Þjóðviljinn - 30.05.1987, Síða 12
ERLENPAR FRETTIR
Sri Lanka
Hvað veldur blóðbaðinu?
Tamílar hafa áratugum saman staðið í baráttu gegn mismunun í atvinnumálum,
menntunarmálum og skiptingu lands
Miklar blóðsútheliingar á Sri
Lanka að undanförnu hafa
vakið athygli umheimsins á
eyjunni, en hún er undan suður-
strönd Indiands.
17. apríl voru 127 manns
drepnir í þorpinu Alut Oya sem
er um 300 kílómetra undan höf-
uðborginni Colombo. Byssu-
menn stöðvuðu almennings-
vagna og vörubíla, neyddu far-
þegana sem voru af sinhaleskum
uppruna út úr bílunum og brytj-
uðu þá niður.
Tæpri viku síðar sprakk öflug
sprengja í strætisvagnamiðstöð-
inni í Colombo og tætti hana í
sundur. Fórnailömbin urðu að
minnsta kosti 106 í það skiptið,
en auk þess varð fjöldi fólks að
gista sjúkrahús, margir alvarlega
særðir.
Ríkisstjórn Júníusar Jayewar-
dene skellti skuldinni þegar á
hinn tamílska minnihluta íbúa
landsins. Útgöngubann var sett
á, og var það í gildi í fimm daga.
Helstu baráttusamtök Tamfla,
1 lúsnæöisstofnun ríkisins
Tæknideild
Laugavegi 77. R. Sími 28500
Útboó
Ólafsvík
Stjórn verkamannabústaða, Ólafsvík, óskar eftir
tilboðum í byggingu fjögurra íbúða, í tveggja
hæðasambýlishúsi, byggðu úrsteinsteypu. Verk
nr. Z.04.01 úr teikningasafni tæknideildar Hús-
næðisstofnunar ríkisins.
Brúttóflatarmál húss 195 nT
Brúttórúmmál húss 1249 m3
Húsið verður byggt við götuna Vallholt, Ólafsvík,
og skal skila fullfrágengnu, sbr. útboðsgögn.
Afhending útboðsgagna er á bæjarskrifstofum
Ólafsvíkur, Ólafsbraut 34, Ólafsvík og hjá tækni-
deild Húsnæðisstofnunar ríkisins, frá föstudegin-
um 5. júní 1987 gegn kr. 5.000.- skilatryggingu.
Tilboðum skal skilað á sömu staði eigi síðar en
þriðjudaginn 23. júní n.k. kl. 11.00 og verða þau
opnuð að viðstöddum bjóðendum.
f.h. stjórnar verkamannabústaða
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins
VIIMIMUEFTIRLIT RÍKISIIMS
Bíldshöfða 16, 112 Reykjavík. Siml 672500.
Tllkynning til atvinnurekenda
um vinnu barna og ungmenna
Um þessar mundir kemur margt ungt fólk til starfa sem það hefur litla eða
enga reynslu af. Undanfarin ár hafa alvarleg vinnuslys verið mun tíðari hjá
ungu fólki en þeim sem eldri eru. Vegna þessa vekur Vinnueftirlit ríkisins
athygli atvinnurekenda á eftirtöldum ákvæðum laga nr. 46/1980 um að-
búnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum:
• Atvinnurekandi skal gera starfsmönnum sínum Ijósa slysa- og sjúk-
dómshættu sem kann að vera bundin við starf þeirra. Atvinnurekandi
skal þar að auki sjá um að starfsmenn fái nauðsynlega kennslu og
þjálfun í að framkvæma störf sín á þann hátt að ekki stafi hætta af. (14.
gr)
• Börn má ekki ráða nema til léttra, hættulítilla starfa, (59. og 60. gr. Barn
merkir í lögunum einstakling innan 14 ára aldurs).
Störf, sem ekki má ráða börn til, eru t.d. uppskipun, vinna við hættulegar
kringumstæður eða vélar sem valdið geta slysi, meðferð hættulegra
efna eða þau störf sem hafa í för með sér slíkt andlegt og/eða líkamlegt
álag að hamlað geti vexti þeirra og þroska, sbr. ennfremur lög nr.
53/1966 um vernd barna og ungmenna.
• Unglingar, 14 og 15 ára, mega ekki vinna lengur en 10 klst. á dag og
skal vinnutíminn vera samfelldur. Þeir, sem eru 16 og 17 ára skulu hafa
minnst 12 tíma hvíld á sólarhring og skal hvíldartíminn að jafnaði vera á
tímabilinu milli kl. 19 og 7.
Öryggistrúnaðarmenn starfsmanna eða félagslegir trúnaðarmenn skulu
fylgjast með því að farið sé að ofangreindum ákvæðum.
Reykjavík, 26.maf 1987
Geymið auglýsinguna og festið upp á vinnustöðum
Sprengjuárás í Colombo: Borgar-
styrjöld hefur geisað á Sri Lanka frá
árinu 1983.
Frelsistígrarnir og Eelam-
byltingarhreyfingin, sóru af sér
alla ábyrgð á manndrápunum.
Talsmaður Frelsistígranna í Ma-
dras á Indlandi sagði að ásakanir
stjórnarinnar væru „tilhæfu-
lausar og hefðu það a markmiði
að sverta ímynd Tamíla."
Forsagan
Af nógu er að taka þegar of-
beldisdæmin frá Sri Lanka að
undanförnu eru annars vegar.
Ríkisstjórnin í Colombo hefur nú
hafíð sókn gegn Tamflum, og hef-
ur Jayewardene, forseti landsins,
lýst því yfir að átökunum muni
ekki Ijúka fyrr en annaðhvort
stjórnarherinn eða Frelsistígrar
vinni fullnaðarsigur.
Hina blóðugu atburði upp á
síðkastið verður að skoða í ljósi
þess að tamflski minnihlutinn
hefur áratugum saman staðið í
baráttu til að binda endi á mis-
rétti og mismunun sem hann býr
við í atvinnumálum, menntun,
skiptingu lands og fleiri málum.
Ibúarnir eru um 16 milljónir
talsins, og var Sri Lanka bresk
nýlenda til ársins 1948 og nefndist
þá Ceylon. 75% íbúanna eru Sin-
halesar og aðhyllist meirihluti
þeirra búddatrú. Tamflar eru um
18% þjóðarinnar og eru þeir
flestir fylgismenn hindúasiðar í
trúmálum. Að auki eru 7% þjóð-
arinnar mælandi á tungu Tamfla,
en þeir eru múhameðstrúar, enda
afkomendur arabískra kaup-
manna frá fyrri öldum.
Tamflarnir skiptast í innfædda
- en meira en þúsund ár eru nú
síðan þeir fluttust til eyjarinnar -
og indverska mál Tamfla. Þeir
síðasttöldu voru fluttir til lands-
ins á nýlendutímunum til að
vinna við teræktina. Innfædda
Tamfla er helst að finna á Jaffna-
skaga, austurhéruðunum og í
höfuðborginni Colombo. Þeir
eru um 12% þjóðarinnar.
Frá því að landið hlaut sjálf-
stæði hafa innfæddir Tamflar að-
hyllst sjálfsstjórn í norðurhluta
landsins. Seint á síðasta áratug
öðlaðist krafan um „Eelam,“
sjálfstætt ríki, aukinn hljóm-
grunn meðal þeirra, sérstaklega
hinna yngri.
Tamílar þeir sem eru af ind-
verskum uppruna hafa á hinn
bóginn krafist fullra þegnréttinda
Sri Lanka. Á dökkum svæðum búa
nánast eingöngu Tamalíren á Ijósum
einvörðungu Sinhalesar. Á skrástrik-
uðu svæðum austurstrandarinnar
búa Tamílar og Singhalesar en á
skástrikaða blettinum um miðbik
landsins búa Tamílar af indversku
bergi brotnir. Nyrst er Jaffnaskagi.
innan Sri Lanka eins og það er í
dag. Frá því skömmu eftir sjálf-
stæði eyjarinnar hafa þeir verið
afskiptir hvað varðar borgaraleg
réttindi. Krafan um „Eelam“
höfðar til fæstra þeirra.
Þjóðernisrembingur
Ástæður borgarastyrjaldarinn-
ar sem nú geisar í landinu má
rekja til tímabilsins eftir 1948,
eftir að sjálfstæðisbaráttunni var
lokið. Sinhalesar og Tamflar
börðust í sameiningu gegn ný-
lenduyfirráðum Breta, og var ein
meginkrafan í þeirri baráttu að
enska yrði lögð af sem tungumál
landsins, en þess í stað kæmu sín-
halíska og tamflska.
Fljótlega eftir að sigur var unn-
inn í sjálfstæðisbaráttunni tókst
helsta flokki kapítalista, Samein-
aða þjóðarflokknum sem nú er
við völd, að fá samþykkt þrjú lag-
afrumvörp á þinginu sem öll mið-
uðu að því að skerða réttindi Ta-
mfla. Samkvæmt þeim voru Ta-
mflar af indverskum uppruna
sviptir atkvæðisrétti sínum sem
þeir höfðu haft undir stjórn
Breta. Ríkisborgararétturinn fór
sömu leið, og var mörgum skipað
að snúa aftur til fyrri heimkynna,
Indlands.
