Þjóðviljinn - 10.06.1987, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Varaöld í Valhöll
Einherjar Valhallar bárust á banaspjót dag
hvern og vógu í bróðerni hver annan. Að bar-
daga loknum risu þeir upp að morgni, og það
var einsog ekkert hefði í skorist. Sárin gréru
undraskjótt og áfram var barist.
í Valhöll nútímans að Háaleitisbraut vakna
menn að morgni mikils ósigurs og líkt og með
Einherjum hins eineygða foringja er einsog ekk-
ert hafi heldur í skorist. Áfram er barist á bak við
tjöldin.
En ólíkt Einherjum gróa sárin ekki. Bróðernið
er flátt og ósigurinn gleymist ekki, þó forysta
Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðið láti eins-
og hann hafi aldrei orðið.
Morgunblaðið, alvarlegasta fréttablað í
heimi, er komið í gamalkunnan búning Pröv-
duáranna. Það keppist við að telja sjálfu sér og
flokksmönnum trú um að í rauninni hafi ekki
orðið neinn ósigur.
Hvar, að minnsta kosti, er hægt að sjá á
síðum blaðsins að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
goldið afhroð? Hvar er þar að finna úttekt á
orsökum hins mikla taps? Hvar eru hin snöfur-
mannlegu viðtöl, þar sem Þorsteinn Pálsson og
Friðrik Sophusson eru spurðir krefjandi spurn-
inga af hinum pólitísku rannsóknarblaða-
mönnum málgagnsins?
Hvergi! - Morgunblaðið þegir. Tapið er tabú.
Flokksforystan er í losti. Fyrir bragðið ráfar hún
einmana einsog vönkuð sauðkind um hraunið.
Blóðrisa og rugluð. Án jarðsambands, án
tengsla við fólk og flokk.
Hræðslan og kjarkleysið hjá forystu Sjálf-
stæðisflokksins kom best fram, þegar ólgan
meðal óbreyttra flokksmanna knúði hana að
lokum til aðgerða. Þá ákvað hún að skipa nefnd
til að meta stöðu flokksins og rannsaka orsakir
ósigursins.
Nefndarskipanin var hins vegar ekkert annað
en hrein og klár sýndarmennska. Sjónarspil
sviðsett til að friða sáróánægða flokksmenn.
Aðferðin hefði getað verið fengin úr ádeiluverk-
um andófsmanna austantjalds: í nefndina voru
nefnilega aðeins skipaðir venslamenn Þor-
steins Pálssonar, eða aðrir honum hand-
gengnir. Það hefði þótt saga til næsta bæjar
hefðu vinstri menn leyft sér önnur eins vinnu-
brögð.
Þannig tryggði forystan sér fyrirfram, að nið-
urstöður „úttektarinnar" yrðu henni ekki óhag-
stæðar. Er þessi ótti við raunveruleikann ekki
næg sönnun fyrir þeim trúnaðarbresti sem hef-
ur orðið á milli forystu Sjálfstæðisflokksins og
almennra flokksmanna?
Forysta Sjálfstæðisflokksins ætlar ekki að
axla þá pólitísku ábyrgð sem fylgir ósigri af þeirri
stærð, sem Sjálfstæðisflokkurinn galt. Hún ætl-
ar að lafa áfram. Kaupa sér framhaldslíf með
ráðherrastólum, hvað sem þeir kosta.
En hvað segja almennir Sjálfstæðismenn?
Gott dæmi um afstöðu þeirra til forystunnar gaf
að líta í blaðinu Vogar, sem Sjálfstæðismenn í
Kópavogi gáfu út og dreifðu í hvert hús fyrir
skömmu.
Þar ritar Jón Magnússon, lögmaður, áhrifa-
mikla grein en hann er einn af yngri áhrifa-
mönnum í Sjálfstæðisflokknum. Að hans dómi
voru ástæðurnarfyrirslæmu gengi Sjálfstæðis-
flokksins nokkuð augljósar. „Pólitísk
skammsýni, klaufaskapur og mistök síðustu
mánuði fyrir kosningarnar," segir Jón.
Hann tínir til fjölmörg dæmi, og sparar ekki hin
breiðu spjótin. Davíð Oddssyni eru látnar ríða
gildar eyrnafíkjur og klúður hans í Borgarspítal-
amálinu er sérstaklega tínt til. Jafnframt nefnir
Jón kádiljákinn fræga, en í augum heillar borgar
varð hann að spegilgljáandi tákni um fordild og
duttlunga valdsins. Og engum blandast hugur
um, að Jón á við Davíð sérstaklega, þegar hann
segir ásakandi: „Nokkrirforystumenn flokksins
leiddu kosningarnar hjá sér, þegar mest á reið
að enginn lægi á liði sínu.“
Jón beinir geiri sínum að Sverri Hermanns-
syni, og telur málefni Lánasjóðs námsmanna,
og meðhöndlun Sverris á brottrekstri fræðslu-
stjórans fyrir norðan meðal orsaka kosningaó-
sigursins.
