Þjóðviljinn - 12.06.1987, Side 4
LEIÐARI
Nató og lexía landhelgismálsins
Aðildin að hernaðarbandalaginu Nató hefur
aldrei fært íslendingum neitt gott.
í þau fáu skipti sem þjóðin hefði getað haft
gagn af þvingaðri veru sinni í Nató hefur hern-
aðarbandalagið yppt öxlum og látið sér fátt um
finnast.
Fyrir örfáum árum áttu íslendingar í harðvít-
ugri baráttu við Breta, sem varðaði framtíð og
fjöregg íslensku þjóðarinnar: landhelgismálið.
Það var harla lítið gagn að Nató þá.
í samþykktum hernaðarbandaiagsins segir
eigi að síður að árás á eitt ríki bandalagsins
jafngildi árás á þau öll. Vitaskuld var það túlkun-
aratriði, hvort telja bæri endurtekna uppivöðslu
Breta með herskipum í íslenskri landhelgi árás.
Það var hins vegar ótvíræð valdbeiting öflugr-
ar Natóþjóðar gagnvart annarri, margfalt
smærri.
Hvar var Nató þá? Hvar var hjálpin frá banda-
mönnum okkar þá? Hvar var hin lofaða vörn?
Þáverandi aðalritari Nató var að vísu iöinn við
að halda blaðamannafundi í stuttum heimsókn-
um sínum til íslands, þar sem hann kepptist við
að mála sterkum litum vasklega framgöngu
sjálfs sín til að draga Breta úr íslenskri land-
helgi.
Utan íslands varð enginn var við þessa við-
leitni. Hún skipti hvergi máli, nema á síðum
Morgunblaðsins og í munni innlendra nató-
manga.
Landhelgisstríðið unnum við sjálfir. Liðveisla
svokallaðra bandamanna kom aldrei.
Nató brást, þegar okkur lá á.
íslendingar eru nefnilega í augum valdsherr-
anna í Washington ekkert annað en ómerkileg
smáþjóð. Þeir halda að það sé hægt að vaða
yfir okkur á skítugum skónum hvenær sem þörf
krefur. Þeir vita sem er, að það er búið að múta
heilum stjórnmálaflokkum til hlýðni með því að
bera fé á áhrifamenn þeirra gegnum hermang-
ið.
Þessar mútur - því hermangið er ekkert ann-
að en mútugjöld - tryggja hlýðni flokkanna.
Þannig ætla forráðamenn Nató að þeir séu bún-
ir að kaupa vild heillar þjóðar með því að bera fé
á áhrifamenn í Sjálfstæðisflokki og Framsókn-
arflokki.
Þessvegna lét Natóbatteríið nægja að hafa
Jósep Luns í fragt milli íslands og Belgíu, þegar
úfar risu, til að halda marklausa blaðamanna-
fundi um aðgerðir Nató til að draga úr deilu
okkar og Breta. Þessvegna kom aldrei nein
raunveruleg aðstoð frá Nató.
íslendingar skildu þetta vel á sínum tíma.
Reiðin sauð í fólki, sem hafði látið telja sér trú
um að það ætti hauka í hornum Nató. Sjómenn
á Suðurnesjum sýndu hug sinn í verki með því
að loka hliðum inn á svæði herliðsins. Nató
hrapaði í áliti hjá íslensku þjóðinni, vegna þess
að það brást öllum loforðum, öllum fyrirheitum.
Síðan veit íslensk þjóð, að einskis liðsinnis er
að vænta frá Nató, þegar lítilli þjóð liggur á. Það
var lexía landhelgisstríðsins.
Vestræn samvinna nýtur vissulega fylgis á
íslandi. Tímar pólitískrar einangrunarstefnu eru
löngu liðnir, og við viljum efla samstarf við
frændur okkar og vini í Evrópu. Við viljum líka
eiga gott samstarf við Bandaríkjamenn. Þjóðir
Bandaríkjanna eiga merka sögu, þær eiga ekki
að gjalda vondra ráðamanna.
Vitaskuld er hinu borgaralega lýðræði Vest-
urlanda í mörgu áfátt. En íslendingar telja það
þó margfalt eftirsóknarverðara heldur en helsið,
sem flokksræði sumra hinna svokölluðu sósíal-
ísku ríkja leggur á þjóðir sínar.
Það er hins vegar ekki sjálfkrafa ástarjátning
við hernaðarbandalag af þeirri gerð sem Nató
er. íslendingar verða að gera greinarmun á
þessu tvennu.
Að aðhyllast stjórnarfarshugmyndir vest-
ræns lýðræðis er allt annað en fallast á aðild að
hernaðarbandalaginu Nató.
