Þjóðviljinn - 16.04.1987, Side 20
Egill Gíslason
Hef farið á
flest öll leikrit
síðustu árin
Þetta sagði Egill Gíslason sem
nú á heima á elliheimilinu Grund
í stuttu viðtali um það hvernig
hann hugðist eyða páskafríinu.
Á þessum aldri gerir fólk nú
flest lítið yfir páskana, ég held
bara að ég verði heima á elliheim-
ilinu Grund en ef ég færi eitthvað
þá væri það bara í heimsókn til
dætra minna.
Er mikið gert fyrir gamla fólkið
á Grund?
„Það er allt gert fyrir fólkið
þarna sem mögulega er hægt og
held ég að þjónustan gæti vart
verið betri. Yfir páskana er lítið
breytt út frá venjulegu sniði, en
samt eru fleiri guðsþjónustur.“
Sækirðu mikið guðsþjónustur?
„Nei, satt að segja geri ég það
ekki, augun í mér eru farin að
gefa sig og ég er farinn að sjá
mjög illa.“
Hvað gerirðu þér helst til gam-
ans?
„Ég sæki mikið leikhús og hef
svotil farið á öll leikrit sem sýnd
hafa verið síðastliðin ár.
J.I.Á.
Stefán Ásgrímsson
Liggja í leti
í Luxemburg
„Ég ætla að fara með konu og
börn til Luxemburgar um pásk-
ana og liggja í leti,“ sagði Stefán
Ásgrímsson blaðamaður.
„Mágur minn býr í Luxemburg
og er ætlunin að dvelja hjá hon-
um.( Landslag er mjög fallegt
•þarna og líklegt að við keyrum
um Móseldalinn og skoðum okk-
ur um. Ætlunin er að dvelja ytra í
tæpan hálfan mánuð, þannig að
ég kem til með að missa af kosn-
ingabaráttunni hér heima.“
Út
eftir
inniveruna
í vetur
Eins og fleiri Keflvíkingar var
Jóhanna Malena Karlsdóttir á
þönum í hádeginu.
„Ég og dóttir mín ætlum að
fara með foreldrum mínum í
sumarbústað í Skorradal. Það er
venja okkar að byrja hvert sumar
þar um páskana.
Ég vinn á skrifstofu fimm daga
í viku og hlakka mjög til frísins,
við förum mikið út, í gönguferðir
og sund. Það er frábært eftir alla
inniveruna í vetur.“
SM
Jóhanna Malena Karlsdóttir
Vera heima
og
horfa á
sjónvarpið
Rúnar Þór Jónsson, 13 ára
nemi í Æfinga- og tilraunaskóla
KHÍ, var að leika sér með bolta
fyrir utan skólann.
„Ég ætla að vera heima um
páskana, kannski les ég eitthvað
og horfi á sjónvarpið.“
Svo var hann hlaupinn á eftir
boltanum.
Á.S.
Vinn
trúlega
eitthvað
Inga Björnsdóttir vinnur á hót-
eli frá ca. 12-4, stundum til 5 á
daginn, „eftir því hve mikið er að
gera”.
Hún ætlar að vera heima um
páskana og hafa það rólegt. „Eg
fer kannski í heimsóknir til vina
og kunningja. Svo getur verið áð
ég hitti dóttur mína ef hún verður
í bænum. Ætli ég hlusti svo ekki
líka á útvarpið. Nú, og svo les ég
líka töluvert af bókum og náttúr-
lega alltaf blöðin, Mbl., DV og
Þjóðviljann.
Hvenær ferðu í fríið?
„Hótelið verður lokað á páska-
dag, en ég veit ekki með 2. í pásk-
um, það verður trúlega eitthvað
unnið. Með þessum orðum
kvöddumst við og Inga gekk
brosandi áfram í sólskininu.
E.K.
Ásthildur Kristjánsdóttir, nemi í 6.
bekk MR.
Kannski borða
ég páskaegg
Ásthildur Kristjánsdóttir,
nemi í 6. bekk MR:
„Ég legg áherslu á upplestur og
ekkert annað. Við förum í próf
miðvikudaginn eftir páska og
erum í kennslu fram á skírdag
þannig að það er lítið annað að
gera en að lesa. Kannski borða ég
páskaegg."
