Þjóðviljinn - 03.06.1987, Page 14
ALÞÝÐ UBAN DALAGIÐ
Alþýðubandalagið Borgarnesi og nærsveitum
Aðalfundur
Aðalfundur félagsins verður haldinn föstudaginn 5. júní kl. 20.30 í Röðli.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Önnur mál. Félagar eru hvattir
til að mæta. Stjórnin.
Frá Skrifstofu Alþýðubandalagsins
Sumartími
[ sumar er skrifstofa AB opin frá kl. 9-16 alla virka daga. Síminn er 17500.
Alþýðubandalagið í Reykjavík er með opna skrifstofu á Hverfisgötu 105
frá kl. 10-12 alla virka daga.
Alþýðubandalagið Akureyri
Aðalfundur
verður haldinn í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18, fimmtudaginn 4. júní kl.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Allir félagar hvattir til að mæta.
Stjórnin
G-Hstinn Reykjanesi
Listaverkahappdrættið
Vinningstölur í Listaverkahappdrætti G-listans á Reykjanesi. Upp komu
eftirtaldar tölur í þessari röð: 1) 6074 2) 5134 3) 11849 4) 7215 5) 4804 6)
3452 7) 4425 8) 10745 9) 3051 10) 5111 11) 11386 12) 1061 13) 5076 14)
11360 15) 10011 16) 7169 17) 9021 18) 11575 19) 7727 20) 4691.
Vinningshafar hafi samband við skrifstofu Alþýðubandalagsins í Kópa-
vogi, sími 41746 sem fyrst.
Alþýðubandalagið Reykjanesi
Alþýðubandalagið Reykjavík
Aðalfundur ABR
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður haldinn fimmtudaginn
11. júní n.k. í Miðgarði, Hverfisgötu 105 og hefst kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf. Dagskrá nánar auglýst síðar.
Stjórn ABR.
Alþýðubandalagið Reykjavík
Aðalfundur 3. deildar
Áfram veginn. Umræðan er hafin. Við félagar í 3. deild (Vogar, Laugarnes,
Kleppsholt og Laugarneshverfi) höldum aðalfund deildarinnar
fimmtudaginn 4. júní kl. 20.30 í Flokksmiðstöðinni, Hverfisgötu 105.
Við kjósum okkur stjórn og kjósum í flokksráð. Síðan verða umræður um
stöðu flokksins í nútíð og framtíð. Stjórnin.
Alþýðubandalagið Akureyri
Aðalfundi frestað
Aðalfundi félagsins sem átti að vera á fimmtudag hefur verið frestað fram til
þriðjudagsins 9. júní. Fundað í Lárusarhúsi kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál.
Allir félagar hvattir til að mæta.
Stjórnin.
ABR
Kosningahappdrættið
Dregið var í gær, 1. júní, í kosningahappdrætti ABR. Vinningsnúmer hefur
verið innsiglað og verður birt þegar fullnaðarskil hafa borist en þó ekki síðar
en 15. júní n.k.
Þeir sem eiga eftir að skila eru beðnir að gera það strax.
SVÆÐISSTJÓRN
MÁLEFNA FATLAÐRA
NORÐURLANDI EYSTRA
Þroskaþjálfi
Óskast á sambýii frá næstkomandi hausti.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma: 96-
26960.
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimtunn-
ar í Reykjavík og samkvæmt fógetaúrskurði,
uppkveðnum 1. þ.m. verða lögtök látin fara fram
fyrir vangoldnum opinberum gjöldum sem féllu í
gjalddaga 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí og 1.
júní 1987.
Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum,
ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, verða hafin að
8 dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsing-
ar, verði tilskildar greiðslur ekki inntar af hendi
innan þess tíma.
1. júní 1986
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
Áttrœður
Leifur Eiríksson
kennari
í dag er frændi minn, Leifur
Eiríksson kennari, áttræður.
í tilefni af því langar mig til að
skrifa nokkrar línur á blað, enda
þótt vera megi að það sé honum
lítt að skapi. Veit ég þó að hann
mun færa mér það til betri vegar
svo sem önnur verk hingað til.
Leifur Eiríksson er fæddur á
Harðbak á Melrakkasléttu í
Norður-Þingeyjarsýslu 3. júní
1907, sonur hjónanna Eiríks Stef-
ánssonar vitavarðar og bónda á
Rifi og konu hans Ingibjargar Jó-
hannsdóttur. Þau hjón voru síð-
ustu ábúendur á Rifi, sem er ein
af þeim harðbýlu jörðum sem nú
þykir lítt búandi á en framfleyttu
áður stórum fjölskyldum með
ágætum.
