Þjóðviljinn - 16.04.1987, Page 17
Fanney, Vilborg, Elínborg, Ásta og Bryndís ræða teóríuna.
Tómstundaskólinn
Geysifjölbreytt namsval
Ingibjörg Guðmundsdóttir skólastjóri: Skólinn eríeigu MFA. Lengi verið hugsjónamál samtakanna að geta
boðið upp á tómstundanám
„Skólinn er stofnaður 1985
af Þórði Vigfússyni, Gunnari
Rafni Sigurbjörnssyni og Birgi
Ásgeirssyni. Síðastliðið sum-
ar keypti Menningar og
fræðslusamband alþýðu skól-
ann. Það hefur ávallt verið á
stefnuskrá samtakanna að
bjóða upp á tómstundanám
en hafa ekki fyrr haft bolmagn
til þess.
Reynt hefur verið að láta
skólann standa undir sér sjálfan
með námskeiðsgjöldum og hefur
það að mestu tekist.Við höfum
einnig leitað eftir stuðningi
verkalýðsfélaganna og hafa
Verslunarmannafélagið og Iðja
veitt námsstyrki. E>á hafa nokkur
stéttarfélög greitt hluta nám-
skeiðsgjalda fyrir meðiimi sína.
Engir fastir kennarar starfa við
skólann heldur taka kennarar að
sér kennslu á námskeiðum hans
sem verktakar. Við skólann er
talsvert mikið af myndlistarnám-
skeiðum, ýmis konar handavinnu
og fatasaumanámskeið eru í
gangi. Þá eru haldin ljósmynda-
námskeið, videomyndatökur
kenndar, leiklistarnámskeið,
bókhaldsnámskeið, námskeið í
stofnun og rekstri smáfyrirtækja,
garðrækt, innanhússkipulagn-
ingu, farseðlaútgáfu og glugga-
útstillingum og er þó ekki enn allt
upp talið," sagði Ingibjörg Guð-
mundsdóttir skólastjóri Tóm-
stundaskólans í samtali við Þjóð-
viljann.
-sá.
Fjölmiðlun
Forðaði
sér
undir
bót
Vilborg Harðardóttir
kennari á
fjölmiðlanámskeiði
Tómstundaskólans: Við
leggjum áherslu á
hlutlœgni í fréttaskrifum
og muninn á
blaðafréttum og
blaðagreinum
Sigurjón Jóhannsson og Vilborg Harðardóttir eru aðalkennarar blaðahóps á
fjölmiðlanámskeiði tómstundaskólans. Þau hafa langa reynslu af blaða-
mennsku og kennslu í fjölmiðlafræðum.
Fjölmiðlanómskeiðið
Viðtalstœknin
gagnleg
Árný Sveinsdóttir skrifstofu- Þjóðviljans og þar með var hlu-
maður sagði Þjóðviljanum að tverkum okkar snúið við.
námskeiðið væri ákaflega gagn- -«á.
legt. Árný sagðist ekki hafa unn-
ið við blaðamennsku og hvort
sem hún myndi gera það í fram-
tíðinni eða ekki, hefði hún fengið
innsýn í hluti sem vel nýttust á
öðrum sviðum. „í námskeiðinu
er innifalið þriggja kvölda nám-
skeið í ritvinnslu sem ég tel of
stutt til að verða sæmilega sjálf-
bjarga þótt það gefi allgóða inn-
sýn og skilning á grundvallarat-
riðum. Við höfum verið að vinna
viðtöl fyrir páskablað Þjóðviljans
og spurt fólk hvað það ætli að
gera um páskana“, sagði Árný,
„hvað ætlar þú að gera um pá-
skana?“ spurði Árný blaðamann
Með páskabros
á vör
Eftirtaldir nemendur á Fjölmiðlanám-
skeiði Tómstundaskólans skrifuðu
viðtölin sem birtast á næstu síðum:
Árný Sveinsdóttir, Ásta Eggertsdóttir,
Bryndís Valgeirsdóttir, Elínborg K.
Kristjánsdóttir, Fanney Þórsdóttir,
Kristlaug Sigurðardóttir, Sigríður
Magnúsdóttir. Snorri Konráðsson og
Jóhann Ingi Árnason.
„Það gerðist ýmislegt þegar
fólkið fór fyrst út að taka viðtöl.
Sumir viðmælenda vildu alls ekki
tala við Þjóðviljann, aðrir yfir
höfuð ekki tala við blaðamenn,
enn aðrir alls ekki láta taka af sér
mynd og viðmælandi eins var
það hvumpinn að hann forðaði
sér undir bát“, sagði Vilborg
Harðardóttir sem kennir á fjöl-
miðlanámskeiði Tómstunda-
skólans sem nú stendur yfir.
Tómstundaskólinn er í eigu
Menningar og fræðslusamtaka al-
þýðu og stendur hann fyrir fjöl-
breyttri kennslu og náms-
keiðum?
„Nú á tímum ört vaxandi fjöl-
miðlunar var ákveðið að halda
þetta námskeið og í byrjun árs
var auglýst eftir þátttakendum.
Strax eftir að auglýsingin birtist
bárust rúmlega 40 umsóknir sem
var meira en búist hafði verið við.
Var þá ákveðið að auglýsa ekki
meir en tala persónulega við um-
sækjendur og gera þeim glögga
grein fyrir námsefni og tilhögun,
svo ekki færi á milli mála hjá
þeim, að hverju þeir gengju.
Námskeiðið hófs síðan 21. feb-
rúar. Því er þannig hagað í höfuð-
atriðum, að allir nemendurnir
læra ákveðin kjarna- eða
grunnfög, en síðan skiptast þeir í
þrjá sérgreinahópa, en þeir eru;
blaðahópur, útvarpshópur og
sjónvarpshópur.
í kjamanum vom haldnir fyrir-
lestrar, umræður fóm fram og
unnin vom margbreytileg verk-
efni. Fjallað var um blöð, útvarp
og sjónvarp, tfmarit og fréttabréf
og farið (heimsóknir til stofnana
og fyrirtækja á þessum sviðum.
Þá hefur verið leiðbeint með
upplýsinga- og gagnaöflun, um
fréttir og fréttavinnslu, dagskrár-
gerð, viðtalstækni, um íslenskt
mál og að síðustu kennd tölvurit-
vinnsla í forritinu Orðsnilld
(Word Perfect)", sagði Sigurjón
Jóhannsson kennari á fjölmiðla-
námskeiði tómstundaskólans.
í blaðahópnum er auk kjarna-
greinanna lögð sérstök áhersla á
framsetningu efnis, útlit blaða og
útlitshönnun, ljósmyndir og Ijós-
myndun, frétta- og greinaskrif og
tók hópurinn að sér að sjá um
þetta páskablað Þjóðviljans að
hluta.
Námskeiðið hófst, eins og áður
segir þann 21 febrúar sl. og kennt
er á miðvikudagskvöldum og
laugardögum. Námskeiðinu lýk-
ur þann 16. maí. nsá.
Spjallað í kaffipáisunni. Frá vinstri: Amý SvoinsdótUr, Kristlaug Siguröardóttir
og Sigríður Magnúsdóttir.
-SteA »7