Þjóðviljinn - 30.05.1987, Page 2
FRETTIR
Helga Taylor þjónn:
Mér finnst borgin ágætlega hrein.
Hún er með þeim snyrtilegri í
heiminum sem ég hef séð. Fólk
mætti samt bera meiri virðingu
fyrir umhverfinu sínu og nota
ruslatunnurtil að losa sig við rusl,
en ekki henda því á götuna.
Þrúður Vilhjálmsdóttir
grunnskólanemi:
Mér finnst hún vera góð. Hún
mætti þó vera betri um kvöld og
nætur. Þá mætti fólk nota rusla-»
tunnurnar í meira mæli en gert er
og þær mættu vera fleiri víðs veg-
ar um borgina.
—SPURNINGIN—
Hvað sýnist þér um
umgengnina í borg-
inni?
Ragnar Erlendsson,
eftirlaunaþegi:
Mér finnst umgengnin í borginni
vera ágæt. Að vísu fer ég aðeins
út á daginn svo ég sé ekki óþrifin
sem eru á nóttinni. Að öðru leyti
tel ég borgina, unga fólkið og allt
til fyrirmyndar.
Lára Hjartardóttir
bankastarfsmaður:
Mér finnst borgin vera sæt. Og
hún er þokkalega hrein. Þó mætti
fólk nota ruslatunnumar meira en
það gerir.
Gústaf Ágústsson rafvirki:
Hún er góð. En hún er Ijót á nótt-
unni. Unglingarnir mættu að ó-
sekju ganga betur um á nóttunni
og nota ruslatunnurnar meira. Þá
vantar fleiri tunnur á staura til að
losa rusl í.
Suðureyri
Kúfiskskipið lofar góðu
Villi Magg ÍS 87 fyrsta sérsmíðaða kúfiskskip íslendinga.
Tilraunaveiðar lofagóðu. Arðsemisútreikningargefa tilefni til
bjartsýni. Unnið að lokafrágangi verksmiðjunnar. Nægur markaður
Við erum nú lítið byrjaðir á
sjálfum veiðunum en tilraun-
aveiðarnar gáfust mjög vel og
arðsemisútreikningar sem gerðir
hafa verið fyrir reksturinn lofa
góðu, þannig að framtíðin ieggst
vel í mig, segir Erling Auðunsson
skipstjóri á Suðureyri við Súg-
andafjörð.
Fyrsta sérsmíðaða kúfiskveiði-
skip ísiendinga liggur um þessar
mundir við Suðureyrarhöfn og
bíður þess að komast á veiðar. Er
verið að lagfæra ýmislegt í
skipinu og gera það klárt í
slaginn. Skipið, sem heitir Villi
Magg ÍS 87 var smíðað í Damen
Shipyard í Hollandi. Fimm
manna áhöfn verður um borð.
Skipið kostaði 52 miljónir.
Að sögn Erlings vinnur kú-
fiskplógurinn á því að 400 hes-
tafla dæla sprautar sjó niður í
botninn og rótar upp botn-
leirnum. Síðan er kúfískurinn
skafinn upp í kjölfarið. í fyrstu
tilraunaveiðiferðinni fengust 2
tonn af kúfíski á 10 mínútum rétt
úti fyrir mynni Súgandafjarðar.
Þessa dagana er verið að vinna
að lokauppsetningu verksmiðj-
unnar, en það er fyrirTraust h.f. í
Reykjavík sem sér um uppsetn-
ingu búnaðarins og hannar tækin
í verksmiðjuna. Þar munu vinna
10-12 manns og verður afkasta-
geta verksmiðjunnar um 50 tonn
á dag þegar hún verður komin á
fulla ferð.
Aðalmarkaðssvæðið fyrir kú-
fiskinn er í Bandaríkjunum þar
sem fæst gott verð fyrir hann. Þar
er hann aðallega notaður í súpur.
