Þjóðviljinn - 03.06.1987, Qupperneq 7
Egilsstaðir
Aukidat-
vinnulíf
forsenda
byggdar
Sigurður Símonarson
bæjarstjóri: Erum aðfara af
stað með
byggðaþróunarverkefni sem
miðar að aukinni fjölbreytni í
atvinnulífi
Sigurður Símonarson bæjarstjóri á Egilsstöðum: Hér eru miklir möguleikar í atvinnulífi en það þarf fjármagn til að byggja það uþþ.
Við bindum vonir við að byggðaþróunarverkefnið komi af stað aukinni fjölbreytni, sérstaklega í þjónustu og iðngreinum.
Um síðustu helgi átti Egilsstaða-
hreppur fjörutíu ára afmæli og
öðlaðist jaf nf ramt kaupstaðarétt-
indi. Þjóðviljinn gekk því á fund
Sigurðar Símonarsonarfyrrver-
andi sveitarstjóra og núverandi
bæjarstjóraogspurðistlítillega
fyrir um atvinnulíf á staðnum.
„Það hefur verið og er enn til-
tölulega einhæft atvinnulíf hér
sem byggist að mestu upp á þjón-
ustu og smáiðnaði,“ sagði Sigurð-
ur. „Landbúnaður hefur
minnkað og nú er fyrirsjáanlegur
stórfelldur niðurskurður á fé
vegna riðuveiki. Sveitarstjórnin
hefur verið að reyna að finna
leiðir til aukningar atvinnulífs og
þá einna helst í greinum eins og
þjónustu og iðnaði. Menn hafa
lifið til ferðamannaþjónustu og
fjölbreyttari iðngreina sem gætu
skapað tiltölulega mörgum vinnu
en krefjast ekki mikillar sérhæfð-
rar þekkingar. Það er líka
nauðsynlegt að finna leiðir til að
auka atvinnu hjá fólki sem hefur
ekki sérfræðimenntun.
Ástandið er þannig í dag að
ekki er nóg að skapa atvinnu fyrir
einn í fjölskyldu, því að hver
meðalfjölskylda þarf að minnsta
kosti eina og hálfa fyrirvinnu til
að sjá sér farborða. Þessu þarf að
mæta með fjölbreyttara atvinnu-
framboði og tækifærum."
Sigurður sagði að í undirbún-
ingi væri svokallað byggðaþróun-
arverkefni milli Seyðisfjarðar og
Egilsstaða og áætlað að það fari
af stað með haustinu. „Megintil-
gangur þessa verkefnis er að
komast að með hvaða hætti tvö
byggðarlög sem eru ólík atvinnu-
lega séð en landfræðilega nálæg
gætu stutt hvort annað í atvinnu-
uppbyggingu. Ýmsar hugmyndir
eru komnar um hvers konar fyrir-
tæki hægt væri að setja á laggirnar
og markmiðið með þessu verk-
efni er að sjálfsögðu fyrst og
fremst að halda landinu í byggð,
skapa þannig aðstöðu að fólk vilji
búa hér. Við lítum þannig á að
hægt sé að setja ákveðinn ramma
utan um verkefnið og síðan er
það fólksins á stöðunum að fylla
inn í rammann, finna með okkur
verkefni sem æskilegt og
nauðsynlegt er að fást við.
Að öðru leyti er hér að glæðast
atvinna í byggingum, nú stendur
fyrir dyrum stækkun við mennta-
skólann og flugvöllinn, sveitarfé-
lagið er að stækka dagvistar-
heinmilið og byggja áhaldahús,
og undirbúningur er í gangi að
byggingu sölu- og þjónustuíbúða
fyrir aldraða. Við reiknum með
að ákvörðun um það verði tekin í
sumar og framkvæmdir hefjist þá
fljótlega upp úr því.
Meö flugvallarstækkuninni
opnast hér ýmsir möguleikar,
bæði hvað varðar aukna fólks-
flutninga og líka til að fara út í
samkeppni til útflutnings. Þetta
er gott landbúnaðarhérað og ætti
að vera hægt að fara út í meiri
matvælaframleiðsiu. Ég sé held-
ur ekkert því til fyrirstöðu að hér
geti risið matvælaframleiðsla í
sambandi við sjávarútveg, en
slíkt byggir fyrst og fremst á góð-
um samgöngum, vegir þurfa að
vera opnir allt árið til verstöðv-
anna hér í kring. Sunnanlands er
afurðum ekið ofan úr Borgar-
firði, jafnvel af Snæfellsnesi og úr
Þorlákshöfn til vinnslu í Reykja-
vík. Hér fyrir austan er mjög stórt
svæði, frá Breiðdalsvík að sunn-
an allt norður á Borgarfjörð, þar
sem hægt væri að aka afurðum
hingað til Egilsstaða á klukku-
tíma við góð skilyrði.
Hér eru mjög miklir mögu-
leikar fyrir hendi í atvinnulífi og
atvinnuuppbyggingu,“ sagði Sig-
urður að lokum, „en allt kostar
þetta fjármagn í upphafi og er
tengt pólitískum ákvörðunum
stjórnvalda um hvernig byggja
skal upp atvinnulíf á stöðum úti á
landi.
