Þjóðviljinn - 29.04.1987, Page 14
MINNING
Guðrún Oddsdótlir
Fœdd 24. nóvember 1909 Dáin 15. apríl 1987
Kveðja
Guðrún okkar Oddsdóttir hef-
ur kvatt þennan heim. Hún
veiktist alvarlega í desemberbyrj-
un, komst samt á fætur aftur af
sinni einstöku seiglu og henti
góðlátlegt gaman að veikindum
sínum. Aldrei hafði hún minnst á
að hún kenndi sér meins. Það bar
hún ekki á torg fremur en annað
sem snerti hennar hagi. Sam-
viskusamlega mætti hún til starfa
hér á skrifstofu SÍBS öll þau ár
sem hún starfaði hér. Pótt vetrar-
veður geisuðu og snjóþyngsli
stöðvuðu alla umferð á götum
Reykjavíkur var Guðrún ævin-
lega mætt stundvíslega eins og
endranær. Ef hún var spurð
hvernig í ósköpunum hún hefði
komist á vinnustað, svaraði hún
af sinni alkunnu hægð. „Ég bara
gekk þetta í rólegheitum“. Þann-
ig var hún, gekk hljóðlega til
sinna starfa, yfirlætislaus og
samviskusöm. Énginn var hún
augnaþjónn.
Guðrún var ein af þeim sem
ung hreifst af hugsjónum SÍBS.
Maður hennar, Asberg Jóhann-
esson, kennari, var einn af stofn-
endum SÍBS og fyrsti gjaldkeri
Reykjalundar. Því starfi, auk
annarra trúnaðarstarfa fyrir sam-
tökin, gegndi hann til dauðadags
13. sept. 1955.
Guðrún fylgdist líka mjög vel
með málum SIBS og sat flest þing
sambandsins. Hún hafði sínar
ákveðnu skoðanir og starfaði
samkvæmt þeim.
Hún andaðist að Reykjalundi
15. apríl sl.
Vertu kært kvödd, góða vin-
kona. Við söknum þinnar léttu
lundar og þægilegu umgengni.
Samstarfsfólk SÍBS
Guðrún Oddsdóttir móður-
systir mín lést 15. aprfl að
Reykjalundi.
Guðrún fæddist að Miðhúsum í
Reykhólasveit 24. nóvember
1909. Foreldrar hennar voru
hjónin Finnboga Árnadóttir frá
Kollabúðum og Oddur Jónsson
læknir.
Guðrún giftist Ásbergi Jó-
hannessyni. En þau höfðu bæði
fengið berkla og kynntust á Hæl-
inu. Þau voru meðal frumkvöðla
að stofnun SÍBS og Vinnuheimil-
isins að Reykjalundi. Ásberg var
gjaldkeri Reykjalundar meðan
honum entist aldur, en hann lést
1955.
Eftir að Guðrún fluttist í bæinn
vann hún við skrifstofustörf, fyrst
hjá Agli Vilhjálmssyni og síðar
hjá SÍBS og alveg fram að þeim
tíma sem hún veiktist af hjarta-
sjúkdómi sem leiddi til dauða
hennar.
Guðrún fékk alvarlegt hjarta-
áfall núna fyrir jól og þrátt fyrir
frábæra umönnun á Borgarspítal-
anum var ekki hægt að ráða bót á
sjúkdóminum. Þegar ég keyrði
Guðrúnu af Borgarspítalanum og
upp á Reykjalund til endurhæf-
ingar þá sagði hún að liðin væru
42 ár frá því að hún var skráð sem
vistmaður það.
Guðrún var með eindæmum
nákvæm í öllu sem hún gerði.
Hún flýtti sér ekki en var samt
aldrei of sein. Allir hlutir á heim-
ili hennar voru sem nýir þótt
gamlir væru og alltaf virtist vera
nóg til af öllu, samt aldrei
„froðsað" með neitt.
Guðrún var sannur sósíalisti af
gamla skólanum þar sem ekkert
fékk haggað þeirri heimsmynd
sem hún hafði gert sér. Hún las
mikið og vel og hafði gott minni.
