Þjóðviljinn - 10.06.1987, Qupperneq 1
Miðvikudagur 10. júní 1987 122. tölublað 52. örgangur
Um þrjú hundruð manns lögðu
af stað frá hliðinu á Keflavíkur-
flugvelli í bítið á laugar-
dagsmorgni. Var hið besta göng-
uveður alla leiðina til Reykjavík-
ur. í Straumi höfðu um hundrað
manns bæst í hópinn og í Kópa-
vogi var fjöldi göngumanna orð-
inn 700 manns. Fjöldinn á úti-
fundinum á Lækjartorgi var svo
um tvö þúsund manns.
Mikillar óánægju hefur gætt
með fréttaflutning ríkisfjölmiðla,
en Bylgjan mun hafa verið éini
ljósvakamiðillinn sem flutti
óbrenglaðar fréttir frá göngunni.
í fréttum sjónvarpsins á laugar-
dagskvöld var sagt að fjöldinn í
Kópavogi væri um 400 manns. Þá
gátu herstöðvaandstæðingar í
fyrsta skipti auglýst að eigin vild á
öldum ljósvakans, því frjálsu út-
varpsstöðvarnar setja ekki fyrir
sig þó auglýst sé: ísland úr
NATO-herinn burt, einsog ríkis-
fjölmiðlarnir.
Gangan þóttist heppnast hið
besta þrátt fyrir að hernámsand-
stæðingar hefðu kosið meiri þátt-
töku. Höfuðskýringin er talin sú
að gönguna bar upp á hvítasunnu
og ríkti veðurblíða um allt land
þannig að margir hafa notað tæk-
ifærið og skroppið úr bænum um
helgina.
Sjá frásögn og myndir í opnu
blaðsins.
-Sáf
NA T O-fundurinn
Kjamoricuvopnum
fjölgi ekksíhaf i
Búist við að afstaða íslendinga verði svipuð og Norðmanna; fœkkun á landi þýði ekkifjölgun íhafi.
Vígbúnaður íN-Atlantshafiaukistað undaförnu. Sameiginlega afstaða NATO-ríkja tilafvopnunar-
tillagna Sovétmanna að almál utanríkisráðherrafundarins
Búist er við að afstaða Matthí-
asar Á. Mathiesen, utanríkis-
ráðherra, verði mjög á sömu nót-
um og afstaða Norðmanna til
þeirrar hugmyndar, að fækkun
kjarnorkuvopna á landi verði til
þess að kjarnorkuvopnum í höf-
unum verði fjölgað. Er talið að
Matthías muni kynna þá skoðun
íslenskra stjórnvalda að fækkun-
Kína
Ósátt
í átta ár
Kínverska skrifræðið er
óneitanlega nokkuð þungt í
vöfum, ekki síst í þeim geira sem
hefur viðskipti við útlönd á sinni
könnu.
Tollvörugeymslur vítt og breitt
um Kína eru sneisafullar af ólík-
legustu vörum sem brýn þörf er
fýrir í landinu en komast aldrei á
leiðarenda. r
Ríkissjónvarpið kínverska
gerði nýlega örlitlaaittekt á þessu
máli og sótti vöruskemmur
Peking-flugvallar heim. Þar
kenndi margra grasa. Um 2.700
hlutir og vörur biður þar eigenda
sinna, sumt af dótinu var á bóla-
kafi í átta ára gömlum ryk- og
óhreinindahaugum. Við nánari
skoðun kom í ljós að margt af
þessu voru hlutir sem kínversk
fyrirtæki og almenning vanhagar
mjög um. Þarna gaf að líta há-
tæknibúnað, varahluti í flugvélar
og lúxusvarnað af ýmsum teg-
undum og gerðum. -ks.
in verði heildarfækkun kjarnork-
uvopna, þannig að fækkun á
landi þýði ekki fjölgun í sjó.
Það var Weinberger, varna-
málaráðherra Bandaríkjanna,
sem kynnti þá hugmynd á fundi
varnarmálaráðherra NATO-
ríkjanna í Stafangri um miðjan
maí, að ef kjarnorkuvopnum á
meginlandi Evrópu yrði fækkað
þá kæmi sterklega til greina að
auka mjög kjarnorkuvopnabúr
NATO-ríkjanna í höfunum.
Norðmenn mótmæltu þessu
harðlega.
Mál þetta snertir okkur íslend-
inga mjög mikið því vígbúnaður í
Norður-Atlantshafi hefur aukist
mjög á undanförnum árum í sam-
ræmi við Lehman-áætlun banda-
ríska flotans; sóknaráætlun í
Norðurhöfum.
