Þjóðviljinn - 11.06.1987, Side 12
FLÓAMARKAÐURINN
Lada 1500 árg. ’77
í góðu ásigkomulagi til sölu. Selst
ódýrt. Upplýsingar I síma 33185 frá
kl. 15-18.
Telpureiðhjól
Til sölu telpureiðhjól sem þarfnast
lagfæringar. Verð ca. 5000 kr. Upp-
lýsingar í síma 16997 á kvöldin.
Barnapössun - vesturbær
Óska eftir barnapíu til að passa eins
árs stelpu annað slagið. Upplýsing-
ar í síma 28257.
Fæst gefins
4 sæta sófi í þokkalegu standi fæst
gefins. Upplýsingar í síma 37625.
Þvottavél til sölu
Philco til sölu
Philco, ca. 10 ára. Verð 5-6000 kr.
Upplýsingar í síma 33766.
Gamlir seðlar
Nokkrir ónotaðir krónuseðlar frá
1941 til sölu. Sími 32260 og 17482.
Barnavagn
Til sölu fallegur og vel með farinn
blár barnavagn, einnig ódýr svala-
vagn. Sími 17482.
Til sölu
Eldhúsborð og 4 stólar úr beyki til
sölu. Upplýsingarísíma 16671 eftir
kl. 20.
Óskast keypt
Óska eftir að kaupa hvíta handlaug
í borði. Upplýsingar í síma 16671
eftir kl. 20.
Til sölu
Gamalt skrifborð til sölu (tilboð)
Einnig rúm fyrir 6-12 ára á kr. 500.
Upplýsingar í síma 37573 eftir há-
degi.
Eldavél óskast
Lítil eldavél eða kubbur óskast.
Uppl. í síma 14807.
Til sölu
skiptiborð
með 4 skúffum á kr. 3.500 (kostar
nýtt 5.900). Systkinasæti á vagn kr.
1.500 og vagga. Uppl. í síma
19239.
Til sölu
handunnar rússneskar tehettur og
matrúskur í miklu úrvali. Póstkröfu-
þjónusta. Uppl. í síma 19239.
íbúð óskast
Ung hjón með 6 ára barn óska eftir
3 herbergja íbúð. Vinnum bæði hjá
Flugleiðum og á ferðaskrifstofu.
Reglusemi heítið. Uppl. í síma
79319 eftir kl. 18.
íbúð í 3 vikur
Ensk hjón með lítið barn, sem vilja
eyða sumarleyfinu sínu á (slandi,
óska eftir að leigja litla íbúð í 3 vikur í
kringum mánaðamótin júlí-ágúst.
Er ekki einhver að fara í sumarfrí
um það leyti og væri til í að leigja
íbúðina á meðan? Reglusamt fólk
sem gengur mjög vel um. Vinsam-
legast hafið samband í síma 75875.
Óska eftir að kaupa
notaðan 2 manna svefnsófa. Á
sama stað er til sölu 2 metra breiður
fataskápur með rennihurðum.
Uppl. í síma 75875.
VW Golf '79
til sölu. Þarfnast lagfæringar. Verð
ca. kr. 40.000. Uppl. í síma 24362.
Atvinna óskast
Fullorðin kona óskar eftir vinnu.
Margt kemurtil greina. Uppl. í síma
16502.
Óskast keypt
Ódýr stereótæki og litsjónvarp ósk-
ast keypt. Mega vera biluð. Hringið í
sima 35368, helst fyrir hádegi.
Wartburg árg. ’80 til sölu
skoðaður '87. Kúpling og bremsu-
kerfi að mestu nýtt. Góður bíll fyrir
réttan mann. Verð kr. 25.000. Á
sama stað er til sölu drengjahjol á
kr. 2.000. Uppl. í síma 79286.
Jeppakerra til sölu
Til sölu góð jeppakerra. Uppl. í síma
46218 eftirkl. 18.
íbúð óskast
Ungur, reglusamur maður óskar
eftir einstaklingsíbúö, nelst í gamla
miðbænum. Skilvísum greiðsium
heitið. Uppl. í síma 656332.
Bakburðarpokl
Óska eftir að kaupa bakpoka til að
bera smábarn í. Uppl. í síma
621068.
Til sölu
borðstofuborð úr tekki, sem nýtt,
stærð 150x90 cm. Selst ódýrt.
Uppl. í síma 681905.
íbúð í New York
2ja herbergja íbúð á miðri Manhatt-
an til leigu í júlí og ágúst. Uppl. gefur
Hallgrímur Helgason í síma 12005.
Karlmannsreiðhjól
10 gíra karlmannsreiðhjól til sölu.
Vel með farið. Uppl. gefur Hilmar í
síma 34868.
Hvolpur til sölu
3 mánaða hreinræktuð „Collie"
óskar eftir góðum eiganda. Fæst
fyrir 5000 kr. Uppl. í síma 673112
eftir kl. 19.
Til sölu
er vel með farinn svefnbekkur úr
beyki, 80x196 cm, með góðum
geymsluhólfum. Verð kr. 4.500.
Uppl. í síma 39222 eftir kl. 18.
íbúð óskast
Bráðvantar íbúð, er á götunni með
6 ára barn. Reglusemi og góðri um-
gengni heitið. Fyrirframgreiðsla ef
óskað er. Uppl. í síma 14338 milli kl.
17 og 20.
Kvenreiðhjól
til sölu. Barnastóll getur fylgt með.
Uppl. í síma 84398 e. kl. 17.
Borðstofuborð -
barnakerra
Stórt borðstofuborð og bekkir úr
furu til sölu. Barnakerra til sölu á
sama stað. Uppl. í síma 21428 eftir
kl. 18.
Heimilishjálp óskast
tvisvar í viku. Unglingsstúlka kemur
gil greina. Verður að vera vandvirk.
Uppl. í síma 21428 eftir kl. 18.
Sófasett óskast
Óska eftir að kaupa notað, mjög
ódýrt (eða fá gefins) sófasett og
þvottavél. Hringið í síma 75745.
Timbur
Notað timbur til sölu. Uppistöður
1"x6”. Upplýsingar í síma 42612.
Litsjónvarp
Til sölu 24” Telefunken litsjónvarp.
Er 6 ára gamalt og selst á 15.000 kr.
Uppl. gefur Birna í heimas. 18583
og vinnus. 687300.
Til sölu
drengjareiðhjól, Winther, svart með
rauðum brettum, fyrir 5-8 ára. Einn-
ig gulur Winther barnastóll á hjól.
Uppl. í síma 14060.
Siamskettlingar
til sölu. Uppl. í síma 19492.
Óska eftir
íbúð á leigu
Ungur og reglusamur bankastarfs-
maður óskar eftir að taka á leigu
íbúð í austurbænum, jafnvel í
skemmri tíma. Vinsamlegast hring-
ið í síma 31254.
Til leigu
Skrifstofuherbergi til leigu við
Brautarholt. Stærð 35 ferm. Verð
kr. 10.000 á mánuði. Uppl. á skrif-
stofutíma í síma 16016 og á kvöldin
í síma 73382.
Notað sófasett
til sölu. Uppl. í síma 34136 í dag og
næstu daga milli kl. 20 og 22.
Til sölu
Gamall tvöfaldur fataskápur til sölu.
Selst ódýrt. Uppl. i síma 681755.
Barnapössun -
Kópavogur
Er nokkur 12-14 ára stúlka í Kópa-
vogi (helst í austurbæ) sem vill
passa tvo litla stráka, 6 og 3 ára,
virka daga í 2 vikur frá 25. júní n.k.?
Vinsamlegast hringið í síma 40281
eftir kl. 17.
Til sölu
innlagt skrautborð (ítalskt), 4000 kr.
Innlögð innskotsborð (dönsk),
4000 kr. Indverskur skermur, út-
skorinn, 2000 kr. Indverskt smá-
borð 1000 kr. Smástóll úr eik, 1000
kr. Baðskápur úr málmi á vegg,
2000 kr. Skápklukka sem slær,
3000 kr. Uppl. I síma 42891.
Til sölu
Rúm-skápur og „stressless‘‘-stóll
með leðuráklæði og skemill á hálf-
virði. Uppl. í síma 34810 eftir há-
degi.
Einkamái
Ungan mann langar að eignast
kunningja eða vini 21 árs og uppúr.
Þeir sem hafa áhuga sendi svar
með mynd til auglýsingadeildar
Þjóðviljans merkt „U-2“ fyrir 20.
þ.m.
ERLENDAR FRÉTTIR
Oft skarst í odda með verkfallsmönnum og lögreglu hvítra. Á myndinni sést logandi járnbrautarvagn eftir slík átök í apríl.
Suður-Afríka
Veilcfallsmenn
enduiráðnir
Svartir flutningaverkamenn hrósuðu sigri eftir langa
og erfiða vinnudeilu
Skömmu fyrir helgina lauk
verkfalli þeldökkra starfs-
manna við hin ríkisreknu fyrir-
tæki í flutninga- og samgöngu-
þjónustu í Suður-Afríku sem
staðið hafði yfir í fulla þrjá mán-
uði. Verkfallsmenn kveðast hafa
unnið góðan sigur þar sem gengið
hafi verið að ýmsum meginkröf-
um en embættismenn í Pretóríu
reyna að gera sem minnst úr
ávinningi þeirra.
Verkfallið skall á eftir að ein-
um starfsmanna hafði verið vikið
úr starfi fyrir að draga um nokkr-
ar klukkustundir að skila yfir-
manni sínum upphæð sem sam-
svarar um 800 íslenskum krón-
um. Þegar verkfallinu lauk höfðu
fyrirtækin tapað 1200 miljónum
króna!
Flutningafyrirtækin þver-
skölluðust við að viðurkenna
Stéttarfélag járnbrauta- og hafn-
arverkamanna sem réttmætan
samningsaðila þótt þorri verfalls-
manna væri innan vébanda þess.
