Þjóðviljinn - 16.04.1987, Side 11
Leonardo: Krjúpandi Leda. [ fyrstu teikningunum, sem Leonardo gerði
af Ledu var hún í krjúpandi stellingu
Kosmísk merking
En um táknræna og kosmíska
merkingu þessa ástarfundar þarf
ekki að efast. Leonardo segir á
einum stað að „svanurinn sé
fölskvalaus og syngi sætlega í
dauðanum og í þeim söng sé líf-
inu lokið“.
Einn helsti heimildarmaður
minn að þessari samantekt, Al-
essandro Vezzosi, segir að kjarni
þessarar goðsagnar felist í því að
Eros og Thanatos, tákn sköpun-
arkraftsins og dauðans, sameinist
í dauðanum til þess að öðlast ást
Guðs. Svanurinn kemur af vatni,
Leda er jörð. Þeir Castor og Poll-
ux eru loft: þeir verða á endanum
stjörnur á himinfestingunni, þar
sem þeir mynda tvíburamerkið.
Peir eru jafnframt tákn tryggðar
og vináttu, sem lýsti sér í því að
eftir að Castor hafði fallið fyrir
vopni, þar sem hann var getinn af
dauðlegu sæði Spörtukonungs,
þá eyddi Pollux öðrum hverjum
degi í Hades með bróður sínum,
en hinum á Olympsfjalli meðal
guðanna. Þeir bræður voru báðir
teknir í guða tölu í Róm, og voru
taldir sérstakir verndarar róm-
verska ríkisins, og enn standa
veglegar súlur úr hofi þeirra
undir Palatínuhæð á sjálfu Forum
Romanum, reistar fyrir um 2000
árum.
Helena af Tróju og Clitenne-
stra eru eldur: af þeim leiddi stríð
og tortíming. Helena var ímynd
kvenlegs yndisþokka og hégóma.
Hún lét ginnast af fagurgala Pari-
de og flúði með honum til Tróju,
þangað sem bræður hennar urðu
að sækja hana til að firra eigin-
mann hennar skömm. Og það
kostaði Trójustríðið. Clitenne-
stra hefndi hins vegar fyrir fórn-
ardauða dóttur sinnar með því að
brugga eiginmanni sínum bana-
ráð og var sfðan drepin sjálf af
syni sínum í hefndarskyni. „Ást
og stríð komu úr eggjum Ledu,“
segir skáldið Yeats á einum stað.
Listin og valdið
Það eru því margræð tákn, sem
liggja að baki þessarar sögu, og
langt því frá að öll séu þau degin-
um ljósari. En mynd Leonardos
hefur á sínum tíma verið ákaflega
djörf í framsetningu. Út úr henni
má lesa hyllingu til sköpunar-
máttar hinnar jarðnesku móður í
nakinni konumynd Ledu. Að
baki myndarinnar liggur hugsun,
sem er nær upplýstri algyðistrú en
kreddubundinni skólaspeki mið-
aldakirkjunnar. Mynd í þessari
lfkingu var óhugsandi á miðöld-
um og allt fram á daga Leonardo.
Hún markar ásamt með al-
legóríumyndum Botticelli þátta-
skil í evrópskri myndlist, þar sem
heiðnar goðsagnir verða
mönnum tilefni til þess að rann-
saka umhverfið og eðli tilverunn-
ar út frá forsendum mannsins og
hinnar jarðnesku tilvistar.
Trúlega hefur þessi mynd ekki
legið á glámbekk eftir að hún var
máluð, en fáum sögum fer af
henni í gegnum aldirnar. Hún
kom fyrst fyrir almenningssjónir í
París 1874. Hins vegar segir sag-
an að einn af ráðherrum Lúðvíks
13. Frakkakonungs hafi látið
brenna mynd Michaelangelos af
Ledu fyrir siðsemi sakir á fyrri
hluta 17. aldar, og að hertoginn
af Orleans hafi skorið mynd,
málarans Caravaggio af Ledu í
parta af sömu ástæðu og að mynd
eftir Paolo Veronese af Ledu hafi
sömuleiðis verið látin hverfa.