Um Rif á Sléttu og ábúendur
þar hefur Brynjólfur Sigurðsson
á Kópaskeri skrifað fróðlegan
sagnaþátt sem okkur yngri Slétt-
ungum er þörf á að lesa. (Bóndi
er bústólpi VI).
Fyrir nokkrum vikum heim-
sótti ég Leif og gaf hann mér að
skilnaði þennan sagnaþátt ásamt
öðrum fróðleik um Rif og ættir
sínar og að hluta til okkar beggja.
Þar er m.a. ættartala Leifs í
móðurætt allt til Ingólfs Arnar-
sonar okkar fyrsta landnáms-
manns og ættartala í föðurætt
(Skinnalónsætt) til Hálfdáns hvít-
abeins Upplendingakonungs.
Ættir hans eru því stórar og sterk-
ar. Einnig fylgdi með vísa eftir
Leif um Rifstanga á Sléttu sem ég
læt hér fylgja:
Klettar sterkir standu
stormi og brimi móti.
Undan aldrei láta,
árásir þó hljóti.
Eiga sína sögu,
samt þeir flestu leyna.
Nyrzt við íslands odda
Ægir lemur steina.
Leifur fór í Gagnfræðaskóla
Akureyrar og útskrifaðist þaðan
1927. Kennaraprófi lauk hann frá
Kennaraskóla íslands 1944 en
hafði áður kennt bæði við barna-
skólann í Núpasveit og unglinga-
skólann á Raufarhöfn í 10 vetur.
13. nóvember 1932 kvæntist
Leifur föðursystur minni Lúð-
víku Lund, dóttur hjónanna Jó-
hanns Lund bónda og póstaf-
greiðlsumanns á Raufarhöfn og
konu hans Rannveigar Gríms-
dóttur Laxdal. Lúðvíka eða Lúlla
eins og hún var ávallt kölluð, lést
fyrir aldur fram 15. ágúst 1977.
J’au Leifur og Lúlla hófu sinn
búskap á Raufarhöfn og byggðu
sér þar hús sem bar heitið Harð-
angur. Þau bjuggu þau til ársins
1958 er þau fluttu að Faxatúni 14 í
Garðabæ.
Á Raufarhöfn tók Leifur virk-
an þátt í öllu félagsmálastarfi og
var einn af þeim athafnamönnum
sem mótuðu Raufarhöfn á upp-
gangsárum þess staðar. M.a. var
hann oddviti hreppsins í 8 ár eða
frá 1950 til 1958. Þá var hann í
stjórn hraðfrystihússins Frosta
hf. frá stofnun. Hann var einn af
stofnendum Sparisjóðs Raufar-
hafnar og sat í stjórn hans frá
upphafi og þar af sem formaður
frá 1950. Formaður skólanefndar
1936-1943 og sýslunefndarmaður
Presthólahrepps og Raufarhafn-
arhrepps í mörg ár.
f þessum trúnaðarstörfum
reyndi mikið á framsýni og fram-
takssemi Leifs og á hann þakkir
skildar fyrir sinn þátt í uppbygg-
ingu Raufarhafnar.
Leifur hefur ætíð haft mikinn
áhuga fyrir málefnum ungs fólks.
Hann var um tíma formaður
U.m.f. Austra á Raufarhöfn og
stofnaði unglingaskóla þar.
Leifur gekkst fyrir byggingu
sundlaugar á Raufarhöfn með
skátadrengjum og kenndi þar
sund í 14 ár. Sundlaugin var upp-
hituð með gufu frá Síldarverk-
smiðjunni enda laugin á lóð verk-
smiðjunnar.
Ein fyrsta minning mín af Leifi
er einmitt frá þeim tíma. Ég man
eftir honum þar sem hann stóð á
laugarbakkanum með heljarinn-
ar bambusstöng segjandi krökk-
unum til.
Það var annars ekki ætlun mín
að rekja æviferil Leifs enda of-
verk mitt á allan máta. Miklu
fremur vildi ég minnast á nokkur
önnur atriði og þakka Leifi fyrir
skemmtilegar samverustundir á
lífsleiðinni sem að sjálfsögðu
hafa verið of fáar.
