Þjóðviljinn - 10.06.1987, Síða 14
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Akureyri
Aðalfundi enn frestað
Aðalfundi Alþýðubandalagsins á Akureyri hefur enn verið frestað af óvið-
ráðanlegum ástæðum. Aðalfundurinn er nú boðaður fimmtudaginn 25. júní
í Lárusarhúsi kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál.
Allir félagar hvattir til að mæta.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Reykjavík
Aðalfundur ABR
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður haldinn fimmtudaginn
11. júní n.k. í Miðgarði, Hverfisgötu 105 og hefst kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf. Dagskrá nánar auglýst síðar.
Stjórn ABR.
ABR
Kosningahappdrættið
Dregið var 1. júní, í kosningahapþdrætti ABR. Vinningsnúmer hefur verið
innsiglað og verður birt þegar fullnaðarskil hafa borist en þó ekki síðar en
15.júnínk.
Þeir sem eiga eftir að skila eru beðnir að gera það strax.
Alþýðubandalagið
Miðstjórnarfundur
Miðstjórn Alþýðubandalagsins heldur fund 26.-28. júní n.k. í Miögarði,
Hverfisgötu 105, Reykjavík.
Dagskrá: Flokkurinn og framtíðin.
Föstudagur 26. júní
Kl. 20.00 Framsöguræður
Laugardagur 27. júní
Kl. 10.00-15.00 Starfshópar
Kl. 15.30 Skil starfshópa. Almennar umræður.
Sunnudagur 28. júní
Kl. 10.00 Almennar umræður. Niðurstöður. Önnur mál.
Stefnt er að fundarslitum fyrir kl. 17.00 á sunnudag.
Guðni
Steinar
Gísli
Alþýðubandalagið Reykjavík
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður haldinn
fimmtudagskvöldið 11. júní kl. 20.30 að Miðgarði, Hverfisgötu 105.
Dagskrá: 1) Skýrsla stjórnar: Guðni A. Jóhannesson formaður ABR. 2)
Reikningar ársins 1986 og tillaga um árgjald: Steinar Harðarson gjaldkeri
ABR. 3) Umræður og afgreiðsla. 3) Tillaga kjörnefndar um næstu stjórn og
endurskoðendur ABR og kosning stjórnar. 5) Varmalandsnefndin - Hlut-
verk og starfshættir: Gísli Gunnarsson annar fulltrúi ABR í nefndinni. Um-
ræður. 6) Önnur mál.
Tillaga uppstillingarnefndar og endurskoðaðir reikningar liggja frammi á
skrifstofu félagsins.
Stjórn ABR
Alþýðubandalagið Reykjavík
Aðalfundur 6. deildar
Aðalfundur 6. deildar (Árbær og Grafarvogur) verður haldinn i dag miðviku-
daqinn 10. júní í flokksmiðstöðinni Hverfisgötu 105 kl. 17.30
a Stjórnin
ABR
Borgarmálaráð
Fundur verður í borgarmálaráði ABR í dag, miðvikudag að Hverfisgötu 105
kl. 18.00
Dagskrá: Umferðarmál.
Fundurinn er opinn öllum félögum ABR.
Staða forstöðumanns
við sálfræðideild skóla er laus til umsóknar frá og
með 1. ágúst næstkomandi. Sálfræðimenntun
áskilin. Þjálfun og starfsreynsla við greiningu og
meðferð og jafnframt þekking í skólastarfi
æskileg.
Einnig er laus staða sérfræðings (sálfræðings,
félagsráðgjafa, eða sérkennara) frá 1. septemb-
er næstkomandi.
Umsóknir berist til Fræðsluskrifstofu Reykjavík-
urumdæmis Tjarnargötu 20, 101 Reykjavík fyrir
1. júlí næstkomandi.
Upplýsingar í síma 621550.
Fræðslustjóri
FRÁ LESENPUM
Gámaútflutningurinn
Frystihúsin standa auð
Hver verður framtíðin í sjávarútvegi og fiskvinnslu hérlendis ef gámaútflutning-
ur á ferskfiski heldur áfram sem horfir?
Ennþá heldur gámaútflutningur á
fiski áfram til Bretlands, Þýska-
lands og víðar eins og ekkert hafi
í skorist. Menn láta sér ekki segj-
ast, að flytja fiskinn óunninn úr
landi, til að eyðileggja hina hefð-
bundnu markaði okkar, sem með
ærnum kostnaði hafa verið
byggðir upp í gegnum tíðina og
hafa haldið uppi tryggri vinnu í
landinu.
