Þjóðviljinn - 16.04.1987, Síða 15

Þjóðviljinn - 16.04.1987, Síða 15
menn ganga gjarnan á yfir sumartímann. Dæmi um þetta eru bæjarfjöll þéttbýlisins. Ég meina Esjuna, Vífilfell og Hengil við Reykjavík, Súlur við Akur- eyri og Húsavíkurfjall, svo ein- hver séu nefnd. Öðru máli gegnir um há fjöll og brött og tinda fjarri alfaraleiðum ferðalok niður á blað og skilja eftir hjá einhverjum ábyrgum. Hvert á að fara og hvenær er ætlunin að koma aftur? Slíkar lágmarks- upplýsingar gera allar aðgerðir markvissari ef til leitar kemur. Enginn ætti að telja sig of góðan og yfir það hafinn að segja hvert hann ætlar, jafnvel reyndir fjalla- menn geta farið villir vegar og tafist á leið sinni. Landssamband hjálparsveita skáta og Landssamband flug- björgunarsveita bjóða ferða- mönnum ókeypis þjónustu í þess- um efnum. Ferðafólk getur hringt og látið vita um ferðatil- högun, fjölda ferðalanga, áætl- aða heimkomu og hvernig farar- tækjum ferðast er á. Tekið er með í reikninginn að tafir geta alltaf orðið og því ekki rokið af stað í leit sé hópurinn ekki kominn byggða á nákvæm- lega þeim tíma sem ákveðið var. Hins vegar styttist viðbragðstím- inn til muna og aðgerðir verða markvissari ef til þarf að taka. Ferðafólk getur haft samband allan sólarhringinn í síma 91-68 60 68 en það er jafnframt neyðarnúmer fyrir leit og björg- un. Sólarhringsvaktin er í hönd- um Securitas sem annast útköll leitarstjórnar. og skal ekki fjölyrt um slíkar ferðir frekar. Gallabuxur og skyldar flíkur eru bannvara til fjalla á veturna. Lágmarkskrafa er að menn klæð- ist hlýjum buxum t.d. úr riffluðu flaueli eða ullarblöndu. Bestar eru hins vegar hnésíðar buxur úr teygjuefni eða ullarblönduðu gerviefni. Oftast er efnið tvíofið þannig að það myndar lög með þráðum sem liggja homréttir hver ofan á öðmm. Við flíkurnar nota menn hnésokka úr ullar- blöndnu næloni. Að öðra leyti klæðast menn eins og lýst var hér í kaflanum á undan. Þess ber þó að geta að búast má við meiri vindi og minni lofthita með aukinni hæð. Þess vegna em t.d. vindbuxur og aukapeysa og lambhúshetta oftar nauðsyn í bakpoka en ekki. Meginvandinn í vetrarfjall- göngum er hálkan, að hugsan- legum snjóflóðum slepptum. Missi maður fótanna í brekku á hjarninu er jafnan voðinn vís ef sá hinn sami kann ekki dálítið fyrir sér. Ef hálkan er engin duga skíðastafir og hálfstífir (eða mjúkir) plast- og leðurskór vel sem hjálpartæki. Þá troðum við snjó og munum eftir Iegghlífum og forðumst augljósar snjóflóða- brekkur. í harðfenni og ísalögum eru mannbroddar skilyrði fyrir öryggi og létt ísöxi með. Hvomgt dugar eitt sér. Engu máli skiptir þótt fjailið sé lágt og alls ekki bratt. Rennandi maður fer á flug- ferð á nokkurra tuga metra vega- lengd. Mannbroddar em ekki dýrir (öðru hvom megin við 3000 kr.) og á ég þá við 12 gadda tól sem falla undir allan skósólann. Við þá notar maður hálfstífa skó sem henta ágætlega til göngu. Nú em til bæði plastskór með sveigjanlegu ökklastykki og mý- hvað skal nota? grútur af prýðilegum randsau- muðum leðurhnöllum með Vibram-sóla (verð ca. 4000-6500 kr) ísöxin má vera af ódýrastu gerrð, 65-90 cm löng. Hana nota menn sem „göngustaf og til að hemla með í falli auk þess sem hægt er að pjakka sér sæti, hvfld- arspor eða hengja í hana bakpok- ann í halla. Hið eina sem menn þurfa að læra af þessu tilefni er hvemig öxin er notuð til að stöðva fall. Þá er bara að láta sig fallera í lítilli brekku og grípa um haus axarinnar og skaft og þrýsta hyrnunni með líkamsþunganum í hjarnið. Bannað er að höggva öx- inni í ofboði uppfyrir sig. Að þessu fengnu em fjall- göngumenn færir í allar venju- legar dagsgöngur á margt fjallið. Auðvitað gleyma þeir ekki marg- nefndum öryggisbúnaði svo sem álpoka, áttavita og korti. Nesti er líka ómissandi, þó ekki væri nema til að nota ef ferð lengist af óviðráðanlegum orsökum. Við röska göngu í kulda tapar fullorð- inn maður Vi lítra af vökva á 2-3 tímum þrátt fyrir þykkan klæðn- Nokkrar leiðbeiningar um útbúnað til vetrarferða. Ari Trausti Guðmunds- son skrifar um útbúnað fyrir ferðalanga að. Heitur drykkur er því jafn nauðsynlegur og bensín á bflinn. Að lokum Búið til ykkar eigin venjur hvað útbúnað og öryggistæki varðar. Munið þó þetta: 1. Fatnaður á bæði að veita skjól fyrir vindi og halda hlýju lofti að líkamanum. 2. Forðist að ganga svo hratt eða reyna að nauðsynjalausu svo mikið á ykkur að þið svitnið. Uppgufun svita kælir mjög lík- amann. 3. Fatnaður á ekki að hindra eðlilegar hreyfingar líkamans. 4. Notið frekar margar flíkur en mjög fáar, því þá má betur stjórna líðaninni. 5. Hreyfing og hitun kostar orku. Orkan kemur frá fæðu og líkamsvefjum. Hana þarf að endurnýja. 6. Reynið að meta hvaða örygg- istæki taka á meðferðis áður en lagt er upp í ferð. Góða ferð Ari Trausti Guðmundsson Páskahelgi á Lœkjarbrekku Verid velkomin til okkar um helgina Við höfum opið: Skírdag frá 1130-23.30 Föstudaginn langa 15.00—22.00 Laugardag 10.00—23.30 Páskadag 15.00—22.00 Annan páskadag 11.30—23.30 Auk hins fjölbreytta matseðils hássins bjóðum við sérstaka hátíðarrétti og kaffiveitingar PÁSKAR 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.