Á íslandi hefur óprúttnum stjórnmálaöflum,
sem hafa náð töglum og högldum á ríkisfjölmiðl-
um, hins vegar tekist að gera þetta tvennt
jafngilt. Þau hafa innprentað í vitund almenn-
ings, að aðildin að Nató sé hið sama og að vilja
ekki flokksræði á sovéska vísu.
Það er hins vegar kórvilla.
Frá Nató hefur ekkert gott runnið til íslend-
inga. Fjárburður gegnum hermang á áhrifa-
menn í Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki
með tilheyrandi spillingu er það sem við höfum
hingað til fengið. Á venjulegu íslensku alþýðu-
máli heitir það mútur.
f stríði gætu herstöðvar Nató jafnframt fært
okkur tortímingu og dauða, vegna þess að her-
stöð er skotmark.
Annars getur íslensk þjóð ekki vænst af Nató.
Gleymum ekki lexíu landhelgisstríða.
-ÖS
KLIPPT OG SKORIÐ
AÐIB, MIDVTKUDAGUR 10. JÚNl 1987 B
fnávígi við Björnimi
Rætt við bandarískan orustuflugmann
>ó að liðin séu um fimmtán
* frá því að fyrstu F-15-
íturnar voru teknar í notkun
*u þær enn þá með þeim fuli-
imnustu sem völ er á. Við
*um töiuvert stoltir yfir þvf“,
igði Curt Elkin einn orustu-
ugmannanna á Keflavfkur-
ugveili í samtali við
orgunbiaðið.
BF-15-þotumar á Keflavíkur-
ígvelli eru útbúnar með sérstök-
n utanáliggjandi eldsneytis-
lymum, en einungis örfár
igsveitir f veröldinni notast við
ka geyma. 1 þeim eru saman-
gt 1200 gallon af eldsneyti til
Jbótar þeim tvö þúsund sem eru
nnri geymum vélarinnar. Þessir
ymar valda mjög lítilli aukaloft-
átstöðu og eru því hagkvæmari
auka eldsneytisgeymar áfestir
angjunum. Það er nauðsynlegt
rir okkur að nota svona geyma
r sem oft þurfum við að ferðast
t að 4-500 mflur frá Keflavíkur-
jgvelli til þess að fylgjast með
véskum sprengjuflugvélum. Að
ki getum við tekið eldsneyti á
igi. Þess vegna getum við verið
t að 4-5 klukkustundir í lofti í
MorgunblaAið/Eintr Falur
Hernaðarrit
Moggans
Það er ekki á hverjum degi sem
Morgunblaðið telur sér skylt að
upplýsa almenning um allan þann
hernaðarbúnað sem búið er að
koma fyrir í landinu á vegum
Bandaríkjamanna né þær um-
fangsmiklu hernaðarfram-
kvæmdir sem staðið hafa nær
sleitulaust yfir á kjörtímabili
þeirrar ríkisstjórnar sem nú er að
geispa golunni.
í tilefni NATO-fundarins sá
blaðið þó ástæðu til að gefa út
heila í>j óðvilj aþy kkt af dýrðaróði
um hernaðartækni og hernaðar-
framkvæmdir. Utanríkisráðherr-
ar NATO-ríkjanna fá þar að
viðra skoðanir sínar um mikil-
vægi þess að viðhalda „heimsfrið-
inum“ og birtur er ógnarlangur
listi yfir þá íslenska fræðimenn
sem hafa notið námsstyrkja frá
NATO og upplýst að íslensku
krónurnar í vísindasjóðnum skili
sér tólffalt til baka í styrkjum.
Það var sjálfsagt ekki von á öðru.
Framkvæmt
fyrir gatið
En fleiri athyglisverðar tölur fá
Moggalesendur að melta. Til
dæmis að í fyrra hafi verið fram-
kvæmt á hernarsvæðinu fyrir
rúma 2.2 miljarða króna en það
er viðlíka há upphæð og halla-
reksturinn á ríkissjóði var orðinn
hjá Þorsteini Pálssyni fyrir kosn-
ingar og áður en menn fóru að
reikna út enn hærri tölur í stjórn-
armyndunarviðræðunum. Og
þótti flestum nóg um.
Upplýst er að framkvæmdum í
Helguvík miði vel áfram en þar er
búið að koma fyrir olíutönkum
neðanjarðar sem taka um 30 þús.
rúmmetra og eftir á að bæta við
öðrum 19 þús. rúmmetrum, auk
þess að ljúka við umfangsmiklar
hafnarframkvæmdir.
