Þjóðviljinn - 29.04.1987, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 29. apríl 1987 96. tölublað 52. árgangur
Stjórnarmyndun
Frumhlaup hjá Jóni Baldvin
Kristín Einarsdóttir, Kvennalista: Frumhlaup að hefja tilraun til stjórnarmyndunar áður en forseti hefur
veitt umboð sitt. Steingrímur: Þreifingar Jóns ósœmilegar
„Það er frumhlaup hjá Jóni
Baldvin að gera tilraun tii stjórn-
armyndunar áður en forseti hefur
veitt umboð sitt,“ sagði Kristín
Einarsdóttir, þingmaður
Kvennaiistans í samtali við Þjóð-
viljann í gær. Steingrímur Her-
mannsson tók í sama streng og
kvað þreifingar Jóns Baldvins
ósæmilegar gagnvart forsetaemb-
ættinu.
Steingrímur sagði í samtali við
Þjóðviljann að hann vildi að
Framsóknarflokkur og Sjálfstæð-
isflokkur héldu samstarfi sínu
áfram með fulltingi eins flokks til
viðbótar. Hann kvaðst ekki vilja
útiloka neinn, ekki heldur Borg-
araflokkinn, en þó væri ljóst að
eldur brynni milli hans og Sjálf-
stæðisflokks.
Borgaraflokkurinn er alger-
lega utan við viðræður enn sem
komið er og mjög ólíklegt að til
hans verði leitað. Á fundi fram-
kvæmdastjórnar Alþýðubanda-
lagsins í fyrradag kom fram mikil
andstaða við þátttöku flokksins í
ríkisstjórn.
Margir Sjálfstæðismenn telja
lífsspursmál fyrir flokkinn að
komast í ríkisstjórn og líta til Jóns
Baldvins sem biðlar ákaft til
Kvennalista um samstjórn flokk-
anna þriggja. Kristín Éinarsdótt-
ir var spurð um það hvort
Kvennalistinn myndi fara fram á
að fá forsætisráðuneytið í slíkri
stjórn. „Ég vil ekkert um það
segja. Við erum ekki farnar að
huga að ráðherraefnum ennþá“.
I samtali við Þjóðviljann í gær
Bílainnflutningur
Góðærið
úti að aka
Með sama áframhaldi í inn-
flutningi nýrra fólksbíla
hingað til landsins, má búast við
að aukningin á milli ársins í fyrra
og í ár verði um 24%, segir Björn
Másson, fulltrúi hjá Hagstofu ís-
lands.
Allt árið í fyrra voru fluttir inn
13.352 nýir fólksbílar en á fyrstu
þrjá mánuðina í ár var flutt inn
4.149 nýir fólksbflar. Ef þetta er
framreiknað til ársloka má búast
við því að heildarinnflutningur á
nýjum fólksbflum verði 16.500
nýir fólksbflar sem er 24%
aukning á milli ára.
Það sem af er árinu hafa verið
flutt inn alls 5.468 ökutæki ýmis-
konar, en allt árið í fyrra nam
þessi innflutningur 15.851. Fram-
reiknað til ársloka mun þessi
innflutningur verða hvorki meira
né minna en 21.800 ökutæki.
Á þessu ári hefur bæst við nýr
liður í innflutningi ökutækja sem
eru fjórhjólin svokölluðu, en
þeim má hvorki aka á vegum né
fyrir utan þá. í marslok var búið
að flytja inn 492 slík hjól.
grh.
bar Jón Baldvin af sér ásakanir
um að hann hefði hafið stjórn-
armyndunarviðræður. „Það er
misskilningur. Þetta voru einung-
is óformlegar könnunarvið-
ræður. Ég hefði við réttar að-
stæður getað myndað stjórn á
einu síðdegi, þ.e. ef myndun
tveggja flokka stjórnar hefði ver-
ið gerleg." - Þannig að það tekur
tvo til þrjár daga að mynda
þriggja flokka stjórn. „Það getur
dregist. Það erósiður stjórnmála-
manna að segja ekki fyrir kosn-
ingar hvernig stjórn þeir vilja.“
Forseti íslands mun á næstu
dögum ræða við leiðtoga
stjórnmálaflokkanna áður en
einhverjum þeirra verður form-
lega falin tilraun til stjórnar-
myndunar. Flestir hallast að því
að Steingrímur fái fyrstur að
spreyta sig.
