Þjóðviljinn - 30.05.1987, Side 9
UM HELGINA
MYNDLISTIN
Nlkulás Slgfússon opnarsýn-
ingu á vatnslita- og akrylmyndum
í Nýja Galleríinu á Laugavegi 12,
2. hæö. Á sýningunni eru 30
myndir málaðar á þessu og síð-
astliðnu ári. Opið um helgar kl.
14-22og virkadagakl. 15-22.
í Listasafni ASÍ stenuryfir nor-
ræn heimilisiðnaðarsýning sem
heitir Vöruþróun í heimilisiðnaði -
frá hugmynd til fullmótaðs hlutar.
Á sýningunni eru mjög fjölbreytt
verk unnin í efni allt frá textíl yfir í
málm- og beinsmíði. Opið virka
dagakl. 14-20ogum helgarkl.
14-22. Síðasta sýningarhelgi.
Guðrún Svava Svavarsdóttir
sýnir í FÍM salnum. Opið alla
dagakl. 14 -19 til 8. júní.
Collage-sýning Önnu Fugaro í
Menningarstofnun Bandaríkj-
anna á Nesvegi hefur verið fram-
lengd fram yfir þessa helgi. Opið
kl. 14-22.
Pólski myndlistarmaðurinn Jac-
ek Sroka sýnir í Gallerí Hallgerði
og stendur sýningin til 10. júní.
Myndir Sroka bera með sér ótví-
ræðan boðskap og magnað
táknmál.
Edda Jónsdóttir sýnir í Gallerí
Borg, nýja sýningarsalnum í
Austurstræti. Á sýningunni eru
rúmlega 20 vatnslitaþrykk og æt-
ingar unnar seinni hluta ársins
1986 og á þessu ári. Sýningin er
opin um helgar kl. 14 -18 og virka
daga kl. 10 -18 til 3. júní.
Yfirlitssýning á verkum Vignis
Jóhannssonar stendur nú yfir í
Gallerí Borg, Pósthússtræti. Á
sýningunni eru olíumyndirog krít-
arteikningar unnar á þessu ári og
í Nýju-Mexico þar sem Vignir er
nú búsettur. Síðasta sýningar-
helgi.
Elfar Guðni Þórðarson opnar
sýningu í Listasafni Árnessýslu á
Selfossi í dag kl. 14. Á sýningunni
verða 40 olíumálverk. Petta er 15.
einkasýning Elfars en áður hefur
hann sýnt á Stokkseyri, Selfossi,
Hveragerði, Reykjavíkog Kefla-
vík. Opið virka daga kl. 20 - 22 og
um helgarkl.14-22.
Norski myndlistamaðurinn Yng-
ve Zakarias sýnir málverk og
grafík í Norræna húsinu. Hann er
fæddur í Þrándheimi 1957 og hef-
ur haldið sýningar víða í Evrópu.
Sýningin eropin kl. 14 -19 til 14.
júní.
Gunnsteinn Gíslason sýnir
veggmyndir á Kjarvalsstöðum.
Veggmyndirnar eru múrristur.
Síðasta sýningarhelgi.
í Ásmundarsaf ni stendur nú
yfir sýningin Abstraktlist Ásmund-
ar Sveinssonar. Á sýningunni eru
26 höggmyndir og 10 vatnslita-
myndirog teikningar. Spannar
sýningin 30 ára tímabil af ferli Ás-
mundar. Einnig er til sýnis video-
mynd sem fjallar um KONUNA í
LIST ÁSMUNDAR SVEINS-
SONAR.Opiðalladagakl. 10-
16.
Kristján Davíðsson sýnir í FÍM-
salnum í Garðastræti 6. Þetta er
fyrsta sýning Kristjáns í 20 ár.
Snædís Þorleifsdóttir sýnir þurr-
pastel og olíupastelmyndir í
veitingahúsinu Krákunni við
Laugaveg til 8. júní.