Ásthildur var í útreiðatúr
skammt frá Hafnarfirði á vökrum
gæðingi sem faðir hennar á.
„Ef veðrið verður yndislegt
freistast maður samt til að fara á
hestbak. Námið verður þó að
ganga fyrir og verkfall kennar-
anna bætti ekki úr. Kennslan
stendur lengur dag hvern,
skólinn lengist um viku og upp-
lestrarfríið verður ekki sem
skyldi. útiveran endurnærir
mann og ekki veitir af hressingu í
náminu og próflestrinum. Ef ég
kæmi því við þá færi ég oftar á
hestbak en ég geri nú. Ég er úti-
vistarmanneskja. “
SSK
Elín Sigurbergs
Páskahelgin
engin undan-
tekning
„Ég skelli mér upp í sumar-
bústað um páskana, svaraði Elín
Sigurbergs. Hún vinnur við að
pakka ávöxtum á morgnana og er
heimavinnandi eftir hádegi.
„Ég er vön að fara upp í sumar-
bústað um hverja einustu helgi og
páskahelgin er þar engin undan-
tekning.
Við eigum sumarbústað í
Grímsnesi og þangað fer ég til að
slappa af og hreinsa til í kringum
bústaðinn. Það er alveg nauðsyn-
legt að komast í kyrrðina sem oft-
ast.
-fþ
Þorsteinn Svavar Fransson og Þröstur Guðbjörn Fransson.
Yfirleitt heima yfir páskana
Þetta sögðu þeir Þorsteinn
Svavar Fransson og Þröstur Guð-
björn Fransson þegar ég spurði
þá hvernig þeir ætluðu að eyða
páskafríinu.
„Við gerum nú ekkert sérstakt
yfir páskana, erum yfirleitt heima
og njótum þess að þurfa ekki að
fara í skólann. Kennararnir okk-
ar fóru í verkfall og þess vegna er
þetta fyrsta fríið okkar síðan um
jólin.“
Til hvers hlakkið þið í sam-
bandið við páskana?
„Að fá páskaeggin frá mömmu
og pabba."
Farið þið í guðsþjónustu yfir
páskana?
„Nei, ég held ekki, við förum
bara ef mamma fer.“
Hvernig eyði þið frítímum ykk-
ar?
„Við förum mikið í sund og
erum til dæmis að fara í sund
núna, en svo förum við stundum í
bíó en annars erum við bara að
leika okkur heima.“
J.I.Á.
í skólanum um páskana
Inga María Magnásdóttir og
Kristrún Zakaríasdóttir voru að
vinna á skrifstofu í Keflavík.
„Ég er líka í Fjölbraut, það
verður kennt um páskana svo ég
verð að lesa og læra í fríinu,"
sagði Inga María. „Ég ætla samt
að reyna að komast með vinkonu
minni á skíði í Bláfjöll, við förum
eins oft og við getum.“
Kristrún sagðist ætla að taka
það rólega í fríinu, „vera heima,
borða góðan mat og horfa á sjón-
varpið."
Grunnskólinn
á ísafirði
vantar kennara í eftirtafdar stöður:
Almenna bekkjarkennslu
Smíðar
Sérkennslu
Tungumál
íþróttir
Heimilisfræði
Tónmennt
Þú getur komið til ísafjarðar þér að kostnaðar-
lausu því flutningskostnaður er greiddur fyrir þig.
Þú færð leigða íbúð langt undir markaðsverði.
Eigirðu börn er aðstoðað við að fá gæslu fyrir
þau. Kennarahópurinn er áhugasamur og já-
kvæður og skólahúsnæðið er í uppbyggingu. Það
bendir því margt til framfara í skólamálum á ísa-
firði á næstu árum. Hvers vegna ekki að kanna
möguleikana? Hringdu og fáðu nánari upplýsing-
ar.
Jón Baldvin Hannesson
skólastjóri
v.s. 94-3044, h.s. 94-4294
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN PÁSKAR 1987