Um skeið áttum við Guðrún
saman húsið að Brekkustíg 5.
Elstu börn mín voru þá að vaxa úr
grasi og má með sanni segja að
„Gunna frænka" hafi komið
þeim í ömmu stað, enda þótt báð-
ar ömmur þeirra væru á lífi. Það
sama má segja um börn og barna-
börn Brandísar heitinnar, móð-
ursystur Guðrúnar, og reyndar
líka um börn vinafólksins Hlínar
Ingólfsdóttur og Árna Einars-
sonar, heitins, forstjóra á
Reykjalundi. Margir sakna
Guðrúnar nú þegar hún er öll.
Ég minnist góðra stunda í kjall-
aranum á Brekkustíg, þegar Jón
Rafnsson vinur Guðíúnar kom í’
heimsókn. Þá var ræft af eldmóði
frumherjanna um pólitík og
verkalýðsbaráttu á fyrri árum og
stundum kveðnar rímur þegar vel
stóð á.
Við sem þekktum Guðrúnu
minnumst hennar með hlýju og
söknuði. Minning hennar mun
lifa.
Oddur Benediktsson
í fagurri sveit við Breiðafjörð á
litlu býli niðri við ströndina - á
Miðhúsum, fæddist lítil stúlka er
hlaut nafnið Guðrún. Hún var
dóttir hjónanna Odds Jónssonar
héraðslæknis og Finnbogu Árna-
dóttur frá Kollabúðum. Lækni-
shjónin áttu þá fyrir tveggja ára
dóttur, Sigríði. Systurnar voru
mjög samrýmdar alla tíð, næstum
líkt og dagur fylgir nótt.
En nú fyrir páskahátíðina
skildi leiðir. Hún Gunna frænka
er dáin, svo skjótt skipast veður í
lofti og tilveran breytir öll um
svip. Það er svo hljótt. Það hring-
ir enginn lengur frá Bræðraborg-
arstígnum og heilsar upp á Mið-
húsafólkið til þess að vita um líð-
an þess og hvort nokkuð sé hægt
að gjöra fyrir það.
Það var svo að eiga hana
Gunnu að, mega heimsækja
hana, þegar farið var í höfuð-
borgarreisu. Fallegt lítið heimili
með minjagripum frá mörgum
ferðalögum og gjafir frá vinum.
Málverk eftir meistarana og
myndir af kunnum andlitum,
eiginmanni, foreldrum og svo
unga fólkið.
Hver var ungi drengurinn með
stúdentshúfuna? Jú, Trausti, er
sagði fréttir frá Helsinki og fleiri
og fleiri.
Setið var í stofunni hennar
frænku við kertaljós og svo var
veitinga notið. Rabbað um dag-
inn og veginn og stundum bættust
fleiri í hópinn eins og lítil Gunna
Odds. Börn og barnabörn Sig-
ríðar systur hennar voru frænku
einkar kær. Hún Gunna var svo
lagin að skapa gott andrúmsloft
með gleði og léttu gríni, þótt við
sem þekktum hana vissum að al-
vara og hið trausta vinarþel var
ávallt til staðar.
Minningarnar þyrpast fram líkt
og sólargeislar sem lýsa í gegnum
skýin. A ferðum mínum erlendis
hefi ég komið í margar fargrar
kirkjur og notið þar helgistunda
sem tónlistin ein getur veitt, en
um leið og maður gengur til sætis
á maður þess kost að tendra
kertaljós til minningar um látna
vini og ættingja og næst bætist við
ljósið hennar Gunnu.
Á Miðhúsum ólst Guðrún upp
á fjölmennu heimili. Þar var hún
samtíða Kristínu móðurömmu
sinni og móðursystkinum, þeim
Þórarni, Hallvarði, Ragnheiði og
Brandísi. í mörgu var að snúast,
búskapurinn var bæði til sjós og
lands, eyjar og hlunnindi kölluðu
á mikinn mannskap. Hrísey er
stór og fögur eyja sem laðar að
sér náttúruunnendur, sérstaklega
á vorin á varptíma fuglanna og
svo þegar gróðurinn er í blóma.
