Þjóðviljinn - 30.05.1987, Page 8

Þjóðviljinn - 30.05.1987, Page 8
MENNING Ný plata Ekki hulduher heldur Huldumenn Hljómsveitin Gildran gefur út sína fyrstu plötu Huldumenn. Létt og ferskt rokk. Komin er út platan Huldu- menn með hljómsveitinni Gildrunni, en hana skipa Birg- ir Haraldsson. söngur og gít- ar, Þórhallur Arnason, bassi og Karl Tómasson, trommur, bakraddirog munnharpa. Hljómsveitin Gildran hét áður Pass, og hafa þeirfélagar starfað saman í átta ár. Á Huldumönnum eru níu lög, öll frumsamin af Gildrumönnum og með íslenskum textum eftir Þóri Kristinsson. „Við ætlum ekkert að taka ís- lenska poppheiminn með trompi, heldur reyna að vera svolítið mjúkhentir við hann,“ sögðu þeir Gildrumenn aðspurðir um hina nýju plötu sína. „Þetta er mjög ferskt rokk á Huldumönnum sem við erum sannfærðir um að verð- ur geysivinsælt, enda er orðin mikil breyting á tónlistinni síðan við spiluðum í Pass. Þá vorum við í þungarokkinu en erum núna orðnir ferlega léttir og skemmti- legir en samt rokkaðir ennþá.“ I haust er væntanleg í London tveggja laga plata með Gildrunni sem þar í landi heitir The Trap, og heitir sú plata Good Balance og er gefin út af Prism Records. „Sú plata er svona létt poppuð,“ segja þeir Gildrumenn. „Utgáfa þeirrar plötu kom þannig til að við fórum til Bretlands til að taka upp efni og kynntumst þá bresk- um producer, Mark Estdale, og hann vildi gefa út plötu með okk- ur og hún átti að koma út á síðasta ári, en frestast fram á næsta haust svo að við drifum þá í að gefa út Huldumennina núna. Við erum í því að kynna plötuna þessa dag- ana en stefnum á sumarspilið. Það er nýtt og vaxandi fyrirtæki, Groddi h.f. sem gefur Huldu- menn út. Hún er tekin upp í Stu- dio Stemmu og Grammið sér um dreifingu.“ _ing A rkn, Skerpluhátíð Páll Eyjólfsson gítarleikari spilar á þriðju tónleikum Skerpluhátíðar í Áskirkju á sunnudagskvöld. Skerpluhátíð Gítartónleikar í Áskirkju Þriðju tónleikar á Skerpluhá- tíð í Musica Nova verða í Áskirkju á sunnudagskvöld og mun Páll Eyjólfsson gítar- leikari frumflytja þar þrjú stutt verk eftir Eyþór Þorláksson og nýtt verk eftir John Speight sem nefnist Bergmál Orfeus- ar. Einnig flytur Páll Dans eftir Misti Þorkelsdóttur sem hún skrifaði 1985 sérstakiega fyrir hann, svo og verk eftir Poulenc, Obrovska og Fjórar bagatellur eftir John Speight. Páll Eyjólfsson útskrifaðist frá Gítarskóla Eyþórs Þorlákssonar árið 1982, en framhaldsnám stundaði hann um þriggja ára skeið hjá Jose Luis Gonzales á Spáni. Fjórðu tónleikum Skerpluhá- tíðar sem verða 2. júní verður frestað til haustsins vegna veikinda, en síðustu tónleikar hátíðarinnar verða á Hótel Borg þann 3. júní og spilar þar hljóm- sveitin Súld. _j„g Það hefur ekki farið allt of mikið fyrir Musica Nova í seinni tíð. Satt að segja var maður far- inn að halda að það væri dáið. Sem betur fer reyndist það ekki rétt og nú gengur félagið tvíeflt fram á vígvöllinn og boðar fimm tónleika í runu: Musica Nova á Skerplu. Fyrstu tónleikarnir voru í Bú- staðakirkju s.l. miðvikudag. Þar voru að vísu ekki frumflutt nein meistaraverk, en þar var um að ræða endurflutning á nokkrum tiltölulega sjaldheyrðum íslensk- um verkum: Klifi sem Atli Heimir samdi fyrir flautu, klarin- ett og sello 1967, Bagatellu fyrir Klarinett solo frá því í fyrra eftir Atla Ingólfsson, Lagaflokknum „Sumir dagar” frá 1982 eftir Karólínu Einksdóttur (við ljóð Þorsteins frá Hamri), Tríói (1975) fyrir flautu, selló og píanó eftir undirritaðan og Sex söngv- um við ljóð úr Svartálfadansi Stefáns Harðar sem Hjálmar H. Ragnarsson samdi 1978-79. Tvö verkanna, Bagatello Atla Ingólfs og Tríó L.