Árið 1956 setti þingið lög þess
efnis að sínhalíska skyldi vera hið
eina opinbera tungumál í ríkinu.
Fáir Tamflar tala sínhalísku en
enn færri Sínhalesar tala tam-
flsku. Þessi þinglegi þjóðernis-
rembingur leiddi til mótmæla og
uppþota Tamfla, og jafnvel kap-
ítalískir stjórnmálamenn þeirra
slógust í þann hópinn sem krafð-
ist sjálfstjórnar. Síðan þetta gerð-
ist hafa stjórnmálaflokkar Ta-
mfla krafist fulls jafnréttis.
Borgarastríð
Um skæruliðastríð er hinsveg-
ar ekki að ræða fyrr en árið 1983.
Það ár kom til hernaðarátaka
milli stjórnarhersins og skæruliða
Tamfla, og létu 13 hermenn af
sínhalesum uppruna lífið í þeim
átökum. Skipulagðar ofsóknir og
fjöldamorð á Tamflum fylgdu í
kjölfarið og er talið að um tvö
þúsund manna hafi þá myrt. Ta-
mflar flýðu land í tugþúsundavís
upp úr þessu, og þúsundir ung-
menna gengu til liðs við baráttu-
samtökin. Síðan 1983 er talið að
5.500 manns hið fæsta hafi látið
lífið. Flest af því fólki voru Ta-
mflar sem stjórnarherinn og
þjóðvarðliðið kom fyrir kattar-
nef.
Jaffnaskaginn er í flestum
greinum frelsað svæði sem lýtur
stjórn Frelsistígranna, en þeir
hafa nýskeð komið þar stjórn á
laggirnar. Fram undir það síðasta
hafa herstöðvar stjórnarinnar á
Jaffnaskaga verið umkringdar og
einangraðar.
Ríkisstjórn Sri Lanka hefur
svarað með því að loka skagann
af, en sú tiltekt er ekki talin hafa
verið sérlega árangursrík.
Frá árinu 1985 hefur her-
mönnum stjórnarinnar verið
fjölgað úr 11.500 í 24.000. Um
það bil 15% fjárlaga fara til hers-
ins, og er það fimmtánföld
aukning á tíu árum. Stjórnin ný-
tur hernaðaraðstoðar landa á
borð við ísrael, Pakistan og
Suður-Kóreu. Þrátt fyrir þennan
herafla stjórnarinnar nýtur bar-
áttuhreyfing Tamfla sífellt víð-
tækari stuðnings, og endurspegl-
ar það hinn mikla hljómgrunn
sem hún á meðal Tamfla. Sívax-
andi fjöldi Tamíla af indverskum
uppruna styður orðið baráttu-
hreyfínguna.
Indverjar í hlutverki
sáttasemjara
Ríkisstjórn Jayewardene von-
ast til að geta nýtt sér fordæmingu
þá sem síðustu ofbeldisaðgerðir
hafa vakið til að framkvæma
hernaðarlausn á „þjóðernisvand-
amálinu". Stjómin leggur einnig
á það áherslu að fá stjórn Rajiv
Gandhi á Indlandi til að jafna um
þær sveitir Tamfla sem eiga bæki-
stöðvar í fylkinu Tamfl Nadu á
Suður-Indlandi, en fylkið er
heimkynni um fimmtíu milljóna
Tamfla. Indverska stjórnin hefur
fordæmt nýlegar morðárásir, án
þess þó að skella skuldinni á
vopnaðar baráttusveitir Tamfla.
Frá árinu 1983 hefur indverska
stjórnin reynt að miðla málum í
borgarastyrjöldinni á Sri Lanka.
í grein sem birtist í apríllok í New
York Times kemur fram að for-
ystumenn herskárra Tamfla hafa
átt leynilegar viðræður við ind-
verska embættismenn í Nýju Del-
hi um hvernig væri mögulegt að
komast að samkomulagi við ríkis-
stjórnina á Sri Lanka. Skilyrði
samkomulags, að sögn eins tals-
manns Tamfla sem vitnað er til í
greininni, er að „Tamflar eru
ekki til vðtals um friðarviðræður
fyrr en ríkisstjórnin lætur af þeirri
stefnu sinni að ástunda hernaðar-
legan terrorisma gegn Tamflum."
(Byggt á Militant) HS
12 StÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. maí 1987
Aðalheimild: REUTER