Richard Björgvinsson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins er svipaðs sinnis. Honum verð-
ur tíðrætt um „djúpstæða óánægju með forystu
flokksins meðal flokksmanna". Áð sögn hans
stefna „hinn almenni flokksmaður og forysta
flokksins... sitt í hvora áttina".
í sama blaði er jafnframt birt lítt dulin gagnrýni
Friðriks Sophussonar varaformanns og Matthí-
asar Á. Mathiesen, utanríkisráðherra, á stefnu
Þorsteins formanns gagnvart Borgaraflokkn-
um. Þannig sætir formaðurinn ekki einungis
gagnrýni almennra flokksmanna heldur einnig
annarra forystumanna.
í Valhöllu Einherja ríkti Óðinn og hafði ekki
sjón nema á öðru. I Valhöllu Sjálfstæðisflokks-
ins ríkja önnur goð. Miðað við þeirra sýn á heim-
inn teldist Óðinn sennilega eygður vel...
-ÖS
KLIPPT OG SKORIÐ
Óstjórnin
staðfest
Það er ekki oft sem klipparar
munda skærin eftir að hafa rennt í
gegnum Hagtölur mánaðarins,
sem er mánaðarrit gefið út af
Hagfræðideild Seðlabankans, en
það var óneitanlega fróðleg lesn-
ing að renna í gegnum leiðara ný-
útkominna hagtalna fyrir sl. maí-
mánuð.
Yfirskrift leiðarans eða
inngangsgreinarinnar er: Ríkis-
fjármál 1986 og horfur 1987. Þar
er ekki að finna þá glansmynd af
stöðu ríkisfjármála sem Þor-
steinn Pálsson og reyndar
Steingrímur Hermannsson
reyndu að mála upp um alla veggi
í nýliðinni kosningabaráttu. Um-
fjöllunin í Hagtölum mánaðarins
staðfestir á allan máta það ó-
fremdarástand sem ríkir í ríkis-
fjármálum eftir fjögurra ára
óstjórn þeirra Alberts og Þor-
steins og hefur greinilega sigið
enn frekar á verri veginn eftir að
Þorsteinn tók við stjórn fjármála
í landinu, eða svo vitnað sé beint í
fræðirit Seðlabankans:
„Verulegur halli varð á rekstri
A-hluta ríkissjóðs á síðasta ári,
annað uppgangsárið í röð. Inn-
heimtar tekjur urðu 38.2
milljarðar króna samkvœmt
bráðabirgðauppgjöri, en greidd
útgjöld 40.1 milljarður. Hallinn
varð því 1.9 milljarðar króna,sem
er 1.3% af vergri þjóðarfram-
leiðslu ársins. Árið á undan var
hallinn 2.4. milljarðar króna, eða
2.3% af þjóðarframleiðslu. “
Útkoman
enn verri
En hér er ekki öll sagan sögð .
Viðskilnaður þeirra fyrrum flokksbræðra, Alberts og Þorsteins í ríkisfjármálum
er slíkur að hann verður eitt stærsta úrlausnarefni komandi stjórnar.
því eins og Seðlabankamenn
benda á þá bendir allt til þess að
endanlegur ríkisreikningur sýni
enn meiri halla en áðurnefndar
bráðabirgðatölur.
„Pessu veldur yfirtaka ríkisins á
skuldum Kröfluvirkjunar vegna
sölu hennar til Landsvirkjunar,
og yfirtaka á ýmsum skuldum
Rafmagnsveitna ríkisins og Orku-
bús Vestfjarða, sem svipt voru
tekjum af verðjöfnunargjaldi af
raforku með efnahagsaðgerðun-
um í mars 1986. Alls er líklegt að
þessi yfirtaka nemi um 4.5.
milljörðum króna. Þarsem engar
greiðslur eiga sér stað við yfir-
tökuna kemur hún ekki fram í
þeim greiðslugrunnsyfirlitum sem
hér eru sýnd, en veldur aukinni
vaxta- og afborganabyrði á kom-
andi árum. ”
Breyttar
yfirlýsingar
Það er kannski ekki að undra
þótt þeir stjórnarherrar, Þor-
steinn og Steingrímur hafi báðir
nokkrum dögum eftir kosningar,
þegar stjórnarmyndunartilraunir
hófust, byrjað að lýsa því yfir að
staða ríkissjóðs væri slæm um
þessar mundir og því ekki úr
miklu að spila til að hækka lægstu
launin, bæta aðstöðu aldraðra og
fatlaðra, koma á auknum jöfnuði
og yfir höfuð bæta kjör og rétt-
indi alþýðu þessa lands. Nei, þá
var í lagi að viðurkenna vandann
sem allir vissu fyrir að væri stór en
kannski hafði fæsta grunað eða
viljað trúa því að hann væri jafn
mikill og virðist vera að koma í
ljós þessa dagana.