Ýmsir valdsmenn hafa þó sýnt
Ledumyndum áhuga. Þannig
komst Napoleon yfir eina slíka
eftir málarann Kassel, og vitað er
að hin nakta Leda vakti mikinn
áhuga hjá málverkasafnaranum
Adolf Hitler, því hann lét gefa sér
myndina eftir Kassel, sem hafði
verið í eigu Napoleons og lét
Göring kaupa fyrir sig Ledu þá
sem kennd er við Leonardo og
hér er um fjallað. Það var árið
1941, og seljandinn var greifynja
að nafni Spiridon.
Eftir stríðið gekkst ítalski list-
fræðingurinn Rodolfo Siviero
fyrir því að endurheimta þá list-
afjársjóði, sem nasistar höfðu
sölsað undir sig frá Ítalíu, og
Leda Leonardos var afhent með
leyfi herstjórnarinnar í Bæheimi í
nóvember 1948. Fyrir 3 árum
stóð ítalska ríkið fyrir sýningu til
heiðurs Siviero í gamla ráðhúsinu
í Flórens,og voru þá sýnd öll þau
listaverk sem hann hafði endur-
heimt til Ítalíu frá Þýskalandi
með mikilli fyrirhöfn og eytt til
heilli starfsævi. Þar sá ég Ledu
Leonardos í fyrsta skipti. Nú hef-
ur myndinni verið komið fyrir til
frambúðar á safni í fæðingarbæ
Leonardos, Vinci, sem er í út-
jaðri Flórens.
- Ólafur Gíslason
Heimildir: Leonardo e il leonardismoa
Napoli e a Roma- Sýningarskrá undirrit-
stjórn Alessandro Vezzosi, 1983.
Lópera ritrovata -Omaggio a Rodolfo Sivi-
ero, sýningarskrá útg. I Flórens 1984.
Giorgio Lise: Lincisione erotica del rinasc-
imento, Milano, 1975.
Jame Hall: Dizionario dei soggetti e dei
simboli nellárte, Milano 1974.
New Larousse Encyclopedia of Mytho-
logy, London 1959.
Valerio Guazzoni: Michaelangelo Scult-
ore,Milano1984.
PÁSKAR 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 11
AHUGAVERDIR
ÞÆTTIR í
PÁSKADAGSKRÁ
UTVARPSINS
RÁS 1 FIMMTUDAGUR 16. APRÍL
20.15 „Sendiherrann" Pólitiskt ádeiluleikrit eftir frægasta núlifandi leikskáld Pólverja,
Slavomir Mrozek.
22.30 Cecil B. deMille og Biblíon lllugi Jökulsson segir frá tilburðum kvikmyndajöfra
Hollywood við að kvikmynda söguefni og boðskap Biblíunnar, þ.á m. myndum
deMilles, „Konungur konunganna'' og „Boðorðin tíu“.
23.10 Sólumessa Mozarts Mótettukór Hallgrímskirkju, kammersveit og einsöngvar-
arnir Sigríður Gröndal, Sigríður Ella Magnúsdóttir, Garðar Cortes og Kristinn Sig-
mundsson flytja þetta síðasta verk Mozarts á fyrstu tónleikum i Hallgrimskirkju 23.
nóvember s.l. undir stiórn Harðar Áskelssonar.
RÁS 2
16.05 Hringiðan Broddi Broddason og Margrét Blöndal miðla upplýsingum til þeirra
sem verða á faraldsfæti um páskana, fylgjast með Skíðalandsmótinu á ísafirði og
einnig koma félagar úr Kór Langholtskirkju í heimsókn.
20.30 í gestastofu Sigurður Valgeirsson ræðir við gesti sína, þá fómas R. Einarsson
kontrabassaleikara oq Einar Kárason rithöfund.
RÁS 1 FÖSTUDAGURINN 17. APRÍL FÖSTUDAGURINN LANGI
13.30 „Kern ég nú þínum krossi að" Þröstur Eiríksson fjallar um Jóhannesarpass-
íuna eftir Johann Sebastian Bach sem flutt er seinna um daginn.
14.00 Islands riddari Arthúr Björgvin Bollason tekur saman dagskrá um þýska skáldið
og íslandsvininn Friedrich de la Motte Fouqué.
15.00 Tónleikar í Langholtskirkju Kór Langholtskirkju, kammersveit og einsöngvar-
arnir Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Sólveig Björling, Michael Goldthorpe, Kristinn Sig-
mundsson og Viðar Gunnarsson flytja Jóhannesarpassíuna eftir Johann Sebastian
Bach undir stjórn Jóns Stefánssonar.
17.50 „Frið læt ég efftir hjó yður" Guörún Ásmundsdóttir tekur saman dagskrá um
stríð og frið í bókmenntum.
19.25 „Kem ég til þín að lógu leiði" Hjörtur Pálsson tekur saman þátt um Hallgrím
og Hallgrímsljóð í seinni tíma skáldsskap íslendinga.
22.20 Píanókonsert nr. 1 í d-moll op. 115 eftir Johannes Brahms Jónas ingi-
mundarson leikur með Sinfóníuhljómsveit íslands undir stjórn Páls P. Pálssonar.
RÁS 2
9.03 Morgunþóttur Fjallað um söngleikinn „Jesus Christ Superstar'' og talað við
nokkra leikara sem tóku þátt í uppfærslu Leikfélags Reykjavikur á leiknum í
Austurbæjarbíói á sínum tíma.
19.30 Að kvöldi föstudagsins langa Erna Amardóttir talar m.a. við séra Bernharð
Guðmundsson og fleiri gesti.
21.00 Merkisberar Skúli Helgason kynnir tónlistarmenn sem fara ekki troðnar slóðir,
að þessu sinni Mark Almond og hljómsveitina Soft sell.
22.05 Sænski píanóleikarinn Jan Johannson Fjaiiað um þennan þjóðlaga- og
djasspíanista sem lést fyrir aldur fram árið 1968 og var þekktur fyrir óvenju næma
túlkun sina á sænskum þjóðlögum.
RÁS 2 LAUGARDAGUR 18. APRÍL
11.00 Lukkupotturinn Bjarni Dagur Jónsson leggur getraunir og þrautir fyrir hlustendur.
Dregið í tónlistargetraun og verðlaun veitt.
14.00 Poppgótan Gunnlaugur I. Sigfússon og Jónatan Garðarsson stýra spurninga-
þætti um dægurtónlist.
RÁS 1 SUNNUDAGUR 19. APRÍL PÁSKADAGUR
13.10 Bandamanna saga Leiklesin dagskrá sem Sveinn Einarsson tekur saman og
byggir á handritum sögunnar í Konungsbók og Möðruvallabók.
15.00 Mynd af listamanni Sigrún Björnsdóttir bregður upp mynd af Árna Kristjánssyni
píanóleikara. Rætt við Árna, fjallað um list hans og fluttar hljóðritanir með leik
hans.
17.00 Carl Maria von Weber - 200 óra minning óperan „Euryanthe" á Óperu-
hátíðinni í Munchen i fyrrasumar þegar þess var minnst að 200 ár voru liðin frá
fæðingu þessa frumkvöðuls þýsku óperunnar.
RÁS 2
14.00 Vesalingarnir, „Les Misérables" Siðari hluti samantektar Sigurðar Skúla-
sonar á þessari þekktu skáldsögu Victors Hugo. Leikin eru lög úr samnefndum
söngleik i uppfærslu Konunglega Shakespeare leikhópsins.
19.30 Ungæði Hreinn Valdimarsson og Sigurður Gröndal senda hlustendum tóninn og
láta flest flakka.
RÁS 1 MÁNUDAGUR 20. APRÍL ANNAR í PÁSKUM
13.20 Leikrit á Akureyri Hilda Torfadóttir tekur saman þátt á sjötugs ára afmæli
Leikfélagsins.
14.20 Flugan ódauðlega Svavar Gests rekur sögu litlu flugunnar hans Sigfúsar
Halldórssonar í tali og tónum, ræðir við höfundinn og Pétur Pétursson sem fyrstur
kynnti lagið i útvarpsþætti sínum.
19.35 Hótiðarstund með Henríettu Hæneken Ógleymanleg stund með spili og
söng, gleði og gríni.