd eða teikningu, sem nú er glötuð, og að Leonardo hafi hugsan- lega haft eftirlit með vinnslu verksins. Myndin var fyrst sýnd opinberlega 1874 í París, en komst svo í eigu Spiridon-ættarinnarsem seldi mynd- ina til Hermanns Göring, sem kom henni fyrir í safni Adolfs Hitlers í Bæ- heimi að ósk einræðisherrans. Mynd- in komst (eigu ítalska ríkisins 1948, og er nú varðveitt í safni helguðu Le- onardoíVinci. Eins og unginn skríður úr egg- inu, þannig reis Kristur upp úr gröfsinniápáska- dagsmorgni. Þannig hafa kristnir menn lagt þá merk- ingu í páskaeggið, að það sé eins konar tákn fyrir upprisu Krists og sigur lífsins yfir dauðanum. En löngufyrir Kristni fékk eggið táknræna merkingu endurfæðingar meðal heiðinna þjóða, þar sem eggið varð hluti þess helgihalds þegar vorkomu og endurlífgun gróðurs varfagn- að. Og hliðstæða merkingu getum við einnig lesið út úr eggjum þeim, sem tilheyra goðsögunni um Ledu og svaninn. Goðsagan um Ledu er grísk að uppruna. Leda var eiginkona Tindareo Spörtukonungs, en Seifur lagði á hana ástarhug og breytti sér í svanslíki til þess að ná fram vilja sínum gagnvart henni. Þar sem Leda var að baða sig nakin á bökkum árinnar Eurota kemur svanurinn syndandi og gerir sér dælt við hana, þannig að af mökum þeirra verða tvö egg. Leda hafði þó sama daginn átt mök við eiginmann sinn, Tindar- eo, en úr eggjunum komu tveir tvíburar, Castor og Pollux annars vegar og Helena af Troju og Clit- ennestra hins vegar. Samkvæmt einni útgáfu sögunnar áttu þau Castor og Clitennestra að vera getin af dauðlegu sæði Spörtu- konungs, en Pollux og Helena af ódauðlegu sæði Seifs. En af- kvæmi þessa undarlega getnaðar höfðu jafnframt táknræna og trúarlega merkingu: Castor og Pollux voru óaðskiljanlegir bræður og bjargvættir, og voru reyndar dýrkaðir bæði í Grikk- landi og Róm sem vemdarar far- manna og bjargvættir Rómar. Þeir voru tákn bróðernis, sam- ræmis og farsældar, en þær He- ’ lena og Clitennestra voru tákn sundrungar og stríðs: Helena or- sakaði Trjóustríðið og Clitenne- stra átti þátt í morðinu á Agam- enon, eiginmanni sínum, og féll síðan sjálf fyrir hendi Oreste sonar síns. Leonardo og Michaelangelo Goðsagan um Ledu og hinn dularfulla getnað hennar hefur verið listamönnum tamt yrkis- efni, bæði í Grikklandi og Róma- veldi til foma, en einnig á endur- reisnartímanum og allt til þessa dags. Ein þekktasta myndin af Ledu og svaninum er sú sem eignuð hefur verið Leonardo da Vinci og hér skal gerð að umtals- efni. Reyndar er myndin, sem hér er birt á forsíðu, ekki talin máluð af Leonardo, heldur er hún annað hvort talin eftirlíking af glataðri mynd, eða jafnvel enn frekar gerð af nemendum hans eftir teikningu og fyrirsögn meistarans, en talið er að hún hafi verið máluð skömmu eftir aldamótin 1500. Þetta var jafn- framt ein fyrsta „nútímatúlkun- in“ sem gerð var á þessari heiðnu goðsögn á endurreisnartímanum, en síðan varð frummynd Leon- ardos fyrirmynd ótal eftirlíkinga. En yfirbragð þessarar myndar og skissur og teikningar meistarans sanna að hugmyndin að verkinu er hans. Aðra fræga mynd af Ledu og svaninum gerði Michaelangelo í kringum 1530, en hún er einnig glötuð nema í eftirlíkingu. Hér í þessari grein verður þess freistað að gera grein fyrir túlkun þessara meistara evrópskrar myndlistar á þessari heiðnu goðsögn með að- stoð fræðimanna sem um þær hafa fjallað. Leda og Nóttin Þótt Leda Michaelangelos sé ekki til nema í eftirlíkingu, þá gefur sú eftirlíking nokkuð sannfærandi mynd af því hvernig Michaelangelo hefur túlkað sög- una. Eftirlíkingin er kopar- stunga, en frummyndin hefur verið málverk. Á koparstung- unni stendur að um eftirlíkingu af verki Michaelangelos sé að ræða. Mynd hans er að því leyti hefð- bundnari við fyrstu sýn, að mál- arinn leggur þar megináherslu á fangbrögð Ledu og svansins, eins og sjá má í gömlum rómverskum lágmyndum, og reyndar er vitað að Michaelangelo hafði ákveðna lágmynd á rómverskri steinþró að fyrirmynd þegar hann gerði Ledu. En í myndinni sjást þeir Castor og Pollux vinstra megin f baksýn, en fremst í vinstra homi er eitt óbrotið egg, og innan við skumina má sjá móta fyrir He- lenu af Tróju. Svanurinn þrýstir sér þétt upp að Ledu sem gefur sig honum fullkomlega á vald. Leda er þarna vöðvamikil og karlmannleg í vexti, eins og reyndar gerist oft í konumyndum Michaelangelos, til dæmis í hvelf- ingu Sixtínsku kapellunnar í Róm og í nokkmm höggmyndum hans. PÁSKAR 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.