Oftast var reynt að fara eina
skemmtiferð út í Hrísey á hverju
sumri, þar var líka gott berja-
land. Læknishjónin voru sam-
hent og á heimilinu ríkti menn-
ingarbragur, tillitssemi við menn
og málleysingja. Ferðalög og
gestakomur töluverðar í sam-
bandi við störf læknisins og
gegndi því unga húsmóðirin oft
störfum hjúkrunarkonunnar.
Lækninum var svo eiginlegt að
lofa öðrum að njóta með sér þess
er hann las í bókum, blöðum og
erlendum tímaritum. Margir
sóttu undirbúningsmenntun sína
til hans, áður en farið var til frek-
ara náms, og má þar til nefna
Ragnheiði Árnadóttur, ljósmóð-
ur, Tryggva Magnússon
listmálara, Sigurkarl Stefánsson
menntaskólakennara og marga
fleiri. í gamni var eitt sinn sagt að
nú væri allt Miðhúsafólkið á
skólabekk.
Árið 1920 lést Oddur læknir.
Bráðlega varð því unga ekkjan að
hætta búskap. Tvennt var það
sem hún varð að takast á við, að
Ijúka við að kaupa jörðina Mið-
hús og koma dætrum sínum til
mennta. Þetta höfðu þau hjónin
ákveðið áður en Oddur dó. Finn-
boga var fíngerð kona, en vilja-
sterk. Hún fluttist með dætrum
sínum þangað sem þær gátu notið
skólagöngu og hún vann fyrir
kostnaðinum. Þetta tókst, Guð-
rún lauk námi við Kvennaskól-
ann í Reykjavík og fór síðan að
vinna hjá Landsímanum.
Á þeim árum voru berklar sá
sjúkdómur er vakti ugg hjá fólki.
Guðrún smitaðist af þessum sjúk-
dómi og þurfti að dveljast á Víf-
ilsstöðum. Þar kynntist hún Ás-
berg Jóhannessyni kennara,
eiginmanni sínum.
Þeim ásamt fleiri berklasjúk-
Iingum tókst að lyfta grettistaki.
SÍBS var stofnað, vinnu og dval-
arheimilið að Reykjalundi var
reist af grunni.
Sjúkir voru styrktir til sjálfs-
bjargar. Þetta vakti verðskuld-
aða eftirtekt langt út fyrir land-
steinana.
Ásberg og Guðrún störfuðu og
bjuggu á Reykjalundi þar til Ás-
berg dó 1955.
Eftir það flutti Gunna til
Reykjavíkur, en hélt áfram að
vinna hjá SÍBS í Reykjavík.
Eitt af áhugamálum frænku
minnar voru ferðalög og fór hún
víða, bæði innan lands og utan.
Æskustöðvanna vitjaði hún eins
oft og kostur var og var hún okk-
ur frændfólki og vinum í sveitinni
hennar kærkominn gestur.
Gunna var mikil gæfukona.
Hún hlaut svo góða og trausta
skapgerð í vöggugjöf. Hún gekk
hægt um gleðinnar dyr, en var
samt hrókur alls fagnaðar, síung í
anda, kynslóðabil var ekki á dag-
skrá.
Hún var frændrækin og mikill
vinur vina sinna, ávallt viðbúin
að vera til aðstoðar þeim er þurfti
á stuðningi að halda. Guðrún
■
sóttist ekki eftir fánýtum hlutum,
metorðum eða völdum. Henni
þótti vænt um heimili sitt og um-
hverfið hennar var ætíð svo bjart
og aðlaðandi. Það sem er ekta er
líka svo einfalt.
Steingrímur Thorsteinsson
segir í einu ljóði:
Þér finnst allt best, sem fjærst er,
þér finnst allt verst sem næst er,
en þarflaust hygg ég þó
aö leita lengst í álfum,
vort lán býr í oss sjálfum,
í vorum reit, ef vit er nóg.
Á köldu vetrarkvöldi í fyrra
heimsótti ég frænku mína á
Bræðraborgarstígnum og þar
sem við sátum og höfðum það
notalegt þá tók ég eftir að á litlu
borði við hliðina á stólnum er ég
sat í, var stór bók í rauðu bandi.
Á fremsta blaðið var ritað með
fíngerðri rithönd nafnið Oddur
Jónsson. Þetta var Biblían henn-
ar Gunnu, arfur úr foreldrahús-
um. Aðspurð sagðist hún vera að
lesa bókina frá upphafi til enda.
Ég er þakklát fyrir að hafa átt
þessa frænku og notið samvista
við hana, bæði hér heima í
Reykhólasveitinni hennar og í
Vesturbænum.
Á Reykhólum og á Miðhúsum
eru tvær aldnar konur sem vildu
svo gjarnan vera viðstaddar
hinstu kveðju Guðrúnar, en það
eru þær mágkonurnar Steinunn
Hjálmarsdóttir og Ingibjörg
Árnadóttir.
Miðhúsafólkið minnist Guð-
rúnar með virðingu og þökk. Við
sendum Sigríði systur hennar og
öllum ættingjum innilegar sam-
úðarkveðjur.
Olína Kristín Jónsdóttir
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur í bæjarmálaráði verður í Skálanum, Strandgötu
41. laugardaginn 2. maí kl. 10.00.
Umræðuefni: Atvinnumál og verkamannabústaðir: Sig-
urður T. Sigurðsson og Þorbjörg Samúelsdóttir opna
umræðurnar. önnur mál. Stjórnin.
Alþýðubandalagið Reykjavík
Borgarmálaráðsfundur
Fundur í borgarmálaráði verður miðvikudaginn 29. apríl
kl. 17.00 að Hverfisgötu 105.
Dagskrá: 1) Daqvistunarmál - 1 .maí? 2) Endurskoðun
starfsmats. 3) Önnur mál. Stjórnin.
ABR
Vinningstölur í happdrættum
Vinningur í happdrætti ungra kjósenda kom á bækling
nr. 9009. Ferð til Rohdos fyrir 2. Hafið samband við
Flokksmiðstöð s: 17500.
Vinningur í skyndihappdrætti ABR í kosningamiðstöð á
kjördag kom á miða nr. 313. Vinningur Majorka ferð.
Hafið samband í síma 17500.
Þeir sem eiga enn eftir að gera skil í kosningahappd-
rættinu eru beðnir að hafa samband hið fyrsta við
Flokksmiðstöðina.
Alþýðubandalagið Reykjavík
Dansleikur í Risinu
ABR heldur dansleik fimmtudaginn 30. apríl kl. 22.00 í
Risinu, Hverfisgötu 105.
Sjálfboðaliðar í kosningastarfi eru boðnir á dansleikinn
og geta vitjað miðanna á skrifstofu ABR miðvikudaq oq
fimmtudag.
ABR
1. maí-kaffi
Alþýðubandalagið í Reykjavík hefur opið hús og kaffi-
veitingar eftir kröfugöngu og útifund 1. maí í Risinu,
Hverfisgötu 105.
Fólagar! Sem fyrr eru listilega bakaðar kökur ykkar vel
þegnar. Stjórn ABR.
C
itmviRMim
Landsvirkjun auglýsir til sölu tvo olíugeyma við
Elliðaár að rúmmáli 1892 m3 hvor.
Þvermál að innan 14,63 m
Hæð að innan 11,25 m
Plötuþykktir 4,7-6,6 mm
Eigin þungi Nálægt 40 tonnum
Smíðaár 1946
Kaupandi skal fjarlægja geymana á sinn kostnað
og skila tímaáætlun um verkið með tilboði sínu.
Nánari upplýsingar veitir innkaupastjóri Lands-
virkjunar.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar
fyrir kl. 14.00 5. maí 1987.