Fyrirspurnir um kúfiskinn hafa
borist frá Evrópu og hafa menn
þar sýnt áhuga á að fá hann fersk-
an í gámum. Talið er að nægur
markaður sé í Evrópu fyrir fersk -
an kúfisk og er að sögn þeirra
sem best þekkja til að jafnvel
megi fá þrefalt hærra verð fyrir
hann ferskan en fullunnin hér
heima.
grh
Sagt hefur þaft veriö um Suðurnesjamenn, að fast þeir veríð í mokfiskiríi allan daginn og kváðust beita með nýjum karfa, það gæfist
sóttu sjóinn og sækja hann enn, var eitt sinn ort og virðist ekki síður eiga við nú best. I Jngu mennimir sögðust heita Ólafur, Garðar, Elli, Þröstur og Árthúr. Texti
en þá. Þessir yngissveinar létu það ekki á sig fá þótt hann andaði köldu í RK/Mynd E.ÓI. >
norðanáttinni við Njarðvíkurhöfn á dögunum og voru stíft að. Þeir sögðust hafa
Sumardvalarheimili
Eldvömum víða ábótavant
Guðjón Bjarnason, framkvstj. Barnaverndarráðs íslands: Víða pott-
urbrotinn. Eldvarnirsumardvalarheimila barna ófullnœgjandi
Flestar þeirra sumarbúða og'
sumardvalarheimiia, sem sótt
hefur verið um starfsleyfi fyrir í
sumar, fullnægja engan veginn
reglugerðum um brunavarnir.
Barnaverndarráð íslands, sem er
umsagnaraðili, fyrir mennta-
málaráðuneytið, um veitingu
starfsleyfa til sumarbúða, telur
sig aðeins geta mælt með veitingu
starfsleyfís til eins umsækjanda af
þeim rúmlega 20, sem nú þegar
hafa sótt um.
„Mjög víða er pottur brotinn í
þessum efnum. Við fólum Bruna-
varnaeftirliti ríkisins að gera út-
tekt á eldvörnum þeirra heimila
sem sótt hafa um starfsleyfi í
sumar. Þær athuganir leiða ótví-
rætt í ljós að víða vantar verulega
mikið upp á að settum ákvæðum
um eldvarnir sé fullnægt," sagði
Guðjón Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Barnaverndarráðs
íslands.
í fyrra tók gildi ný reglugerð
um sumardvalarheimili og
sumarbúðir, sem kveður á um að
með öllum umsóknum verði að
fylgja vottorð frá slökkviliðs-
stjóra viðkomandi sveitarfélags
um að brunavarnirnar fullnægi
settum reglum. Þegar Barna-
verndarráð fór ofan í saumana á
umsóknum og meðfylgjandi vott-
orðum, kom í ljós að í sumum
tilvika höfðu slökkviliðsstjórar
gefið út vottorð, sem reyndust
ekki á rökum reist.
„Vitanlega er það mjög alvar-
legt, þegar embættismenn bregð-
ast svona skyldu sinni. Menn
verða að hafa það hugfast að það
hvflir mikil ábyrgð á þeim, sem
reka fjölmenn sumardvalarheim-
ili.
RK
Stangveiði
Víða mfcill
verðmunur
Verðkönnun Verðlagsstofnun-
ar á stangveiðivörum í verslunum
í Reykjavík og úti á landi sýnir að
töluverður verðmunur er á mörg-
um smáhlutum til stangveiði en
minni verðmunur er á dýrari
búnaði, eins og stöngum og hjól-
um.
Mestur er verðmunurinn á flot-
holtum, allt að 107%, og eins er
mikill verðmunur milli verslana á
einstaka spúnum, eða allt að 90%
munur. Að meðaltali er um 10 -
20% munur á hæsta og lægsta
verði á stöngum og hjólum á milli
verslana, en dæmi eru um allt að
40% verðmun á veiðihjólum.
->g-
2 SfÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. maí 1987