Þau voru hinsvegar reiðubúin að
semja við Verkalýðsfélag
blökkumanna en það hefur orð á
sér fyrir linkind í skiptum við
hvítu herraþjóðina.
Því gekk hvorki né rak og í apr-
fl, þegar öldur risu sem hæst, var
16000 starfsmönnum sagt upp
störfum. Verkfallið var farið að
hafa mjög alvarlegar afleiðingar í
för með sér fyrir atvinnulíf lands-
ins og svo fór að lokum að fyrir-
tækin sprungu á limminu.
Á föstudag féllust þau á að
ráða alla brottrekna verkamenn
til starfa á ný frá og með 15. júní
án þess að þeim verði á nokkurn
hátt gert að sæta kárínum. Enn-
fremur var fallist á þá kröfu ver-
fallsmanna að hörundsdökkir
starfsmenn verði fastráðnir eftir
tvö ár í starfi, líktog hvítir starfs-
bræður þeirra, og að blökku-
menn fái að kjósa sér trúnaðar-
menn úr eigin röðum.
Þótt flutningafyrirtækin hafi
ekki viðurkennt formlega rétt
Stéttarfélags járnbrauta- og hafn-
arverkamanna til að fara með
umboð fyrir svarta starfsmenn
sína þá blandast fáum hugur um
að félagið hafi unnið umtalsverð-
an áfangasigur eftir þessar mála-
lyktir. Flutningafyrirtækin lúta
stjórn mjög íhaldssamra manna
og það eitt að knýja fram endur-
ráðningu verfallsmanna er mjög
viðunandi endir þessarar löngu
og ströngu vinnudeilu. -ks.
Sri Lanka
Árásum á
tamíla hætt
Jaffnaborg ofstór bitifyrirstjórnarherinn. Athulathmudali
öryggisráðherra: Ekki hœgt að gera alla hluti í einu
Herinn á Sri Lanka hefur látið af
árásum á skæruliða tamíla á
Jaffnaskaga og kveðst stjórnin nú
reiðubúin til friðarviðræðna um
„þjóðernisvandamálið”.
öryggismálaráðherra lands-
ins, Lalith Athulathmudali, hef-
ur látið svo ummælt að stjórnar-
herinn muni ekki ráðast á Jaffna-
borg, en hún er höfuðvígi frelsis-
tígranna. „Landsvæði er hægt að
leggja undir sig en þar þarf þá líka
að tryggja yfirráð stjórnarinnar,
og við getum ekki gert allt í
einu,” sagði hann og þykja þessi
ummæli benda til að ekki vanti
ríkisstjórnina í Colombo viljann
til að ganga milli bols og höfuðs á
skæruliðum tamfla, en hafi ekki
bolmagn til þess.
„Frelsunaraðgerðir” ríkis-
stjórnarinnar stóðu í viku. Síð-
ustu vikuna í maí nánar til tekið. í
kjölfarið komu aðgerðir sem
voru smærri í sniðum og beindust
fyrst og fremst að Jaffnaborg.
Stjórnvöld á Indlandi mótmæltu
aðgerðum þessum og sögðu að
óbreyttir borgarar af tamflskum
uppruna hefðu látið lífið hundr-
uðum saman í árásum stjórnar-
innar á Sri Lanka, jafnframt því
sem hungursneyð hefði ríkt með-
al þeirra sem lifðu af.
Ríkisstjórnin á Sri Lanka held-
ur því fram að 47 óbreyttir borg-
arar hafi fallið í átökunum og vís-
ar öllum fullyrðingum um hung-
ursneyð á bug.
Fimmtíu milljónir tamfla búa í
fylkinu Tamil Nadu á Suður-
Indlandi og þarlend stjórnvöld
bökuðu sér reiði stjórnarinnar í
Colombo þegar þau vörpuðu
matvælum úr flugvélum til svelt-
andi tamfla á Jaffnaskaga.
Þeir sem þekkja til mála í höf-
uðborginni Colombo fullyrða að
indverska stjórnin hafi krafist
þess að herinn á Sri Lanka léti af
árásum sínum á tamíla og beri að
skoða nýtilkominn friðarvilja
ríkisstjórnar Sri Lanka í því ljósi.
Stjórnvöld á Sri Lanka halda
því fram að höfuðstöðvar frelsis-
tígranna séu í höfuðstað Tamil
Nadufylkis, Madras, og segja að
Indverjar verði því tortryggilegir
í sáttasemjarahlutverki sínu í
átökum sinhalesa og tamfla. Þá
hefur stjórnin fordæmt matvæla-
sendingar Indverja og segir að
með þeim hafi Indverjar lítilsvirt
fullveldi landsins.
Hátt í þrjú þúsund manns voru
handteknir í framsókn stjórnar-
hersins á Jaffnaskaga og fluttir í
fangbúðir í Galle fyrir sunnan
höfuðborgina Colombo. Brota-
brot af þessum hópi hefur nú ver-
ið sent til síns heima og er búist
við að fleirum verði sleppt næstu
daga.
HS
12 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Flmmtudagur 11. júní 1987
Aðalheimild: REUTER