Með þessu athæfi hafa útgerð-
armenn og sjómenn hagað sér
eins og ránfuglar. Frystihúsin er
vinna aflann á hina erlendu
markaði hafa kvartað undan hrá-
efnisleysi. Á þetta að halda svona
áfram að ýmsum smákóngum í
þjóðfélaginu haldist það uppi að
leika þennan ljóta leik að rándýr
frystihús víðs vegar um landið séu
látin standa auð á sama tíma og
þessir gráðugu fiskikóngar og
hvítflibbaburgeisar eru eða flytja
lífsbjörgina úr landi og flytja inn
atvinnuleysi? Þessir gámasjeffar
eru með athæfi sínu að afla keppi-
nautum okkar í fiskvinnslu er-
lendis hráefni til fullvinnslu,
svona er málið hreint og klárt.
í Þjóðviljanum nýlega birtist
grein um þessi mál þar sem kom-
ist var svo að orði að fiskvinnslan
í landinu væri uggandi um sinn
hag. Þar segir: 1985 voru flutt út
35 þúsund tonn af óunnum fiski, í
fyrra 84 þúsund tonn, 140%
aukning á milli ára. Forsvars-
menn SH segja: Skefjalaus út-
flutningur leiðir til lægra fisk-
verðs. Ekki hlutverk íslenskra
sjómanna að afla keppinautum
okkar í fiskvinnslu erlendis hrá-
efnis til fuilvinnslu. Þarna er
komið að kjarnanum, það á sem
sagt að gera þúsundir manna í
Iandinu atvinnulausar með þessu
háttalagi, ef þessi smákóngar fá
að ráða, hvort sem þeir koma
grátandi í sjónvarpið að skýra
mál sín eða eru skellandi hurðum
í kerfinu. (Meira seinna.).
P. Hildiþórs
Öryggi
Sjúkrapúða
í bílana
Sjúkrapúði í hvern bfl - hljóm-
ar kjörorð landsátaks Hjálpar-
sveita skáta, sem stendur yfir um
helgina. Jón Halldór Jónasson,
hjá Landssambandi Hjálpar-
sveita skáta, segir að á annað þús-
und félaga í hjálparsveitunum
verð á ferðinni alla helgina og
bjóði mönnum til kaups sjúkra-
púða, sem hefur að geyma öll
nauðsynlegustu hjálpargögn við
fyrstu aðstoð ef slys ber að hönd-
um.
Sjúkrapúðinn er hinn vandað-
isti að allri gerð og er frá öllu
gengið þannig að leikmaður á að
geta á auðveldan og fljótlegan
hátt gripið til hans þegar slys ber
að höndum. Með pokanum fylgja
íslenskar leiðbeiningar og skynd-
ihjálparbók.
„Tilgangurinn með þessu
landsátaki er tvíþættur: annars
vegar að bæta ástand sjúkra-
gagna í bílum landsmanna og hins
vegar til fjáröflunar fyrir hjálpar-
sveitirnar," sagði Jón Halldór.
-R
tff Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Hita-
veitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í eftirfar-
andi:
1) „Nesjavallaæð, vegagerð og undirstöður, 2.
áfangi" yfir Mosfellsheiði.
2) „Nesjavallaæð, vegagerð og undirstöður, 3.
áfangi“ yfir Dyrafjöll milli Sköflungs og Nesja-
valla.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skila-
tryggingu fyrir hvort verk fyrir sig.
Hitaveita Reykjavíkur býður væntanlegum
bjóðendum í skoðunarferð á vinnusvæðið
föstudaginn 12. júní n.k.
Lagt verður af stað frá bækistöð Hitaveitunn-
ar, Grensásvegi 1, kl. 13.15. Þátttaka óskast
tilkynnt Hitaveitunni í síma 82400 fyrir kl.
16.00 fimmtudaginn 11. júní n.k.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Innkaupastofn-
unarinnar, miðvikudaginn 24. júní n.k., kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Bifreiðastjórar
Viljum ráða nú þegar bifreiðastjóra til aksturs
strætisvagna og á vakt.
Upplýsingar í símum 20720 og 13792.
Landleiðir hf.
Skógarhiíð 10
Reykjavík
18 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN