Þjóðviljinn - 10.06.1987, Qupperneq 9
Kargan
strýki
Kanaher
Um Keflavíkurgöngu á Hvítasunnu
Veðrið var gott, stemmningin
skemmtileg, þátttakan ágæt. Allt
þetta gerði það að verkum að
Keflavíkurgangan um hvíta-
sunnuhelgina heppnaðist vel og
um það eru eflaust flestir þátttak-
enda á einu máli.
Um 300 manns voru mættir við
hliðið að Keflavíkurflugvelli við
upphaf göngunnar á laugardag-
inn. Að sögn reyndra þykir það
góð byrjun og betri en oft áður.
Með hækkandi sól tíndust smám
saman fleiri og fleiri í gönguna,
en þó færri en menn eiga að venj-
ast. Skýringuna má sjálfsagt að
einhverju leyti rekja til þess að
hvítasunnan er önnur mesta ferð-
ahelgi sumarsins. Við Strauminn
var fjöldi göngumanna orðinn
um 400 og í Kópavoginum 700.
Pegar gangan náði á Torgið hafði
bæst hressilega í hópinn, en þá
taldi fjöldinn um tvö þúsund
manns.
Þótt vissulega hefði verið
ánægjulegt að sjá fleiri mæta í
gönguna þegar þörfin á viðnámi
gegn hernaðarframkvæmdum og
vígbúnaði hefur sjaldan verið
meiri, þá skiptir fjöldinn ekki
megin máli. Éf stemmningin er
fyrir hendi þá hefur aðgerðin
heppnast. í göngunni á laugardag
var stemnningin góð og sumir
sögðu miklu betri en oft áður.
Hún var skemmtileg og hún var
létt og í loftinu lá sú sannfæring
að stemmningin væri fyrirboði
fjölmennari Keflavíkurgöngu í
næsta skipti.
Eins og venjulega var fólk á
öllum aldri í göngunni, en það
sem vakti athygli var óvenju góð
þátttaka ungu kynslóðarinnar.
Allir eru sammála um að það er
góðs vísir.
Fjölmiðlar og
Keflavíkurgangan
Óánægju gætti með fréttaflutn-
ing ríkisfjölmiðla af göngunni
meðal þeirra herstöðvaandstæð-
inga sem fylgdust með fréttum af
göngunni. Að sögn þeirra voru
göngunni gert miklu betri skil í
Bylgjunni og Stjörnunni. Þá þyk-
ir það fremur slæm frétta-
mennska í Sjónvarpinu á laugar-
dagskvöldið að segja gönguna
komna til Reykjavíkur þegar hún
var á milli Hafnarfjarðar og Kóp-
avogs og að segja göngumenn um
400 þegar þeir voru á umræddu
svæði að nálgast 700.
í fyrsta skipti í sögu Keflavík-
urgöngunnar hafa herstöðva-
andstæðingar haft frjálsar hendur
með orðalag á auglýsingum á
göngunni í útvarpi, og er þar átt
við aðrar stöðvar en Ríkisútvarp-
ið. Að sjálfsögðu var tækifærið
notað og gangan auglýst undir
einum af meginkröfum hennar
ísland úr NATO - herinn burt,
en við frelsið losnaði lika ímynd-
unaraflið úr viðjum. Daginn sem
gangan var heyrðust til dæmis
eftirfarandi auglýsingar á Bylg-
junni: Hermann á Miðnesheiði!
Hermann á Miðnesheiði! Komdu
heim strax, Sam frændi er veikur.
Amma. Asamt þessari auglýs-
ingu var þessi lesin: íslenska
þjóð. Vertu með því vorið kallar
á þig. Herstöðvaandstæðingar.
Tilraun var gerð til þess að fá
eftirfarandi auglýsingu birta í
Ríkisútvarpinu: Veðurfréttir úr
Keflavíkurgöngu: Nú andar suðr-
ið sæla vindum þýðum. Bundið
mál, sögðu þeir á Ríkisútvarpinu
og auglýsingin fékkst ekki birt.
Þessi regla útilokar víst mögu-
leikann á því að eftirfarandi
hringhenda verði lesin upp í
auglýsingatíma Ríkisútvarpsins,
en því er ekki að neita að betri
auglýsing verður vart samin.
Hringhendan varð til á skagfirsk-
um munni í Keflavíkurgöngunni
á laugardaginn og er hún til
marks um þann baráttuanda sem
einkenndi stemmninguna:
Friður ríki um Frón og ver,
frelsi um brík og dranga.
Kargan strýki Kanaher
Keflavíkurganga.
-K.Ól.
Ingibjörg Haraldsdóttir, hinn galvaski formaður Samtaka herstöðvaandstæðinga, reisir merkið...
Þótt vestfirsk fjöll hæfi best gönguskóm Guðrúnar Guðvarðardóttur er Keflavíkurspottanum ekki sleppt. Við hlið
Guðrúnar er Soffía Guðmundsdóttir og fjær Guðrún Þórðardóttir.
Æi, skyldi hún springa áður
en ég kemst heim?!Hin
óhjákvæmilega fylgikona
göngumannsins, blaðran á
tánni, tekin til gaumgæfi-
legrar íhugunar.
Teygt úr göngulúnum lim-
um í Hafnarfirði og fæturnir
baðaðir í svalandi grasinu.
ÞJÓÐVIUINN Miðvikudagur 10. júní 1987
Mlðvikudagur 10. júní 1987 ÞJÓÐVIUINN