-þj.
Ríkisstjómin faliin. Steingrímur Hermannsson baðst í gær lausnar fyrir sig og ríkisstjórn sína sem missti þingmeiri-
hluta sinn í kosningunum á laugardaginn. Forsetinn bað Steingrím og félaga að sitja áfram sem starfsstjórn þar til ný
hefði verið mynduð. Fyrr um daginn var haldinn síðasti reglulegur fundur stjórnar Steingríms og hér sjást tygja sig út af
honum Framsóknarráðherrarnir Alexander Stefánsson, Jón Helgason og Halldór Ásgrímsson. (Sig.)
Vesturland
48 atkvæði týnd!
Gætu breytt ýmsu á þinginu. Þarf að kjósa aftur?
færi af stað í jöfnunarsætum og og einnig er hugsanlegt að alþing-
flakki. ismenn samþykki ekki kjörbréf
Þá er hugsanlegt að landskjör- þingmanna Vesturlands af þess-
stjórn ákvæði að endurtaka allar um sökum.
kosningarnar vegna þessa máls, -m
Borgarstarfsmenn
Samningar samþykktir
Sextíuprósent borgarstarfsmanna greiddu atkvœði. 67,5 af hundraði sögðu já,
22,2 prósent sögðu nei. Tíu af hundraði skiluðu auðu
í þriðju atrennu tókst loks að þennan samning en fyrri at- samning með nokkrum mun at-
knýja fram úrslit í samningamál- kvæðagreiðslan var sem kunnugt kvæða.
um borgarstarfsmanna í gær- er ógilt eftir að mcirihluti borg- Samningur Starfsmannafélags-
kveldi. Samningurinn var sam- arráðs hafði hlutast til um kjara- ins er svo til samhljóða þeim
þykktur með miklum meirihluta mál þroskaþjálfa og fóstra utan samningi sem Starfsmannafélag
atkvæða en þetta var í annað sinn við samninginn. Aður hafði ríkisstofnana samþykkti á dögun-
sem greidd voru atkvæði um Starfsmannafélagið fellt fyrri um. -rk./-ks.
48 atkvæði virðast vera týnd í
Vesturlandskjördæmi og er
ekkert vitað hvar þau eru niður-
komin. Búið er að telja aftur og
aftur og hafa samband við allar
kjördeildir en enn er allt í óvissu.
í gær kynnti yfirkjörstjórn á
Vesturlandi þetta mál fyrir full-
trúum flokkanna og bað jafn-
framt Rúnar Guðjónsson sýslu-
mann að rannsaka málið. Rúnar
sagði við Þjóðviljann í gær að
hann hygðist biðja
Rannsóknarlögreglu ríkisins að
taka að sér rannsóknina.
Óvíst er hvað gerðist ef at-
kvæðin fyndust og teldust gild.
Mjótt var á munum í kosningun-
um í Vesturlandi, og ef atkvæðin
væru flest á Borgaraflokk eða
Kvennalista eða Framsóknar-
flokk gæti þingmaður Alþýðu-
bandalagsins verið fallinn, og allt
Alþýðubandalagið
Afhverju tap?
Hvemig tap?
Alþýðubandalagið tapaði illa í
kgsningunum á laugardaginn og
inhan flokksins eru menn byrjað-
irað ræða ástæður og afleiðingar.
Ftamkvæmdastjórn flokksins
kom saman í gær, og boðað hefur
venð til miðstjómarfundar um
míðjan maí.
í Þjóðviljanum í gær heyrðust
viðhorf forystumanna flokksins
um þessi efni og i dag er fjallað
um kosningarnar og stöðu Al-
þýðubandalagsins í leiðara, í
fréttaskýringu Þráins Bertels-
sonar „Hvað nú“ og fréttaskýr-
ingu Marðar Árnasonar „Áfall
fyrir Alþýðubandalagsmenn.“
Sjá síður 4, 5, og 8