Þjóðviljinn - 30.05.1987, Qupperneq 13
■ ÖRFRÉTTIRi
Rasistastjórnin
í Suður-Afríku ber nú víurnar í for-
ystumenn blökkumannaog hvet-
ur þá til viðræðna. Hingað til hef-
ur enginn þeirra þekkst gott boð
og nú síðast kom afsvar frá Tutu
erkibiskupi. Hann segist að vísu
tilbúinn til skrafs og ráðagerða
við erkifjandann Botha að viss-
um, einföldum skilyrðum upp-
fylltum, en þau eru: afnám
neyðarástandslaganna, að öllum
pólitískum föngum verði sleppt úr
haldi og að þau samtök svartra
sem nú eru bönnuð fái að starfa
óáreitt. Gagntilboð við hæfi vill
margur meina.
ítalska stjórnin
hefur sett bráðabirgðalög til að
varna því að fjöldinn allur af mál-
um fyrir dómstólunum yrði ónýtt-
ur, þar á með fjöldaréttarhöld yfir
mafíuforingjum á Sikiley. Dóm-
ara í glæpa- og áfrýjunarmálum
ber að útnefna árlega, en fjöldi
slíkra mála hefur hrannast upp
að undanförnu og því hafa sumir
dómararnir þjófstartað og tekið til
við málavafstur áður en útnefn-
ing þeirra hefur tekið gildi form-
lega og voru verjendur teknir að
vefengja réttmæti slíks.
Alþjóðleg
danskeppni stendur nú fyrir dyr-
um í Sovét segir í fréttum frá
Tass, og verður hún haldin í
næsta mánuði. Þetta er í fyrsta
sinn sem slík keppni er haldin í
landinu og er búist við að dansar-
’ar frá Noregi, Bretlandi og
Vestur-Þýskalandi taki þátt í
henni, auk dansara frá Austur-
Evrópulöndunum. Sovéskir, evr-
ópskir og suður-amerískir dansar
verða á dagskrá; vals, cha-cha-
cha og allt þar á milli.
ERLENDAR FRETTIR
Varsjárbandalagið
Vilja viðræður um herfræði
Leiðtogar ríkja Varsjárbandalagsins slitufundi sínum íAustur-Berlín ígær. Vilja ræða um
herfræðikenningar viðNATOleiðtogatilað „eyðatortryggni milli austurs og vesturs.“
Drœmar undirtektir vestra
Fátt nýmæla leit dagsins ljós á
fundi æðstu manna Varsjár-
bandalagsríkja sem sagt var slitið
í Austur-Berlín í gær. Hið eina
sem í frásögur er færandi er
áskorun sem leiðtogarnir beindu
til kollega sinna í NATO um að
taka sem fyrst upp viðræður um
herfræðileg grundvallaratriði í
því augnamiði að „eyða tor-
tryggni milli austurs og vesturs“
einsog það var orðað.
Tilboðinu er næsta augljóslega
ætlað að slá vopn úr höndum
vesturþýskra hægrimanna sem
hvað eftir annað hafa látið í ljós
efasemdir um eyðingu meðal- og
langdrægra kjarnaflauga úr Evr-
ópu og borið því við að án
flauganna sé Vestur-Þýskaland
berskjaldað fyrir árás úr austri
þar sem Varsjárbandalagið ráði
yfir margfalt fleiri og öflugri
hefðbundnum vígtólum.
Sovétmenn bíða nú átekta og
úrslita deilna í vesturþýsku
stjórninni um hvernig skuli
bregðast við tilboðinu um „núll-
lausn“. Þeim finnst þeir hafa lagt
nóg af mörkum í bili í afvopnun-
arviðræðunum og telja röðina
komna að Vesturveldunum að
sanna samningsvilja sinn.
Embættismenn vestan tjalds
sögðu í gær að það myndi ein-
vörðungu gera afvopnunarmálin
enn flóknari en þegar verið er að
taka upp sérstakar viðræður um
herfræði herbandalaganna
tveggja. Þegar væru í gangi við-
ræður í Genf og Vín og það
myndi æra óstöðugan að efna til
einnar ráðstefnu í viðbót.
-ks.
Sovéskir skriðdrekar
einhversstaðar
í Austur-Þýskalandi. Valda úlfúð á
stjórnarheimilinu í Bonn.
Glœfraflug
VORBODINN
Óséður frá
Helsinki
til Moskvu
Vesturþýskur unglingur flýgur smárellu hátt í
900 kílómetra leið innan Sovétríkjanna, hnit-
ar hringi yfir Kreml og lendir á Rauða torginu
án þess að yfirvöld hafi grœnan grun um til-
tœkið. Var nýbúinnað vera í vikuheimsókn á
etta var ósköp venjubundinn
hvunndagur í Moskvu. A
Rauða torginu var sem endranær
múgur og margmenni, erlendir
ferðalangar og innlendir pflag-
rímar biðu eftir að röðin kæmi að
sér frammi fyrir grafhýsi Leníns
eða spókuðu sig í góða veðrinu og
virtu fyrir sér hina öldnu virki-
sveggi Kremlar.
Skyndilega sást lítill depill á
himni sem færðist nær og nær uns
greina mátti útlínur lítillar flug-
vélar. Hún sveif í tignarlegum
boga yfir aðsetri æðstu manna ris-
aveldisins, sleikti þak vöruhúss
handan götunnar og renndi sér
niður milli dómkirkju heilags Ba-
sils og Moskvuárinnar.
Út úr flugvélinni, sem er af
gerðinni Cessna 172B, stígur
rogginn yngissveinn. Hann gefur
góðfúslega eiginhandaráritanir á
báða bóga og brosir kankvíslega
til einkennisklæddra lögreglu-
þjóna sem gjalda líku líkt. Flestir
álíta hann vera leikara í skemmti-
legri mynd.
Þangað til óeinkennisklæddir
öryggislögreglumenn þyrpast á
vettvang, herflutningabflar og
límúsínur háttsettra kerfiskarla
renna í hlað. Piltur er handtek-
inn, svæðið kringum flugvélina
girt af og umferð um Rauða torg-
ið bönnuð.
Mathias Rust er nítján ára
gamall flugkappi frá Hamborg í
Vestur-Þýskalandi. Hann hafði
flogið vítt og breitt um Norður-
Evrópu, m.a. hingað til lands þar
sem hann hafði viku viðdvöl um
miðjan maí og flaug m.a. til
Hornafjarðar. Stuttu síðar kom
hann við í höfuðborg Finnlands
til að taka eldsneyti.
í stað þess að fljúga þaðan í
vestur flaug piltur í austur. Vest-
rænir varnarspekúlantar eru agn-
dofa af undrun yfir því að vélin
skyldi hafa getað flogið 900 kfló-
metra leið innan Sovétríkjanna
og svifið yfir Kreml án þess að
heryfirvöld eystra vöknuðu af
værum blundi.
Sovétmenn kváðu hafa yfir að
ráða einhverju fullkomnasta loft-
varnarkerfi á byggðu bóli, fjölda
háþróaðra eldflauga til að granda
hvers kyns óvinaflugvélum auk
gagnflaugakerfis í Moskvu sem er
hið eina sinna tegundar í heimin-
um til varnar borg. Annað hvort
er kerfið óvirkt ellegar þeir sem
hafa umsjón með því - nema
hvort tveggja sé.
-ks.
UUFISAA
DREGB10. JÚM
Upplag miða 100.000
Aðalheimild: Reuter Laugardagur 30. maí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 13