Þjóðviljinn - 03.06.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Miðvikudaour 3. júní 1987 117. tölublað 52. örgangur
J-listinn
Jón hombrotinn
Stefán vill ráðherrastól. Ekki verið boðið íþingflokk Framsóknar. Fundur stuðningsmanna á nœstu
dögum. Allir rólegirframmyfir hvítasunnufyrst Jón hefur umboðið
g amtök um jafnrétti og félags-
þátttakendur að ríkisstjórn nema
taka þar við ráðherradómi, sagði
Stefán Valgeirsson við Þjóðvilj-
ann í gær, - bætti að vísu við að
hann sjálfur mundi ekki gera
kröfu til slíks.
Stefán sagði að ekkert hefði
verið rætt um stuðning sinn sem
þingmanns við hugsanlega ríkis-
stjórn, enda „þarf ekkert að
spyrja slíkra spurninga".
Jón Baldvin Hannibalsson hefur
látið að því liggja að stjórnar-
stuðningur Stefáns „kosti ekki
nema eitt bankaráð".
Um nýhafinn stjórnarumboðs-
tíma formanns Alþýðuflokksins
sagði Stefán að Jón væri „búinn
að hombrjóta sig, - ætli það sé
ekki verið að leyfa honum að
hlaupa af sér hornin“.
Forysta Framsóknarflokksins
hefur rætt við Stefán Valgeirsson
um aðild að stjórnarmyndunar-
viðræðum, en honum hefur ekki
verið boðið í þingflokk Fram-
sóknarflokksins. Stefán segir að
þessi mál séu varla í deiglunni
meðan Framsóknarforystan sé að
íhuga stjórnarsamstarf við Al-
þýðuflokkinn, en að öðru leyti
fari þátttaka samtaka sinna í rík-
isstjórn eftir málefnum.
Einna helst hefur verið rætt um
aðild Stefáns að stjórn skipaðri
núverandi stjórnarflokkum, en
aðspurður sagði Stefán að mál-
efnagrundvöllur núverandi
stjórnar dygði varla til. Hann
væri hinsvegar ekki farinn að
ræða við sitt fólk, en helstu
oddvitar J-listans nyrðra ætluðu
að hittast næstu daga og ræða
málin.
Stefáni sýndist lítið liggja á að
gera upp sinn hug og Samtakanna
til stjórnar þarsem Jón Baldvin
væri búinn að fá umboðið, „nú
geta allir verið rólegir frammyfir
hvítasunnu“. -m
Kvennalistinn
Matarholumar
margar
Kvennalistinn telur bœtta innheimtu söluskatts og
fœkkun undanþága fljótlegustu leiðina tilþess að
fjármagna hœkkun lágmarkslauna
Við höfum lagt dæmið upp við
viðmælendur okkar eins ítar-
lega og hægt er á þessu stigi máls-
ins, sagði Guðrún Agnarsdóttir,
þingkona Kvennalistans, um þá
gagnrýni sem víða hefur heyrst á
hugmyndir Kvennalistans um
lágmarkslaun. I gagnrýninni felst
m.a. að hugmyndinni fylgi ekki
tillögur um það hvernig eigi að
fjármagna hækkun lágmarks-
launa né heldur hvernig að út-
færslu hugmyndarinnar skuli
staðið.
Guðrún sagði að kvennalista-
konur hefðu ýmsar hugmyndir
um mögulegar aðgerðir til þess
að ná þessu marki, þótt enn væru
ekki þekktar nákvæmar tölur um
mögulega stærð tekjustofna. Víst
væru matarholurnar margar þar
sem hægt væri að ná í fé. Mikil-
vægast væri að byrja á því að bæta
innheimtu á söluskatti og fækka
undanþágum. Þá væru ýmsar
skattlagningar nauðsynlegar sem
langtímaleiðir í þessu markmiði,
t.d skattlagning á fjármagnstekj-
ur, stóreignaskattlagning og
aukin skattlagning á vel stæð fyr-
irtæki. Guðrún sagði að jafn-
framt lægi ljóst fyrir að beita yrði
einhverjum samdráttaraðgerð-
um vegna þeirrar þenslu í efna-
hagslífinu sem nú lægi í loftinu og
myndi ljóslega hafa verðbólgu-
hvetjandi áhrif. Þær aðgerðir,
sem að ofan væru nefndar, gætu
því verið einn liður í þeim að-
gerðum að koma í veg fyrir þen-
slu og launaskrið. „Það væri vel
hægt að stilla þessar aðgerðir
saman ef pólitískur vilji væri fyrir
hendi,“ sagði Guðrún. Samfara
hækkun lágmarkslauna yrði ríkis-
valdið að halda uppi stífum
áróðri um samábyrgð og sam-
vinnu allra þjóðfélagsþegna og
ganga sjálft á undan með góðu
fordæmi. Þannig ættu allir að
geta séð fyrir sér af dagvinnu-
launum. Loks sagði Guðrún að
hitt væri svo nauðsynlegt að
stokka algjörlega uppí launafl-
okkakerfinu. —K.ÓI.
Þór (Örn Árnason) taugaveiklaður og ósjálfbjarga án hamarsins reynir að
sannfæra frjósemisgyðjuna Freyju (Lilja Þórisdóttir) um að giftast jötninum
Þrym en Þrymur, sem stal hamrinum, vill ekki afhenda hann nema í skiptum
fyrir Freyju. Myndin er frá æfingu á leikriti eftir Njörð P. Njarðvík sem heitir Hvar
er hamarinn? Leikritið, sem er gamanleikur byggður á Þrymskviðu, verður
frumsýnt í Hnífsdal á morgun. Sjá síðu 6.
Hernaðaruppbygging
&2m
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Hitaveita Reykjavíkui
Dýrara að
kynda
Sjálfstœðismenn og
Bjarni P. samþykkir.
Sigurjón Pétursson á
móti: Stríðir gegn
grundvelli
kjarasamninganna
Borgarráðsmenn Sjálfstæðis-
flokksins og Bjarni P.
Magnússon Alþýðuflokki ákváðu
á borgarráðsfundi í gær að
hækka gjaldskrá Hitaveitu
Reykjavíkur um nær 17% og fer
þá rúmmetrinn af heitu vatni úr
21,40 krónum í 25 krónur. Sigur-
jón Pétursson Alþýðubandalagi
greiddi atkvæði gegn hækkun-
inni.
Á fundinum í gær var einnig
samþykkt hækkun á mælaleigu.
Sigurjón Pétursson greiddi
sem fyrr segir atkvæði gegn
hækkun gjaídskrárinnar, enda
telur hann hana stríða gegn
ákvæðum í kjarasamningunum
sem gerðir voru í fyrra. Sigurjón
lét bóka eftirfarandi og lýstu full-
trúar Framsóknarflokks og
Kvennalista yfir stuðningi við
bókun Sigurjóns:
„í kjarasamningum ASÍ og
VSÍ á liðnum vetri var gengið út
frá ákveðnum verð-
lagsforsendum. Meðal þess voru
hækkanir á opinberri þjónustu. í
tengslum við samningsgerðina
var því beint til Reykjavíkur-
borgar að þjónustufyrirtæki
hennar gættu hófs í verðhækkun-
um ög var orðið við því meðal
annars með því að verð á heitu
vatni frá HR var ákveðið kr.
21,40 í stað 25, sem áður hafði
verið samþykkt.
Þessi kjarasamningur er enn í
fullu gildi og hefur ekki verið
breytt. Af þeirri ástæðu get ég
ekki samþykkt hækkun á gjald-
skrá hitaveitunnar, þar sem með
því væri verið að bregðast fors-
endunum sem samningarnir
byggðust á.“ -gg
Byrjað á stjómstöðinni
Islenskir aðalverktakarsjá um framkvæmdir. Kostnaður360 milljónir. Sverrir Haukur Gunnlaugsson:
Ekki kjarnorkuheld. MatthíasÁ. Mathiesen: Tengiliður ratsjárstöðvanna
Framkvæmdir eru hafnar við
stjórnstöð Bandaríkjahers á
Keflavíkurflugvelli. Það eru ís-
lenskir aðalverktakar sem sjá um
framkvæmdir en kostnaður er
áætlaður um 360 milljónir króna.
Er reiknað með.að framkvæmdir
taki um eitt og hálft ár.
Að sögn Sverris Hauks Gunn-
laugssonar, forstöðumanns
Varnarmálaskrifstofunnar, er
þegar búið að rífa gamlan bragga
?em var fyrir á svæðinu og leggja
nýjan veg, en framkvæmdir við
sjálfa stjórnstöðina hefjast á
næstu dögum.
Það var í október 1985 að ríkis-
stjórnin samþykkti þessar fram-
kvæmdir. Hér er um að ræða
tveggja hæða gluggalausa bygg-
ingu sem verður útbúin sérstök-
um hreinsiútbúnaði til að geta
staðið af sér árás með efnavopn-
um og eiga starfsmenn að geta
dvalið í byggingunni í viku eftir
árás.
Sverrir Haukur sagði að stöð-
inni væri ætlað að standast hefð-
bundna árás en neitað því að hún
ætti að standast kjarnorkuárás
einsog haldið hefur verið fram.
Hann sagði að stjórnstöð þessi
væri áþekk stjórnstöðvum í flest-
um ríkjum Atlantshafsbandal-
agsins.
Matthías Á. Mathiesen utan-
ríkisráðherra sagði við Þjóðvilj-
ann að stjórnstöð þessi væri
tengiliður allra ratsjárstöðvanna.
-Sáf
Keflavíkurgangan
6. júní 1987
Skráið ykkur í síma
17966 og 623170