Utanríkisráðherrarnir hittast í
Reykjavík til að móta sameigin-
lega afstöðu ríkja Atlantshafs-
bandalagsins til tillagna Sovét-
manna í Genf um útrýmingu
meðaldrægra kjarnorkuflauga í
Evrópu og fækkun eða útrým-
ingu skammdrægra flauga.
Tyrkneski utanríkisráðherr-
ann kom í gær og er búist við að
flestir hinir komi í dag. Fundur-
inn hefst á fimmtudag og honum
líkur á föstudag.
-Sáf
NA TO-fundurinn
Bændahöllin
í herkví
Geypilegur viðbúnaður er af
hálfu lögreglunnar vegna
fundar utanríkisráðherra Atl-
antshafsbandalagsins í Reykja-
vík. Bændahöllin var rýmd í gær
og nánasta umhverfi hennar sem í
herkví, einsog einn lögreglumað-
ur orðaði það.
Að sögn Bjarka Elíassonar,
yfirlögregluþjóns, verður á sjötta
hundrað manns við gæslu á með-
an á fundinum stendur og allt til-
tækt lögreglulið til taks ef á þarf
að halda. Þeir lögregluþjónar
sem voru komnir í sumarleyfi en
enn staddir á landinu voru kallað-
ir aftur til skyldustarfa og auk
þess nýtur lögreglan í Reykjavík
fulltingis lögregluþjóna hvaðan-
æva af landinu. Þá koma á þriðja
hundrað hjálparsveitarmenn til
aðstoðar lögreglunni. -RK
Stjórnarmyndun
Munnleg próf í dag
Ágreiningsmál á dagskrána eftir viku viðrœður
r
Idag lýkur á Lindargötunni því
sem umboðsmaðurinn Jón
Baldvin Hannibalsson kallaði í
gær yfirferð námsefnis og upp-
lestrarfrí, og taka þá við raun-
verulegar viðræður, eða
„munnleg próf“ þarsem reynir á
hvort forystumenn flokkanna
þfiggja ætla sér saman í stjórn
eða ekki.
Undirnefndir um húsnæðismál
og ríkisfjármál skiluðu af sér til
viðræðunefndanna í gær, en
munu ekki hafa lagt fram eigin-
legar lausnir ágreiningsmála
flokkanna á þessum sviðum.
Undirnefnd um landbúnaðarmál
hóf hinsvegar fyrst störf í fyrra-
dag. Þá funduðu þingflokkar
krata og Framsóknar í gær, en
viðræðunefndirnar komu saman
um morguninn og síðdegis.
Viðræðumenn telja að „yfir-
ferð“ um málaflokka ljúki um
eða eftir hádegi í dag með
menntamálum og kemur þá að
lausn ágreiningsmála.
Viðræðumenn Þjóðviljans í
gær töldu að þótt vel hefði verið
fundað um hvítasunnuhelgina
hefði staðan í rauninni ekki
breyst, og enn óljóst hvort Fram-
sóknarflokkurinn tekur þátt í við-
ræðunum með stjórnarsamstarf
fyrir augum. Jón Baldvin sæki
fast að stjórn verði mynduð, hafi
gefið eftir í ýmsum málum, og í
sumum svo að ýmsum þing-
mönnum hans ógni, en Framsókn
vilji bíða aukinna tilslakana áður
en bónorði er tekið. Sjálfstæðis-
menn munu nokkuð einhuga um
samstarf, þótt þeim sé vandi á
höndum um skiptingu ráðuneyta
og ráðherrastóla. -m
Hœkkanir
Verðbólgan í 27%
Hækkun framfærsluvísitöl-
unnar í maimánuði um 2% svar-
ar til að verðbólgan sé i dag á
ársgrundveili tæp 27%. Þetta er
mesta hækkun á framfærsluvísi-
tölu um langt skeið, en í maímán-
uði varð mikil hækkun bæði á op-
inberri þjónustu, landbúnaðar-
vörum og áfengi.
„Þessar tölur eru alvarleg
áminning og ég vænti þess að þeir
menn sem nú standa í stjórnar-
myndunarviðræðum taki þær til
athugunar,” sagði Ásmundur
Stefánsson forseti Alþýðusamb-
andsins í gær.
Af hækkuninni í maí stafaði
0,7% af hækkun á vöru og þjón-
ustu, 0,4% af matvöruhækkun,
0,3% af bensínhækkun og 0,5%
af hækkun áfengis og tóbaks.
->g-