-ing
Seyöisfjöröur
Að gera framtíðarsýn að vemleika
Axel Beck iðnráðgjafi: Markmið Iðnþróunarfélags
Austurlands er að aðstoða við þróun og eflingu
atvinnuuppbyggingar í landsfjórðungnum
Árið 1981 var Iðnþróunarfélag
Austurlands stofnað í því skyni
að tengia austfirskt atvinnulíf inn-
byrðis. I lögum félagsins stendur:
Tilgangur félagsins er að stuðla
að þróun og eflingu atvinnulífs á
Austurlandi í því skyni að auka
fjölbreytni og arðsemi iðnaðar.
Félagið hefur aðsetur á Seyðis-
firði og þar er að finna starfs-
mann þess, Axel A. Beck iðnráð-
gjafa.
Hvert er starfssvið iðnráðgjaf-
ans?
„Starfssvið iðnráðgjafa er tví-
þætt,“ segir Axel. „Annars vegar
aðstoðar hann fyrirtæki sem eiga
í rekstrarerfiðleikum og hins veg-
ar er hann til aðstoðar og ráðgjaf-
ar við að koma hugmyndum um
stofnun fyrirtækja í framkvæmd
og athuga markað og markaðs-
öflun.“
Hvernig gengur þetta hér á
Austurlandi, er sýnilegur árang-
ur af þessu starfi?
„Iðnþróunarfélag Austurlands
er mjög ungt félag og starfsemi
þess er margþætt, en annars veg-
ar gerast þessir hlutir ekki bara
einn tveir þrír, öll svona starfsemi
þarf mikinn og nákvæman undir-
búning og hins vegar er erfitt að
stofna framleiðslufyrirtæki á svo
fámennu og dreifbýlu svæði sem
Austurland er. Markaðurinn hér*
er svo lítill að fyrirtæki verða að
byrja strax að framleiða fyrir út-
flutning og það er mjög erfitt.
En svo eru líka hvers konar
* önnur fyrirtæki, sem ég er tilbú-
inn til að aðstoða, svo sem í sam-
bandi við ferðamál og ýmis þjón-
ustufyrirtæki. Ef við viljum fjölga
íbúum fjórðungsins, fá fólk til að
setjast að úti á landi þá er
nauðsynlegt að hafa góð þjónust-
ufyrirtæki í fjórðungnum og þarf
að auka og fjölga þeim.
Sameiginlegt vandamál allrar
landsbyggðarinnar er að unga
fólkið fer suður og til útlanda í
nám og kemur svo ekki aftur út á
land vegna þess að atvinnumögu-
leikar þess eru litlir sem engir
utan Stór-Reykjavíkursvæðis-
ins.“
Hvað er Iðnþróunarfélag
Austurlands helst með á prjón-
unum núna?
„Við erum með margs konar
fræðslustarfsemi í gangi, bjóðum
upp á námskeið, t.d. verkstjórn-
arfræðslu, vöruþróun og mark-
aðssókn. Þessi námskeið höfum
við verið með um allt Austurland
og þau hafa mælst mjög vel fyrir
og verið vel sótt. Einnig erum við
með skólaverkefni fyrir 9. bekk í
gangi. Markmiðið með því er að
reyna að fá unglingana til að
hugsa um atvinnulífið og framtíð-
ina og hvernig er að búa og vinna
á landsbyggðinni. Þetta eru mjög
skemmtileg námsskeið sem
byggjast á stofnun lítils fyrir-
tækis. Inn í stofnun þessa fyrir-
tækis koma þættir eins og skipu-
lagning framleiðslunnar, gæði og
magn, umhverfismál, þróunarm-
ál, markaðsmál, byggðaþróun og
fleira. Þetta eru mjög skemmtileg
námskeið og krakkarnir áhuga-
samir.
Stærstu málin hjá Iðnþróun-
arfélaginu núna eru annars vegar
firmaskrá, svokallaður Lykill að
Austurlandi, sem við erum með í
vinnslu. Hins vegar erum við að
vinna áætlun um Átaksverkefni í
atvinnumálum. Markmið með
slíku verkefni er að skapa meiri
fjölbreytni í atvinnumálum og
meiri samvinnu milli byggðar-
laga. Norðmenn hafa verið með
svona átaksverkefni í gangi sem
hafa gefist vel og ég fór á vegum
Iðntæknistofnunar þangað til að
kynna mér hvernig þeir hafa stað-
ið að þessu. Svona átaksverkefni
byggist í stuttu máli á því að fá
fólk til að gera sér skipulega grein
fyrir hvernig það vill búa eftir 10
-20 ár og vinna síðan skipulega og
saman að því að gera þá draum-
sýn að veruleika.“
Axel Beck iðnráðgjafi: Meiri samvinna milli byggðarlaga er nauðsyn og mikil-
vægur þáttur í auknum atvinnumöguleikum innan fjórðungsins. (Mynd jis)
Mlðvikudagur 3. júní 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 7