Þ. höfðu ekki heyrst áður á opinberum tónleikum hér á landi. Það var „Nýi Músíkhópurinn", þ.e. Kolbeinn Bjarnason flautu- leikari, Guðni Franzson klarin- ettuleikari, Arnþór Jónsson sellóleikari og Anna Guðný Guð- mundsdóttir ásamt söngvurunum Signýju Sæmundsdóttur og Kristni Sigmundssyni, sem sá um þennan flutning og gerði það vel og vandlega. Klif Atla Heimis hljómaði glæsilega margslungið í upphafi og Guðni lék Bagatellu hins Atlans af mikilli rausn. Söngur Signýjar í Sumum dögum var þá ekkert slor, þar er kominn rödd sem getur gætt nútímaverk lífi og sál. Og mikið var ég þakklátur fyrir Smátríóið mitt sem var leikið af næmni og undraverðum skiln- ingi. Lokaverkið, Sex söngvar eftir Hjálmar og Stefán Hörð var stærst í sniðum og hvað undirrit- aðan snertir stórum skemmti- legar sungið af karlmanni, þó það sé víst upphaflega samið fyrir mezzo og hafi aldrei heyrst öðru vísi fyrr. Kristinn lék sér að þess- um lögum á sínu stóra og breiða tilfinningasviði og lagði hjartans meiningu í hvern tón. Mikið vildi ég gefa fyrir hann í Wozzeck. Yndislegt. LÞ Pappírsfuglar Skerpludagar Musica Nova héldu áfram á fimmtudaginn og þá í Norræna húsinu. Þarna voru líka flutt eingöngu íslensk tón- verk, þar af tvö frumflutt, Rapsó- día fyrir píanó og Tríó fyrir fiðlu, selló og píanó eftir Karólínu Eiríksdóttur. Guðríður St. Sigurðardóttir lék Rapsódíuna af miklum Grafíklist Alþjóðleg ráðstefna og sýning Alþjóðleg grafíksýning um 100 grafíklista- manna opnuð á Kjarvalsstöðum um hvíta- sunnuna og í tengslum við hana verður haldin alþjóðleg ráðstefna um grafíklist um sömu helgi Dagana 6. og 7. júlí verður grafík sem að ráðstefnunni haldin á Kjarvalsstöðum al- stendur en hún er haldin í þjóðleg ráðstefna um grafík- tengslum við alþjóðlega sýn- list. Er það félagið Islensk ingu á grafíklist, Graphica Atl- antica, sem opnuð verður á Kjarvalsstöðum um sömu helgi. Munu þá um eitthundr- að listamenn bæði íslenskir og erlendir sýna grafíkmyndir og meðal þeirra margir af þekktustu grafíklistamönnum heims. Ráðstefnan á Kjarvalsstöðum er sú fyrsta sinnar tegundar sem haldin er hérlendis og munu um 70 manns koma hingað til lands í tengslum við hana. Efni ráðstefn- unnar er í meginatriðum umfjöll- un um hvað er að gerast í grafík- list beggja vegna Atlantshafsins og koma margir fyrirlesarar frá ýmsum löndum og halda fyrir- lesta og sýna litskyggnur. Ráðstefnan er öllum opin sem áhuga hafa og fer að mestu leyti fram á ensku. Ekkert gjald verð- ur tekið af ráðstefnugestum. - ing kröftum og kunnáttu og er eng- um blöðum um það að fletta að þar er kominn píanisti sem lætur sér fátt fyrir brjósti brenna. Held- ur fannst mér samt verkið laust í reipunum og átti ég erfitt með að halda athyglinni glaðvakandi með því. En það væri gaman og gott að heyra það aftur. Og einn- ig Tríóið sem verkaði einkenni- lega tilfinningalega hamið, rétt eins og söngur hjartans fengi ekki borist fram. Ég held þó að hann sé þarna einhvers staðar og kann- ski eiga Guðný, Gunnar og Hall- dór eftir að finna hann við leit. Blásarakvintett Reykjavíkur lék á milli verka Karólínu tvö gamalkunnug „divertimenti”, Burtflogna pappírsfugla eftir Gunnar Reyni Sveinsson og Kvintett frá í fyrra eftir Herbert H. Ágústsson. Þessi verk eru bæði í léttum og aðgengilegum dúr og býsna vel samin fyrir grúppuna. Og þau voru svo vel og skemmtilega leikin, að andinn flaug eins og pappírsfugl í sjö- unda himin. LÞ 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.