Mogginn segir einnig frá því að
verið sé að steypa upp 9 sprengju-
held flugskýli fyrir nýju F-15 orr-
ustuþoturnar en þegar búið að
fullklára fjögur slík.
Ófullkomið
járngrindarhús
Nýja stjórnstöðin sem hefur
verið mikið feimnismál á síðum
Morgunblaðsins fær nú allt í einu
smáumfjöllun enda rækilega út-
listuð þörfin fyrir þessa kjarnork-
usprengjuheldu byggingu, eða
með orðum Mbl.: „Um þessar
mundir eru að hefjast fram-
kvæmdir við byggingu nýrrar
stjórnstöðvar í stað hinnar núver-
andi, sem er í járngrindarhúsi
með mjög ófullkominni aðstöðu
að öllu leyti. Þarna verður um að
ræða tveggja hæða byggingu,
gluggalausa, úr styrktri
steinsteypu. Byggingin verðurút-
búin sérstökum hreinsibúnaði,
vegna hugsanlegrar mengunar
frá efnavopnum og á þannig að
geta hýst starfsmenn stjórnstöðv-
arinnar í allt að eina viku. Örygg-
isráðstafanir þessar eru í sam-
ræmi við staðla Atlantshafsband-
alagsins enda verður byggingin
að miklu leyti fjármögnuð úr
mannvirkjasjóði NATO.“
Ja ljótt er ástandið og með öllu
óskiljanlegt hvernig bandarísk-
um generálum hefur tekist að
hafa stjórn á herliðinu í jafnlé-
legri stjórnstöð og nú er notast
við, járgrindarhúsi með ófull-
kominni aðstöðu. Það er því full
þörf á að bæta úr og byggja sér-
styrkt steinhús uppá tvær hæðir
og ekki er verra að hafa hana
gluggalausa, menn verða þá ekki
fyrir utanaðkomandi truflunum
við stjórnstörfin.
Spurning
um tilgang
En það er erfitt að gera sér
grein fyrir þörfinni á öllum þess-
um sérhönnuðu byggingum, olíu-
birgðarstöðvum, kafbáta-
höfnum, sérstyrktum flug-
skýlum, gluggalausum stjórn-
stöðvum, ratsjárstöðvum í öllum
landsfjórðungum, 9 kafbáta-
leitarflugvélum og fjölda F-15 or-
ustuþotna sem eru m.a. búnar
hver um sig fjórum hitaleitandi
'og radarstýrðum eldflaugum og
sex hlaupa hríðskotabyssum sem
hleypa af 100 skotum á sekúndu.
Svo fljúgum
við heim
Já það er erfitt að gera sér grein
fyrir öllu þessu tilstandi og öllum
þessum fjáraustri í drápsbúnað
og tæki þegar lesið er yfir viðtal
við einn af sjálfum orustuflug-
mönnunum bandaríkjahers á
Keflavíkurflugvelli sem Morgun-
blaðið er svo vinsamlegt að birta.
Sá heitir Curt Elkin og segist svo
frá starfi sínu við eftirlit með
óvininum í austri:
„Þegar þessar vélar (sovéskar)
hafa nálgast ísland meira en góðu
hófi gegnir förum við til móts við
þær og fljúgum við hlið þeirra.
Þegar þær halda heim á leið ger-
um við slíkt hið sama. Það er svo
sem ekki mikið sem við gerum en
þetta er frekar skemmtilegt - þó
að áhorfendum mundi eflaust
leiðast."
Er von að maður spyrji.
-*g-
þJÓÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur
Skarphéðinsson.
Fréttaatjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Hrafn Jökulsson, Hjörleifur Sveinbjörnsson, IngunnÁsdísardóttir,
Kristín Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiðsson
(íþróttir), MagnúsH. Gíslason, MörðurÁmason, ÓlafurGíslason,
RagnarKarlsson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, StefánÁsgrfmsson, Vil-
borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrlte- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlltstelknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdaatjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofu8tjórl: Jóhannes Harðarson.
‘ Skrlfstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson.
Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýslngar: Baldur Jónasson, Olga Clausen, Guðmunda Kristins-
dóttir.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðlr: Soffía Björgúlfsdóttir.
Bflstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbrelöslu- og afgrelðslustjórl: HörðurOddfríðarson.
Afgreiðsla: Ðára Sigurðardóttir, Krístfn Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, rltstjórn:
Sfðumúla 6, Reykjavfk, sfmi 681333.
Auglýsingar: Sfðumúla 6, sfmar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljanshf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 55 kr.
Helgarbiöö: 60 kr.
Áskrlftarverð á mánuði: 550 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. júní 1987