Þjóðviljinn - 11.06.1987, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 11.06.1987, Blaðsíða 13
ERLENDAR FRETTIR Reykjavíkurfundurinn Fallast þeir á „tvöfalda núlllausn“? ✓ A fundi utanríkisráðherra NATO ríkja, sem hefsthér íReykjavíká morgun, verða afvopnunarmálefstá baugiog er gertráðfyrirþvíað tilboði Sovétmanna um eyðingu meðal- og skammdrœgra kjarnaflauga úr Evrópu verði tekið þrátt fyrir fyrirvara Vesturþjóðverja Eftir átta vikna umþóttunart- íma er komið að því að NAT- Ofélagar Bandarikjamanna opin- beri sameiginlega viðhorf sín til hugmynda risaveldanna um svo- nefnda „tvöfalda nulllausn", það er að segja um eyðingu allra meðal- og skammdrægra kjarn- aflauga úr Evrópu. Á ýmsu hefur gengið á stjórnarheimilum margra NATOríkja og um skeið leit út fyrir að samsteypustjórnin í Bonn myndi klofna um afstöðu- na til málsins þótt afvopnunar- andstæðingar hafi að síðustu fal- list á að veita tillögunni brautar- gengi með semingi og hálfum huga. En settu jafnframt skilyrði sem verið getur að hart verði deilt um í Reykjavík í dag og á morg- un. Framkvæmdastjóri Atlants- hafsbandalagsins, Carrington lá- varður, sagði í gær að ríkisstjórn- ir aðildarlandanna „ættu ekki langt í land“ með að koma sér saman um stuðning við afvopn- unartillögurnar. Og almennt er búist við að utanríkisráðherrarnir muni á lokadegi Reykjavíkurf- undarins gefa út yfirlýsingu um stuðning við afvopnunarviðleitni Bandaríkj amanna. Bandamenn Reagans í Evrópu hafa fyrir allnokkru fallist á hug- myndir um „einfalda núlllausn“, niðurrif hverrar einustu meðaldr- ægrar kjarnaflaugar sem staðsett er í Evrópu. Hér er átt við Pershing-2 og Cruise flaugar Bandaríkjamanna og SS-20 skutlur Kremlverja. Þessar víti- svélar geta flogið 1000-5000 kíló- metra leið að skotmarki. Þegar samningaviðræður voru komnar nokkuð áleiðis um þéss- konar flaugar virtust Bandaríkja- menn allt í einu átta sig á því að þeir ættu mun færri skammdræg- ar kjarnaflaugar (sem flogið geta 500-1000 km.) en Sovétmenn í sínum fórum og að ekki kæmi annað til greina en að þeir fengju að eiga jafnmargar. Gorbatsjof Sovétleiðtogi lét krók koma á móti bragði og stakk upp á því að þeim yrði eytt um leið og meðal- flaugunum. Bandaríkjamönnum leist ekki illa á þann málflutning en öðru máli gegndi um ýmsa bandamenn þeirra í NATO. Þeir báru því við að ef skammflaugarnar yrðu látn- ar róa þá væri frelsið í hættu því Varsjárbandalagsríkin ættu mikið meira af hefðbundnum vígtólum. Þrátt fyrir þessar mótbárur féllst hver NATOstjórnin á fætur annarri á að standa ekki í vegi fyrir afvopnunarsamningum og loks féll traustasta vígið þegar stjórnin í Bonn ákvað að vera ekki þrándur í götu þess að samn- ingar gætu tekist um „tvöföldu lausnina". En kálið er ekki sopið þótt í ausuna sé komið. Bonnstjórnin setti tvö skilyrði fyrir samþykki sínu. Hún krefst þess að í kjölfar samnings um meðal- og skammd- rægar flaugar sigli viðræður um Carrington framkvæmdastjóri NATO og utanríkisráðherrarnir Genscher og Shultz. Þessir menn verða í eldlínunni hér í Reykjavík í dag og á morgun. eyðingu kjarnavopna til brúks í orrustum. Það munu vera flaugar og sprengjur sem hægt er að varpa allt að 500 kílómetra leið. Vesturþjóðverjar segja brýna nauðsyn bera til þessa þar sem slík tól muni verða meginógnun við öryggi þeirra eftiv að langdrægari flaugar verða úr sög- unni. Um þetta mál kunna að spinnast deilur á Reykjavíkurf- undinum þar sem öðrum NATO- liðum þykir nóg að gert með „tvöföldu núlllausninni“. Bonnstjórnin krefst þess einn- ig að 72 Pershing 1-A flaugar í sinni vörslu falli utan við samning risaveldanna og að þeir fái yfirráð yfir kjarnaoddum í flaugar þessar en þeir eru nú í fórum Banda- ríkjamanna. Haldi Kohlstjórnin fast við þessa kröfu kann svo að fara að ekkert verði úr samning- um risaveldanna. Alkunna er að Sovétmenn munu ekki undir nokkrum kringumstæðum fallast á að þeirra forni fjandi komist í hóp kjarnvelda. -ks. Bretland Stefnir í Ihaldssigur Verkamannaflokkurinn vinnur á íþeim kjördœmum þarsem mjótter á mununum, og gæti það gjörbreytt líklegustu úrslitum Idag er kosið á Bretlandseyjum og benda niðurstöður skoðan- akannana eindregið til þess að íhaldsflokkurinn beri sigur úr býtum. Ef það fer eftir verður Margrét Thatcher þaulsætnust Breta á forsætisráðherrastóli á þessari öld. Helstu keppinautarnir í kosn- ingunum, Thatcher og Neil Kin- nock, formaður Verkamanna- flokksins, héldu í gær blaða- mannafundi og ítrekuð helstu baráttumál flokka sinna, jafn- framt því sem þau baunuðu hvort á annað. Thatcher segir að sigur Verkamannaflokksins mundi þýða varnarlaust Bretland, óða- verðbólgu og óhefta uppvöðslu- semi vinstri öfgamanna og verka- lýðsfélaga, en íhaldsflokkurinn hefur mjög beitt sér gegn þeim í sínum kosningaáróðri. Kinnock segir aftur á móti að sú fullyrðing Thatchers að hún hafi gert Bretland að stórveldi á nýjan leik beri vott um veruleika- firrta hégómadýrð keisaraynju sem sé á útgönguversinu ásamt hirðmönnum sínum. Spánn Sósíalistar misstu fylgi Sósíalistaflokkur Felipe Gonz- alezar forsætisráðherra hefur tapað nokkru fylgi í þríkosning- unum sem fram fóru á Spáni í gær. Flokkurinn missti hreinan meirihluta í borgunum Madrid, Sevillu og Valenciu en hélt velli í Barcelónu. Þeir hrepptu um 43 prósent at- kvæða og 29 sæti í kosningunum til Evrópuþingsins en þeir höfðu sett sér að markmiði að halda 30 sætum. -ks. Mýgrútur skoðanakannana hefur verið framkvæmdur á Bret- landi að undanförnu, og ber nið- urstöður þeirra að sama brunni: íhaldsflokkurinn hefur 7-8% um- fram höfuðandstæðing sinn, Verkamannaflokkinn, og þýðir sá munur í þingsætum talinn meirihluta upp á 35 til 50 þingsæti í Neðri málstofunni, en alls eru fiingmenn 650 talsins. Meirihluti haldsmanna á þinginu núna er hinsvegar 137 sæti. Verkamannaflokkurinn hefur þó unnið verulega á að undan- förnu, og þá á kostnað Miðju- bandalagsins sem aðeins er spáð um 20% atkvæða. Að vonum beinist athyglin nú mjög að kjör- dæmum þeim þar sem mjótt er á mununum milli flokkanna. Það er helst þar sem fylgi íhalds- flokksins virðist fara minnkandi, og liggur von Verkamannaflok- ksins um sigur í kosningunum í því að sú þróun haldi áfram. Ef þetta gengur eftir í nægilegum mæli getur útkoman hæglega orð- ið sú að enginn flokkur hljóti hreinan meirihluta. HS Tilkynning til lau naskattsg rei ðenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að eindagi launaskatts fyrir mánuðina mars og apríl er 15. júní n.k. Sé launaskattur greiddur eftir ein- daga skal greiða dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn- heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ NESKAUPSTAÐ Sjúkraþjálfarar Fjórðungssjúkrahúsið Neskaupstað óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara í fast starf. Góð vinnuskil- yrði. Upplýsingar í síma 97-7402. Framkvæmdastjóri Frá menntamálaráðuneytinu Lausar stöður við framhaldsskóla: Við Verkmenntaskóla Austurlands eru lausar kennarastöður í íslensku, dönsku og rafiðnagreinum. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavíkfyrir20. júní næstkomandi. Að Fósturskóla íslands vantar stundakennara í þróunarsálar- fræði, heilsu- og sjúkdómafræði og vistfræði. Umsóknir skal senda fyrir 20. júní til skólastjóra, sem veitir nánari upplýsingar. Menntamálaráðuneytið ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 13 þlÓÐVILJINN Höfuðmálgagn stjórnarandstööunnar Áskriftarsími (91)68 13 33

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.