Halldóra Gísladóttirsýnir grafík
í Héraðsbókasafni Kjósarsýslu í
Mosfellssveit. Opið virka daga kl.
13-20. Síðasta sýningarhelgi
Ingibjörg Styrgerður Haralds-
dóttir sýnir í austurforsal Kjar-
valsstaða 10 vefnaðarverk sem
unnin eru á sl. 2 árum. Uppistaö-
an í verkunum er bómull en ívafið
íslensk ull sem lituð er með kem-
ískum litum. Síðastasýningar-
helgi.
Þorlákur Kristinsson - Tolli sýnir
í AKOGES í Vestmannaeyjum. á
sýningunni eru 30 olíumálverk
máluð á síðustu 3 árum. Opið alla
daga kl. 14 - 22. Síðasta sýning-
arhelgi.
Listasafn Einars Jónssonarer
opið alla daga nema mánudaga
kl. 13 -16. Höggmyndagarðurinn
er opinn alla daga kl. 11 -17.
Þjóðminjasafn íslandseropið
laugardaga, sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 13.30 -
16.
Árbæjarsaf n opnar á sunnu-
dag kl. 10 og verður opið alla
daga kl. 10 -18 nema mánudaga.
Á sunnudag verður jafnframt opn-
uð sýning á gömlum slökkvibílum
og stendur hún út sumarið.
TÓNLIST
Þriðju tónleikar Skerpluhátíðar
Musica Nova verða í Áskirkju
sunnudag kl 20.30. Páll Eyjólfs-
son gítarleikari frumflytur verk
eftir Eyþór Þorláksson og John
Speight. Önnur verk á efnisskrá
hans er eftir Poulenc, Obrovska
og John Speight. Síðustu tón-
leikar á Skerpluhátíð verða á Hót-
el Borg 3. júní en þá mun hljóm-
sveitin Súld leika „Advanced
jass“.
St. Louis Kings of Rythm, hin
gamla hljómsveit Ike Turner, spil-
ar á tónleikum Jassvakningar í
Broadway á sunnudag kl. 21 og á
Akureyri á mánudag. Hljóm-
sveitin var á sínum tíma í upphafi
sjötta áratugarins ein heitasta ryt-
hmablússveit Bandaríkjanna.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið sýnirgaman-
leikinn Hallæristenóreftir Ken
Ludwig íallrasíðastasinn íkvöld
kl.20. Öperugrín í leikstjórn Bene-
dikts Árnasonar og með aðalhlut-
verk fara Örn Árnason og Aðal-
steinn Bergdal. Yermaeftir Fe-
derico Garcia Lorca verður sýnd
ásunnudagskvöld kl.20. í aðal-
hlutverkierTinna
Gunnlaugsdóttir en leikstjóri er
Þórhildur Þorleifsdóttir. Yerma
hefur verið kallað harmljóð og er
eitt af frægustu verkum höfundar-
ins.
Leikfélag Reykjavíkursýnir
Dag vonar eftir Birgi Sigurðsson á
sunnudag kl. 20 í Iðnó en aðeins
þrjár sýningar eru eftir á verkinu á
þessu leikári. Djöflaeyjan verður
einnig sýnd á sunnudag kl. 20 í
leikskemmu LR við Meistaravelli.
Aðeins ein sýning er eftir á Óá-
nægjukórnum áföstudag 5. júní.
Maria Lexa sýnir „Ódysseifur
myndskreyttur" í Kramhúsinu
laugardag og sunnudag kl. María
Lexa leikur ein allar persónur
verksins og notar brúður, grímur,
látbragð, rödd og tjöld. Segirfrá
för Ódysseifs frá T róju til iþöku
þar sem Penelópa kona hans sit-
ur og bíður eftir honum í heilan
áratug.
I dag verður frumsýndur söng-
leikurinn Friðarpípufaktorían í
Tónabæ. Erþað hópurinn Happý
og harmónýhópurinn sem stend-
ur að söngleiknum en leikstjóri er
Hjálmar Hjálmarsson. Söng-
leikurinn byggir á ævintýri um fé-
lagana Crazy Horse og Zorro og
baráttu þeirra við Hörð Böll Spill-
ikött. Aðeins tvær sýningar verða
á söngleiknum, laugardag kl.