Allt frá fyrstu tíð hefur Leifur
vepð okkur Miðtúnsbræðrum
mikill frændi. Á Raufarhöfn tók
hann á móti okkur sem slikur og
sömu sögu er að segja héðan að
sunnan.
Það er annars svo, eins og allir
vita, að nú á dögum gefst of lítill
tími til að heimsækja ættingjana
og langt er á milli þeirra stunda
sem ég hitti Leif. Samt sem áður
eru þær stundir ánægjulegar og
ætíð fylgja heitstrengingar af
minni hálfu að gera betur.
Leifur er ávallt hress á slíkum
fundum og reynir jafnan kraftana
hjá manni. Fyrst voru það glímu-
tökin en nú er það handtakið sem
hann prófar. Handtak Leifs er
fast og eins gott að vera viðbúinn
ef ekki á að kveinka sér undan
því. Þá segir Leifur manni
gjarnan sögur af Sléttunni og
fólkinu þar fyrr á tímum. Ég man
að eitt sinn er ég gisti hjá Lúllu og
Leifi í Garðabænum spjallaði
Leifur við mig fram eftir nóttu.
Lúlla var löngu sofnuð en hann
langt frá því að vera syfjulegur.
Þannig gekk fram undir morgun.
Varla var ég sofnaðu er Lúlla
frænka mín kom, að mér fannst
fyrir allar aldir, og bauð góðan
dag og nýbakaðar kökur - og
spjall um Sléttuna hófst að nýju.
Leifur er ágætlega hagmæltur
og oft leitar hann fanga til þeirra
hluta norður á Sléttu.
Fyrir nokkrum árum barst
honum í hendur sæsorfinn steinn
norðan af Rifstanga. Um þann
stein orti Leifur:
Eitt sinn sagði Leifur mér að
hann færi aldrei að sofa fyrr en
hann hefði heyrt veðurfregnirnar
kl. 1:00 til þess að vita hvernig
veður væri fyrir norðan. Já, Slétt-
an er Leifi kær og frændur hans
þar.
Eftir að þau Lúlla og Leifur
fluttu í Garðabæinn hélt Leifur
áfram kennslu en hafði síðar um-
sjón með bókasafni skólans. Þau
ár annaðist Lúlla kaffið fyrir
kennarana ásamt því að vera virk
í mörgum félagasamtökum.
Andlát Lúllu var mjög þungt
áfall fyrir Leif enda var hún hans
stoð og stytta gegnum árin. Hún
var ekki síður gestrisin en hann
og hvarvetna hrókur alls fagnað-
ar.
Börn þeirra Leifs og Lúllu eru
4, Eysteinn, Rannveig, Ingibjörg
og Erlingur.
Nú býr Leifur að Fannborg 1 í
Kópavogi.
Honum ásamt fjölskyldu hans
færi ég mínar bestu kveðjur í til-
efni dagsins og vona að ég megi
enn um langa hríð finna sterkt
handtak frænda míns.
Að lokum vil ég birta eina vís-
una enn eftir afmælisbarnið sem
hann orti fyrir nokkrum mánuð-
um:
Aukið göfgar ættir við,
örvið frœndrœknina.
Allra heilla eg þeim bið,
sem efla mannkostina.
Lifðu heill kœri frœndi.
Níels Árni Lund
FRA MENNTAMÁLARAÐUNEYTINU:
Lausar stöður við framhaldsskóla:
Umsóknarfrestur um áður auglýstar kennarastöður við eftirtalda framhalds-
skóla framlengist til 15. júní:
Við Fjölbrautaskólann við Ármúla kennarastöður í efnafræði og
hagfræði og viðskiptagreinum. Fullar stöður í báðum greinum.
Við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi kennarastöður í
eðlisfræði, efnafræði, stærðfræði og rafeindavirkjun. Ennfremur er
laus kennarastaða í félagsfræði.
Við Menntaskólann á Isafirði kennarastöður í islensku, stærð-
fræði og þýsku, heilar stöður og hálfar stöður í efnafræði og frönsku.
Við Menntaskólann í Kópavogl kennarastöður í stærðfræði og
viðskiptagreinum.
Við Menntaskólann að Laugarvatni kennarastöður í stærðfræði
og raungreinum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Drögum vel úr ferð
við blindhæðir og brýr.
GÓÐAFERÐ!
gÉUMFERÐAR
Vráð
Upprunanum aldrei gleymi,
er sem hlýir geislar streymi
köldu, gráu grjóti frá.
Oft um vor í unaðs heimi
undradýrð þar mesta sá.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN