Þjóðviljinn - 30.05.1987, Side 3
"■ ÖRFRÉTTIR "■
Þórður Einarsson
sendiherra mun í haust taka viö
embætti sendiherra íslands í Sví-
þjóð. Þá hefur Sveinn Björnsson
sendifulltrúi í London verðið skip-
aður sendiherra í utanríkisþjón-
ustunni frá 1. október n.k. og mun
þá taka við starfi prótókollstjóra
ráðuneytisins og fastafulltrúa ís-
lands hjá Evrópuráðinu.
Fjöldi kvenna
í nefndum, ráðum og stjórnum á
vegum ríkisins hefur lítið aukist
samkvæmt nýrri könnun
Jafnréttisráðs. Árið 1985 voru
aðeins 11% kvenna í slíkum
ábyrgðarembættum sem er 1%
fleiri konur en árið 1983. í ná-
grannalöndunum er hlutfallið
mun hærra. 30% í Noregi og
23% í Svíþjóð.
Akstur fjórhjóla
utan vega brýtur í bága við gild-
andi náttúruverndarlög að mati
Landverndar sem hefur farið
þess á leit við dómsmálaráðu-
neytið að nýsettar reglur um
akstur fjórhjóla verði teknar til
endurskoðunar. Landvernd
bendir á að fjórhjólin eru nær ein-
göngu notuð sem leiktæki og
hljóta því sem slík að falla undir
ákvæði í náttúrverndarlögum um
óþarfan akstur utan vega.
Skólagarðar
Reykjavíkur
hefja starfsemi sína eftir helgina
en garðarnir verða reknir á 6
stöðum í borginni í sumar: í
Skerjafirði, við Asenda, í Laugar-
dal, við Stekkjarbakka og Jað-
arsel í Breiðholti og Ártúnsholti.
Innritun hefst á mánudag kl. 8 og
er þátttökugjald kr. 300.
Aðalfundur
Rauða krossins
hófst í nýju félagsheimili samtak-
anna Rauðarárstíg 18, áður Hót-
el Hof, í gærkvöldi. Fundarstörf-
um verður framhaldið í dag og þá
m.a. kynnt ný reglugerð um
sjúkraflutninga.
FRETTIR
Laxveiði
Mokveiði í sumar
Porkell Fjeldsted í Ferjukoti í Borgarfirði: Hefþað á tilfinningunni að góð veiði verði ísumar. Stór og
fallegur lax íHvítá. 12-20punda laxarþaðsem afer. Ásókn útlendinga að minnka.
Farnir austur íRússland að rennafyrir lax
„Laxveiðin hjá okkur í net í
Hvítá lofar góðu það sem af er.
Síðasta þriðjudag fengum við 40-
50 laxa úr netunum og hefur hann
verið þetta 12-20 pund sá stærsti.
Eins og er kostar kílóið af laxin-
um 480 krónur en það má búast
við því að verðið lækki strax í
næstu viku,” segir Porkell Fjeld-
sted í Ferjukoti í Borgarfirði.
Sagðist Þorkell hafa það á til-
finningunni að mokveiði yrði í
sumar af laxi. Það sem komið
væri á land væri stór og fallegur
fiskur. Þeir í Ferjukoti hafa alls
15 net í Hvítá og eru þeir með þau
í ánni frá þriðjudegi til föstu-
dagskvölds. Aðra daga er óheim-
ilt að stunda netaveiðina. Sagði
Þorkell þetta vera ágætisbúbót
fyrir þá og væri þetta fullt starf
fyrir tvo menn. Vitja þarf net-
anna kvölds og morgna. Eftir 20.
ágúst er öll netaveiði óheimil.
1. júní verður byrjað að veiða á
stöng í Norðurá og litlu seinna í
Þverá. Að sögn Þorkels hafa
veiðileyfin lítið hækkað frá því í
fyrrasumar. Yfirdrifið væri af
viðskiptavinum sem vildu renna
fyrir lax. Útlendingar væru búnir
að fá nóg af íslenskum veiðiám í
bili og væru þeir jafnvel famir að
renna fyrir lax austur í Rússlandi.
grh
Hafnarfjörður
markaður
vígður
Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði af-
hentu í gær Fiskmarkaðnum hf.
4000 ferm. sérhannað húsnæði
fyrir uppboðsmarkað á fiski við
Oseyrarbryggju. Fyrstu uppboð-
in munu hefjast á næstu dögum en
beðið er eftir sérstakri tölvu-
klukku þar sem öll boð í aflann
munu fara í gegn.
Aðeins 6 mánuðir eru síðan
fyrsta skóflustungan var tekin að
Fiskmarkaðshúsinu en hafnar-
stjórn Hafnarfjarðar samþykkti í
fyrrahaust að óska eftir heildar-
tilboðum í byggingu hússins. Að
sögn Hrafnkels Ásgeirssonar
stjórnarformanns Háagranda hf.
sem byggði húsið hafa fram-
kvæmdir gengið ótrúlega vel.
Kostnaður við byggingu Fisk-
markaðshússins er rúmar 50 milj-
ónir,' en Fiskveiðasjóður hefur
lánað 15 miljónir tií byggingar-
innar. Gerður hefur verið leigu-
samningur við Fiskmarkaðinn hf.
um afnot af húsinu til næstu
Frá vígslu Fiskmarkaðarins í Hafnarfirði í gær. Á
innfelldu myndinni afhendir Guðmundur Árni Stef-
ánsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar Haraldi Jónassyni
stjórnarformanni Fiskmarkaðarins lykla að húsinu
sem er stærsta hús sem byggt hefur verið í Firðinum.
Mynd: E.ÓI.
þriggja ára. Um 10 starfsmenn
munu vinna á markaðnum auk
•ondunargengis. Yfir 90 einstak-
lingar og fyrirtæki standa að
markaðnum. Framkvæmdastjóri
er Einar Sveinsson og verður
hann jafnframt uppboðshaldari.
-•g-
Lágmarkslaun
Launum ekki stjómað með tilskipunum
Rœtt við Björn Björnsson, hagfrœðing ASÍ, um greinargerðþeirra
Vilhjáms Egilssonar, hagfrœðings VSÍ, um lágmarkslaun, sem átti
þátt í að slíta viðrœðum um kvennaviðreisn
Vangaveltur þeirra Björns
Björnssonar, hagfræðings
ASÍ og Vilhjálms Egilssonar, hag-
fræðings VSI, um lágmarkslaun,
þar sem saga launaþróunar var
rakin allt aftur til Mesópótamíu
til forna og komist að þeirri
niðurstöðu að launahlutföll þar
hafi veríð svipuð og á íslandi nú-
tímans, mun hafa átt talsverðan
þátt í að slitnaði uppúr viðræðum
um kvennaviðreisn.
Ymsum þykja þetta óeðlileg
afskipti af stjórnarmyndunarvið-
ræðum en aðrir benda á að hér sé
um eðlilegt framhald á þjóðar-
sáttinni margumtöluðu að ræða,
enda segir orðrétt í lokaorðum
vangaveltnanna: „Hraði
breytinga verður ekki ákveðinn
með tilskipunum að ofan, þær
verða að gerast með víðtæku
samkomulagi, ekki aðeins f
samningum milli atvinnurekenda
og launafólks, heldur líka og ekki
síður í innbyrðis sátt meðal þess-
ara hópa. Á þetta var látið reyna í
síðustu samningum og með betri
árangri en nokkru sinni fyrr.“
Þjóðviljinn hafði samband við
Björn Björnsson og sagði hann
að þessi greinargerð hefði verið
unnin að frumkvæði Þorsteins
Pálssonar.
-í inngangi að vangaveltunum
takið þið fram að þið séuð ekki að
túlka sjónarmið ASÍ og VSÍ. Ótt-
ist þið ekki vegna ykkar stöðu hjá
þessum samtökum, að þetta
verði túlkað sem sjónarmið þess-
ara sambanda?
„Það má vel vera að einhverj-
um detti það í hug. Hinsvegar
liggur það í augum uppi að þetta
er á okkar ábyrgð og þetta er ekk-
ert borið undir neina aðila hjá
ASÍ, þannig að Alþýðusamband-
ið hefur ekki haft nein afskipti af
þessu.“
-Þér finnst ekkert óeðlilegt við
að þið komið inní stjórnarmynd-
unarviðræður með þessum hætti?
„Við komum ekkert inn í þess-
ar viðræður. Við tókum saman
greinargerð fyrir Þorstein Páls-
son. Það er hans mál hvað hann
gerir við hana.“
-í þriðja lið greinargerðarinn-
ar segir: Ekkert fer á milli mála
að nú ríkir mikil og almenn
þensla á flestum sviðum og að
vinnumarkaðurinn ber ýmis
merki uppboðsmarkaðar, sem
lítt stjórnast af öðru en lögmálum
framboðs og eftirspurnar. Af-
markaðar greinar og landsvæði
fara á undan með launaskriði,
sem fyrr en síðar segir til sín í
öðrum greinum. Er ekki með
þessu verið að dæma samtök
einsog ASÍ úr leik?
„Nei.“
-Ef framboð og eftirspurn
ræður algjörlega launum, hvert
er þá hlutverk ASÍ?
„Það sem við erum að segja
þarna er að það að ætla að stjórna
þessum hluta vinnumarkaðarins
með tilskipunum, gengur ekki.
Annarsstaðar leggjum við
áherslu á það, að til þess að hafa
áhrif á breytingar á launahlutföll-
um þá verði að ná um það víð-
tækri samstöðu. Það þarf einnig
vettvang til þess að skapa þá sam-
stöðu og það er það sem að
verkalýðshreyfingin snýst um.
Hennar höfuðhiutverk á að vera
og er það að verja rétt þeirra sem
að minnst bera úr býtum og þar af
leiðir, að hennar meginhlutverk
hlýtur að vera að skapa þá sam-
stöðu sem þarf til þess að rétta
þeirra hlut.“
-Jafnframt skrifarðu upp á að
sá launamismunur sem ríkir í
landinu og er sá sami og var í
Mesópótamíu á sínum tíma, að
hann sé eðliiegur.
„Nei. Þar ert þú að rangtúlka
plaggið í heild sinni. Það sem að
er verið að segja og þessi saga,
sem er annars til að krydda ann-
ars þurran pappír, hún er til þess
að undirstrika það og vekja at-
hygli á því, að það er ekki einfalt
mál að bylta launahlutföllum."
-Samkvæmt því, þá hefur okk-
ur ekkert miðað á leið.
„Það er ekki hægt að draga þá
ályktun. Þetta hefur líka verið
misjafnt hjá okkur. Kannski hef-
ur okkur á síðustu árum miðað í
öfuga átt. Launahlutföll hafa
breyst á síðustu árum með þeim
hætti, fram að síðustu samning-
um, að þeir sem að meira báru úr
býtum þeir uppskáru enn meira,
og hinir sem minnst höfðu þeir
sátu eftir. Þetta var verið að
reyna að lagfæra í síðustu kjara-
samningum."
-Samkvæmt þessu og greinar-
gerð ykkar Vilhjálms, virðist
kjarabaráttan ganga út á það að
launafólk bítist um ákveðna
köku, hvernig eigi að deila henni
niður sín á milli. Er ekki hlutverk
verkalýðsfélaganna að ná meiru í
hlut launafólks frá atvinnurek-
endum? Að breyta því hlutfalli
fyrst og fremst?
„Jú. Það er hinsvegar annar
handleggur. Ef menn hinsvegar
ætla að rétta fyrst og fremst hlut
þeirra sem að eru lægst launaðir
þá eru menn að segja það að þeir
sem eru lægst launaðir eigi að fá
meiri launahækkanir en aðrir.
Það liggur í hlutarins eðli. Þá eru
menn að samþykkja það að
breyta launahlutföllunum. Þess-
vegna dugar ekki að byrja á því
að rétta þeirra hlut fyrst og að
síðan fylgi aðrir hópar á eftir og
segist nú vilja fá sömu hlutföll og
áður. Þá standa menn í stað ef
ekki tekst að auka hlut launa-
tekna í þjóðartekjum.“
-Hvernig hefur þá þróunin
verið undanfarin ár í sambandi
við hlutfall launatekna af þjóð-
artekjum?
„Það verður væntanlega svipað
í ár og það hefur hæst verið áður.
Hlutfallið hefur hækkað undan-
farin ár.“
-Sáf
Laugardagur 30. maí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3