Enn versnar
staðan
Vegna stjórnarmyndunarvið-
ræðna var lögð fram fyrir
skömmu endurskoðuð áætlun um
fjármál ríkissjóðs á þessu ári.
Þessi áætlun staðfestir eins og
segir orðrétt í leiðara Hagtalna
mánaðarins, „að líklega verður
nokkru meiri halli á ríkissjóði í ár
en í fyrra. Útgjöld eru nú áœtluð
48,9-49.1 milljarðar króna, en
voru á fjárlögum talinn 45.9
milljarðar. Tekjuáœtlun er nú
45.2-45.6 milljarðar, miðað við
43 milljarða skv. fjárlögum.
Áœtlaður halli er því 3.4-3.7
milljarðar króna, en var 2.8
milljarðar á fjárlögum. Ráðgerð-
ar lánveitingar hafa verið hœkk-
aðar um 0.5 milljarða króna
vegna flugstöðvarinnar á Kefla-
víkurflugvelli, búháttabreytinga
og útflutnings á osti. Þá er gert ráð
fyrir að 0.8 milljarðar af hlutafjár-
framlagi ríkissjóðs til Útvegs-
bankans verði reitt út á þessu ári.
Loks er gert ráð fyrir auknu út-
streymi á skammtímaliðum sem
nemur 0.4 milljörðum, m.a.
vegna greiðslu á framlagi tii Bygg-
ingarsjóðs ríkisins, sem frestað
var á fyrra ári, hrein lánsfjárþörf
ríkisins stefnir því í 4.9-5.2
milljarða króna, eða 2.7-2.9% af
þjóðarframleiðslu í stað 1.6%
skv. fjárlögum".
Viðskiln-
aðurinn
erfiðastur
Þetta eru ekki glæsilegar tölur
og ekki að undra þó þær öllu öðru
fremur standi í kokinu á þeim
þremenningum sem nú reyna
hvað mest að mynda nýja ríkis-
stjórn. Það kemur líka vel á
vondan að Þorsteinn fái sjálfur að
kljást við eigin viðskilnað. Hitt er
að vísu áhyggjuefni fyrir allt
launafólk að forysta Alþýðu-
flokksins skuli vera svo kappsöm
að komast í bólið með íhaldi og
framsókn, að sá raunverulegi
uppskurður sem þarf að eiga sér
stað í ríkisfjármálum og sú stefn-
ubreyting sem verður að eiga sér
stað í skattheimtu, sem tryggir að
gróðaöflin og musteriskóngar og
nýríkir Nonnar komist ekki
lengur undan því að greiða skatt
til samneyslunnar af sínum
gróða, virðist ansi fjarlægur sam-
kvæmt þeim málefnagrundvelli
sem þríhjólasstjórn Jóns Bald-
vins er að leggja drögin að þessa
dagana.
Launafólkið
borgar
Hættan er því sú að það verði
launafólk sem rétt eina ferðina
fær að borga brúsann fyrir ó-
stjórnartímabil Sjálfstæðis-
flokksins í ríkisfjármálum.
Það verður glæsilegur málefn-
asamningur eða hitt þó heldur,
sem þremenningarnir koma
hugsanlega til með að veifa á
þj óðhátíðardaginn, þar sem aðal-
inntakið verður að þjóðin „öll“
verði nú að standa saman í því
minnsta kosti næstu þrjú árin að
rétta við hallann á ríkissjóði og
reyna að koma ríkisfjármálum í
svipað fyrirmyndarform og var
þegar Alþýðubandalagið skilaði
af sér vel stöndugum ríkissjóði
vorið 1983. - lg.
þfÓÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Utgefandl: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur
Skarphóðinsson.
Fróttastjórl: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: GarðarGuðjónsson, Guðmundur RúnarHeiðarsson,
Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjörnsson, IngunnÁsdísardóttir,
Kristín Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Beramann Eiðsson
(íþróttir), Magnús H. Gíslason, MörðurÁmason, (JlafurGíslason,
RagnarKarlsson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, StefánÁsgrímsson, Vil-
borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, HildurFinnsdóttir.
Ljóamyndarar: EinarÓlason, Sigurður MarHalldórsson.
Utlltateiknarar: Sœvar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrlfatofu8tjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson.
Auglýslngastjórl: Sigríður Hanna Sigurtjörnsdóttir.
Auglýsingar: Baldur Jónasson, Olga Clausen, Guðmunda Kristins-
dóttir.
Sfmvarsla: Katrín Anna Lund, SigríðurKristjánsdóttir.
Húsmóðir: Soffía Björgúlfsdóttir.
Bílatjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbrelðslu-og afgrelðslustjórl: HörðurOddfríðarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjörnsson.
Útkeyrsla, afgrelðsla, ritstjórn:
Síðumúla6, Reykjavík, sími681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setnlng: Prentsmlðja Þjóðvlljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verö f lausasölu: 55 kr.
Helgarblöð:60kr.
Áskriftarverö á mónuði: 550 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 10. júní 1987