Þjóðviljinn - 16.04.1987, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 16.04.1987, Blaðsíða 16
Gunnar Þór Gunnarsson (12 ára): Fólk á útitónleikum, Helga Sigurvinsdóttir (8 ára); Speglun. Fagurfrœði bamanna Um myndlistarsýningu barna í Listasafni ASÍ Samúel Orri Samúelsson (7 ára): Við Tjömina. Það mun hafa verið heimspek- ingurinn Platón, sem fyrstur manna hélt því fram með gildum rökum að listrænt uppeldi væri forsenda fyrir alhliða þroska mannsins. Að tilfinning fyrir hinu fagra væri forsenda þess að mað- urinn gæti greint rétt frá röngu. Að tilfinning fyrir hrynjandi og formi væri lykill að allri æðri visku og þroska, og að þeim sem ekki skynjaði fegurðina og hrynj- andina í náttúrunni jafnt og í hin- um fögru listum væri fyrirmunað að rata þá leið, er leiddi til farsæls lífs og frjósams skilnings á mann- inum og umhverfi hans. Sú áhersla sem Platón lagði á giidi lista í uppeldi bama er í andstöðu við þá hefð, sem reyndar hefur verið ríkjandi í okkar siðmenn- ingu, þar sem listum og listrænu uppeldi er afmarkaður ákveðinn bás sem eins konar mótvægi eða andstæða hreinnar vísindahyggju og trúarlegra/siðferðislegra upp- eldisaðferða. Platón setti fram sínar uppeld- iskenningar í bókinni um Ríkið fyrir nærri 2500 árum síðan. Á síðari ámm hafa ýmsir sálfræð- ingar og uppeldisfræðingar áttað sig á mikilvægi hugmynda hans, en engu að síður hafa skólar okk- ar og uppeldisaðferðir enn í dag mótast af því grundvallarsjónar- miði, að hið listræna uppeldi sé sér á parti, og eigi ekkert skylt við það að öðlast hæfni í því að greina rétt frá röngu eða skilja lögmál náttúrunnar og rökfræðinnar. Samkvæmt þeim viðtekna hugs- unarhætti sem skólakerfi Vestur- landa byggir á er hið fagra að- skilið frá hinu góða og hinu sanna. Fagurfræðin aðskilin frá siðfræðinni/trúarbrögðunum og rökfræðinni/vísindunum. Útrás og bœling Þó hafa vísir menn bent á að sú uppeldisaðferð sem hefur fagur- fræðina að gmndvallarviðmiði sé í rauninni sú eina sem samræmst geti lýðræðislegum kröfum um frjálsa þróun einstaklingsins. Einfaldlega vegna þess að sú upp- eldisfræði sem byggir á siðfræði- legum eða rökfræðilegum kenn- isetningum verður á endanum alltaf valdboð, þar sem hin bemska og fagurfræðilega skynjun og það einstaklings- bundna frumkvæði sem felst í leik og skapandi ímyndunarafli er úti- lokað í krafti fyrirframgefinna lögmála. f stað þess er börnunum skammtaðir 2 tímar á viku til þess að fá „útrás“ fyrir meðfædda þörf sína til listrænnar sköpunar, en síðan tekur „alvara lífsins“ við í bælingu þessarar náttúmlegu þarfar þar sem margföldunarta- flan og boðorðin 10 verða ríkj- andi viðmiðun. Skapandi frumkvœði Þessar vangaveltur komu í huga mér þegar ég skoðaði myndlistarsýningu þá sem nú stendur yfir í sýningarsal ASÍ, og haldin er að frumkvæði Iðnaðar- bankans. Þar em til sýnis um 100 myndir eftir reykvísk skólaböm á aldrinum 6-12 ára, þar sem þau túlka lífið í höfuðborginni, fólk, atvinnulíf og umhverfi á sinn rök- vísa og sanna hátt, eins og börn- um er gefið. Þetta eru ávextir þeirrar „útrásar" sem börnunum hefur verið gefinn kostur á í þeim 2 myndlistartímum, sem þau eiga lögboðinn rétt til í skólum höfuð- borgarinnar á viku hverri. Arangurinn er að sönnu mis- jafn, en ástæðan fyrir því að við getum kallað þessar myndir „sannar“ og „rökvísar" er sú að þær em ávöxtur af reynslu, þar sem bömin hafa fengið frelsi til þess að leggja sitt mat á hlutina og leggja það á borð fyrir okkur til skilnings og lærdóms fyrir þau sjálf og fyrir okkur hin. Listræn sköpun barnanna er fólgin í því að velja og hafna að eigin fmm- kvæði og án tillits til þeirra siða- reglna eða þeirrar rökfræði, sem kenndar era í bóklegu tímunum. Þegar börnin kanna umhverfi sitt og túlka það í mynd þá nota þau til þess athyglisgáfu sína. Við mótun verksins velja þau og hafna, vinna úr athugun sinni, uppgötva form og hrynjandi og greina rétt frá röngu út frá þeim viðmiðunum sem þeirra eigin sköpunargáfa segir þeim til um. Og þau gera kröfur til þess að við tökum afstöðu til niðurstöð- unnar, bregðumst við henni með einhverjum hætti. Að skapa er að gefa og þiggja og sýna gagn- kvæma virðingu. Á bak við þessar myndir liggur bæði sjálfstæð rannsókn, uppgö- tvun, sjálfstætt mat og sú reynsla sem fólgin er í meðhöndlun efnis- ins, en fyrst og fremst liggur að baki þessara mynda sjálfstætt frumkvæði. Uppeldisaðferð fagurfrœðinnar Það er utan ramma þessara skrifa að fjalla um hvernig kennsla í hinum bóklegu greinum skólans geti tekið mið af starfsað- ferðum barnanna við sína list- rænu sköpun, hvernig virkja megi sköpunargleði þeirra og frumkvæði í reikningstímum, grasafræði eða trúarbragðasögu ekki síður en í myndmenntatím- unum, og hvemig skólinn geti hugsanlega aðlagað sig betur að hinum náttúmlegu starfsaðferð- um og þroskaleiðum barnsins með það að markmiði að skapa heilsteyptari einstakling, sem fær verður um að leggja fagurfræði- legt mat á rökfræðina og siðf- ræðina og skilja samhengi mannsins og umhverfisins í nýju ljósi. Ef skólar Vesturlanda hefðu lagt að gmndvelli þann mælikvarða Platóns, að hið fagra sé óaðskiljanlegt frá hinu góða og sanna, þá liti þjóðfélag okkar kannski nokkuð öðruvísi út í dag. Hugsanlega ættum við þá engin kjarnorkuvopn, engin kjarnork- uver og færri bíla en nóg af fersku vatni, heilbrigðum skógi og ómenguðu andrúmslofti og heil- steyptara mannfólk. Þetta em spumingar sem eiga erindi í skólamálaumræðuna, og endan- lega varða þær skilning okkar á manninum sem skapandi afli, skilning okkar á mannlegum samskiptum og sambúð mannsins við náttúruna. Þannig getur lítil sýning gefið tilefni til stórra spuminga. Þökk sé bömunum, sem að henni stóðu. -ólg 16 SfÐA - ÞJÓÐVIUINN PÁSKAR 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.