17.03 og mánudag kl 21.02.
HITT OG ÞETTA
Prófessor Kurt Schier frá
Munchen í Þýskalandi flytur fyrir-
lestur á vegum Minningarsjóðs
Ásu Guðmundsdóttur Wright í
Odda á mánudag kl. 17.15. Nefn-
ist fyrirlesturinnTextar, myndir,
fornminjar. Hugleiðingarum
mikilvægi mynda og fornleifa sem
heimilda í fornnorrænum bók-
menntum. Fjallar hann um mynd-
ir tengdar Eddukvæðum sem
varðveittar eru erlendis á mynd-
steinum og rúnasteinum og sýnir
litskyggnur. Kurt Schier er pró-
fessor í norrænum fræðum og
germanskri menningarsögu og
flytur hann fyrirlestur sinn á ís-
lensku.
Aðalf undur [þróttafélags fatl-
aðra í Reykjavík og nágrenni
verður haldinn í dag kl. 14 í Hátúni
12, l.hæð.
Vikuleg laugardagsganga Frí-
stundahópsins Hana nú í Kópa-
vogi verður í dag. Lagt af stað frá
Digranesvegi 12 kl. 10. Markmið
göngunnar er: Samvera, súrefni,
hreyfing.
Laugardagur 30. maí 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Flóamarkaður uppeldis- og
meðferðarheimilisins að Sól-
heimum 7 verður á sunnudag kl.
15 -19 í safnaðarheimili Lang-
holtskirkju. Einnig verðurtomból-
uborð og uppboð á gömlum mun-
um.
Aðalfundur Þjóðfræðafélags-
ins verður haldinn á dag í stofu
201 í Odda kl. 17. Frosti Jóhann-
esson flyutur erindi um nýjan
bókaflokk, (slensk þjóðmenning -
markmið og uppbygging.
Hátíðafundur Bandalags
kvenna í Reykjavík í tilefni 70 ára
afmælis bandalagsins verður
haldinn í Gamla bíói á dag kl. 14.
Að hátíðafundinum loknum verð-
uropnuð sögusýning aðildarfé-
laga bandalagsins að Hallveigar-
stöðum.
CI/OI AX/FITA
jlxLJLAV lLIm
LEIÐIN
Afl
FARVFI11
8 t wM mttMMMMiflr Mnmmrmmí Bmmmmw Bhmmmi 8
m m
SKOIAGONGU
Þeirsem eru í námi þekkja fjárskort býsna
vel, sumartekjurnar hrökkva skammt og biðin
eftir námslánum getur orðið löng.
Með Skólaveltu er Samvinnubankinn fyrstur
banka með ágæta lausn á þessum vanda.
Þú þarft einfaldlega að gera við okkur samn-
ing um reglulegan sparnað á Skólabók í tiltek-
inn tíma, þannig ávinnur þú þér lánsréttindi
eftir ákveðnum reglum.
Lánstíminn er mjög sveigjanlegur og þú átt
lánsréttindin í allt að níu mánuði frá lokun
sparnaðar, þótt þú hafir tekið út innstæðuna.
Þér er einnig heimilt að safna saman láns-
réttindunum í allt að þrjú sparnaðartímabil og
ávinna þér þannig aukin réttindi.
Það borgar sig að vera forsjáll, ávaxta sumar-
launin og tryggja afkomuna næsta vetur.
Hringdu eða líttu inn til okkar og kynntu
þér kosti Skólaveltunnar nánar.
wmi
í ~«: M
Wmmi
SKOLA
BÓK
$
ÉÉl
Skólabók
styrkir þig í námi
SAMVINNUBANKINN
í JL‘, -r .J&j, ’ ''Il'v- ’.l ,L 4
&